Stefán Sturla Svavarsson

Einn al-vinsælasti pávermaður klakans, Stebbi spjóti náði í gær þeim áfanga að taka 700kg í samanlögðu á Íslandsmóti Kraft. Spjótinn varð öldungameistari í tíunni rétt tæplega 49 ára gamall en kappinn á þann afmælisdag í dag. Til hamingju með báða áfangana!

Árangurinn hjá Spjótanum skiptist þannig: 270-185-245-700kg. Beygjan með 270 var bæting og var það fín lyfta. Evrópu og heimsmeistarinn Gunnnar master sem þarna var að horfa á ,hafði á orði að hann þyrfti ekki að horfa á meira af þessari keppni eftir að hafa séð þessa glæsibeygju og hvarf  hamingjusamur á braut við svo búið. (hann var reyndar í tímaþröng eins og venjulega!) Spjótinn hefur nú sett stefnuna á að klára 200kg múrinn á bekk, helst á þessu ári.  Sðan er það bar að deyja eða beygja…með 300 í ókominni framtíð…

Share on Facebook
5 Responses to “Spjótinn tekur ævistarfið í páver: 700kg!”
  1. Ketillinn says:

    Spjótinn alltaf flottur.
    Bestu kveðjur úr sveitinni vinur - bæði afmælis- og bætingarkveðjur.
    Ketillinn síkáti.

  2. Gretar Gedveiki says:

    Hann a nog inni, hann er bara eitthvad feiminn vid thyngdirnar

  3. Valdi Kerfis says:

    Ef dómgæslan hefði verið í lagi þarna þá hefði Spjóti verið í 1. sæti í 110. Gaurinn sem vann hefði ekki átt að fá neina réttstöðulyftu gilda. Hann var svo langt frá því að rétta úr hægri löppinni í öllum lyftum í réttstöðunni.

    Kannski er hann eitthvað meiddur í löppinni en ég man ég ekki eftir því að hafa heyrt menn fá undanþágur á slíku í réttstöðulyftu.

  4. Fermeter says:

    nei, bara í bekk…

  5. Hermann says:

    Hehe Palli góður :)

  6.  
Leave a Reply