Sir Magister Cat

Á 40 ára lyftingaafmælisári sínu núna hefur  Kári magister þegar unnið sinn 51 Íslandsmeistaratitil í lyftingum og kraftlyftingum í 4 samböndum sem hafa haft með kraftlyftingar að gera þ.a.s. LSÍ. Kraft, ÍKF Metal og RAW Ísland. Það er í sjálfu sér met en um næstu helgi heldur WPC páversambandið Íslandsmót í bekk og deddi og takist ritstjóranum að vinna 75kg flokkinn þá, nær hann því markmiði að vera fyrstur á Íslandi til að vinna titla hjá öllum samböndum…EKKI MISSA AF ÞESSU MÓTI!

Á æfingu um daginn í SteveGym sagði Fjölli teygjutvister við strákana: “Nú kalla ég köttinn LÉTTFLOKKASKELMIRINN”!… “Nú, sagði Rúnar seigluhestur..afhverju það?”…”Vegna þess, svaraði Tvister,að kötturinn er í svo miklum anda núna að hann toppar allt og skrifar svo hrikalega á Kraftaheima að allir léttmolar sem ætla að keppa við hann verða skíthræddir!”

Ritstjórinn heyrði þetta og sagði hæversklega: “ÞAÐ GETA ALLIR KEPPT VIÐ KÖTTINN EN AÐ SIGRA HANN ER ALLT ANNAÐ MÁL!”….Það  má hinsvegar minna á það enginn vinnur keppni fyrirfram hvort sem hann er einn í flokki eða andstæðimgarnir eru hundrað…Það geta allir fallið úr keppni með óheppni eða mistökum…Það þurfa allir að hafa í huga:  Það þarf að halda einbeitingu, sleppa við meiðsli og  síðan ekki síst: taka  örugga byrjunarþyngd eins og segir í lögum Heimsmeistaraklúbbsins…

Share on Facebook
5 Responses to “Tekst Léttflokkaskelminum að vera fyrstur til að verða meistari í öllum samböndum?”
  1. Rúnar hroði says:

    Kisi ég næ þér einn daginn! geðsýkisæfingar hjá heisa,stebba,boris og úlfinum í BEISINU

  2. KE says:

    Flottur..kannski…en..Það er ansi langt í þennan einn dag…!

  3. Rúnar hroði says:

    hehe það er gott að hafa markmið sir!

  4. spider says:

    Það er ekki sjálgefið að vinna köttinn maður með þessa keppnisreynslu …það er hægt að telja á fingrum annarar handar þau mót sem kötturinn hefur fallið úr keppni gegnum árin…og þegar kallinn er kominn í þennan ANDA STOPPAR HANN ENGINN…

  5. Alma Elídóttir says:

    Vá!
    40 ár- “er ekki hár
    aldur á voru landi”..
    eins og stóð í flottri vísu um árið.
    Það er margsönnuð staðreynd að það er hverjum manni nauðsyn að hafa markmið -
    og líta síðan yfir farin veg og ath hvernig hefur miðað :-)

  6.  
Leave a Reply