Ingvar ringo Tortímandi er að rífa niður fyrir Hringrás þessa 80 tonna vél sem forseti Bandaríkjanna lét framleiða
í Fréttablaðinu í dag á bls 26 (og einnig á visir.is) er mjög skemmtileg grein um heimsmeistarann á bekk Ingvar Ingvarsson þar sem sagt er frá hrikalegri vinnu hans fyrir stórfyrirtækið Hringrás. Greinin byrjar svona:
“Ingvar Jóel, sem kallaður er Ringó meðal félaga sinna í kraftlyftingafélaginu Metal og Tortímandinn þegar hann er í vinnunni, hefur að undanförnu fengist við að rífa niður í brotajárn eina stærstu vinnuvél landsins – sem lengi vel gekk undir nafninu Skrímslið.
„Þessi vél er merkileg. Hún var framleidd sérstaklega fyrir Richard Nixon í kalda stríðinu. Þá voru að aukast þungaflutningar til landsins og þessi vél – sem kölluð var skrímslið – er sérhönnuð til að taka á móti 30 tonna gámum,” segir Ingvar Jóel. Hann hefur fengist við það að undanförnu að rífa niður einhverja stærstu hjólavél landsins. Og veitir ekki af að hafa öflugan mann í því en Ingvar Jóel varð nýlega heimsmeistari öldunga í bekkpressu. Ingvar hefur starfað við niðurrif í um þrjátíu ár og kallar ekki allt ömmu sína. Kallaður Tortímandinn meðal vinnufélaga sinna.”
Menn geta lesið alla greinina á visi.is einmitt: HÉRNA
Tortímandinn Ingvar Jóel hefur að undanförnu starfað við að rífa niður í brotajárn vinnuvél sem var svo svakaleg að hún gekk undir nafninu Skrímslið. Segir Ingvar að Skrímslið hafi verið stolt Alfreðs Þorsteinssonar hjá Sölunefnd varnarliðseigna.
Share on Facebook
Entries (RSS)
Ingvar alltaf flottur!!!
En Kári af hverju þarf síðan að vera þannig að fronturinn er alltaf bara fréttirnar?
Af hverju eru ekki linkarnir sjáanlegir beggja vegna við fréttinar þegar síðan er opnuð?
Big, sendu mér póst á sirmagister@visir.is og ég skal gefa þér samband við tæknimann minn en það er víst hrikalegt verk að lagfæra hlutina eftir netkrimmann og ættingja hans úr Mosfellsbæ