Kraftlyftingar eru fyrst stundaðar á Íslandi í kringum árið 1960 og þá sem grunnþjálfum frjálsíþróttamanna. Talið er að 1955 til 56 hafi frjálsíþróttamenn farið að æfa kraftlyftingagreinarnar með lyftingastöngum, sem sleggjukastarinn Þórður B. Sigurðsson hafði keypt í Bandaríkjunum. Fyrst var æft í íþróttahúsi Háskólans, en svo í KR- heimilinu. Um 1960 er farið að æfa í ÍR húsinu og stofnuð óformleg lyftingadeild í ÍR. Árið 1963 var hætt að leyfa lyftingar í ÍR húsinu og fóru menn þá í Ármannsheimilið við Sigtún.Fyrsta mótið í kraftlyftingum fór fram 1965 og var það liðakeppni milli Ármanns og KR og voru þrír í liði og keppendur því 6 alls. KR liðið sigraði með 1543kg, en Ármenningar lyftu 1513kg. Í liði KR voru Björn R. Lárusson, Friðrik Guðmundsson og Ari Stefánsson. Í liði Ármanns voru Svavar Carlsen, Guðmundur Sigurðsson og Óskar Sigurpálsson. Árið 1985 þegar liðin voru 20 ár frá þessu móti voru keppendurnir kallaðir saman til myndatöku og birtist þessi mynd í ársskýrslu KRAFT 1985.
Á fyrstu árum íþróttarinnar fengu menn húsnæði hjá íþróttafélögunum fyrir æfingar og var það aðallega ÍR, Ármann og KR. Sérstök lyftingadeild var stofnuð í KR 1970 og var mest lagt upp úr kraftlyftingum hjá því félagi. Árið 1968 fóru félagar í Grímudeild KR, þeir Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Sigurgeirsson, Ómar Úlfarsson og Jón Unndórsson o.fl að æfa með heimsmíðuðum tækjum í KR heimilinu. Árið eftir voru keypt sænsk tæki og batnaði þá árangur manna. Fyrir komu glímumannanna í KR heimilið höfðu frjálsíþróttamennirnir nokkrum árum fyrr æft á sama stað. Þegar þarna var komið höfðu þeir flutt sig um set inn í Ármannsheimili við Sigtún, en þar voru aðallega æfðar lyftingar.

Árið 1973 var leigt rúmgott húsnæði í Brautarholti 22 og æfðu þar flestir, sem lyftu í Reykjavík, hvort sem um var að ræða frjálsíþróttamenn, lyftingamenn eða kraftlyftingamenn, en á þessum árum sérhæfðu menn sig lítið og kepptu ýmist í kraftlyftingum eða lyftingum. Árið 1974 fluttu menn sig í Sænska frystihúsið, sem Reykjavíkurborg útvegaði að frumkvæði Alberts Guðmundssonar. Þar æfðu allir þar til í byrjun febrúar 1976. Þá fluttu Ármenningar sig í Sigtúnið, en KR ingar í KR heimilið. Undir vor 1976 fundu KR ingar gamla þvottalaugahúsið í Laugardal og fengu það til afnota frá Reykjavíkurborg gegn því að gera það upp. Það varð svo með tímanum eini staðurinn í Reykjavík, þar sem hægt var að æfa með lyftingatækjum. Stóð þetta til 1984, að flutt var í Engihjalla 8 í Kópavogi, en KR lyftingadeild og nokkrir félagar þar keyptu æfingastöðina og lyftingadeildin var nokkru áður farin að reisa lyftingahús á KR lóðinni, þar sem nú stendur líkamsræktarstöð. Á þessum árum fóru að spretta upp líkamsræktarstöðvar víða um bæinn og hættu þá félögin að útvega mönnum æfingaaðstöðu og fór svo um 1985 við stofnun Kraftlyftingasambandsins að allir kraftlyftingamenn í Reykjavík voru ófélagsbundnir, en úti á landi hagaði öðru vísi til. Eftir að Æfingastöðin leið undir lok upp úr 1990 varð Gym 90 höfuðvígi kraftlyftinga í Reykjavík og hefur svo verið síðan.

Á Akureyri hófust kraftlyftingar um 1973, er haldið var sýningamót á Akureyri. Frumkvöðull þar var Vilhjálmur Ingi Árnason. Verulegur skriður kom á málin sama ár, er Björgvin Sigurjónsson flutti frá Eyjum eftir gos og fékk send þaðan tæki. Fyrst var æft í kjallara lögreglustöðvarinnar, en síðan í ófullgerðu verslunarhúsnæði Árna

 

hvað er æ þetta
View Results