
Örvar hinn ægilegi….(höfum ekki betri mynd af honum eins og er)
Það var margt um manninn í raunveruleikanum í dag þar sem flestir tóku á guðsgreininni en tveir voru að dedda…Nýr 80kg léttmoli að austan…Örvar Friðriksson fjarfrændi Skúla Óskars og Magisters frá Fáskrúðsfirði mætti í andann..þetta er nokkuð vel byggður náungi sem prófaði slopp í fyrsta sinn og tók 130kg mjög örugglega og stutt í 140…. Örvar á eftir að sloppast einu sinni enn áður en hann keppir á Íslandsmóti ÍKF Metal laugardaginn 13.febr. Fjölli sást aftur eftir veikindi og tók 180kg á bekknum fremur hægt og þungt og hafði ekki hátt um væntanlega megrun en líklega nær hann samt bætingu á góðum degi á mótinu…
Þröstur Óla ætlaði sér um of þegar hann reyndi 20kg bætingu með 170kg sem bifaðist ekki langt frá kassa..gaman hefði verið að sjá hann fást við 160kg sem hefði verið raunhæft…Vinur Þrastar hinn efnilegi Kári Árna er farinn að kvíða því að mæta ritstjóranum í 75kg flokki og sagðist vera orðinn 77-78kg og að hann kæmist ekki í flokkinn nema að Fjölli léti honum í té vökvavísindi…Kári pumpaði 100kg á kjötinu skítlétt nokkur sett og tekur væntanlega fína bætingu um 125-130 næsta föstudag…
Steve kom með nýja ljósku í gymið sem tók bekk og deddaði 90kg léttilega…Ölli vinur sá um þjálfun ljóskunnar þennan fyrsta tíma samkvæmt áætlun Foringjans sem lýtur að því að auka karlmennskuandann hjá Herði…Daman var svo vel hress eða þangað til að Magister spurði hana hvernig henni fyndist að svona margir strákar væru að horfa á tútturnar á henni?…Hún æsti sig eitthvað við kallinn en var búin að jafna sig í lok æfingar og faðmaði Magister en lét sér nægja að taka í höndina á Ölla og einum eða tveimur öðrum…
Haukur kvikmyndagerðamaður deddaði svo með Grjóna miðnæturdeddara…Haukur tók 200×2 sem var repsabæting og síðan 210kg næstum því tvö reps á eftir því…Sigurjón”sjálfur” tók 250kg skítlétt og síðan 280kg með Steve..en það var kvikmyndað í fyrsta sinn þegar Steve sló með annarri hendi undir stöngina….
Share on Facebook
Entries (RSS)
hvað er fjölli þungur núna
mér sýnist hann vera um 107kg eða svo..
Óstaðfest skilst mér að stór hluti vökvavísindanna felist í því að skera niður kolvetni síðustu vikuna og þamba vatn á fullu og míga því svo öllu á síðustu 1-2 dögum.
Stendur ekki einhversstaðar í lærdómsbókum að maðurinn sé gerður af páverguðnum sem 75% vatn?
Jæja, svo þið hafið bætt ljósku við hópinn til að auka fegurðarstaðalinn
Mætingar á æfingarnar fer kannski að aukast hvað úr hverju…
ég held að það verði tæpt hjá honum að ná þvi heldurðu að það liði ekki bara
yfir hann eins og hérna um árið.hehe
ég hygg að það líði yfir fleiri ef honum tekst þetta…
já það er engin spurning.ef hann nær að létta sig i 100 og bekka 195 þá er ég
ekki frá þvi að mig myndi svima eitthvað smá:)