
Kviðurinn á Skyranum þenst út í massa sem gefur…
Heimsmeistarinn á bekk. Sigfús Fossdal mætti helbreiður á æfingu í SuperGym í dag…Kappinn hefur nú þyngt sig upp í 170kg en samt létt sig um 1kg ( frá því hann var 171kg!) og lagað þannig til kviðinn að hann er orðinn sérstök tegund af deddkvið… Segir Skyrinn ótrauður að þetta muni gefa honum í sumar á EM dedd upp á 370kg…Sennilega er ætlun hans sú að ýta kviðnum upp fyrir páverbeltið í svona Andy Bolton stíl…takist það er fátt sem stoppar Skyrann í deddinu frekar en á bekknum…Í dag bekkjaðist kappinn á og tók old time Jakabóls prógram með fimmur eða sem sagt 200 5×5 og átti inni!…Kappinn sat áðan fund stjórnar ÍKF Metal um Evrópumótið á Akureyri sem er á góðri áætlun….
Share on Facebook
Entries (RSS)
Hvenær ætlar skyrfús að dedda yfir 400 ?
Skyri þarf nú fyrst að taka þessi 370 Tryllir…sýnist nú ekki mjög einfalt þar sem örfáir hér á landi hafa gert það..ég held að Fermeterinn verði á undan honum bæði í 370 og 400..
Skyrinn er bara frábær. Þetta kemur allt hjá honum.
Bestu kveðjur úr sveitinni.
370 er auðvitað hrikaleg þyngd. Þó að kappi eins og Tarfurinn slátri því í morgunmat. Enda er hann ekkert venjulegur. Fermeterinn er góður og á örugglega eftir að stúta 370 og 400. Skyri er óumdeildur konungur páersins á skerinu í dag. Bekkur, beygjur og totalið tala sínu máli. Hlakka bara til að sjá skyrhöfðingjann fara í vaxtarræktina og skera sig niður úr plús 170 kg. 118 kg hans Big G ( á sviðinu) verða bara lightweight við hliðina á Fossdalinum
Ég bíð spenntur eftir að skyrinn sýni fjölhæfnina sína og taki 440 - 360 - 400 sem myndi gera 1200 kg í samanlögðu. Ég veit að Sigfús getur það þarf bara að taka aðeins á því í deddinu. Mitt álit er það að enginn er jafn fjölhæfur pávermaður á íslandi eins og hann. Veiki hlekkurinn hjá Tarfinum er bekkurinn alveg eins og hjá Palla Fermeter.
Koma svo Skyri ég hef trú á þér !!!!
ætli sigfús verði ekki á undan i 400 i bekk en i deddi
ástæðan fyrir því að ég segi að Fermeterinn verði á undan Skyra að dedda 370-400 er sú að Palli verður með á Íslandsmóti Metal í apríl á meðan Sigfús verður þungstígur að labba upp á 3 hæð í Viking Gym sem undirbúning fyrir að sulla í sig próteinhræring og hafragraut sem Skyrfrúin hefur mallað
hvar verður íslandsmótið kári
staðsetning er ekki komin ennþá en hún nálgast..Það verður látið vita tímanlega
Sigfús er hrikalga efnilegur og ég hef bara aldrei á okkar tíma saman séð hann jafn ákveðinn og sterkan eins og núna, hann getur allt og heftur marg sínt það , það er nóg að gera framundan hjá honum og okkur,,, enda ekki slæmt að vera fjölga sér rétt fyrir EM
þar sem kallinn ætlar að flengja 1200 í tótal
eg held barasta að sigfus se hættur að vera efnilegur……….. hann er orðinn goður kraftlyftingamaður fru fossdal.