Öll tæki ÍKF METAL hafa nú verið flutt í Þrekhúsið við KR-heimilið vestur í bæ og verður æfingaaðstaðan orðin klár á mánudag. Menn geta því mætt á mánudag og skoðað aðstæður. Metal hefur sér 100fm sal sem er lokaður af þannig að almenningur sem gutlar í heilsuræktinni sjálfri getur dundað sér í friði fyrir molunum sem taka á því í afreksandanum.
Það verða ýmis kortatilboð í gangi fyrir pávermenn í Þrekhúsinu sem hægt er að kynna sér á staðnum eftir helgi. Um að gera og mæta og stuðla þannig að nýrri bætingaframtíð fyrir sjálfan sig.
þEIR SEM VILJA SPYRJA UM EITTHVAÐ GETA HRINGT Í iNGVAR RINGO SÍMI: 660-8911
Stjórn ÍKF METAL

ÖFLUGASTA PÁVERFÉLAG LANDSINS!
Share on Facebook

Entries (RSS)
Mér lýst alveg frábærlega á þetta, loksins getur maður farið að æfa með alvöru mönnum aftur…
Klassamenn eins og þú Ómar eru sérstaklega velkomnir!
hvað er ársgjaldið hjá ykkur?
Ársgjald hjá ÍKF METAL er 6.000kr. sem gefur rétt á ódýrari þátttökugjöldum í mótum innanlands og rétt á að keppa erlendis hjá WPF osfrv. Félagið þarf að borga árgjald til WPF. Sér þátttökugjöld eru á stórmót WPF úti í heimi. ( EM og HM)
————-
Ársgjald til æfinga í Þrekhúsinu er 25.000kr. en hægt er að kaupa minna kort. Hringdu bara í Ingvar, sími 660-8911
Ég hef verið að lyfta í þrekhúsinu og þetta boðar bara gott. Ef það væri einhver helgaropnun eftir hádeigi þá væri þetta fullkomið. Bara 3 tímar (4-7 t.d.) myndi breyta öllu.
Það getur vel verið að við fáum lengri opnunartíma um helgar seinna…verður sett í nefnd!
Árninn er að fíla þetta
Úlfurinn líka!
YEAH! mætti bara vera opið allavega til 9 svo PalliPáll sjái sér fært að mæta
Mánud til fimmtud. er opið til kl.21.00
Hann var eitthvað að tala um að salurinn lokaði samt hálf 9.. en ég veit ekkert:P
það er opið til 21:00 en salurinn lokar hálftíma fyrr, nema á föstudögum, þá lokar 20:00. því miður er þetta bara of stuttur æfingatími fyrir mig.