
Bath - Place of piece and POWER!
Ofanrituð setning er oft sögð um þennan frábæra bæ í Englandi sem er nú keppnisstaður Heimsmeistaramótsins í kraftlyftingum. Mikill áhugi hefur þegar skapast hér á landi um þetta mót. ÍKF Metal á líka mestu afreksmenn þjóðarinnar í páver og þótt allir þeir fremstu keppi kannski ekki núna eftir annasamt kraftamótasumar eða vegna þessa venjulega vanfílings og blankheita eða einhvers annars hjá mönnum þá hafa samt þegar skráð sig 12 molar á mótið!..Mesta þátttaka Íslands erlendis YFIR ÖLL SAMBÖND er í Vínarborg 2008 þegar 14 tóku þátt á vegum ÍKF Metal…Skráningarfrestur á HM til Metal er 1 september.
SKRÁÐIR KEPPENDUR EINS OG ER:
1. Jón Gunnarsson Open 90kg fl. kraftlyftingar
2. Kári Elíson 55-59 ára. 75kg.fl. kraftlyftingar + bekkur + dedd (3 mót)
3. Gunnar F Rúnarsson 45-49 ára. 110kg.fl. bekkur + dedd (2 mót)
4. Fjölnir Guðmannson Open 110kg.fl. kraftlyftingar + bekkur (2 mót)
5. Þröstur Ólason Junior 19-23 ára. 100kg.fl. kraftlyftingar
6. Ejólfur Unnarsson junior 19-23 ára 125kg.fl. kraftlyftingar
7. Birgir Þorsteinsson 40-44 ára 140kg.fl. kraftlyftingar + bekkur + dedd (3 mót)
8. Flosi Jónsson 55-59 ára 100kg,fl. bekkur + dedd (2 mót)
9. Bjarki Þór Sigurðsson Open 110kg.fl. kraftlyftingar
10. Einar Örn Guðnason teen 15-19 ára. 90kg.fl. kraftlyftingar
11. Benedikt Magnússon (tjakkur) 40-44 ára 140kg.fl. dedd
12. Jóhann Gíslason 50-54 ára 125kg.fl. dedd
Ef nefndir molar vilja breyta einhverju eða aðrir sem hafa áhuga á að keppa hafið samband við Kára catzilla á netfangið: sirmagister@visir.is eða sendið skilaboð á Facebook.
Share on Facebook
Entries (RSS)