Benni breiðsíða
Magister fór fyrir 15-20 árum að kalla bekkpressujöfurinn og heimsmethafann Jón B Reynisson viðurnefninu BREIÐSÍÐAN eða einfaldlega Benni breiðsíða. Síðari tíma pávermenn fóru hinsvegar að kalla kappann Big -Ben….Það hefur nú komið á daginn að það er öruggara og heilnæmara fyrir Benna að halda sig við Breiðsíðunafnið smbr. eftirfrandi frétt: HÉRNA
Annars er það að frétta að Breiðsíðan hefur fengið staðfest öldunga heimsmet sitt í bekkpressu 275kg í 140kg flokki 45-49 ára en þetta met setti hann á Íslandsmóti ÍKF Metal í bekkpressu um daginn.
BESTI BITINN Í BÆNUM

Benni var einnig í Fréttablaðinu í gær þar sem hann var spurður spurningu dagsins um besta bitann í bænum?…Ekki stóð á svarinu hjá heimsmethafanum: “Það er Bætingabátur á Hlölla. Hann er gerður bara fyrir stóra og stæðilega menn. Þarna er allt milli himins og jarðar og vel af kjötinu…
Góður plús fyrir aðalmanninn Hlöllahlúnkinn.…

Entries (RSS)
Haha, Benni rotborgari er nú bara eins og hvolpur í samanburði við Hr.Breiðsíðu
Það gæti hinsvegar verið ágætis hugmynd að halda sig við séríslensk viðurnefni en núna langar mig bara í Hlölla!
Sammála Eika. Magister verður bara að koma með annað viðurnefni á Benna sem festist.
ég lít svo á að Breiðsíðan sé rétta nafnið á kappann..
Kári þú ert sá eini sem ég veit um sem kallar hann þessu nafni. Það þekkja nánast allir Benna sem BigBen sama hvort þeir eru í kraftasporti eða ekki.
Tóm vitleysa.
já. það er rétt Big Ben er tóm vitleysa…!…menn mega samt fyrir mér kalla hann því nafni!