Mjölnir miðar áfram og verður tilbúinn fyrir sumarið

Formaður AFA - Aflraunafélags Akureyrar Jón Þór Ásgrímsson er afbragðs smiður á járn og annað drasl í stíl við Baldvin bekk..Hann er nú að smíða á fullu þennan aflraunatækis bíl sem er upprunalega Nissan Sunny árg.1992 og er því af góðum ættum…Það var Partasalan Austurhlíð á Akureyri sem gaf félaginu bílinn til þess að hjálpa norðlendingum til að verða enn hrikalegri og þá sérstaklega í réttstöðu…  Nefnilega á meðal þess helsta sem verður hægt að gera með bílinn er að dedda, taka beygjur og bekk og ganga með eins og  hjólbörur ofl.

Það þarf talsvert járn í svona græju og hefur fyrirtækið Sandblástur og málmhúðun styrkt AFA í því..

Jón Þór hefur að mestu  unnið einn að smíði Mjölnis en þó hefur Sólveig kona hans sem er efnileg í deddinu einnig aðstoðað hann sem handlangari eftir þörfum…Nafnið Mjölnir kemur úr hinni íslensku goðafræði og er Mjölnir hamar ofurguðsins Þórs sem lamdi mann og annan í hausinn með hamrinum eftir nauðsynlegum geðþótta hvort sem það voru frændur eða fé… Heimild fyrir þeim athöfnum má finna á vef Ásatrúarmanna….

Það þarf fullt af útbúnaði í svona smíði og aðstöðu til að geyma tækið en þar hefur fyrirtækið Bílvirki komið til sögunnar og þar fer smíðin alfarið fram

Mjölnissmiðurinn Jón Þór Ásgrímsson

Fyrir utan smíðarnar á Mjölni ofl. þá er Jón Þór á fullu að æfa sjálfur fyrir aflraunir og páver og hefur m.a. hugsað sér að keppa á EM í páver á Akureyri í sumar og stefna á 800kg í total…Hann er nú að koma upp úr þungum 5 og 8 repsa æfingum þar sem hann hefur t.d. tekið  í deddi  200kg 8×2! og 180kg 5×5 í beygjum…GRÆJULAUST….Það varða mikil átök hjá AFA í sumar en þar er unnið mikið aflrauna og páverstarf undir forystu þeirra félaga Jóns Þórs og Sigfúsar skyrhöfðingja. Þeir eru báðir í hrikalegum anda…

Share on Facebook
One Response to “Aflraunabíllinn Mjölnir í náðinni hjá goðunum…”
  1. Jón Þór says:

    Það sem verður hægt að gera með bílinn er
    Dead
    Beygjur
    Yoke
    Bekkpressa
    Viking press
    Hjólbura.

    Svo seinna meir mun verða frame carring í honum…

  2.  
Leave a Reply