Stefán Hallgrímsson frjálsíþróttakappi

Það bárust lengi vel engar fréttir af Foringjanum úti í Kanada og Magister sagði strákunum í gyminu að það þýðir alltaf bara eitt…enginn sigur…HM í frjálsum íþróttum öldunga fór fram í borginni Kamloops. Fleiri hundruð keppendur voru þar á ferð. Milljarðamæringurinn hressi Kristján Gissurar stórbísnessmaður og stangarstökkvari ætlaði með Steve á mótið en heltist svo úr lestinni…Það var einmitt annarskonar helti sem lagðist á annan fót foringjans sem varð til þess að hann missti af sigrinum…

Kappinn hlaut tæplega 4000 stig í fimmtarþrautinni en sigurvegarinn sem var frá Kanada hlaut rúm 4000 stig eða 50 stigum meira en silfurhafinn og 100 stigum meira en Steve sem varð að haltra sig í gegn í síðustu tveimur greinunum…Steve á örugglega eftir að sækja hart að titlinum á næsta ári og mun þá örugglega skilja kellinguna eftir heima svo hann þurfi ekki að eyða dögunum fyrir keppnina að mestu uppi í rúmi á hótelherbergi en geti æft á hverjum degi fram að keppni í staðinn eins og hann er vanur….Menn læra svo lengi sem lifa….

Share on Facebook
Leave a Reply