Guðni Sigurjónsson píparinn úr Kópavogi er einn hæfileikaríkasti íþróttamaður
sem komið hefur fram á Íslandi. Hann hóf sinn feril í frjálsum íþróttum í
heimabæ sínum Kópavogi. Hann varð strax mjög efnilegur í boltaíþróttum og varð
meðal annars Íslandsmeistari í handbolta og fótbolta með liðum sínum í yngri
flokkunum og keppti síðar í frjálsum íþróttum og varð einn fljótasti
spretthlaupari landsins auk þess sem hann keppti í kastgreinum með góðum
árangri. Ég man fyrst eftir Guðna þegar hann keppti í Sterkasti maður Íslands í
Laugardalshöll 1985. Þá var hann nokkuð þéttur hlaupari, en var einn af
léttustu keppendum mótsins. Frægt atvik úr mótinu komst í fréttirnar, en Guðni
handleggsbrotnaði í sjómann við Hjalta Úrsus Árnason í mjög jafnri keppni og
landsmenn heyrðu þegar beinið brotnaði í handlegg Guðna, en þessi keppni sýndi
hversu ótrúlegur járnkarl Guðni var orðinn. Fyrsta kraftlyftingamót Guðna er
sennilega árið 1988, þar sem hann setti strax Íslandsmet í réttstöðulyftu.
Mesta afrek Guðna var án efa heimsmeistaratitilinn frá 1991, en um tveim árum
síðar fer Guðni að æfa hnefaleika með atvinnumennsku í huga, en aðstæðurnar
urðu honum ekki hagstæðar og hann fékk ekki að berjast fyrsta bardagann eins og
vonir höfðu staðið til. Guðni hefur ekki fengið þá athygli og virðingu sem hann
á skilið, því kraftlyftingar og hnefaleikar hafa verið taldar jaðaríþróttir að
mati fjölmiðla síðustu áratugi. Guðni æfði líka hnefaleika, þegar
áhugahnefaleikar voru bannaðir hér heima. Mikil þögn hefur hvílt um Guðna hin
síðari ár og hann forðaðst alla tíð sviðljósið og reyndi ætið að koma sér undan
fjölmiðlaviðtölum, en hann félst á nú um daginn að veita Stevegymvefnum viðtal.
Guðni er örugglega eini Íslendingurinn sem orðið hefur heimsmeistari í
viðurkenndri einstaklingsgrein fullorðinna, en hefur engu að síður náð að halda
sér utan sviðsljóssins. Eftir mikla leit hafðist svo uppá Guðna og var hann
meira en viljugur að veita mér viðtal. Guðni mætti í Álftamýrina og gat litið á
pípurnar hjá mér í leiðinni.

Hvaðan ertu?
Ég er fæddur 1963, 14. september (Guðni er í meyjarmerkinu og ég sem hélt að
einstaklingar í meyjarmerkinu yrðu aldrei afreksíþróttamenn, enda er ég sjálfur
meyja) hef búið nær alla ævi í Kópavogi. Ég stundaði nám í Víghólaskóla í
Kópavogi, en fór svo beint í ættargreinina pípulagnir, því ég fór beint í
Iðnskólann 16. ára og lauk sveinsprófi 19. ára. Meistarapróf í greininni lauk
ég svo árið 2001.
Þú byrjaðir snemma að stunda íþróttir?
Já ég byrjaði meðal annars í fótbolta og frjálsum íþróttum. Blandaði því svona
saman. Varð 12. ára Íslandsmeistari með Breiðablik í fótbolta. Byrjaði á
svipuðum tíma í frjálsum, þó aðalega hlaupum og keppti fyrir UMSK. Fyrsta
hlaupið sem ég keppti í var 17 júní hlaup í Víðavangshlaupi Íslands og ég náði
að sigra í því. Varð fljótlega Íslandsmeistari í 800 metra hlaupi innanhús.
Annars hefði ég átta að hafa með mér metabókina mína. Ég á þetta nefnilega allt
skráð einhversstaðar. Til dæmis var ég Íslandsmeistari í fótbolta og handbolta
í 4. flokki sama árið, en ég varð Íslandsmeistari með Breiðablik í fótbolta og
handbolta æfði ég með KR. Ég komst í drengjalandsliðið í fótbolta spilaði að ég
held 9. landsleiki og skoraði eitt mark, en frjálsar íþróttir voru farnar að
taka yfir.

Hver urðu helstu afrek þín þar?
Ég var nokkrum sinnu Íslandsmeistari í spretthlaupum, þá aðallega í styttri
vegalengdunum, en í þeim er keppt innanhús. Ég átti meðal annars Íslandsmet í
50 metra hlaupi. Eg var strax orðinn sterkur og var orðinn ágætur í köstum þó
aðalega sleggju, þar sem ég vann einhverja titla. Fer auðvitað að styrkja mig
með þessu, eins og gengur og gerist. Byrja að lyfta frekar seint að einhverju
ráði eða þegar ég var 20. ára. Ég hætti í frjálsum að mestu árið 1989, en
auðvitað skarst þetta eitthvað.
Þú byrjaðir þá í kraftlyftingum árið 1989?
Já og æfi þær nær eingöngu í 4. ár. En ég var samt búinn að lyfta ágætis
viktum. Rak um skeið Orkubankann við Vatnsstíg, en að þeim rekstri komu líka
Erlendur Valdimarsson og Stefán Hallgrímsson. Í Orkubankanum æfðu meðal annars
frjálsíþróttamennirnir Pétur & Andrés Guðmundsynir, Unnar Garðarsson og fleirri
þekktir frjálsíþróttamenn. Á þessu tímabili áður en í byrjaði í kraftlyftingum
keppti ég m.a í keppninni Sterkasti maður Íslands árið 1985. (Sú keppni var
einna frægust af þeim. Þar sem Jón Páll dansaði með sjálfa Húsafellshelluna og
Guðni sjálfur handleggsbrotnaði í keppni við Hjalta Úrsus í jafnri keppni, en
Guðni var einna léttastur keppenda, sem komu flestir úr Kraflyftingum.)

Hvernig gekk svo til að byrja með?
Þetta byrjaði mjög vel. Ég setti strax Íslandsmet í réttstöðulyftu á fyrsta ári
í 110 kg flokki, en kraftlyftingaferill minn stóð í kringum 4. ár, eða þangað
til ég breyti til, eftir síðast mót mitt árið 1993. Ég fer fljótlega að keppa á
alþjóðlegum mótum, Evrópu og Heimsmeistaramótum. Á Evrópumótunum gekk mér
ekkert sérstaklega vel, en fékk þó brons á mótinu sem var haldið hér á Íslandi
í Valsheimilinu árið 1990. Heimsmeistaramótin gengu hins vegar mun betur. Ég
varð heimsmeistari í Mora í Svíþjóð árið 1991 í 110 kg flokki. Árið eftir vinn
ég silfur í samanlögðu í sama flokki og á síðasta móti mínu árið 1993 er ég í
raun lang sterkastur, en þar vann ég gullið í réttstöðulyftu, en ég lyfti mestu
þyngd mótsins 362,5 kg, en ég reyndi við 377,5 sem var heimsmetstilraun og
hafði það upp, en fékk ógilt, en ég hefði þá fengið gullið í samnlögðu, ef
þetta hefði gengið. Á þessu móti tók ég 380 kg í hnébeygju, sem var langbesta
hnébeygja sem ég hafði nokkru sinni tekið.
Svo eftir árið 1993 ferð þú að reyna þig á nýjum sviðum.
Já, við förum að æfa hnefaleika nokkrir og í framhaldinu fór ég til Las Vegas
með Andrési Guðmundsyni og kepptum á móti sem kallað var Top Man Championship
og ég náði 3. sæti. Ég fer svo aftur til Vegas og geri samning við mann að
nafni John Black og ég æfði meira og minna hnefaleika í rúm 2. ár. Þetta var á
árunum 1995 til 1997. Þarna úti hélt hann mér uppi með mat og húsaskjól. Ég
æfði 6 daga vikurnar, fjóra tíma á dag og æfði eins og atvinnumaður. Boxaði
meðal annars við æfingafélaga Tysons og Lewis. Hitti marga fræga boxara og
boxaði æfingabardaga við nokkra sem þá voru þekktir. Ég tók nokkrar lotur við
Brian Nielsen (sem var heimsþekktur í Danmörku. Hann var m.a heimsmeistari í
einu af litlu samböndunum, var nær ósigraðu þegar Tyson keppti við hann i
Parken. “Pulsu” Brian vann m.a Larry Holmes) og við vorum nokkuð jafnir. Ég
æfði þó mest með Brian La Spada, en hann var heimsmeistari í einu af þrem stóru
samböndunum í Cruiserweight (sem er næst þyngsti flokkurinn, sem menn eins og
Hollyfiled komu upp úr) Brian þessi var mjög stór eða 190 cm á hæð og var ein
95 kg. Ég æfði með honum nær daglega. Hann var allveg rosalega fimur og hraður,
en ég náði að standa vel í honum og blóðagaði hann meðal annars vel, sagði
Guðni og glotti.
Hittir þú fleirri fræga boxara?
Sá Mike Tyson nokkrum sinnum, en hann bjó og æfði í nágrenni við mig. Það var
alltaf mikið af fólki í kringum hann og erfitt var að komast að honum. Svo
hitti ég stundum Andrew Golata pólska boxarann, en hann var oft að æfa á
svipuðum tíma og ég í gymminu. Svo var ég auðvitað að lyfta mikið, auðvitað
meira en hnefaleikamenn gera. Ég lyfti þungt, repsaði mikið og hljóp mikið. Í
gymminu var ég að líka að leiðbeina einum mjög efnilegum kraftlyftingamanni, en
hann tók 320 kg í hnébeygju, 250 kg á bekk og 310 í réttstöðulyftu. Hann var
stór og mikill og setti einhver bandarísk unglingamet.
Svo áttir þú að keppa í þínum fyrsta atvinnumannabardaga
Já, það var alltaf verið að bíða eftir tækifæri á að koma á fyrsta bardaganum.
Þeim er oft skotið á á stóru kvöldunum, þegar stóru nöfnin eru að berjast. Allt
var orðið klárt fyrir fyrsta bardagan, leyfi, læknisskoðun osf. Bardaginn átti
að fara fram í Utahfylki og ég fór að sofa kvöldið áður tilbúinn að taka
slaginn, en keppninni var aflýst vegna þess að andstæðingur minn forfallaðist.
Alls fór ég um þrjár ferðir til Bandaríkjanna og kom heim í 2-3 mánuði á milli.
Að síðustu þurfti ég að koma heim til að sinna mínum málum í nokkra mánuði, en
aðstæðurnar voru þannig að ég gat ekki farið út aftur næstu mánuðina. Svo var
veiktist ég, þjáðist af svefnleysi, sem byrjaði að ágerast framhaldinu.
Þannig að þú þurftir að taka þér smá pásu?
Já og svo tók brauðstritið auðvitað við. Ég hef líka fyrir fjölskyldu að sjá.
Ég á tvö börn með fyrri konu minni. 16. ára stelpu og 10 ára strák, svo eitt
fimm ára barn með núverandi sambýliskonu. Strákurinn sem er einungis 10 ára er
mjög kröftugur, en ég kalla hann litla boxarann. Hann er orðin heil 75 kíló.
En hvar er gullið?
Gullið sjálft sem ég vann í Svíþjóð árið 1991 er geymt á íþróttaminnjasafninu á
Akranesi, en ég er ennþá með hitt gullið sem ég fékk fyrir bestu
réttstöðulyftuna árið 1993. Ég er ekki búinn að gefa þeim á Akranesi formelgt
leyfi til að geyma aðalgullið, en er að hugsa um að gera það. Þetta er
gífurlega skemmtilegt safn, meðal annars eru margir munir sem tilheyra
kraftaíþróttum, meðal annars eru margar myndir af Jóni Páli Sigmarsyni.
Þannig að þú ert bara að sinna pípulögnum þessa daganna?
Já og þær eru grunnirinn að öllu saman, úr þeim fékk ég þann kraft sem ég hef
búið að sagði Guðni að lokum, en þegar ég sá sterklegar krumlur Guðna og
kröftuga frammhandleggi vissi ég að þetta var dagsatt.
Þar með var Guðni rokinn, en auðvitað hefði maður viljað spyrja hann nánar um
ýmsar skemmtilegar sögur og afrek. Meðal annara afreka Guðna er Íslandsmet í
réttstöðulyftu, sem sett var á Flóabátnum Baldri inní miðjum Breiðarfirði.
Einnig hefði verið fróðlegt að forvitnast hvort gleðimolalíferni hafi tekið
sinn toll og veiða uppúr Guðna nokkrar skemmtilegar sögur í Ömma “Crazystíl”,
meðal annars sagan þegar Unnar Garðarsson, Hjalti Úrsus og Guðni björguðu
landsþekktum stjórnmálamanni úr götuslagsmálum fyrir framan Glaumbar og úr varð
mikið nætursvall. Sú saga mun birtast hér á vefnum fljótlega. Maður getur samt
ekki útilokað “comeback” frá svona náttúrutölli sem getur ennþá lagt hvern sem
er í sjómanni og getur enn þann dag í dag komið beint úr pípunum á fjallaskónum
og rifið upp tæplega 300 kg í réttstöðulyftu ískaldur, án þess að æfa neitt er
enginn venjulegur maður.
Við þökkum Guðna heimsmeistara fyrir fróðlegt spjall og óskum honum alls hins
besta í
framtíðinni.
Viðtalsritari: Gunnar Fr. Rúnarsson (Master)




testa þetta
22803 - good site. PeterPan