Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum 2006
Mótið var haldið í Garðaskóla, laugardaginn 22. apríl og hófst kl. 13:00. Úrslit voru þessi:
Continue reading ‘Úrslit - Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum 2006′
Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum 2006
Mótið var haldið í Garðaskóla, laugardaginn 22. apríl og hófst kl. 13:00. Úrslit voru þessi:
Continue reading ‘Úrslit - Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum 2006′

Um daginn datt mér í hug atvik sem ég varð vitni að fyrir nokkrum árum. Nokkrum árum segi ég…
í minningunni eru ekki nema nokkur ár síðan ég var10-12 ára þótt einhver dagatöl kunni að vera mér ósammála um það. En hvað um það, atvikið átti sér stað einhvern tíman á árunum 1990-1992, ég man það ekki alveg. Eitt er þó á hreinu, þetta var fyrir 16. janúar 1993 en þá dó Jón Páll Sigmarsson, landsins dáðasti sonur.
Ég, pabbi og bróðir minn (þá átti ég bara einn bróður) vorum á leið út á flugvöll að sækja mömmu sem hafði farið í einhverja vinnuferð til Danmerkur. Við biðum spennt við glerið eins og svo margir aðrir og fylgdumst með farþegunum koma niður rúllustigann, leita að kerrum, farangri og streyma inn í fríhöfnina. Continue reading ‘Saga Mánaðarins - Ekkert mál fyrir Jón Pál’
Guðni Sigurjónsson píparinn úr Kópavogi er einn hæfileikaríkasti íþróttamaður
sem komið hefur fram á Íslandi. Hann hóf sinn feril í frjálsum íþróttum í
heimabæ sínum Kópavogi. Hann varð strax mjög efnilegur í boltaíþróttum og varð
meðal annars Íslandsmeistari í handbolta og fótbolta með liðum sínum í yngri
flokkunum og keppti síðar í frjálsum íþróttum og varð einn fljótasti
spretthlaupari landsins auk þess sem hann keppti í kastgreinum með góðum
árangri. Ég man fyrst eftir Guðna þegar hann keppti í Sterkasti maður Íslands í
Laugardalshöll 1985. Þá var hann nokkuð þéttur hlaupari, en var einn af
léttustu keppendum mótsins. Frægt atvik úr mótinu komst í fréttirnar, en Guðni
handleggsbrotnaði í sjómann við Hjalta Úrsus Árnason í mjög jafnri keppni og
landsmenn heyrðu þegar beinið brotnaði í handlegg Guðna, en þessi keppni sýndi
hversu ótrúlegur járnkarl Guðni var orðinn. Fyrsta kraftlyftingamót Guðna er
sennilega árið 1988, þar sem hann setti strax Íslandsmet í réttstöðulyftu.
Mesta afrek Guðna var án efa heimsmeistaratitilinn frá 1991, en um tveim árum
síðar fer Guðni að æfa hnefaleika með atvinnumennsku í huga, en aðstæðurnar
urðu honum ekki hagstæðar og hann fékk ekki að berjast fyrsta bardagann eins og
vonir höfðu staðið til. Continue reading ‘VIÐTALIÐ - GUÐNI SIGURJÓNSSON’

Röðin er nú komin að nokkuð umdeildum jaxli sem setti mikinn svip á kraftlyftingar og íslenskt viðskiptalíf um nokkurra ára skeið: VÖLUNDUR ÞORBJÖRNSSON. Hann keppti mikið í kraftlyftingum á árunum 1993-97 og varð snemma sterkur á bekk og tók um tvítugt 150kg slopplaust á sínu fyrsta byrjendamóti. Völundur hafði mestan áhuga á guðsgreininni og varð m.a. tvisvar Íslandsmeistari á bekk 1996 og 1997 auk sigra á Sumarmótum KRAFT ofl.. Continue reading ‘VÖLUNDUR ÞORBJÖRNSSON’
Þetta sagði Benni tarfur við Hjalta úrsus á milli atriða í kraftakeppninni Arnold Classic snemma árs 2006.
Það eru einmitt mörg dæmi um það í íþróttum að þeir vanmetnu koma á óvart og standa sig þrusuvel. Það er ekki þar með sagt að andstæðingar Benna hafi vanmetið hann þótt Dúddi karlinn hafi haldið það.. Benni hafði nefnilega sýnt alþjóðlega kraftaheiminum fram á gífurlegt afl sitt árið áður þegar hann setti allra tíma heimsmet í réttstöðu með 440kg og á eftir að taka meira síðar…vanmetinn,ofmetinn eða réttmetinn..
Hinn nýbakaði heimsmeistari í páver Auðunn Jónsson verndari er í 2 síðna opnu viðtali í DV föstudaginn 24 nóv. s.l.
Þar er fjallað lauslega um feril kappans sem spannar 22 ár og komið lauslega inn á fjölskyldumál þótt engin sérstök nía á kellingarsviðinu sé nefnd til sögunnar nema ein fyrrverandi…
Spurningunni um hvað þarf að hafa til að verða heimsmeistari svaraði Ádí svona: “Menn geta verið að dútla eitthvað í þessu en þá ná menn engum árangri. Til að ná langt verður maður að vera í þessu alla leið og þá er þetta í hausnum á manni alla daga, alltaf. - Maður verður auðvitað að vera létt geggjaður til að halda þessari rútínu.”
Það er hinn rauntengdi blaðamaður Baldur Beck sem tók þetta fróðlega viðtal við heimsmeistarann.
recentkomment