Author Archive for Sir-Magister

Er Finnur fjandinn sjálfur?

tFyrrverandi æfingastöðvaeigandi hinn umdeildi Finnur Karlsson sem lítur út eins og fjandinn sjálfur að margra dómi í myndinni um Jón Pál er í ömurlegu stríðsviðtali í sunnudags Mogganum…

Já, Finnsi er fjandinn sjálfur upprisinn og ekkert annað..

Hver var flæðimolinn?

Hver var flæðimolinn?

Maðurinn í búningsklefanum snéri baki í hinn nýkomna. Maðurinn var talsvert flykki að sjá. Hann var vel yfir einn og áttatíu á hæð en þó ekki tveggja metra tré. Fæturnir nokkuð þykkar hvapkenndar stoðir sem stóðu furðu vel undir fargi ofurþunga af sérstakri tegund flæðimassa.
Musinn eða fjósið var mjúkt, fyrirferðamikið og vel alið. Þar fyrir ofan sást fremur þykkt bak en lausholda af áreynsluleysi. Þetta bak hafði einhverntíma “verið eitthvað” og tilheyrði ekki venjulegum sófajötni.
Hnakkaspikið hringaðist vinalega um hálsinn sem eðlilegt framhald af því er neðar var. Höfuðið breitt eins og koppur í gamalli baðstofu og lítið hárið snöggklippt.
Maðurinn hreyfði sig furðu snarlega svo dúnmjúkir síðubitarnir slettust til eins og bægsli á stórhveli. Stelling mannsins var nú þannig að sá nýkomni sá ekki enn í andlit hans. Þó mátti greina að hann var vel kviðsaður þegar frambygginguna bar við neðri hluta gluggans á móti, þannig að útsýnið skertist verulega.
Hinn nýkomni var enginn annar en Magnús Ver, og hann virti nú betur fyrir sér baksvipinn á manninum fyrir framan hann og spáði í hver þetta væri…
Stundin var Gym 80 snemma árs 2006. Maggi hugsaði nú málið í nokkrar sekúndur. Honum datt helst í hug að þarna færi stórfyrirferðin Magnús Korntop 250kg skjóða… En ef þetta væri hann þá sæist Loggurinn á svæðinu með ilmspreyið góða…
Aftur hreyfði maðurinn sig til. Strongest sá nú að þetta gat ekki verið Korntoppurinn. - Hver gat verið í sama flæðiklassa?
Maðurinn með þykktina, bægslin og þyngdina hreyfði sig nú enn meira. Hann snéri sér alveg við….
Eitt langt augnablik leið.
Og 4 sinnum Sterkasti maður heims horfðist í augu við fornvin sinn: Hjalta Úrsus!

Sir-Magister með nýja færslu

Góðan dag

Kári kári

held að þetta hafi tekist núnA


hvað er æ þetta
View Results