
Hrólfur Jón Flosason
Molar sem eru að æfa fyrir Íslandsmót ÍKF Metal á bekk eru að bæta sig á fullu….Hrólfur sem er einn af sonum hins gamalkunna kraftakappa Flosa Jónssonar hefur verið að taka vel á bekknum undanfarna mánuði en hann hefur áður keppt á bekk og í fitness ofl. Hrólfur sem er rúmlega 100kg skjóða tók um daginn á kjötinu 160×3 og henti svo upp í slopp 180kg fremur létt…Hrólfur tekur annan topp í SteveGym á morgun mánudag eða á þriðjudag og erum við þá að tala um 190-200kg..Það verður greinilega hörkukeppni í 100kg flokknum á mótinu!

Halldór Bergmundsson - myndin tekin í sendiherraveislu í Ottawa í Kanada 2008 -rétt áður en einhver fínn útlendingur gekk til hans bergnuminn af drivers-massanum og spurði: “Hello,are you Magnús Ver Magnússon?”…
Litla Verið fer hamförum í stálinu þessar vikurnar og er að byggja sig vel upp fyrir árið…Dóri fór í slopp á bekknum í dag og tók þar fína bætingu með 170kg..eiginlega skítlétt og átti inni…Stefnan þar á bæ er tvisturinn á þessu ári..engin spurning….!
Share on Facebook
Entries (RSS)