Saga Kraftlyftinga

Hér er saga kraftlyftinga rituð af Ólafi Sigurgeirssyni. Fyrsta formanni Kraftlyftinga-sambandsins.   SAGA KRAFTLYFTINGA Á ÍSLANDI OG
HELSTU VIÐBURÐIR ÁRIN 1965 – 2002
  Kraftlyftingar eru fyrst stundaðar á Íslandi í kringum árið 1960 og þá sem grunnþjálfum frjálsíþróttamanna. Talið er að 1955 til 56 hafi frjálsíþróttamenn farið að æfa kraftlyftingagreinarnar með lyftingastöngum, sem sleggjukastarinn Þórður B. Sigurðsson hafði keypt í Bandaríkjunum. Fyrst var æft í íþróttahúsi Háskólans, en svo í KR- heimilinu. Um 1960 er farið að æfa í ÍR húsinu og stofnuð óformleg lyftingadeild í ÍR. Árið 1963 var hætt að leyfa lyftingar í ÍR húsinu og fóru menn þá í Ármannsheimilið við Sigtún.

Fyrsta mótið í kraftlyftingum fór fram 1965 og var það liðakeppni milli Ármanns og KR og voru þrír í liði og keppendur því 6 alls. KR liðið sigraði með 1543kg, en Ármenningar lyftu 1513kg. Í liði KR voru Björn R. Lárusson, Friðrik Guðmundsson og Ari Stefánsson. Í liði Ármanns voru Svavar Carlsen, Guðmundur Sigurðsson og Óskar Sigurpálsson. Árið 1985 þegar liðin voru 20 ár frá þessu móti voru keppendurnir kallaðir saman til myndatöku og birtist þessi mynd í ársskýrslu KRAFT 1985.
Á fyrstu árum íþróttarinnar fengu menn húsnæði hjá íþróttafélögunum fyrir æfingar og var það aðallega ÍR, Ármann og KR. Sérstök lyftingadeild var stofnuð í KR 1970 og var mest lagt upp úr kraftlyftingum hjá því félagi. Árið 1968 fóru félagar í Grímudeild KR, þeir Sigtryggur Sigurðsson, Ólafur Sigurgeirsson, Ómar Úlfarsson og Jón Unndórsson o.fl að æfa með heimsmíðuðum tækjum í KR heimilinu. Árið eftir voru keypt sænsk tæki og batnaði þá árangur manna. Fyrir komu glímumannanna í KR heimilið höfðu frjálsíþróttamennirnir nokkrum árum fyrr æft á sama stað. Þegar þarna var komið höfðu þeir flutt sig um set inn í Ármannsheimili við Sigtún, en þar voru aðallega æfðar lyftingar.

Árið 1973 var leigt rúmgott húsnæði í Brautarholti 22 og æfðu þar flestir, sem lyftu í Reykjavík, hvort sem um var að ræða frjálsíþróttamenn, lyftingamenn eða kraftlyftingamenn, en á þessum árum sérhæfðu menn sig lítið og kepptu ýmist í kraftlyftingum eða lyftingum. Árið 1974 fluttu menn sig í Sænska frystihúsið, sem Reykjavíkurborg útvegaði að frumkvæði Alberts Guðmundssonar. Þar æfðu allir þar til í byrjun febrúar 1976. Þá fluttu Ármenningar sig í Sigtúnið, en KR ingar í KR heimilið. Undir vor 1976 fundu KR ingar gamla þvottalaugahúsið í Laugardal og fengu það til afnota frá Reykjavíkurborg gegn því að gera það upp. Það varð svo með tímanum eini staðurinn í Reykjavík, þar sem hægt var að æfa með lyftingatækjum. Stóð þetta til 1984, að flutt var í Engihjalla 8 í Kópavogi, en KR lyftingadeild og nokkrir félagar þar keyptu æfingastöðina og lyftingadeildin var nokkru áður farin að reisa lyftingahús á KR lóðinni, þar sem nú stendur líkamsræktarstöð. Á þessum árum fóru að spretta upp líkamsræktarstöðvar víða um bæinn og hættu þá félögin að útvega mönnum æfingaaðstöðu og fór svo um 1985 við stofnun Kraftlyftingasambandsins að allir kraftlyftingamenn í Reykjavík voru ófélagsbundnir, en úti á landi hagaði öðru vísi til. Eftir að Æfingastöðin leið undir lok upp úr 1990 varð Gym 90 höfuðvígi kraftlyftinga í Reykjavík og hefur svo verið síðan.

Á Akureyri hófust kraftlyftingar um 1973, er haldið var sýningamót á Akureyri. Frumkvöðull þar var Vilhjálmur Ingi Árnason. Verulegur skriður kom á málin sama ár, er Björgvin Sigurjónsson flutti frá Eyjum eftir gos og fékk send þaðan tæki. Fyrst var æft í kjallara lögreglustöðvarinnar, en síðan í ófullgerðu verslunarhúsnæði Árna Árnasonar.

Mestan áhuga sýndi Grétar Kjartansson. Eftir þetta fengu menn inni í íþróttavallarhúsinu skamma hríð. Við byggingu íþróttahallarinnar fengu þeir, sem lyftu svo sérstakan sal, sem nefndur var Jötunheimar og þar æfa þeir enn, sem ekki eru á líkamsræktarstöðvunum.

Sérsamband var stofnað innan ÍSÍ árið 1973, Lyftingasamband Íslands og hafði sambandið bæði lyftingar og kraftlyftingar á sinni könnu. Fyrir stofnun sambandsins var starfandi lyftinganefnd innan ÍSÍ frá 1969. Hélst þetta fyrirkomulag þar til 2. mars 1985,að stofnað var sérstakt samband um kraftlyftingar KRAFT, en nokkru áður var Lyftingasambandið orðið klofið, því starfandi voru innan þess tvær deildir. Önnur fyrir kraftlyftingar og hin fyrir lyftingar.

Fyrsta Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum var haldið 1971, en fyrir þann tíma voru haldið fjölmörg mót á vegum félaganna. Helst er þar að nefna Kraftlyftingamót KR, sem var árlegum viðburður í mörg ár. Upplýsinga um mót er helst að hafa úr skýrslum lyftingadeildar KR, en þar sem hún er stofnuð 1970 er ómögulegt að leita skriflegra heimilda lengra aftur.

1971.
Fyrsta Íslandsmeistaramótið haldið. Keppendur voru 18 og lyftu tveir keppendur yfir 700kg. Óskar Sigurpálsson lyfti 702.5kg í þungavigt og Björn R. Lárusson lyfti 722.5 í yfirþungavigt.

1972.
Annað Íslandsmeistaramótið var haldið með 21 keppanda. Einn keppandi lyfti yfir 700kg og var það Björn R. Lárusson með 730kg. Hann lyfti m.a. 200kg í bekkpressu, en Björn var fyrstur Íslendinga til að lyfta 200kg í bekkpressu og 300kg í réttstöðulyftu.

1973.
Keppendur voru 20 á þriðja Íslandsmeistaramótinu. Þrír lyftu yfir 600kg. Guðmundur Guðjónsson í 82.5kg flokki lyfti 620kg. Ólafur Sigurgeirsson í 90kg fl. lyfti 632.5kg og Sigtryggur Sigurðsson í +110kg fl. lyfti 660kg.
Á Kraftlyftingamóti KR þetta árið lyfti Ólafur Sigurgeirsson 612.5kg í 82.5kg fl., Óskar Sigurpálsson 705kg í þungavigt og Sigtryggur Sigurðsson 642.5kg í yfirþungavigt.

1974.
Keppendur á Íslandsmeistaramótinu voru 3.

1975.
Keppendur á Íslandsmeistaramótinu voru 13. Tveir tóku yfir 600kg og einn yfir 700kg. Friðrik Jósefsson í 90kg flokki lyfti 700kg, Skúli Óskarsson í 75kg flokki lyfti 642.5kg og Gústaf Agnarsson í 110kg fl. lyfti 620kg.
Þetta ár fór Skúli Óskarsson á HM í Birmingham Englandi og fékk hann bronsverðlaun í 75kg flokki með 612.5kg.

1976.
Skúli Óskarsson verður NM meistari í 75kg fl. og lyftir 650kg. Mótið fór fram í Þrándheimi, Noregi.

Keppendur á Íslandsmeistaramótinu voru 7. Einn keppendi lyfti yfir 600kg. Var það Gústaf Agnarsson í 110kg fl. með 660kg.
Á kraftlyftingamóti KR lyfti Friðrik Jósefsson 782.5kg.

1977.
Tvö bronsverðlaun unnust á Norðurlandamóti í Svíþjóð.
Í 75kg. flokki Skúli Óskarsson með 250kg í hnéb. 125kg í bekkpressu, 275kg í réttstöðulyftu og alls 650kg.
Í 90kg. flokki Ólafur Sigurgeirsson með 230kg , 177.5kg, 240kg og samtals 647.5kg.
Á Íslandsmótinu þetta árið voru keppendur 12 talsins, einn gestur og tveir fatlaðir keppendur. Einn lyfti yfir 700kg og var það Óskar Sigurpálsson í 110kg flokki með 715kg. Tveir lyftu yfir 600kg. Friðrik Jósefsson í 90kg fl. 635kg og Helgi Jónsson í 100kg flokki 630kg.

1978.
Fyrsta Evrópumeistaramótið haldið í Birmingham, Englandi. Eftirtaldir kepptu:
1. sæti 75kg. fl. Skúli Óskarsson 280 130 295 Samt. 700kg. Skúli setti 4 Norðurlandamet og 5 Íslandsmet.
5. sæti 90kg. fl. Ólafur Sigurgeirsson 255 185 255 695kg.
4. sæti 100kg fl. Friðrik Jósefsson 300 200 290 790kg.
Friðrik setti 4 Íslandsmet á mótinu.
Íslandsmótið var haldið í anddyri Laugardalshallarinnar. Einn keppandi lyfti yfir 700kg og var það Óskar Sigurpálsson í 110kg fl með 722.5kg. Einn keppandi lyfti yfir 600kg og var það Skúli Óskarsson í 82.5kg fl. með 672.5kg.
Norðurlandamót haldið í Finnlandi. Skúli Óskarsson keppti í 75kg flokki og féll úr keppni eftir að hafa sett Norðurlandamet í hnébeygju 282.5kg. Sverrir Hjaltason keppti í 82.5kg flokki og varð í 6. sæti. Helgi Jónsson keppti í 100kg flokki og varð í 3. sæti og Óskar Sigurpálsson keppti í 110kg flokki og varð í 4. sæti.
Heimsmeistaramótið fór fram í Turku í Finnlandi í nóvember. Skúli Óskarsson fékk silfur í 75kg fl. og lyfti 722.5kg, en sigurvegarinn var með 732.5kg. Skúli lyfti Heimsmeti í hnébeygju 300.5, en fékk ógilt 2-1. Óskar Sigurpálsson varð í 6. sæti með 800kg í samanlögðu.
Gleðilegustu tíðindi starfsársins bárust í janúar, er Skúli Óskarsson var kjörinn íþróttamaður ársins.

1979.
Yfir 20 keppendur voru á meistaramóti Íslands og lyftu tveir yfir 800kg í samanlögðu. Það voru Óskar Sigurpálsson í 110kg flokki með 820kg og Arthúr Bogason í +110kg flokki með 805kg.
Evrópumeistaramótið var haldið í Svíþjóð. Þeir Óskar Sigurpálsson og Gunnar Steingrímsson kepptu þar. Gunnar varð í 5. sæti í 90kg fl.með 707,5kg og Óskar í þriðji í 110kg flokki með 826kg.
Norðurlandameistaramót var haldið í Reykjavík í september. Gísli V. Einarsson og Skúli Óskarsson urðu meistarar. Daníel Olsen, Jón Páll Sigmarsson og Óskar Sigurpálsson fengu silfurverðlaun. Hörður Markan Sverrir Hjaltason og Hörður Magnússon fengu bronsverðlaun og Ísland varð stigahæsta þjóðin með 89 stig á undan Svíþjóð með 87 stig.
Heimsmeistaramótið fór fram í Dayton, Ohio, USA. Sex íslenskir keppendur mættu þar. Kristján Kristjánsson í 67.5kg fl. varð í 10. sæti. Skúli Óskarsson keppti í 75kg flokki og féll úr. Sverrir Hjaltason keppti í 82.5kg fl og varð í 6. sæti með 715kg.

Gunnar Steingrímsson keppti í 90kg flokki og varð í 5. sæti. með 810kg. Hann lyfti 330kg í réttstöðulyftu og vann þá grein og meðal annars meistarann Vince Anello. Þessu ætluðu mótshaldarar ekki að trúa. Óskar Sigurpálsson varð í 5. sæti í 110kg fl. með 815kg. og Arthúr Bogason í 6. sæti með 822.5kg.

1980.
Yfir 20 keppendur voru á meistaramótinu og tveir með yfir 800kg. Arthúr Bogason með 812.5 og Jón Páll Sigmarsson með 810kg.
Í aprílmánuði var Skúla Óskarssyni boðið á World Cup, sem haldið var í London, en einungis úrvalsmönnum var boðið. NBC sjónvarpsstöðin bandaríska tók upp mótið og m.a. var haft viðtal við Skúla. Skúli fékk silfur með 720kg, en sigurvegarinn lyfti 732.5kg.
Í maímánuði fóru þrír keppendur á Evrópumeistaramót í Zurich í Sviss. Skúli Óskarsson keppti i 75kg flokki og lyfti 715kg og fékk silfur. Sverrir Hjaltason keppti í 82.45kg flokki og varð í 5. sæti með 742.5kg. og Jón Páll Sigmarsson keppti í 125kg flokki og fékk silfur með 787.5kg.
Ísland fór með fullskipað æið á Norðurlandameistaramót í Drammen í Noregi. Skúli Óskarsson varð NM meistari með 715kg. Sverrir Hjaltason fékk silfur í 82.5kg fl. með 740kg., Ólafur Sigurgeirsson fékk brons í 90kg fl. með 655kg. og Jón Páll Sigmarsson varð NM meistari með 845kg.
Það sem hæst bar á árinu gerðist á NM unglinga í lyftingum 1. nóvember. Þá lyfti Skúli Óskarsson nýju Heimsmeti í réttstöðulyftu í 75kg flokki 315.5kg.
Skúli Óskarsson kjörinn öðru sinni Íþróttamaður ársins.
Þetta ár keppti fyrsta konan í kraftlyftingum. Var það Guðrún Ingólfsdóttir með 300kg í samanlagðan árangur.

1981.
Evrópumeistaramótið var haldið í borginni Parma á Ítalíu í maí mánuði. Níu keppendur mættu til leiks frá Íslandi, Kári Elíson, Halldór Eyþórsson, Skúli Óskarsson, Sverrir Hjaltason, Ólafur Sigurgeirsson, Viðar Sigurðsson, Hörður Magnússon, Jón Páll Sigmarsson og Víkingur Traustason.
Kári varð í 6. sæti í 67.5kg fl. með 600kg, Halldór féll úr í 75kg fl. Skúli varð í 4. sæti í 82.5kg fl. með 770kg., Sverrir Hjaltason fékk brons í 90kg flokki með 822.5kg., en Ólafur Sigurgeirsson féll úr í sama flokk. Viðar varð í 5. sæti í 100kg fl með 717,5kg, Hörður í 7. sæti í 110kg fl. með 755kg.Jón Páll fékk silfur í 125kg fl. með 852.5kg og Víkingur Traustason fékk silfur í +125kg fl. með 800kg.
Íslandsmeistaramótið var haldið með stæl og voru keppendur yfir 30. Tveir keppendur lyftu yfir 800kg , Sverrir Hjaltason í 90kg flokki 820kg, Víkingur Traustason í +125 kg flokki 810kg. og svo var í fyrsta skipti á Íslandi lyft yfir 900kg í samanlögðu. Var það Jón Páll Sigmarsson í 125kg flokki með 912.5kg.
Norðurlandameistaramótið fór fram í Svíþjóð og kepptu þar 6 Íslendingar. Kári Elíson varð í 4. sæti í 67.5kg fl. með 595kg. Skúli Óskarsson varð í 2. sæti í 75kg fl. með 705kg., Hörður Magnússon varð í 4. sæti í 100kg fl. með 775kg. Guðmundur Eyjólfsson varð í 4. sæti í 110kg fl með 700kg og Jón Páll Sigmarsson var NM meistari í +125kg fl. með 890kg.
Heimsmeistaramótið var haldið í Calcutta Indlandi. Skúli Óskarsson varð í þriðja sæti í 75kg flokki með 700kg og Jón Páll Sigmarsson einnig í 3. sæti í 125kg flokki með 912.5kg.
HM öldunga var haldið í USA í september þar keppti Jóhannes Hjálmarsson í 100kg fl.

Jón Páll Sigmarsson var þetta árið kjörinn Íþróttamaður ársins.

1982.
Norðurlandameistaramótið var haldið í Finnlandi. Þrír kepptu frá Íslandi. Kári Elíson, Halldór Eyþórsson og Sverrir Hjaltason. Kári lyfti í 67.5kg fl og fékk silfur með 615kg, Halldór keppti í 75kg fl. og fékk brons með 572.5kg. Sverrir keppti í 90kg fl og náði þriðja sæti með 735kg.
Í aprílmánuði var haldið sjónvarpsmót. Þar lyfti Jón Páll Sigmarsson 937.5kg.
Íslandsmeistaramótið var að þessu sinni haldið á Akureyri og kepptu 28. Skúli Óskarsson keppti þarna í 82.5kg flokki og var þetta síðasta mót hans. Árangur hans var þessi: 310 145 320 775kg.
Í víkingakeppninni Í Svíþjóð bætti Jón Páll samanlagða árangurinn í 125kg fl upp í 952.5kg.
Jóhannes Hjálmarsson, Akureyri verður HM meistari í öldungaflokki.

1983.
Heimsmeistaramótið fór fram í Gautaborg, Svíþjóð. Kári Elíson og Flosi Jónsson kepptu.
Á árinu voru stofnaðar tvær nefndir innan Lyftingasambandsins. Ein til að sinna lyftingum og hin til að sinna kraftlyftingum. Var þetta fyrsti vísirinn að því sem óhjákvæmilega hlaut að gerast, að stofnuð yrðu tvö sérsambönd, eins og víðast er erlendis.

1984.
Á þessu ári var í fyrsta sinn haldið unglingamót. Kom þar fram nýr maður, sem vann óvænt stigakeppni. Var það Hjalti Árnason með 782.5kg í samanlögðu í 125kg flokki.
Evrópumeistaramótið fór nú fram í Noregi og kepptu þar Kári Elíson og Hjalti Árnason. Kári fékk silfurverðlaun í 67.5kg flokki og lyfti 622.5kg. Hjalti féll úr keppni í þyngsta flokki.
Um sumarið var haldin landskeppni milli Íslands og Skotlands í borginni Paisley. Skotar unnu naumlega. Jón Páll bætti samanlagða metið í 125kg flokki upp í 955kg. Tveir Íslendingar lyftu yfir 800kg samanlagt. Hörður Magnússon lyfti 820kg í 100kg flokki. og Hjalti Árnason 822.5kg í +125kg flokki.
Á sjónvarpsmóti 1. desember náði Jón Páll Sigmarsson besta árangri Íslending í samanlögðu, er hann lyfti 970kg í 125kg flokki.

1985.
Þann 28. febrúar var haldinn fundur í stjórn Lyftingasambands Íslands og samþykkt þar tillaga kraftlyftingamanna um lausn þeirra frá samstarfi við lyftingamenn innan Lyftingasambandsins. Samþykkt var að afsala til kraftlyftingamanna aðildum að öllum alþjóðlegu kraftlyftingasamböndunum. Stjórn ÍSÍ brást illa við þessu og fundaði við LSÍ, en málþófinu lauk á endanum með því að ÍSÍ lagði til lagabreytingar hjá LSÍ. Stóð um þetta mál mikil og löng deila og ekki síst eftir 2. mars 1985, þegar kraftlyftingamenn stofnuðu eigið sérsamband utan við ÍSÍ. Sambandið átti eftir að sanna sig og hefur það með tímanum skipað sér í fastan sess innan íslenskrar íþróttahreyfingar.
Á þessu ári fór fram fyrsta Íslandsmót kvenna og kepptu þar 10 konur. Á meistaramóti karla voru 24 keppendur. Jón Páll með 917.5kg, Hörður Magnússon var með 820kg í 110kg fl , Víkingur Traustason með 860kg í 125 kg fl. og Hjalti Árnason með 857.5kg í sama flokki.

Á árinu var í fyrsta sinn keppt í sveitakeppni milli bæjarfélaga. Reykjavík vann, svo Akureyri og í þriðja sæti Kópavogur.
Fyrsta Íslandsmótið í bekkpressu var haldið áárinu. Keppendur voru 14.
Hið nýstofnaða Kraftlyftingasamband, KRAFT hélt fyrstu keppnina “Sterkasti maður Íslands”. Mótið vakti mikla athygli og varð Jón Páll Sigmarsson sigurvegari, en hann hafði fyrr á árinu unnið keppnina “Sterkasti maður heims.”
Norðurlandamótið var haldið í Þrándheimi. Þar kepptu Kári Elíson og Víkingur Traustason. Báðir urðu NM meistarar. Kári í 67.5kg flokki með 637.5kg og Víkingur með 850kg í 125kg. fl.
Norðurlandamót unglinga var haldið í Finnlandi. Ísland átti keppendur í þremur þyngstu flokkunum og fengu tvö gull og eitt silfur. Torfi Ólafsson vann +125kg flokk með 810kg, Hjalti Árnason vann 125kg flokk með 780kg og Matthías Eggertsson fékk brons í 110kg flokki með 635kg.
Evrópumótið fór að þessu sinni fram í Hollandi. Kepptu þar Kári Elíson og Víkingur Traustason. Kári fékk silfur í 67.5kg flokki með 652.5kg. og Víkingur varð í 5. sæti með 805kg.
Unglingalandsliðið fór fullskipað á HM unglinga í Þýskalandi. Magnús Ver Magnússon fékk bronsverðlaun í 110kg fl. með 657,5kg, Hjalti Árnason fékk silfur í 125kg flokki með 735kg og Torfi Ólafsson varð Heimsmeistari í +125kg flokki með 807.5kg. Ísland varð í þriðja sæti í stigakeppni þjóða.
Heimsmeistaramót karla var haldið í Espoo í Finnlandi. Þar kepptu Kári Elíson og Víkingur Traustason. Kári fékk silfurverðlaun í 67.5kg flokki og lyfti 660kg. en Víkingur féll úr keppni.

1986.
Í febrúar fór landslið Íslands alla leið til Californíu til að etja kappi við landslið ríkisins og var þetta mót haldið samhliða meistaramóti Californíu. Var þetta í borginni Fresno, skammt norðan við LA. Bandaríkjamennirnir mörðu sigur með 96 stig gegn 93, en tveir féllu úr keppni af íslenska liðinu. Baldur Borgþórsson, Víkingur Traustason, Torfi Ólafsson og Hjalti Árnason sigruðu í sínum flokkum. Torfi lyfti 912.5kg í samanlögðu.
Meistaramót Íslands fór að þessu sinni fram á Akureyri. Keppendur voru 31. Fjórir keppendur lyftu yfir 800kg í samanlögðu. Hörður Magnússon í 110kg flokki með 855kg, Í 125kg flokki Víkingur Traustason með 872.5kg og Hjalti Árnason með 865kg og síðan Torfi Ólafsson með 880kg í +125kg flokki..
Þann 6. desember var haldið sjónvarpsmót og keppti þar Fred Hatfield frá USA. Tveir Íslendingar lyftu yfir 900kg í samanlögðu, þeir Torfi Ólafsson 910kg og Hjalti Árnason 900kg og að Jóni Páli meðtöldum eru þá þrír Íslendingar komnir í 900kg flokkinn. Hjalti Árnason bætti svo árangur sinn á opna Reykjavíkurmeistaramótinu 27. desember, er hann lyfti 930kg í +125kg flokki. Á þessu sama móti komst Magnús Ver Magnússon vel yfir 800kg í 125kg flokki og lyfti samtals 825kg.
Evrópumeistaramótið fór nú fram í Svíþjóð. Þar keppti Kári Elíson í 67.5kg flokki og varð þriðji með 640kg.
Á Evrópumeistaramót unglinga fóru Snæbjörn Aðils, Magnús Ver Magnússon og Matthías Eggertsson. Snæbjörn varð í þriðja sæti í 90kg flokki með 617.5kg. Magnús Ver varð í þriðja sæti í 110kg flokki með 737.5kg og Matthías Eggertsson í 5. sæti í 125kfg flokki með 680kg.
Á Heimsmeistaramót unglinga fór Torfi Ólafsson. Mótið fór að þessu sinni fram í Cochin í Indlandi, sem er mjög sunnarlega. Torfi keppti í +125kg flokki og varð meistari með 790kg. Tveir keppendur lyftu meira en hann í samanlögðu.

Norðurlandamótið var haldið í Finnlandi og keppti Kári Elíson í 67.5kg flokki og varð í öðru sæti með 640kg.
Heimsmeistaramótið var haldið í Haag í Hollandi. Þar keppti Kári Elíson í 67.5kg flokki. Hann varð í 5. sæti og lyfti 642.5kg.

1987.
Íslandsmótið var haldið í Hafnarfirði að þessu sinni. Fimm konur og 18 karlar.
Einn lyfti yfir 800kg og er það Hörður Magnússon í 110kg flokki með 852.5kg. Magnús Ver Magnússon lyfti fjórði Íslendinga yfir 900kg í samanlögðu og tók 915kg í 125kg flokki.
Norðurlandamótið var haldið í Danmörku og kepptu þar Kári Elíson og Flosi Jónsson.
Kári varð NM meistari í 67.5kg flokki með 630kg og Flosi varð í 5. sæti í 90kg flokki með 660kg.
Á Jötnamótinu náðist góður árangur. Magnús Ver Magnússon lyfti 940kg, Hjalti Árnason 925kg og Hörður Magnússon 875kg og nýr maður kemur inn með 800kg Jón Gunnarsson, sem átti eftir að láta mikið að sér kveða næstu 10 árin.

1988.
Tveir keppendur frá KRAFT kepptu á Evrópumeistaramótinu, sem haldið var í Murnau í Þýskalandi. Jón Gunnarsson sem keppti í 82.5kg flokki og varð í 5. sæti með 750kg og Snæbjörn Aðils, sem féll úr keppni í hnébeygjunni.
Þrír keppendur fóru á HM og EM unglinga í Luxemborg, en það voru Auðunn Jónsson, Gunnar Hjartarson, báðir í 90kg flokki og Torfi Ólafsson í +125kg flokki. Auðunn og Gunnar voru við sitt besta, Gunnar varð í 12 sæti með 660kg og Auðunn í 16. sæti með 552.5kg. Torfa gekk mjög vel og varð í öðru sæti og setti heimsmet unglinga í réttstöðulyftu 337.5kg.
Meistaramótið var haldið í Garðaskóla. Karl keppendur voru 27 og konur 3. Einn lyfti yfir 800kg, Halldór E. Sigurbjörnsson í +125kg flokki, tók 862.5kg. Tveir lyftu yfir 900kg. Magnús Ver Magnússon 942.5kg í 125kg fl. og Hjalti Árnason 955kg í +125kg flokki.

1989.
Á sjónvarpsmóti Stöðvar 2 lyfti Hjalti Árnason mestu þyngd Íslendings 990kg samanlagt.
Þrír keppendur fóru á Evrópumeistaramótið í Finnlandi í maí, þeir Jón Gunnarsson í 82.5kg fl., Magnús Ver Magnússon í 125kg fl. og Hjalti Árnason í +125kg flokki. Jón varð í fjórða sæti með 740kg, Magnús Ver varð Evrópumeistari með 885kg. Hjalti féll úr keppni eftir að hafa lyft 340kg í hnébeygjum og 212,5kg í bekkpressu
Meistaramót Íslands var haldið í Æfingastöðinni við Engihjalla. Karlar voru 20 og 2 konur . Hjalti Árnason var fyrstur Íslendinga til að lyfta 1000kg í samanlögðu og Magnús Ver Magnússon lyfti 960kg. Magnús Steindórsson lyfti 847.5kg í 110kg flokki.
Akureyringar brutu blað í sögu kraftlyftinga og fóru í bæjarkeppni til Stavangers í Noregi og höfðu norðanmenn fullan sigur.
Á Bikarmóti KRAFT í nóvember náði Jón Gunnarsson þeim frábæra árangri að lyfta 855kg í 90kg flokki. Á þessu móti kom fram Guðni Sigurjónsson með 772.5kg í 100kg flokki, en hann átti eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.

1990.
Meistaramótið var haldið í íþróttahúsi Njarðvíkur 3. mars. Keppendur voru 20 í karlaflokki og þrjár í kvennaflokki. Þrír keppendur lyftu yfir 800kg. Jón Gunnarsson í 90kg flokki með 805kg, Guðni Sigurjónsson með 815kg í 110kg fl. og Hjalti Árnason í 125kg fl. með 865kg.
Á bikarmóti KRAFT í nóvember bættist nýr maður í 900kg flokkinn. Var það Guðni Sigurjónsson, sem lyfti þeirri þyngd í 110kg fl. Í 100kg flokki lyfti Jón Gunnarsson 870kg.
EM í kraftlyftingum var haldið hér á landi dagana 4.- 6. maí. Ísland stillti upp fullskipuðu liði, sem í voru eftirtaldir: Jón Gunnarsson, Magnús Ver Magnússon, Hjalti Árnason, Guðni Sigurjónsson, Helgi Jónsson, Snæbjörn Aðils, Flosi Jónsson, Jóhannes Eiríksson, Kári Elíson og Skúli Óskarsson. Helgi Jónsson fékk bronsverðlaun í 52kg fl. með 317.5kg, Jón Gunnarsson fékk silfurverðlaun í 90kg fl. með 817.5kg., Guðni Sigurjónsson fékk brons í 110kg fl. með 800kg., Magnús Ver Magnússon fékk brons í 125kg fl. með 880kg. og Hjalti Árnason fékk brons í +125kg fl. með 895kg. Ísland varð í þriðja sæti í stigakeppni þjóða.
Bárður Olsen keppti á NM unglinga í Spikkestad í Noregi. Hann varð í 5. sæti í sínum flokki með 640kg samanlagt.

1991.
Þrír keppendur frá KRAFT kepptu á EM í Frakklandi, þeir Guðni Sigurjónsson, Magnús Ver Magnússon og Hjalti Árnason. Magnúr Ver varð stigahæstur allra keppenda og Evrópumeistari í 125kg flokki og lyfti 962.5kg. Hjalti fékk bronsverðlaun í +125kg flokki og lyfti 907.5kg og Guðni lenti í 5. sæti í 110kg flokki og lyfti 835kg.
EM unglinga var haldið í Austurríki. Þar keppti Auðunn Jónsson, Jóhannes Eiríksson og Ingimundur Ingimundarson. Auðunn fékk silfur í 100kg fl., en Ingimundur varð neðarlega í 67.5kg flokki.
HM var að þessu sinni haldið í Örebro í Svíþjóð. Þrír keppendur frá KRAFT fóru á mótið. Jón Gunnarsson fékk þriðju verðlaun í 100kg flokki og lyfti 865kg. Guðni Sigurjónsson varða Heimsmeistari í 110kg fl. með 907.5kg Hjalti Árnason varð einnig Heimsmeistari, en það var í +125kg flokki. Hann lyfti 957.5kg. Seinna kom í ljós að T/E hlutfall í karlhormóni Hjalta var ekki innan löglegra marka og missti hann af gullinu. Hjalti neitaði staðfastelaga að þessi röskun væri vegna einhverra lyja, en
Um miðjan desember fóru þeir Baldvin Skúlason og Kári Elíson á HM í bekkpressu, sem haldið var í Russelsheim í Þýskalandi. Kári keppti í 75kg flokki og lyfti 172.5kg, sem dugði í 6. sæti. Baldvin varð í 4. sæti í 110kg flokki og lyfti 222.5kg.
Meistaramót Íslands var haldið í Snælandsskóla í Hafnarfirði. Keppendur í karlaflokki voru 23 og í kvennaflokki 2. Magnús Ver Magnússon lyfti samanlagt í 125kg flokki 1015kg og tók 400kg í hnébeygju. Einn annar keppandi var með 800kg , en það var Jón B. Reynisson í sama flokki og Magnús. Á sumarmóti KRAFT á Akureyri lyftu þeir Snæbjörn Snæbjörnsson og Auðunn Jónsson yfir 800kg. Snæbjörn 840 og Auðunn 810kg. Hjalti Árnason lyfti mestu þyngd Íslendings 1017.5kg og gerði það í +125kg flokki. Tók hann 400kg í hnébeygju.

1992.
Á EM í Danmörku kepptu Kári Elíson og Snæbjörn Aðils. Kára gekk mjög vel og fékk silfur í 75kg flokki með 687.5kg. Snæbjörn varð í 9. sæti í 125kg flokki með 815kg.

Á EM unglinga fóru þeir Jóhannes Eiríksson, Hilmar Gunnarsson, Auðunn Jónsson, Ólafur Kristjánsson og Grétar Hrafnsson. Auðunn fékk brons í 90kg fl. með 757.5kg, Hilmar varð í 5. sæti í 75kg fl. með 617.5kg. Jóhannes varð í 8. sæti í 60kg fl., Ólafur í 15. sæti í 100kg fl. og Grétar í 8. sæti í 110kg fl.
HM var haldið í Birmingham. Þar kepptu Kári Elíson, Jón Gunnarsson, Snæbjörn Aðils og Guðni Sigurjónsson. Kári varð í 6. sæti í 75kg fl. með 692.5kg. Jón Gunnarsson féll úr keppni í réttstöðulyftu með 312.5kg eftir að hafa lyft 350kg í hnébeygju og 142.5kg í bekk. Guðni fékk silfur í 110kg fl. með 915kg. og Snæbjörn varð í 11. sæti í sama flokki með 765kg.
Meistaramótið var haldið í Garðalundi, Garðabæ 7. mars. Keppendur voru 16. Tveir keppendur lyftu yfir 800kg. Kjartan Guðbrandsson í 100kg flokki 800 slétt og
1993.
HM unglinga fór fram í Kanada. Þar kepptu Jóhannes Eiríksson í 60kg fl. og varð í 7. sæti, Hilmar Gunnarsson í 82.5kg fl. og varð í 5. sæti með 662.5kg og Auðunn Jónsson í 125kg fl og fékk silfurverðlaun með 860kg.
EM var haldið í borginni Wembding í Suður Þýskalandi. Þar kepptu Kári Elíson og Guðni Sigurjónsson. Kári fékk bronsverðlaun í 75kg flokki með 710kg. Guðni keppti í fyrsta sinn í 125kg flokki og varð í 4. sæti eftir mikla baráttu um verðlaun.Hann lyfti 927.5kg.
HM var haldið í Jönköbing í Svíþjóð. Þar kepptu Jón Gunnarsson og Guðni Sigurjónsson. Jón keppti í 90kg fl. og lyfti 827.5kg og fékk bronsverðlaun. Guðni keppti í 125kg flokki og fékk bronsverðlaun með 962.5kg. Hann reyndi við gullverðlaunin með því að lyfta 377.5kg í réttstöðulyftu og lyfti því alla leið upp, en í lokastöðunni losnaði önnur greipin.
Meistaramótið var haldið í Garðaskóla í mars. Keppendur voru 21. Guðni Sigurjónsson lyftu mestu 930kg í 125kg fl. og svo Víkingur Traustason 845kg í +125kg fl.
Á sumarmóti KRAFT lyfti Víkingur Traustason 870kg í +125kg fl.og Jón B. Reynisson 835kg í 125kg fl.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Jón B. Reynisson 400.5kg í hnébeygju í +125kg fl og Baldvin Skúlason 250kg í bekkpressu í 125kg fl.

1994.
Meistaramótið var með 17 keppendur. Nýr maður kom í 900kg flokkinn. Var það Jón B. Reynisson í +125kg fl. Tveir voru yfir 800kg . Snæbjörn Aðils í 110kg fl. með 800kg og Auðunn Jónsson í 100kg fl. með 860kg.
Á Sumarmóti KRAFT fór Gunnar Ólafsson yfir 800kg múrinn í +125kg fl.
Á Bikarmóti KRAFT lyftu tveir yfir 800kg, Auðunn Jónsson 890kg í 110kg fl. og Jón B. Reynisson 837.5kg í +125kg flokki.
HM unglinga var haldið á Bali í Indónesíu. Þangað fóru Jóhannes Eiríksson og Auðunn Jónsson. Jóhannes keppti í 60kg fl og varð í 7. sæti með 522.5kg. Auðunn Jónsson keppti í 100kg fl. og lyfti hann 805kg og fékk silfur.
HM öldunga var haldið í Bratislava, Slóvakíu. Þar kepptu Flosi Jónsson og Kjartan Helgason. Flosi var í 100kg flokki og varð í 10. sæti með 700kg. Kjartan keppti í 110kg fl og náði 9. sæti með 657.5kg.

1995.
HM unglinga var í Nýju Dehli, Indlandi. Þar kepptu Jóhannes Eiríksson í 60kg fl, Völundur Þorbjörnsson í 110kg fl. og Auðunn Jónsson +i 125kg fl. Jóhannes varð í 6. sæti með 505kg. Völundur lyfti 650kg, sem dugði 7. sæti. Auðunn varð í öðru sæti með 885kg á eftir Rússanum Podtynny með 902.5kg. Rússi þessi átti síðar meir eftir að koma við sögu hjá Auðunni.
HM öldunga var haldið í Kaupmannahöfn. Þar keppti Flosi Jónsson í 90kg flokki og varð í 9. sæti með 635kg.
Á Íslandsmóti unglinga bættist nýr maður í 900kg flokkinn. Var það Auðunn Jónsson, sem lyfti þeirri þyngd í 125kg flokki.
Meistaramótið var haldið í mars. Keppendur voru 25 talsins. Tveir lyftu yfir 800kg. Jón Gunnarsson var með 892.5kg í 100kg flokki og Jón B. Reynisson með 870kg í +125kg flokki.
Á Bikarmóti KRAFT voru tveir með yfir 900kg og einn yfir 800kg. Jón Gunnarsson lyfti 835kg í 90kg flokki, Auðunn Jónsson 930kg í 110kg flokki og Hjalti Árnason 940kg í +125kg flokki.
HM í Pori Finnlandi var haldið í nóvember. Þar keppti Gunnar Ólafsson í +125kg flokki. Hann lyfti 310kg, 205kg og 300kg og samanlagt 810kg og dugði þetta í 9 sæti.

1996.
HM var að þessu sinni haldið í Salzburg, Austurríki. Þar kepptu Jón Gunnarsson og Auðunn Jónsson. Jón keppti í 90kg flokki og fékk brons með 852.5kg. Auðunn Jónsson keppti í 110kg flokki með Ed Coan. Auðunn varð í 4. sæti með 922.5kg., en eftir að Coan féll á lyfjaprófi færðist Auðunn upp og fékk bronsverðlaun.
EM lögreglumanna var í Prag í Tékklandi. Þar kepptu Óskar Sigurpálsson og Kjartan Helgason.
Íslandsmeistaramótið nú var það tuttugasta og fimmta í röðinni og var haldið með glæsibrag í maímánuði. Keppendur voru 26 og nokkrir gestir. Einn Dani Thomas Hedeman og nokkrir Bandaríkjamenn. Nýr maður bættist í 900kg flokkinn, Jón Gunnarsson lyfti þeirri þyngd í 100kg flokki. Tveir aðrir voru með yfir 900kg. Auðunn Jónsson í 110kg fl. með 965kg og Jón B. Reynisson í +125kg fl. með 937.5kg. Hann tók einnig 402.5kg í hnébeygju. Birgir Þorsteinsson lyfti 825kg í 125kg fl.
Á Glaumbarsmótinu í bekkpressu lyfti Jón B. reynisson 250.5kg.

1997.
HM öldunga var haldið í Ungverjalandi. Þar keppti Lúðvík Björnsson í +125kg flokki yfir 50 ára. Hann varð í 6. sæti með 537.5kg.
Á Íslandsmótinu í bekkpressu lyfti Jón B. Reynisson 252.5kg. í +125kg fl.
Íslandsmeistaramótið var að þessu sinni haldið á Akureyri. Keppendur voru 22. Auðunn Jónsson var með besta árangur keppenda og varð þriðji Íslendingurinn til að lyfta 1000kg. Var hann í 125kg flokki. Meðal annars lyfti hann 250kg í bekkpressu. Enginn annar lyfti yfir 800kg en sjö lyftu yfir 700kg.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Jón B. Reynisson 895kg og í bekkpressu 255kg.
Á Reykjanesmóti lyfti Gunnar Ólafsson 800kg í +125kg fl.

1998.
Á Íslandsmótinu í bekkpressu lyfti Jón B. Reynisson 255.5kg.
Íslandsmótið var haldið í Borgarleikhúsinu í maímánuði. Keppendur voru 22 í karlaflokki og svo ein kona. Nýr maður kom í 800kg flokkinn, Svavar Már Einarsson

með 810kg í 100kg flokki. Þrír keppendur voru með yfir 900kg. Jón Gunnarsson í 100kg flokki með 960kg, Auðunn Jónsson í 125kg fl. með 950kg og Jón B. Reynisson með 920kg í +125kg fl.
Á Njarðvíkurmóti lyfti Jón Gunnarsson 800kg í 100kg fl , Auðunn Jónsson 910kg í 125kg fl. og Jón B. Reynisson 905kg í +125kg fl.
EM var haldið í Sotkamo, Finnlandi. Auðunn Jónsson var þar keppandi í 125kg flokki og varð hann Evrópumeistari með 950kg. Gunnar Ólafsson keppti í +125kg flokki og féll úr keppni eftir ítrekuð mistök í hnébeygju.
HM var haldið í borginni Cherkassy í Ukraínu, Auðunn Jónsson keppti fyrir Íslands hönd. Hann fékk silfurverðlaun með 960kg á eftir Rússanum Podtynni, sem lagði Auðunn að velli á Indlandi á HM unglinga um árið.
HM öldunga í Argentínu. Þar kepptu Flosi Jónsson og Lúðvík Björnsson. Flosi keppti í 100kg flokki og lyfti 670kg og varð í 9. sæti. Lúðvík keppti í +125kg flokki yfir 50 ára og lyfti 600kg, sem dugðu í þriðja sætið.
NM lögreglumanna var haldið í Finnlandi. Þangað fóru Óskar Sigurpálsson og Kjartan Helgason,.

1999.
HM öldunga í Sun City Suður Afríku. Keppendur frá KRAFT voru tveir Þórdís Garðarsdóttir og Lúðvík Björnsson. Þórdís varð í 6. sæti í +67.5kg fl. með 300kg. Lúðvík varð í 4. sæti í +125kg fl. yfir 50 ára með 615kg.
HM í kraftlyftingum í Trento, Ítalíu. Auðunn Jónsson var eini keppendi Íslands. Hann lyfti 100kg og varð í öðru sæti í 125kg fl. á eftir Rússanum Podtynni, sem lyfti 1002.5kg.
Árþúsundamótið í Örebro, Svíþjóð, “Battle of the giants”. Á mótið var boðið bestu kraftlyftingamönnum Heims í þyngstu flokkunum og meðal þeirra var Auðunn Jónsson. Úrslit réðust á stigum og voru veitt vegleg verðlaun fyrir greinar og stig og allt borgað fyrir keppendur. Auðunn varð í 10 sæti með 930kg.
Á Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu lyfti Jón B. Reynisson 260.5kg í bekkpressu í +125kg fl.
Á Reykjanesmóti í réttstöðulyftu bætti Auðunn Jónsson Íslandsmetið í 125kg fl. og lyfti 371.5kg.
Íslandsmeistaramótið var haldið í Valsheimilinu. Keppendur voru 23. Hápunktur mótsins var árangur Auðuns Jónssonar. Hann lyfti í hnébeygju 405kg, í réttstöðulyftu 380kg og samanlagt 1025kg, mesta þyngd sem Íslendingur hefur lyft. Jón B. Reynisson lyfti 262.5kg í bekkpressu. Fjórir lyftu yfir 800kg. Í 110kg flokki voru tveir af þeim, Svavar Már Einarsson með 840kg og Marinó Arnórsson með 810kg. Í 125kg flokki var Víkingur Traustason með 810kg og Vilhjálmur Hauksson með 800kg.

2000.
HM öldunga í Tékklandi. Keppendur frá KRAFT voru Þórdís Garðarsdóttir og Hjörtur Geirsson. Þórdís varð í 9. sæti með 355kg. Hjörtur varð í 11. sæti í 110kg fl. með 655kg.
HM í kraftlyftingum í borginni Akita, Japan. Auðunn Jónsson keppti þarna í 125kg fl og féll úr, þar sem hann fékk byrjunarþyngdina ógilda í öllum þremur tilraunum, sennilega hefur hann ekki gætt að stoppinu á brjóstinu. Sigurvegari var Midote, Japan með 1000kg. Í öðru sæti var Papazov Ukraínu, sem átti eftir að láta mikið að sér kveða næsta ár. Fæddur árið 1980.
Íslandsmótið var haldið í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.. Tveir keppendur voru í kvennaflokki og 11 karlar. Bestum árangri náði Jón Gunnarsson, en hann

keppti að þessu sinni í 110kg fl. Hann lyfti 385kg í hnébeygju og 361kg í réttstöðulyftu og samtals 970kg. Næst besta árangri náði Auðunn Jónsson. Hann var í 125kg fl og lyfti 1012.5kg og tók m.a. 400kg í hnébeygju.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Víkingur Traustason 865kg í 125kg fl.

2001.
EM öldunga í bekkpressu. Á þessu móti kepptu Þórdís Garðarsdóttir og Lúðvík Björnsson. Þórdís lyfti 85kg og fékk silfur, en Lúðvík lyfti 165kg og brons.
HM í kraftlyftingum í Sotkamo, Finnlandi. Auðunn Jónsson keppti að venju í 125kg fl. og varð í 4. sæti með 1000kg, en sigurvegarinn var Papazov Ukraínu með 1047.5kg, en Auðunn vann þennan strák árið áður. Auðunn átti góða tilraun við Heimsmet í réttstöðulyftu 388kg
Bardagi risanna í Örebro, Svíþjóð. Auðunn fékk boð á mótið eins og 1999. Auðunn hafnaði í 7. sæti í stigakeppninni með 962.5kg og 549.1 stig
Íslandsmótið í kraftlyftingum var að þessu sinni haldið á Akureyri. Tvær konur kepptu og 13 karlar. Jóhann Eyvindsdóttir lyfti 405kg í 90kg fl. Þrír voru með yfir 800kg. Jón Gunnarsson í 100kg fl. lyfti 867.5kg, Víkingur Traustason lyfti 830kg í 125kg fl. og Grétar Hrafnsson komst í 800kg klúbbinn og lyfti þeirri þyngd í +125kg fl.
Á Bikarmóti KRAFT lyfti Jóhanna Eyvindsdóttir 465kg í +90kg fl. Víkingur Traustason lyfti 830kg í 125kg fl. Grétar Hrafnsson lyfti 810kg í +125kg fl. og Benedikt Magnússon í +125kg fl komst í 800kg klúbbinn.

2002.
Íslandsmeistaramótið var haldið í húsakynnum Bifreiða og landbúnaðarvéla h/f að Grjóthálsi. Tvær konur kepptu og 12 karlar. Víkingur Traustason lyfti 845kg í 125kg flokki. Benedikt Magnússon lyfti 825kg í +125kg fl. Meistari meistaranna varð Auðunn Jónsson í +125kg flokki og hreinsaði hann vel til á metalistanum í þessum flokki, sem hann keppir yfirleitt ekki í. Hann lyfti 407.5kg í hnébeygju, 262.5kg í bekkpressu og 1030kg samtals, sem er mesta samanlagða þyngd, sem Íslendingur hefur lyft.

Ritað af Ólafi Sigurgeirssyni í maí 2002.

Share on Facebook

Leave a Reply