Gullkort Visagreifans er núna MasterCard

Það er nú saga að segja af því þegar Kári catzilla fékk Visakort í fyrsta sinn og var kallaður Visagreifinn í smátíma….en áður en af því kemur segjum við örsöguna um Gullkort  mitt hjá MasterCard..Þegar kortinu var breytt úr silfur í gull fylgdi með því leyninúmer..Þegar heim var komið fyrir 4 árum eða svo brá mér heldur í brún..númerið var páver totalið hjá Hjalta Úrsus!..Við það var ekki unað!  Farið strax í bankann og spurt hvað þetta ætti eiginlega að þýða..það væri alger svívirða að láta mann hafa svona lagað!.. Sótt um nýtt númer..Daginn eftir barst það í pósti..og hvað reyndist það? 100kg meira” ..Totalið hans Auðunns! Mesta þyngd íslendings í páver!..Sáttur við það…Í síðustu viku týndist kortið…Sótti um nýtt…Hvað var númerið núna?…Svoldið leyndó…Það er mun hærra total en nokkur íslendingur ræður við þar til Sigfús fúzilla tekur það!

VISAGREIFINN Í KALIFORNÍU

Árið 1985 fékk ritstjórinn Visakort í fyrsta sinn og gekk það ágætlega þegar raðað var niður páver titlum og verðlaunum út um allan heim.Hinsvegar á því herrans ári 1986 var haldin svokölluð Landskeppni í kraftlyftingum á milli Kaliforníu og Íslands úti í Bandaríkjunum í bænum Fresno. Um miðja helgi í febrúar þarna úti á strönd Kaliforníu glataðist kortið sem glæponar komust yfir og notuðu um hríð því erfitt var tilkynna glatað kort á þessum árum um helgi. Lenti Catzilla í ýmsum vandræðum vegna þessa

..Í keppninni sjálfri gerðist það fræga atvik sem var skrifað um í tímaritið POWERLIFTING USA að þegar ég var að reyna við 260kg í deddi rann ég til á pallinum og lóðin sem voru öll úr járni skullu ofan á hægri ristina og brutu hana. Ég var borinn út af pallinum og kældur niður með íshrúgu. Áhorfendur ætluðu síðan ekki að trúa eigin augum þegar ég haltraði aftur að pallinum og reif þessi 260kg upp að sönnum víkingasið eins og sagt var frá í tímaritinu. Það sem ég man þegar ég þreif í stöngina var, að ég hugsaði: “Ég er ekki kominn alla leið hingað til að klikka á þessari þyngd”! Ég tapaði samt fyrir kananum sem vann mig í totali á 45kg meiri beygjum…Þegar heim var komið orti ég eftirfarandi ljóð sem hefur aldrei birst fyrr en nú:

Köttur lagði brattur land undir fót
löng var sú ferð og sól í mót.
Fyrirhyggja þó slóst í för
fagurt var kort og bros á vör.

Hann þóttist vitur og viss í trú
með Visa yrði honum borgið nú.
Örlög grimm þá tóku í taum
tættu í sundur hinn fagra draum.

Kortið týndist og dollarar dóu
dauf varð sál en félagar hlógu!
Eymd og volæði blasti honum við
sem virðuleg refsing að guðanna sið.

En Bólan var nærri blið og rjóð
og bjargaði málunum ofurgóð!
Skuldabagginn mun setjast á sál
svo þungt er hjarta og tregt um mál…

Fullkomnuð varð hans frægðarferð
frá keppninni sjálfri segja verð:
Saltaður var svo gleymist seint
sjálfsagt var það ei illa meint.

Og lóðin féllu við lítinn glans
og löppina brutu með elegans.
Hann týndi ekki meiru og tognaði ei
tók aftur gleðina og sagði: Ókey!

Komst heim um síðir til klakalands
og kappinn er hress, því reynslan er hans!

Share on Facebook
3 Responses to “Visagreifinn”
  1. Einar Örn says:

    Haha hrikalegur andi!

  2. Hermann says:

    Skemmtilega og vel kveðið :)

  3. Alma Elídóttir says:

    Já, það má nú segja að þú lendir í ýmsu. En sem betur fer ertu með hörku keppnisanda og að auki svo lánsamur að geta sett þetta fram í léttu ljóði okkur til skemmtunar :-)

  4.  
Leave a Reply