
Fjölnir Guðmannson eftir að hafa týnt rakvélinni sinni í nokkra mánuði…
Tvisterinn hefur æft vel í Borgarnesi í sumar og er byrjaður að skila inn bætingum…Hvort sem það er góðum upplífgandi sjúklingum eða æfingum með Bollunni að þakka þá er deddið loksins að komast á blað hjá kappanum ..240kg var þyngd dagsins…en hvað’…stöngin bifaðist varla úr stað.!..þar fauk sú tilraun en kappinn hafði “bara” gleymt að anda að sér tæru Borgarfjarðarloftinu…Farið í 240kg aftur…Hægt af stað en seiglaðist upp!…Glettileg bæting…Fer líka upp á Íslandsmótinu í deddi 21 ágúst..Stefnan hjá Fjölla eftir það er sett á 250 á HM í Englandi….
VIDEO
Share on Facebook
Entries (RSS)
það er eitthvað í loftinu hérna svei mér þá
Þetta var súmó rúnk í lagi.
hahahah.
Teygjutvister tekur 250 kg seinni partinn í ágúst og 260 - 270 í Bath ef ég fæ að fara með sem Waterboy hahahahah
Bestu kveðjur í Borgarnes og Sódómu.
Flott hjá þér Twister líst vel á súmó stilin…ætla sjálfur að taka doldið á deddinu lika fyrir Bath þá í súmó held það reyni minna á biluðu löppina ha.haa…á best 250 í súmó…in old days…
Þetta var flott Tarzan öskur í lokin…hann verður að fá útrás í gyminu því ekki gengur að öskra á sjúklingana..
Hættum svo að kalla manninn “deddkrippling”. 270-215-270 á næstunni..
hvenær hættir maður að vera deddkrypplingur?
Góð spurning..Árni Gests getur kannski svarað þessu vel.. en…Það hefur nú oftast verið miðað við 250kg standard…Þannig að ég tel Fjölla ekki hólpinn ennþá..(ritstjórinn var því sjálfur deddkrypplingur á síðasta móti!)
þá slepp ég:)
Ok. maður maður er víst deddkrypplingur sjálfur á þessu ári, en það lagast eftir nokkrar vikur þegar marr verður aftur farinn að repsa yfir 250 kg..
Tekur maður ekki af sér krypplings nafnbótina ef maður nær þyngdinni. Forever þ.e.a.s. Eða verður maður framhaldskrypplingur? Samkvæmt þessu væri Ölli vinur orðin gay ef við tölum um að ná ekki 100 í bekk. ? Þaðan að verra að ná ekki 250 í deddi. Þá væri hann orðinn gay dedd krypplingur. Ristjórinn verður að fara leggja línunar í þessu Bara Smá pæling.
Miðast það ekki við hinar lyfturnar bara hvort maður sé dedd krypplingur eða ekki ?
Eins og náunginn sem beygði 444.2 kg á kjötinu og tók 275 kg í bekk á kjötinu en deddaði svo bara 272.5 kg er deddkrypplingur þó svo að hann eigi yfir 250
Hjúkk maður! Ég er að detta undir 100kg og var að hugsa hvort ég væri orðinn kripplingur. deddaði 260*2 nokkuð létt svo ég get hætt að hugsa um þetta. Gott að hafa svona á hreynu. Takk Kári.
Hvenær ætlið þið svo að keppa í USA svo ég geti æft og deddað með ykkur. Er ekkert svoleiðis á Metal skránni?
Þetta með deddkrypplinginn er eins og með tilveruréttinn og heimsmeistartitilinn…taka það einu sinni gildir for life! -Td.svo vitnað sé í lög Heimsmeistaraklúbbsins: EINU SINNI HEIMSMEISTARI ALLTAF HEIMSMEISTARI!
Menn geta alltaf leikið sér svo með þetta KRYPPLINGA hugtak þegar einhver sem á góðar tölur í bekk og beygjum og getur svo ekkert deddað miðað við það eins og dæmið sem Steini gefur..en það gildir ekki almennt. -Ég sá á EM hjá GPF sambandi að írinn Gerry MC Namara tók í 75 tölurnar 380-152,5-237,5-(eða 232,5) deddið sýnir þokkalegan deddkryppling en beygjurnar myndu duga á allla íslendinga nema 3-4 bollur
————-
Svavar, Við erum auðvitað nýkomnir þannig frá Vegas…nokkuð dýr ferð um hálf milljón fyrir suma..Ef HM verður í Florida 2011 sem er ekki ljóst ennþá þá fer þangað örugglega 10 manna hópur eða meira
—————
Martin það er bannað að tala niðurlægjandi um Ölla vin hér..hann er legend for life!
Catzilla___
OK . Sorry átti að vera meiri húmor en nokkuð annað. Sammála Ölli er legend og fínn kall. Enda beygði hann 5kg meira en Jón Páll á sínum tíma. Þakka bara fyrir að fá ekki á mig fegurðar dedd krypplings morðhótanir og Sir Magister kann þetta.
_____
Sammála Steina.
Jón Páll beygði 365 en Hörður 360..Annars þurfti Ölli að fara í uppskurð á fæti og er búinn að vera frá æfingum og vinnu í tvo mánuði og á eftir aðra tvo að jafna sig…svo mætir hann galvaskur í raunveruleikann og repsar 100 á bekknum..Martin kemur bara og hvetur hann..
Ég var auðvitað að djóka. Hef auðvitað aldrei kallað Fjölla deddkryrpling. Bið líka fyrir því að legendið Hörður megi ná sér fljótt og vel eftir hnéaðgerðina svo hann geti farið að pússa keppnisskóna aftur osf..
Hehe, þetta er samt auðvitað satt Gunni. Maður er deddkrypplingur ef maður á ekki 250kg á móti og keppir fyrir ofan 90kg flokk
Hehe hvað eru 5kg milli vina, bara testa kisa. Óska Ölla góðs bata og Fjölla 250 fljótlega.
Góður Fjölnir, til hamingju með 240!
Er þessi endurtaka eitthvað nýtt að hætti Fjölnis?
flottir skór hjá fjölla