Fituprósenta er mönnum oft hugleikin og nota þeir töluna oft til að meta í hve góðu formi þeir eru.  En tilfinning fyrir því hver hún er, er oft mjög á reiki.  Einnig eru mælitækin jafn misjöfn og þau eru mörg.  Ýmsir vilja ennfremur meina að nákvæmasta mælitækið sé gott auga á reyndum þjálfara.

Þess vegna tók ritstjórn kraftaheima saman smá grein sem hjálpar mönnum vonandi að fá tilfinningu fyrir því hvaða útlit fylgir hvaða fituprósentu.

(Unnið að mestu uppúr bókinni “Sliced” eftir Bill Reynolds og Negrita Jayde)

1. Fullt hús = Um eða yfir 20% líkamsfita.  Ekki sjáanleg skil á milli smærri vöðva og rétt aðeins sjást skil á milli stórra vöðvahópa.  Ef maður er hærri en þetta í fitu, þá er maður hreinlega bara feitur.

Mynd 1. FLÆÐIMOLI (Vöðvar blandaðir með mikilli fitu yfir 30%) Mynd nr.1 fylgir sögu á Kraftaheimum: HÉRNA

Mynd 1 b

2. Harður = Farinn að sjást smá skurður/aðskilnaður á milli axlavöðva og bicep.  Magavöðvar ekki farnir að sjást.  Í kring um 15% fita.

Mynd 2

3. Köttaður = Meiri skil farin að sjást á milli vöðva, sérstaklega á kassanum og bakinu, útlínur magavöðva farnar að greinast.  Um 12% fita.

Mynd 3

4. Skorinn = Skurður á milli vöðva orðinn dýpri í handleggjum, brjóstkassa, fótum og baki og magavöðvar koma fram þegar menn spenna.  Um 10% fita.


Mynd 4, sami og í 3 orðinn skornari
http://forum.bodybuilding.com/attach…1&d=1068554724

5. Ripped = Magavöðvar sjást alltaf.  Æðar farnar að sjást vel í handleggjum, skurður í kassa og baki augljós, andlitsfylling farin að minnka.  7-9% fita.

Mynd 5

6. Shredded = Þverskurður farinn að koma ofan í skurðinn þegar menn spenna.  Menn líta út fyrir að vera litlir í fötum, en hrikalegir án fata.  Æðar fara að sjást neðarlega á kvið og á fótum.  Yfirleitt næst ekki að halda þessu ástandi nema í nokkra daga í senn, keppnisform á vaxtaræktarmönnum.  Um 5-7% fita.

Mynd 6

7. Sliced = Vöðvar og sinar farnar að sjást í andliti þegar menn tyggja.  Þverskurður á vöðvum farinn að sjást alls staðar og æðar útum allt.  Nánast ekkert vatn undir húð, aðeins hægt að halda þessu ástandi í nokkrar klukkustundir í senn, fyrir utan að þetta ástand er fjarri því að vera hættulaust út af vatnsskorti.  Um 3% fita.

Mynd 7

Vonandi gefur þetta mönnum einhverja hugmynd um það í hvaða prósentu þeir eru í raun og veru og hjálpar þeim að setja sér raunsæ markmið hvað varðar líkamsfitu.

Share on Facebook

Comments 21 Comments »

Ritstjórn Kraftaheima hefur fengið það staðfest hjá kónginum sjálfum Sigfúsi Fossdal að hann sé nú að undirbúa endurkomu sína í páverinn eftir bætingavonar-álagsveiki sem hann varð fyrir snemma í sumar. Farið verður í víking til bæjarins Mikkeli í Finnlandi  í nóvember sömu helgi og HM er í Bath!.Þótt WPC sambandið hafi verið stofnað í Bandaríkjunum árið 1986 þá stendur það aðallega föstum fótum í Finnlandi. Þetta páversamband er þekkt fyrir umdeildar lyftur og tvöfaldan útbúnað og einnig þekkt fyrir að hafa lang sterkustu menn jarðar á sínum snærum og má þar fyrir utan Fúzilla nefna klakverja eins og Magnús Ver og Benna tarf. Benni setti sem kunnugt er sitt fræga heimsmet í deddi 440kg á HM hjá WPC einmitt í Finnlandi árið 2005. Kannski keppir Tarfurinn einnig á þessu móti með Fúsa en það hefur ekki fengið staðfest.

Sigfús er alhliða kraftamaður og vippar hér upp 133 kg grjóti…

Af Sigfúsi er það að frétta að hann hefur tekið sér nokkra mánuði í fitness prógram og pumpað pávergreinarnar 8-10 reps og er talinn nokkuð skafinn á hans mælikvarða um 168kg að skjóðuþyngd en hefur mest verið 180kg. Hin fræga fituprósenta kappans er nú dottin úr 25% oní aðeins 21,3% og mun þetta allt skila sér á bekknum í Finnlandi eins og menn munu sjá.

MÖRG ERU PLÖN EN STAÐREYND ÞESSI:

Það sem aðrir verða að vita
um vitund sína og fleira,
21 prósent tröllafita
er til þess að lyfta meira.

Share on Facebook

Comments 3 Comments »


Steve að þjálfa Bjarka hrika í deddi…

FER STEVE MEÐ HRIKANUM Á HM??
Foringinn hafði samband við ritstjórann sem er í forsvari landsliðsnefndar Íslands og ÍKF Metal sem sendir páverlið á HM í Bath í nóvember..Erindið var að viðra hugmynd hans að Bjarki Ólafsson hriki myndi keppa úti…Skráningarfrestur er enn ekki runninn út svo þetta er raun-möguleiki…”Nú,sagði Magister heldurðu að þetta gangi upp,hvernig stendur á þessu eiginlega -þú verður að fara með og bera ábyrgð á honum!” Það stóð ekki á svari hjá Steve: “Ég gerið það, þetta er ekkert mál ég þarf að klára þetta geðprógram með heimsmeti!”

ÍKF Metal styður alla til keppni erlendis sem hafa árangur en Bjarki er vissulega góður í réttstöðunni þar sem hann er nú handhafi Íslandsmetsins 332,5kg í 125kg flokki sem hann setti á Íslandsmótinu fyrir viku. Þess má geta að það eru ekki nema rúm 25 ár síðan að svipuð þyngd var frægt Evrópumet hjá Arthuri Bogasyni (þá undir merkjum LSÍ aðili að IPF) en Hrikinn á vel inni..(Heimsmetið hjá WPF er 350kg)
Hrikinn fær því að keppa ef hann vill og getur… en fyrst þarf að borga keppnisgjaldið!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Á Íslandsmóti ÍKF Metal í réttstöðulyftu togaði SIr Magister Cat ( Kári Catzilla) upp 256kg í 75kg flokki sem var bæði öldungaheimsmet og heimsmet í opnum flokki í sérskráðri lyftu (single lift)
Hlekkur á lyftuna sem Haukur þvottur tók er: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Hello to you all.

Just to remind you that PowerBurn is starting in September at both Sporthusið, Kopavogur and Viking Gym, Akureyri.

Places are filling up fast so register now to get on a class.

If you want to join PowerBurn@Sporthúsið email gunnhildur@sporthusid.is

Hope to see you all soon

Gemma
Burn Fat - Increase Power!

Share on Facebook

Comments 1 Comment »


Baldvin Skúlason.Mr. Bekkur

Hinum magnaða Metal landsliðshóp Íslands sem er á leið í nóvember á Heimsmeistaramótið í páver, bekk og deddi í Englandi hefur bætst góður liðsauki…Það er sjálfur Baldvin bekkur..Það hefur verið alveg hljótt um kappann frá því hann varð heimsmeistari öldunga á bekk í Vínarborg fyrir tveimur árum en hann hefur nú séð að það er ekki hægt að lifa á einum titli til frambúðar…Reyndar hafa meiðsl í öxl, trysep og olnboga verið að hrjá hann í eitt ár en nú hefur ýmislegt breytst til hins betra en það er nudd hjá Ömma og almenn heimsmeistara-heilun hjá Catzilla..grunnurinn í þeirri andlegu endurhæfingu eru trúin og sannfæringin á tvö orð: HEIMSMET! - HEIMSMEISTARI!- auk setningarinnar: “ÉG TEK ALLT SEM SETT ER Á STÖNGINA!” en það er kjörorð Catzilla í formi…

Baldvin hefur aðeins náð einni bekkpressuæfingu eða svo s.l. 3-4 mánuði en kappinn hefur engu að síður haldið við sínum endalaust stórum handleggjum með ýmsum tegundum af handlóðapumpi og um leið og skjóðan skánar aðeins hendir hann hann upp 200+kg…Baldvin mun keppa í flokki 125, 50-54 ára og líklegast taka á því í deddinu líka en það eru fáir öldungar yfir fimmtugt í heiminum sem geta deddað 250+ hvað svo sem þeir eru þungir..Kappinn mun því sækja að tveimur heimsmeistaratitlum…

Þeir skráðir keppendur í BATH sem eiga eftir að borga keppnisgjald greiða 8.000kr fyrir eitt mót..16.000 fyrir tvö mót inn á eftirfarandi reikning Íslandsbanka: 513-26-603907
Kennitala: 110653-5229

Share on Facebook

Comments 8 Comments »

Þeir sem eru ákveðnir í að fara á HM í Bath og hafa enn ekki keypt sér flug þá vill ritstjórinn benda þeim á að í dag er tilboð hjá Icelandair Reykjavík- London fram og til baka á aðeins 33.000kr. Ritstjórinn og nokkrir aðrir hafa þegar nýtt sér þetta tilboð og keypt ferðina frá 1 nóv til 9 nóv.

Athugið að þeir sem hafa enn ekki greitt keppnisgjald HM 8.000kr á mót með kostnaði ættu að drífa í því!

Reikningur: 513-26-603907

kennitala: 110653-5229

Greiðist fyrir 3sept annars getið þið ekki keppt!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Íslandsmót WPC sambandsins í páver fer fram 11 september í Jakabóli. Þetta verður hörkmót á hörkudegi..11 september er dagurinn til bætinga!
Skráning er á netfangið:magnusver63@hotmail.com

Share on Facebook

Comments No Comments »