Hermann Haraldsson og Jóhanna Eiríksdóttir á fyrsta bekkpressumóti Metal

Formannsskipti hafa nú orðið hjá ÍKF METAL.  Jóhanna Eiríksdóttir einn helsti stofnandi og frumkvöðull félagsins hefur nú látið af störfum eftir farsælan feril þar sem hún gerði ótal margt gott og kom félaginu á stall sem einu því athyglisverðasta í heiminum og öflugasta á landsvísu. Henni er þakkað fyrir sín góðu störf og vonandi gengur henni sem best í því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Hermann er boðinn velkominn í formannssætið en hann tekur við því fram að næsta aðalfundi þar sem ný stjórn verður kosinn og alveg eins líklegt að Hemmi verði formaður áfram. Það eru fullt af krefjandi verkefnum framundan hjá Metal þar sem næsta stórverkefni er Evrópumótið í Amsterdam í lok  júní og stefnt ar að því að senda yfir 10 keppendur.

Share on Facebook
2 Responses to “Hemmi tekur við af Skottunni”
  1. Árni says:

    Þar er félagið klárlega í góðum höndum! Efast um að nokkur maður sé ósammála því

  2. Alma says:

    Og þá er að byggja upp innra sem ytra starf, og samtaka nú!

  3.  
Leave a Reply