
Magnús Ver Magnússon hefur stofnað nýtt félag/samband í páver sem heitir RAW Ísland..þetta RAW þýðir að það sé keppt án útbúnaðar. Væntanlega aðeins belti leyft. Fyrsta formlega RAW mót félagsins verður Íslandsmót í réttstöðulyftu.
Íslandsmót RAW Ísland í Réttstöðulyftu í Jakabóli Laugardaginn 27 Febrúar kl 13. Viktun verður Föstudaginn 26 Feb kl 19-20 í Jakabóli.
Skráning á magnusver63@hotmail.com eða í síma 6630001
Share on Facebook
Entries (RSS)
Hamingjuóskir til Magga að taka þetta skref, ég spái því að þetta samband verði lang stærst innan tíðar því að það eru allir farnir að sjá hvaða bull þessi útbúnaður er orðinn. Ég hef oft sagt að ég muni taka nokkrar æfingar og keppa aftur þegar ég kem í öldungaflokk, það verður í þessu sambandi.
Ofsinn.
Þetta er hrikalega jákvætt. Verið á heiður skilið fyrir að stefna á að koma páernum aftur í alvöruna.
Takk fyrir strákar. Hjá RAW Ísland eru leyfðir vafningar og belti.
Frábært þetta raw dæmi. Hérna áður fyrr vissi maður hverjir voru helsterkir. Kappanir sem voru að flengjast með í kringum 200 á bekknum á kjötinu. Núna eru strákar að skíta á sig með 130-40 á kjötinu og eru að spá í að brjóta 200 múrinn á næsta bekkpressumóti. Auðvitað bara grín. Vonandi að þessi raw þróun haldi áfram og að spá Ofsans rætist.