Archive for June, 2010

Hluti keppenda í kynningu-
Gífurleg þátttaka íslendinga í þessu móti sýnir hversu frábært starf í kraftlyftingum er unnið hjá ÍKF Metal og verður ekki við jafnað hjá neinu öðru sambandi…En það eru reyndar einnig fullt af jákvæðum hlutum að gerast hjá WPC og RAW Ísland og þó nokkuð mörg mót eftir á árinu og allt í gangi. Hjá ÍKF Metal eru m.a. eftir Íslandsmót í deddi/Guttormsmót, Bikarmót og Fógetamótið en aðalmálið er Heimsmeistaramótið í Bath í Englandi í byrjun nóvember en menn þurfa að skrá sig á það mót fyrir 1.ágúst. Meira um það eftir nokkra daga.

Ísleifur Árnason að taka heimsmet 235kg í aukatilraun í 90kg flokki. Þetta var eina heimsmetið í opnum flokki á bekk í mótinu. Glæsilegt afrek! Og fyrir það vann Sleifurinn að sjálfsögðu stigabikarinn!

Peter Malfa sem einnig er alþjóðadómari og dæmdi heilmikið á mótinu ásamt því að keppa sjálfur og aðstoða hina þjóðverjana, athugar hér útbúnað Ísleifs eftir heimsmet á bekk. Reyndar tvíbætti Sleifurinn heimsmetið því hann tók 230,5kg í þriðu tilraun og svo 235 í fjórðu.

Jófó urrabíta athugar með draumaþyngdina á bekk fyrir keppnina og fær nokkur gullin ráð hjá formanni Metal Hemma Haralds en hann var mikið til yfirdómari Evrópumótsins

Ýmsir að spá og spekúlera í heljarþyngdinni á bekknum…

Þýska öldungs-daman Kirsten Scwade setti heimsmet 85kg í 55-59 ára í 90kg flokki. -Jafnaldrar henar á klakanum geta varla deddað þessari þyngd hvað þá meira nema einna helst sú níræða í Steve Gym…

Masterinn að taka 210kg ..10 kg bæting hjá kappanum og Evróputitill nr.2 .þetta er annars bara snilldarljósmynd af tveimur rassgötum að spóka sig um svæðið..
ÚRSLITIN
Evrópumót WPF í Bekkpressu 2010
Benchpress Best lifter
Women Kirsten Schwade
Teen Einar Örn Guðnason
Open Ísleifur Árnason
Masters Alexander
| Flokk |
Þyngd. |
Nafn |
GYM |
Flok. |
1. |
2. |
3. |
Samt |
Wilks |
Sæti |
| Open |
71,70 |
Jóhanna B Árnadóttir |
ISL |
75 |
50,0 |
-55,0 |
-55,0 |
50,0 |
48,9 |
1. |
| M55+ |
89,00 |
Kirsten Schwade |
GER |
90 |
75,0 |
80,0 |
85,0 |
85,0 |
73,8 |
1. |
| teen |
69,00 |
Pascal Pálsson |
ISL |
75 |
130,0 |
-135,0 |
-135,0 |
130,0 |
98,5 |
1. |
| open |
90,00 |
Ilias Bouziouris |
GRI |
90 |
170,0 |
177,5 |
-185,0 |
177,5 |
113,3 |
2. |
| teen |
90,60 |
Einar Örn Guðnas. |
ISL |
100 |
170,0 |
-185,0 |
-185,0 |
170,0 |
108,2 |
1. |
| open |
89,80 |
Ísleifur Árnason |
ISL |
90 |
-222,5 |
222,5 |
230,5 |
230,5 |
147,3 |
1. |
| M55+ |
89,70 |
Flosi Jónsson |
ISL |
90 |
157,5 |
165,5 |
-170,0 |
165,5 |
105,8 |
1. |
| teen |
103,10 |
Sigurður Krisján Grímlaugsson |
ISL |
110 |
125,0 |
137,5 |
-148,0 |
137,5 |
82,7 |
1. |
| Open |
108,20 |
Fjölnir Guðmannsson |
ISL |
110 |
185,0 |
200,0 |
-205,0 |
200,0 |
118,3 |
1. |
| M40+ |
108,80 |
Gunnar F Rúnarsson |
ISL |
110 |
192,5 |
210,0 |
-217,5 |
210,0 |
124,0 |
1. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| M55+ |
111,60 |
Alexander Maximushkin |
RUS |
125 |
180,0 |
190,0 |
|
190,0 |
111,3 |
1. |
| Open |
79,10 |
Eyjólfur Kristinsson |
ISL |
82,5 |
130,0 |
-140,0 |
-140,0 |
130,0 |
89,4 |
1. |
| M45+ |
162,80 |
Richard Fricker |
UK |
140+ |
150,0 |
160,0 |
|
160,0 |
87,5 |
1. |

Fjölli teygjutvister að taka glæsilegan tvistinn!…Hann varð Evrópumeistari í opnum flokki 110kg og stefnir nú á 500 pundin með Masternum…(227,5kg)

Rússinn Alexander Maximuhkin tók 190kg í 125kg flokki (aðeins 111,6kg sjálfur) 55-59 ára og varð stigahæstur öldunga..Masterinn kom þar rétt á eftir að stigum en þrátt fyrir 210kg bekk varð ungur aldur honum að falli….

Einar Örn loftpressa var í miklum anda sem endranær og setti heimsmet drengja með 170kg í 100kg flokki 15-19 ára,,,stutt í 190-200 hjá honum á virkilega góðum degi..Einar tók þó meira daginn áður í bekk á pávermótinu þegar hann setti heimsmet 180kg í 90kg flokknum.

Einar loftpressa varð tvöfaldur Evrópumeistari drengja og vann tvo stigabikara!- Kappi framtíðar! - (ljósm.Palli Patró)

Flosi Jónsson Evrópumeistari 55-59 ára í 90kg flokki tók Evrópumetið 165,5kg en hefur nú lofað að líta vel út í framtíðinni í 100kg flokknum..

Rich Fricker Bretlandi vann gull í super 45-49 ára og tók RAW 160kg eins og ekkert….Hrikalega jákvæður kall á Ísland..er bara Íslandsvinur!.

Sigurður Kristján Grímlaugsson 15 ára tók 137,5kg á bekknum í tíunni og átti góða tilraun við heimsmet drengja 148kg sem stútast á HM í Bath en Krissi er staðráðinn í að komast í þá ferð…
MYNDIRNAR ERU FLESTAR FENGNAR AÐ LÁNI FRÁ JÓFÓ OG GETA MENN SKOÐAÐ FLEIRI MYNDIR HJÁ HENNI HÉRNA

Þrír ómissandi á EM: Svavar Hlölli, Gunnar Ólafs warehousebeast, og Gunnar Freyr Master - (ljósm.Palli Patró)

Rich Fricker Íslandsvinur og Fúzilla mótshaldari (ljósm. Palli Patró)

Eftir mót: Komnir í gírinn: Patró, Haukur þvottur og Gunni skemmujarl -(ljósm. Úrsula Patrópáver)
Share on Facebook
2 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Sefán Sölvi Pétursson hefur verið konungur aflrauana á klakanum undanfarin ár
Það styttist í þessa virtustu kraftakeppni á Íslandi þar sem yfirleitt alltaf er samankominn rjóminn af bestu kraftamönnum landsins. Þetta er sannkölluð Vestfjarðahátið og mótshaldarinn Magnús Ver hefur gefið út dagskrá keppninnar.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst: magnusver63@hotmail.com eða síma 663-0001.
Vestfjarðavíkingurinn, keppni sterkustu manna landsins fer fram
dagana 8 til 10 júlí og fer hún fram víðsvegar um Vestfirði á þessum
þremur dögum.
Keppt verður á eftirtöldum stöðum í ár:
Fimmtudagur 8 júlí
kl 16 Reykhólar : Kútakast og
Herkúlesarhald
Föstudagur 9 júlí
kl 11 Hnjóti : Steinapressur
kl 14,30 Látrar : Steinatök
kl 18 Tálknafjörður : Sundlaugargrein
Laugardagur 10 júlí
kl 12 Bíldudalur : Réttstöðulyfta
kl 15 Patreksfjörður : Sirkus lyfta og
Bóndaganga
Share on Facebook
No Comments »

Hressir Steve Gym molar á keppnisstað en þeir sópuðu að sér verðlaunum á Evrópumótinu í öllum aldursflokkum.
Það voru á milli 50-60 keppendur sem mættu til leiks á Evrópumót EPC hjá WPF heimssambandinu í íþróttahöll Glerárskóla 25-26 júní. Þrátt fyrir mikil afföll boðaðra þjóða vegna gossins í Eyjafjallajökli snemma sumars voru 5 þjóðir sem áttu keppendur á mótinu: Ísland, Þýskaland, Rússland, Bretland og Grikkland. Mótshaldari undir merkjum ÍKF Metal var Sigfús Fossdal sem gat að lokum bjargað öllum vandamálum sem komu upp við mótshaldið m.a, þar sem á tímabili var búið að hætta við mótið ofl. Kynnir á mótinu var engin önnur en kraftadrottningin Gemma Taylor Magnússon sem lét Benna tarf passa soninn allstaðar í höllinni á meðan hún malaði yfir molunum….Ingibjörg skyrfrú kom líka með nýja barn þeirra Fúzilla og lét það fylgjast með deddinu eins og hægt var…

Hluti keppenda í deddinu

Aðal kvennaskjóða Evrópumótsins var Jófó urrabíta..Jóhanna Árnadóttir sem tók 130kg þrælflott og vann besta afrek kvenna með því.

Jófó: “Átti ég að taka þetta léttara?”

Sóley Smáradóttir er ein af sætmeyjunum í pávernum og hún hefur líka kraft og deddaði 120kg í 67,5kg flokknum og vann!

Þetta er ekki minni dama en Kristín Torfadóttir eitt af mörgum hrikalegum börnum Loðfílsins Torfa Ólafssonar. Kristín var að sjálfsögðu ættarsómi og tók mestu þyngd kvenna 137,5kg í súpernum í unglingaflokki

Bjarki Pálsson úr SteveGym sigraði í 82,5kg flokki unglinga í páver og sést hér í beygjum í nýrri Monolyft græju sem Peter Malfa smíðaði og kom með til Íslands á mótið. Framtíðarfjárfesting hjá Fúzilla upp á næst þegar hann kemst í form á klakanum….

Hálfbróðir Bjarka, Magnús Ingvarsson varð meistari í drengjaflokki í deddi og tók 200kg í 75kg flokki..Það er óhaætt að segja það að þeir bræður eru talsverðir æfingajaxlar og eru framtíðarmenn í sportinu…

Jóhann Helgason SteveGym 16 ára moli, sló í gegn og setti 3 heimsmet drengja í deddi þar sem hann endaði á 250kg og vann gullið í 110kg flokki. .Eins og sést á myndinni er ekki verið að eyða púðri í einhverja tækni heldur þyngdin nánast bara stiffuð upp í geðveiki…

Bjarki Sigurðsson geysir með 321kg heimsmet í höndunum og tryggir sér Evróputitil í 110kg flokknum. Þetta var annað heimsmetið af tveimur sem sett voru í opnum flokki á Evrópumótinu en Ísleifur Árna setti hitt í bekkpressu. Bjarki rétt missti síðan 330kg í mikilli bardagalyftu.

Þröstur Ólason hinn fjölhæfi allra handa moli úr SteveGym var ein helsta stjarna mótsins…Hann varð tvöfaldur Evrópumeistari unglinga, fyrst í pávernum þar sem hann m.a. beygði 300kg og svo daginn eftir í deddi þar sem hann tvíbætti heimsmetið og endaði á 290kg í 100kg flokknum (myndin) Þröstur varð einnig stigahæstur unglinga bæði í páver og deddi og var eiginlega bara hrikalegur…!

Kári Catzilla setti tvö heimsmet í deddi með 220 og 240kg frekar létt í 75kg flokki 55-59 ára og vann þannig besta afrek öldungs á mótinu fyrir dedd aðeins einu stigi yfir þjóðverjann Peter Malfa sem tók 275kg í 100kg flokknum í sama aldursflokki.

Peter Malfa Þýskalandi varð Evrópumeistari í deddi í 100kg flokki 55-59 ára og tók 275kg í góðri lyftu. Peter er snilldar járnsmiður á við Baldvin bekk og smíðar allar powergræjur í Þýskalandi meira og minna. Hann er einnig formaður þýska páversambandsins og mætir á öll mót í góðum anda og keppir bæði og dæmir!…Svona heiðursmenn eru ómissandi fyrir íþróttina!

Catzilla að missa jafnvægið með heimsmetið 260kg..vegna krampaskjálfta og.datt síðan aftur fyrir sig en lenti á löppunum að góðum kattarsið…
ÚRSLIT Í DEDDKEPPNI EM URÐU ÞESSI: (önnur úrslit bíða aðeins)
Evrópumót WPF í Réttstöðulyftu 2010
| Fl. |
Þyngd. |
Nafn |
GYM |
Flokk. |
1. |
2. |
3. |
Samt. |
Wilks |
PL. |
| jun |
66,40 |
Sóley Smáradóttir |
ISL |
67,5 |
100,0 |
120,0 |
-130,5 |
120,0 |
123,9 |
1. |
| jun |
97,00 |
Kristín Helga Torfadóttir |
ISL |
90+ |
117,5 |
137,5 |
-155,5 |
137,5 |
115,6 |
1. |
| open |
71,70 |
Jóhanna B Árnadóttir |
ISL |
75 |
115,0 |
125,0 |
130,0 |
130,0 |
127,2 |
1. |
| open |
81,00 |
Þórunn Þórðardóttir |
ISL |
82,5 |
100,0 |
120,0 |
130,0 |
130,0 |
118,1 |
1. |
| teen |
74,90 |
Magnús Ingvarsson |
ISL |
75 |
170,0 |
-200,0 |
200,0 |
200,0 |
142,6 |
1. |
| teen |
103,10 |
Sigurður K. Grímlaugsson |
ISL |
110 |
160,0 |
180,0 |
-200,0 |
180,0 |
108,3 |
2. |
| teen |
102,40 |
Jóhann Helgason |
ISL |
110 |
220,0 |
240,0 |
250,0 |
250,0 |
150,8 |
1. |
| jun |
72,60 |
Aðalgeir Hilmarsson |
ISL |
75 |
180,0 |
-215,0 |
215,0 |
215,0 |
156,8 |
1. |
| jun |
99,90 |
Þröstur Ólason |
ISL |
100 |
260,0 |
280,5 |
290,0 |
290,0 |
176,6 |
1. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| open |
81,50 |
Haukur Pálsson |
ISL |
82,5 |
200,0 |
220,0 |
-230,0 |
220,0 |
148,5 |
1. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| open |
109,20 |
Eiríkur Kristbjörnsson |
ISL |
110 |
240,0 |
260,0 |
-270,0 |
260,0 |
153,3 |
2. |
| open |
109,80 |
Bjarki Þór Sigurðsson |
ISL |
110 |
300,0 |
321,0 |
-330,0 |
321,0 |
189,0 |
1. |
| open |
126,60 |
Vladim Bratanov |
RUS |
140 |
280,0 |
310,0 |
345,0 |
345,0 |
196,1 |
1. |
| M55+ |
74,50 |
Kári Elíson |
ISL |
75 |
220,0 |
240,0 |
-260,0 |
240,0 |
171,8 |
1. |
| M45+ |
96,20 |
Peter Malfa |
GER |
100 |
245,0 |
265,0 |
275,0 |
275,0 |
170,1 |
1. |
| M50+ |
120,50 |
Jóhann Gíslason |
ISL |
125 |
250,0 |
-272,5 |
-272,5 |
250,0 |
143,6 |
1. |
| M50+ |
128,40 |
Ómar Jóhannesson |
ISL |
140 |
265,0 |
280,0 |
-300,0 |
280,0 |
158,7 |
1. |
| M45+ |
162,80 |
Richard Fricker |
UK |
140+ |
240,0 |
-287,5 |
-287,5 |
240,0 |
131,2 |
1. |

Hrikalegir deddarar á EM…frá vinstri: Haukur “þvottur” Pálsson, Catzilla, Peter Malfa, Eiríkur Kristbjörnsson, Jói Gísla, Ómar Jóh. Bjarki geysir.

Rússinn hrikalegi Vladim Bratanov er nú komin á mynd lengst til hægri

Haukur Pálsson SteveGym fékk gull í opna flokknum í 82,5kg .Þvotturinn bætti sig vel og deddaði 220kg. Hann kvikmyndaði líka mótið með hjálp Mastersins og er stefnan að setja það á disk síðar sem menn geta fjárfest í fyrir eitthvað lágmarksverð.

Eiki Kristbjörnss deddar hér hroðalega 260kg..hann fékk silfur í opna flokknum í tíunni og var einn af þeim athyglisverðu á mótinu…

Jóhann Gíslason í 125kg flokki 50-54 ára deddaði 250 skítlétt en klikkaði svo á heimsmeti með 272,5kg en það koma önnur mót til að taka þetta met…

Hvort var hann að geispa eða öskra?…Ómar Jóhannesson að undirbúa sig fyrir heimsmetið með 280kg í 140kg flokki 50-54 ára…

Svo tók ómar heimsmetið af 280 af miklu öryggi eins og það væri daglegt brauð fyrir hann…

Ómar togar í 300kg í hroðalegum anda…Það fór þetta langt núna..en seinna fer það alla leið sveppir mínir!

Vladim Bratanov Rússlandi deddar í 345kg með glæsilegum sumostíl..Þessi kappi á best 400kg í beygjum. Hann vigtaðist inn á EM aðeins rúm 126kg og var því í 140kg opnum flokki og vann þar besta afrek mótsins. Hann fór með allar þrjár lyfturnar í gegn 280-310-345 en missti þó heimsmet 360kg í aukatilraun. Kappinn sagði við Catzilla í léttu mjög einföldu spjalli á ensku að hann hyggst keppa á HM í Bath í Englandi í nóvember..Hvað hann gerir þar leiðir framtíðin í ljós en þessi moli er hreint út sagt hrikalegur..

Vladim Bratanov reynir við heimsmet 360kg….stöngin bognar ekkert smá við þessi hroðalegu átök!…

Richard Fricker Bretlandi Evrópumeistari í deddi í super 45-49 ára með 240kg lauflétt…hann deddaði daginn áður í páverkeppninni 285kg þar sem hann var bestur allra öldunga..”He is powerlifter not pussy!”

Fricker reynir RAW við 287,kg í deddkeppninni..Kappinn verður góður í Bath í Englandi á heimavelli…
SETJUM INN FLEIRI ÚRSLIT OG MYNDIR VIÐ FDYRSTA TÆKIFÆRI..Kraftaheimar þakka Jófó og öðrum fyrir það að lána myndir í þessa grein!
Share on Facebook
3 Comments »
Posted by KE in Fréttir

“Druslumaðurinn” rétt áður en Masterinn gerði hann upp fyrir Akureyrarferðina á EM..
-
Einhver umfjöllun um EM á Akureyri er í smábið hjá ritstjóranum..Er að jafna mig í bakinu og allstaðar eftir ferðina suður á “Druslumanninum”, bíl Mastersins. Það var mjög þröngt aftur í hjá þeim Catzilla og Hauki þvott enda tveir talsverðir molar frammí og ferðin tók eina 7-8 tíma sem var þó skárri víst en ferðin norður þar sem Druslumaðurinn með Masterinn og Skemmujarlinn (Warehousebeast) innanborðs lenti nokkrum sinnum upp á kantsteinum í beygjum og Villi ketill og lögga á Blönduósi þurfti að laga eina hliðarrúðuna eftir að hún var við það að brotna þegar Jarlinn var að reyna skrúfa rúðuna upp…Í eitt skiptið á leiðinni suður hægði Druslumaðurinn ískyggilega á sér og Skemmujarlinn (Gunnar Ólafs) fölnaði allur upp og stamaði út úr sér: “Master,hvað er nú að, er hann alveg að stoppa?”…Við komumst þó á áfangastað…Það er líka enn vírus í borðtölvunni sem tefur allar aðgerðir til skrifta og endar í pirringi þar til Catzilla hressist…
Share on Facebook
8 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Jón Gunnarsson heimsmeistari öldunga með yfirburðum!
Einn af þeim frægari köppum sem keppa fyrir norðan er Jón bóndi…alltaf hrikalegur…Raðaði niður heimsmetum öldunga þegar hann sigraði í Las Vegas í fyrra. Bóndinn keppir í 100kg opnum flokki við þá Valda kerfismola, Þrumu-Þór og Palla Patrópáver…Jafnframt keppninni í opna flokknum á EM getur Jón sett heimsmet í öldungaflokknum þar sem hann sjálfur á öll metin nema bekkinn. Heimsmetin í 100kg flokki 50-54 ára eru eftirfarandi: 320-217,5 - 300-820kg. í hinni hörðu keppni EM má búast við að Bóndinn slái einhver af þessum metum því eitt er víst. Til að sigra ungu molana Kerfis og Þór þarf hann þess!!

Catzilla mætir í andann…í 75kg flokki 55-59 ára í single lift deddi er heimsmetið aðeins hin fáránlega tala 197,5kg…meiðsli kattarins í brjóstvöðva lagast með hverjum degi…. Þolmörk áreynslunnar á vöðvann er óljós en það skiptir ekki máli… fyrsta tilraun verður yfir heimsmetinu,það er ekki hægt annað…

Catzilla: “Það eina sem ég veit Jón er það, að fyrir norðan verðum við bestir!”
Share on Facebook
3 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Plakat mótsins sýnir vel það jafnrétti sem er í páver nútímans en nokkrar konur keppa á EM!
Hversu mörg heimsmet verða sett á þessu Evrópumóti EPC hjá WPF heimssambandinu er ekki ljóst en þau verða örugglega 10-20 eða meira í öllum aldursflokkum…Keppnin hefst kl.11.00 í Íþróttahúsi Glerárskóla föstudaginn 25 júní og seinni dagurinn laugardagurinn 26 júní hefst einnig kl.11.00. Vel yfir 50 keppendur eru á þessu móti sem verður án efa þrælskemmtilegt.

Sigurður Kristján Grímlaugsson einn af þeim efnilegu af yngstu kynslóðinni
Hinn 15 ára gamli Sigurður Kristján keppir í single lift bekkpressu í 110kg flokki táninga 15-19 ára…Heimsmetið í hans flokki er 147,5kg. C.Spencer USA sett 17-12-1999 og er eitt af elstu metum WPF. Krissi ..hefur á æfingum verið að lyfta nálægt þessu meti og mun reyna að slá það….

Þór Sigurðsson Íslandsmethafi í bekkpressu í 100kg flokki 230kg!
Þrumu-Þór er í þrumuformi í öllum greinum en hans langbesta grein er bekkpressan. Heimsmetið í opnum flokki 100kg flokks er 255kg. Craig Coombes Bretlandi sett 22-6-2006. Þór hefur verið í einhverju sloppaveseni en það kemur allt til og hann hefur verið að leika sér með þyngdir í kringum þetta heimsmet niður á einhverjar búkkabiblíur….Allavega mun hann reyna við þetta met í miðjum bardaga við ekki minni og frægari mola en Jón bónda og Valda kerfis sem eru báðir í toppformi upp á 820+kg í totali…800kg múrinn er líka eitthvað sem Þrumu-Þór vill stúta á þessu móti…

Svavar Smárason
Hlöllahlúnkurinn heldur sér alltaf í toppformi hvort sem það er fyrir kreppu eða páver og er alltaf hress…Kappinn keppir í öldungaflokki páver 40-44 ára í 100kg flokki og er á höttunum eftir heimsmetinu í bekknum. Það met stendur í 210kg Krokkee Erwin Hollandi sett 1-3-2008…Hlölli á að taka þetta met á góðum degi engin spurning…

Jóhann Gíslason hugsar um heimsmet út í guðsgrænni náttúrunni…
Jói Gísla keppir í öldungaflokki 50-54 ára í 125kg flokki í deddi. Heimsmetið þar stendur í 270,5kg, Joe Dentice USA sett í Las Vegas 15-11-2009…Jói hefur nýlega tekið 265 á æfingu fremur létt svo það er góður séns fyrir hann að taka þetta met…

Ómar Jóhannesson hugsar alltaf hátt hress og glaður….
Ómar stangarmaður er heldur betur að komast á skrið í pávernum á efri árum og er að byrja sinn alþjóðlega feril í deddinu…Hann keppir í öldungaflokki 50-54 ára í 140kg flokki. Heimsmetið þar er 275,5kg sett af stjórnarmanni WPF sjálfum Alan Aerts í Las Vegas 15-11-2009. Ómar á góða möguleika á þessu meti og er ákveðinn í að taka það..
Share on Facebook
2 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Evrópumót EPC í páver bekk og deddi fer fram á Akuryri dagana 25-26 júní og hefst kl.11.00 báða dagana
European Championships 2010, Akureyri Iceland.
25-26 June, Glerarskoli Sportshall. (Íþróttahúsið við Glerárskóla).
Það verða margir glæsilegir íþróttamenn sem taka á stálinu fyrir norðan þótt nokkra af þeim sterkustu vanti eins og er alltaf á hverju móti. Um sumartímann þurfa molar 100kg plús að éta vel og herða kviðinn fyrir veturinn en í aflraunastússinu fá þeir aur í kassann og fá að leika sér úti berir að ofan fyrir almenning í sólinni..Aðrir pávermenn sem eru að taka á því fyrir bætingar og metnaðinn og borga með sér til þess að ná árangri, þeir keppa á EVRÓPUMÓTINU!
Allavega 9 íslendingar munu reyna að slá heimsmet á mótinu í táningaflokki, unglingaflokki, opnum flokki og öldungaflokki. Hér kemur listi yfir þá mola sem munu reyna við heimsmetin:

Ísleifur Árnason léttmolajöfur á bekk tv. ásamt ítalsk-íslenska bekkaranum Dómí Gala
Sleifurinn er í besta formi ever og mun hann keppa í 90kg flokki á bekk og reyna við heimsmet í opnum flokki. Heimsmetið stendur í 230kg -Wiak Jacek Bretlandi sett 27-4-2003…Sleifur hefur einu sinni rétt misst þetta met en núna tekur hann það fyrir hina íslensku kumbaraþjóð…

Einar Örn Guðnason táningur
Einar loftpressa er í glettilegu formi og mun reyna við nokkur heimsmet í táningaflokki 15-19 ára í 90kg flokki í pávernum. Heimsmetin þar eru: 260-177,5-250,5 -632,5kg. Einar á sjálfur bekkmetið sett á Metalmótinu í vor en hann hefur fullan hug á að eignast hin metin líka sem gæti vel gengið í hinum norðlenska anda…

Jóhann Helgason
Jói “feiti” keppir í táningaflokki 15-19 ára í 110kg flokki í réttstöðulyftu. Jói sem er aðeins 16 ára hefur sýnt mikla takta í deddinu en heimsmetið þarna í single lift (sérskráð dedd ekki inn í pávernum) er 215kg sett af Davis Frank USA 5-7-2009. Að öllum líkindum rústar Jói þessu meti í fyrstu tilraun með þyngd upp á 220-230..sjáum til…

Þröstur Ólason-hvort er hann deddari af guðs náð eða beygjari af guðs náð?..kemur í ljós á EM!
þröstur keppir í unglungaflokki í 100 bæði í pávernum og svo daginn eftir í deddi single lift..Þröstur hefur augastað á ýmsum heimsmetum en í pávernum eru þau þessi: 308-215-302,5-795kg. Miðað við það sem Þröstur hefur verið að gera á æfingum mun hann eiga séns í beygjumetið 308 Murphy Cairan Bretl. 19-4-2009 og svo deddið 302,5 Paul Fitzgerald Írl. 12-11-2009- Totalið 795kg á Oliver Williamson Bretl. sett 26-6-2009…Ef allt gengur upp brýtur Þröstur 800kg múrinn!
Heimsmetið í single lift deddi er 280kg Pinelli Richard USA 29-6-2008…
BIRTUM SEINNI HLUTANN UM HEIMSMETA MÖGULEIKA Á EM SEINNA Í DAG EÐA Í KVÖLD.
Share on Facebook
4 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Brjóstvöðvinn bólginn og bysepinn blár en samt er köttur í slaginn klár…
Þá er það ákveðið að ritstjórinn sem lítur frekar ófrýnilega út sumsstaðar en er í grimmu formi og er því kallaður Catzilla þessa dagana ætlar að keppa á EM á Akureyri í deddi næstu helgi og ekkert kjaftæði!…Tvær vikur síðan þessi slæmu meiðsli duttu inn á borð hjá ritstjórninni en á þessum bæ er ekki til orð sem heitir UPPGJÖF eða hætta við mót út af vanlíðan, blankheitum, kellingum eða vanfíling -VANFÍLINGUR -Hver djöfullinn er það?…Alltof margir pávermenn núna sem létu slíkt ná tökum á sér og hættu við að keppa á þessu stórmóti sem ÍKF Metal heldur í samvinnu við hinn norðlenska Fúzilla sem er virkilega önnum kafinn mótshaldari og barna-fjölgunarmaður og er löglega afsakaður að keppa ekki enda ekkert smáræði þegar 187kg skjóða verður fyrir veikindum…
Share on Facebook
18 Comments »
|