tFyrrverandi æfingastöðvaeigandi hinn umdeildi Finnur Karlsson sem lítur út eins og fjandinn sjálfur að margra dómi í myndinni um Jón Pál er í ömurlegu stríðsviðtali í sunnudags Mogganum…
Já, Finnsi er fjandinn sjálfur upprisinn og ekkert annað..
tFyrrverandi æfingastöðvaeigandi hinn umdeildi Finnur Karlsson sem lítur út eins og fjandinn sjálfur að margra dómi í myndinni um Jón Pál er í ömurlegu stríðsviðtali í sunnudags Mogganum…
Já, Finnsi er fjandinn sjálfur upprisinn og ekkert annað..
Hérna á ekki að vera hægt að skilja eftirathugasemd við þessa færslu punktur
Auðunn heimsmeistari!!!Hinn hrikalegi kappi Auðunn Jónsson varð í dag heimsmeistari með glæsibrag á HM í páver í Stavanger í Noregi..
Hann keppti í 125kg flokki og vann með 20kg mun í samanlögðu. Tölur hans voru þessar samkvæmt hraðskeyti sem fréttastofan fékk: 395-280-365-1040kg.
Til hamingju Auðunn!!
TIL HAMINGJU ÍSLENDINGAR!!
Wade Hooper USA sigraði í 75kg flokknum á HM og setti frábært met í hnébeygju..
En Hooper sem áður hefur einnig sett beygjumet í 67,5 tók núna 347,5kg en tölur hans í greinunum urðu: 347,5-225-250-822,5kg. Er hann eini kaninn til þessa til að vinna gull í Stavanger.
Jafnaldri Magisters, Isagawa frá Japan (sem fjallað er m.a. um í grein um réttstöðulyftu á Menningarsíðu Magisters) sigraði í 56kg flokknum og hefur kallinn unnið allavega 10 heimsmeistaratitla!
Sigurvegar í hinum ýmsu flokkum karla eru eftirtaldir:
82,5:Jan Wegiera Póll 330-252,5-290-872,5kg
90: Patrik Turesson Svíþjóð 320-200-315-835kg
100:Michal Wilk Póll 360-260-325-945kg
110: Ivailo Hristov Búlg 380-260-330-970kg.
Pólverjar hafa verið mjög sigursælir á mótinu og hlotið 3 meistara til þessa.
Auðunn keppir svo á morgun í 125 og bíðum vér spenntir eftir því…

Wade Hooper
Þetta er eitt þeirra.

Menn hafa verið að benda fréttastofunni á það að hið nýja ótrúlega heimsmet Andy Boltons hafi verið óhrein lyfta samkvæmt myndböndum..
Ekki verður annað séð en frá sumum sjónarhornum að lyftan sé vafasöm,útrétting tæp, þótt lyftan sem slík sé létt. Þetta er þó ekkert öðruvísi en Bolton hefur verið að lyfta áður og alltaf verið gilt. Reyndar eru lyftur svona framkvæmdar algengar hjá yfirmolum og fara nánast alltaf í gegn, líka hér á landi…
Það er alltaf álitamál hvenær menn eru búnir að rétta úr sér og reglurnar segja að axlirnar verða að vera læstar aftur en það er nú lítið farið eftir því allsstaðar.
Eitt er víst, að þegar Benni tarfur setur met þá er það óumdeilanlega vel framkvæmt…
Hver var flæðimolinn?

Maðurinn í búningsklefanum snéri baki í hinn nýkomna. Maðurinn var talsvert flykki að sjá. Hann var vel yfir einn og áttatíu á hæð en þó ekki tveggja metra tré. Fæturnir nokkuð þykkar hvapkenndar stoðir sem stóðu furðu vel undir fargi ofurþunga af sérstakri tegund flæðimassa.
Musinn eða fjósið var mjúkt, fyrirferðamikið og vel alið. Þar fyrir ofan sást fremur þykkt bak en lausholda af áreynsluleysi. Þetta bak hafði einhverntíma “verið eitthvað” og tilheyrði ekki venjulegum sófajötni.
Hnakkaspikið hringaðist vinalega um hálsinn sem eðlilegt framhald af því er neðar var. Höfuðið breitt eins og koppur í gamalli baðstofu og lítið hárið snöggklippt.
Maðurinn hreyfði sig furðu snarlega svo dúnmjúkir síðubitarnir slettust til eins og bægsli á stórhveli. Stelling mannsins var nú þannig að sá nýkomni sá ekki enn í andlit hans. Þó mátti greina að hann var vel kviðsaður þegar frambygginguna bar við neðri hluta gluggans á móti, þannig að útsýnið skertist verulega.
Hinn nýkomni var enginn annar en Magnús Ver, og hann virti nú betur fyrir sér baksvipinn á manninum fyrir framan hann og spáði í hver þetta væri…
Stundin var Gym 80 snemma árs 2006. Maggi hugsaði nú málið í nokkrar sekúndur. Honum datt helst í hug að þarna færi stórfyrirferðin Magnús Korntop 250kg skjóða… En ef þetta væri hann þá sæist Loggurinn á svæðinu með ilmspreyið góða…
Aftur hreyfði maðurinn sig til. Strongest sá nú að þetta gat ekki verið Korntoppurinn. - Hver gat verið í sama flæðiklassa?
Maðurinn með þykktina, bægslin og þyngdina hreyfði sig nú enn meira. Hann snéri sér alveg við….
Eitt langt augnablik leið.
Og 4 sinnum Sterkasti maður heims horfðist í augu við fornvin sinn: Hjalta Úrsus!
Þetta sagði Maggi Ver þegar Baldvin bekkur spurði Strongest hvort lýsingin á Hjalta Úrsus væri ekki of gróf í Sagu Mánaðarins á Kraftaheima síðunni…..
Þetta er einmitt málið að sá sem étur á sig feiknin öll af fleski það er honum sjálfum að þakka og engum öðrum….
Góðan dag
held að þetta hafi tekist núnA
recentkomment