Úti í Stavanger á HM í páver mun vera hersing af klakverjum og öðrum til að ná upp andanum fyrir okkar fólk..
Frá klakanum fara með þeir,Griss (Grétar Hrafnsson)99kg!!!,Valdi Borgarnesbolla, Boris, Villi mexikani, Diddi Rizzo æskufélagi Ádís og svo flæðimolinn Dúddi Ferg ásamt hinni hollensku Mitu Overvlet.
Frá Hollandi kemur milljarðalífvörðurinn og bakarinn Litli Fúsi (Birgir Þorsteins)
Frá Danaveldi kemur Gaui Austfjarðatröll.
Og í Noregi eru þeir Baldur skafl, Margeir bróðir hans og svo aðalmaðurinn á staðnum, sjálfur olíufurstinn Freyr Aðalsteinsson.
Gjörfulegt lið með allra handa reynslu og anda svo ferðin verður eflaust hin hrikalegasta…



recentkomment