
Völundur Wally Þorbjörnss í miðið með sendiherrahjónum Íslands í Kanada 2008 þeim Markúsi Erni og frú hans
Wally Kanadakanslari sem hélt hina rómuðu landskeppni í páver í Kanada 2008 með tilstilli ÍKF Metal er með efnaðri mönnum í páverheiminum. þótt enginn kunni raunveruleg skil á auðæfum hans í ríkidæmi hans í Kanada….Kappinn vill ekki bara vera sófajötunn og liggja á gulli sínu þar til kjötbekks-guðirnir taka hann til sín, heldur vill hann í verki styrkja helstu pávermenn Metal til frekari afreka með nokkuð sérstæðum skilyrðum….
Taki Skyrhöfðinginn Sigfús Fossdal 1200kg í total á EM á Akureyri í sumar fær hann 100.000 kr áheitarverðlaun.
Taki Benedikt Magnússon tarfur nýtt allratíma heimsmet í réttstöðulyftu fær hann 100.000kr. áheitarverðlaun.
Núgildandi heimsmet allra tíma í deddinu er 457,5kg Andy Bolton Bretlandi.

Kanadakanslarinn mun auk þessa gefa nokkra vel valda stigabikara á EPC Evrópumótið sem ÍKF Metal stendur fyrir á Akureyri og Sigfús Fossdal verður aðal mótshaldari þess.
Það væri nú sérlega gaman ef Benni tarfur gæti nú stefnt að nýju heimsmeti á EM, því allir íslendingar vita að hann er þess megnugur…Að vinna hundrað þúsundkallinn hjá Wally myndi líka borga allan ferða og gistikostnað Tarfsins fyrir norðan…Það væri nú gaman ef fleiri pávermenn eða menn tengdir páverheiminum sem luma á seðlum myndu taka Wally sér til fyrirmyndar og styrkja afreksmenn ÍKF Metal, því íþróttamenn félagsins hafa unnið mestu afrek allra landsmanna í páver á síðustu árum….
Það vita allir hvað Skyrinn getur og það er aðeins tímaspursmál hvenær hann stútar 1200kg múrnum…en hann fær reyndar harða samkeppni um þennan múr frá Palla fermeter…Næstu mót ÍKF Metal verða hvílíkt hvílíkt DÚNDUR!!!!
Share on Facebook
Entries (RSS)
völundur er flottur
Völli klikkar ekki. en við skulum aðeins koma okkur niður á jörðina, kannski er full mikið sagt að segja 1200kg leyfum þeim að komast aðeins yfir 1100kg og sjáum svo til.
KOMA SVO SKYRI OG TARFUR !
Þetta er flott hjá honum. Finnst að allir ættu að leggja eithvað fram og fá Benna til að rústa þessu meti.
Kári, er það ekki frekar 100þús Canada dollarar sem Kanada Kanslarinn er að heita á Skyra?
Kanslarinn lýtur ekki svo lágt at vesenast með íslenskar krónur….hann er laungu hættur því. Kanslarinn hugsar bara í dollurum….og ef það ætti sér stað að hann færi að hugsa í krónum…..að þá væri það bara í hundruðum miljóna og miljörðum…….. Truðu mér Kári….þetta eru dollarar og ekki krónur
Sigfús er búin að segja mér að hann verði fyrstur að taka 1200 og ég hef fulla trú á því að hann taki það, ef ekki á þessu móti þá einhvern tíman seinna. Þetta snýst ekki um að komast niður á jörðina þetta snýst um ótrúlegan bætingaranda. Hugarfarið er allt, þeir sem ekki trúa verða skildir eftir. Sigfús á eftir að ná árangri sem flestir láta sig ekki dreyma um og það er mér ljúft og skylt að hvetja hann örlítið. Ég er búin að greiða honum styrk uppá 100kall sem fer til verðlaunakaupa, ég skora á alla fyrrverandi og núverandi powermenn að styðja við bakið á þeim sem bera þungan af framkvæmd EM á Akureyri.
Með Tarfinn þá eru menn að segja mér að hann sé útbrunninn, ég held ekki en við sjáum til.
Ofsinn,
Fallegri en flesta grunar.
Djö..líst mér vel á þig Völundur! Hef fulla trú á þessum strákum.
Flottari en flesta grunar..(fallegri??..púff…fegurð er ekkert…ljótleikinn er fegurðinni æðri því hann endist (Sókrates)