Archive for May, 2010

Hafþór Júlíus 205cm á hæð og 170kg skjóða ásamt Magga Ver fjórföldum sterkasta manni heims.

Kraftasíðan IronMind er með hrikalega kynningu á kraftatröllinu Hafþóri Júlíus Björnssyni í gegnum Magnús Ver. Ljónið Hafþór  er að margra mati sá íslendingur sem þjóðin getur bundið mestar vonir við í framtíðinni til að komast í allra fremstu röð kraftamanna í heiminum. Hafþór hefur hæðina, þyngdina ,æskuna og aflið umfram flesta aðra menn og mun vonandi þessi umfjöllun IronMind hjálpa honum til að koma sér á framfæri erlendis með hjálp hins virta kraftafrömuðar Magga Vers sem hefur sambönd um heim allan. Grein IronMind er: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Rúnar Óttarsson brosmildur fyrir Noregsferð

Seigluhesturinn er farinn að mæta reglulega í Gandal klúbbinn í Sandnesi og er farinn að dedda 200+ reglulega og segist ætla að halda þaim dampi næstu mánuði þrátt fyrir langan málara-vinnudag…Rúnar sagði í léttu spjalli við fréttastofuna að molarnir í klúbbnum væru að keyra upp fyrir Noregsmeistaramót IPF sem verður í Drammen næstu helgi..(Magister keppti einu sinni í Drammen á Norðurlandamóti ásamt mörgum frægum íslenskum molum eins og Skúla og Jóni Páli ofl.)

Ennfremur sagði Rúnar að molar þarna æfðu og kepptu allir fremur víðum sloppum eins og 300kg bekkarinn og einn 18 ára gutti sem var að taka 200kg. Enginn Noregsmoli virtist eiga í vandræðum með að koma stönginni niður á kassa og menn væru að spyrja sig hvort þetta væri sér-íslenskt vandamál í guðsgreininni að troða sér í svo þröngan slopp að menn kæmu stönginni bara helst ekki niður…Segjum fleiri fréttir úr Noregi frá Rúnari fréttaritara Kraftaheima síðar…

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Jakob Snær Egilsson í hroðalegu deddi…

Það er búið að vera fín mæting í raunveruleikann undanfarið…Menn í öllum samböndum mæta sem bræður og taka á því út í eitt..Stálið og SteveGym er jafnt fyrir öllum…

.Jakob Snær er einn af þeim nýmolum sem hafa verið að bæta sig mikið undanfarið og er hann einn af fjölmörgum íslendingum sem eru að undirbúa sig fyrir Evrópumót WPF á Akureyri í júní…Kobbi tók nýlega 300 í beygjum og í vikunni tók hann 170 á bekknum og í dag deddaði hann 260×2 og átti inni…Fannar fagri sem hefur núna í tvígang í gyminu tekið 230 á bekknum tók flott sett í dag með deddi upp á 280×3!..Hann er greinilega orðinn besti IPF molinn á landinu að  Ádí undanskildum…Bjarki geysir tók bætingu í togi með 240×3! en hann deddar á 2 vikna fresti og hefur eina tog æfingu föstudaginn á milli…Frikki fríski er einnig byrjaður í gyminu ásamt vini sínum Árna Þór og munu þeir eflast hroðalega á næstu vikum…Þröstur Óla mætti vel stemmdur og beygði 290 fremur létt. Hann lét það nægja þar sem viðstöðumola af stærri gerð vantaði en Geysirinn, Fannar og Baldvin bekkur voru allir farnir þegar Þröstur nálgaðist toppinn en hann var að hugsa um að taka 305 sem hefði líklega farið en öryggið verður að vera fyrir öllu…

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

EPC- Evrópumót WPF verður eftir allt saman á Akureyri!

Þær góðu fréttir voru að berast í hús að Evrópusambandið er búið að samþykkja aftur Ísland og Akureyri sem keppnisstað EM eins og alltaf var áætlað í fyrstu en mótið hafði verð blásið af vegna gossins í Eyjafjallajökli.

NÚ GETA MENN UNNIÐ EVRÓPUTITLA OG SETT HEIMSMET!!

Ljóst er samt að allt þetta rugl er búið að eyðileggja heilmikið fyrir og það nýjasta er að 10 bretar sem ætluðu að koma eru kannski hættir við þar sem Iceland Express eru hættir við beint flug til Akureyrar en bretarnir voru allir búnir að bóka ferðir sínar þar.

Í næstu viku verður allt ljóst með erlenda keppendur sem geta reddað sér hingað á svona stuttum tíma og keppendalistinn verður birtur eftir 10-12 daga kannski.Mótið verður aldrei lengra en 2-3 daga mót úr þessu en það kemur allt í ljós  fljótlega…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Verðlaunastyttan dýrmæta af Jóni Páli sem Verið lét hanna

stytta til eignar af Jóni Páli

að verðmæti 250,000   í

verðlaun fyrir sigurvegara

mótsins !!!

5 júní í Grindavík

um sjómannadagshelgina !     Keppt

verður kl 11, í Trukkadrætti, Conan

göngu og Réttstöðulyftu. Svo kl 14,

með Atlas stein, í Sirkus lyftu og

blöndu af Bóndagöngu + Uxagöngu !


Skráðir keppendur eru nú þegar :

Benedikt Magnússon!

Páll Logason, Orri Geirsson, Ólafur

Valur Guðjónsson, Hafþór Júlíus

Björnsson, Úlfur Orri Pétursson,

Sturla Ólafsson,


Heiðar

Geirmundsson og Jón Þór

Ásgrímsson.



Share on Facebook

Comments 4 Comments »

“Ég segi það hér og nú að ég er líka sterkastur af öllum í kjötbekknum”

Það var nokkuð fjölmennt í raunveruleikanum í dag þegar það var gert heyrinkunnugt að Fúzilla myndi taka topp í stöðinni í dag á bekknum…Fjölli teygjutvister var yfirréttari hjá Fúsa en Ingibjörg skyrfrú mætti einnig á staðinn til að fylgja úr hlaði bætingum hjá bónda sínum…

Fúzilla var sprækur mjög og henti upp 10kg kjötbætingunni með 260 hratt og létt.Já allratíma íslensk kjötþyngd á bekk en að vísu eitthvað bumbubomb eins og t.d. hjá Palla fermeter..En á það er að líta að það voru allavega 10kg inni og það styttist óðum í 300kg kjötbekk hjá ferlíkinu Fúzilla sem vegur núna 180kg+..

Fjölli tróð síðan kappanum í nýjan sérsmíðaðan Metal king slopp og var hann í það þrengsta til að byrja með og þurfti Fúsi nokkuð margar búkkalyftur til að stilla hann en hann tók af mismunandi búkkum: 290-310-325-340 -350…þrjú sett af tvöföldum og þreföldum búkka með 350 en svo þegar hann fór loks niður á kassa var hann búinn með púðrið og klikkaði á því. Næst þegar Fúsi fer í topp í sloppnum leikur hann sér að 350 og gæti vel tekið 360 spáir ritstjórinn…

Share on Facebook

Comments 8 Comments »


Rúnar Óttarsson kreppist á fyrir Noregsferðina

Seigluhesturinn er bara að fíla sig vel í Sandnesi í Noregi og öll máttleysis varnaðaorð ritstjórans hafa haft góð áhrif á kappann því hann er þegar byrjaður að æfa í páverklúbb svona opinberum stað með engum rosamolum en samt einum bekkpressara sem myndi teljast sá annar sterkasti á íslandi væri hann hér…Heitir sá Alasdair Mc Coll kallaður “Big MC” en þetta er 28 ára gamall lyftari í súper sem tekur 305kg á bekk og hlaut gullið á Evrópubikarmóti IPF í fyrra í bekknum. Kappi þessi er þó máttlítill í hinum pávergreinunum og á 190 í beygjum og 245 í deddi…Hann keppti á kjötinu fyrir nokkrum árum og tók þá 205kg á bekknum,væntanlega mun öflugri núna nema sloppurinn gefi honum 100kg+…

“BIGMC” tekur á guðsgreininni…

Klúbburinn sem Rúnar æfir í heitir Gandal AtletKlubb og er með skemmtilega vefsíðu: HÉRNA


Frá Gandal Atletklub

Share on Facebook

Comments No Comments »


Friðrik Jósepsson páverkappi ásamt litlum en traustum vini

Menn eru stundum að tala um ýmsa múra sem brotnir hafa verið í páver og þeir múrar sem nútímalyftarar eru að fara brjóta verða stöðugt hærri…Sökum þess að ritstjórinn hefur ekki tækni til að skanna inn gamlar myndir hefur hann ekki birt greinar um fyrstu stóru múrbrjóta íslands í pávernum…Björn Lárusson var fyrstur til að taka 200 á bekk 1971 (á kjötinu) og fyrstur að dedda 300kg sama ár..reyndar tók hann 305 en sleppti 300..(fjöllum betur um hann síðar)
Fyrsti klakverjinn til að taka 300 í hnébeygju var hinsvegar Friðrik Jósepsson (Frederiko) en hann var mikill kappi,jafnvígur á páver og lyftingar..(snaraði 145kg og jafnhenti 170kg)
Hnébeygjan hans Frikka var klassalyfta tekin á fyrsta Evrópumótinu (IPF) sem haldið var í Birmingham 1978. Kepptu þar þrír íslendingar, Skúli Óskarsson (SILFUR Í 75), Ólafur Sigurgeirsson (5.sæti í 90) og svo Frikki í 100kg flokki.

ÚRSLIT Í 100KG FLOKKI:

1. Ray Yvander Svíþjóð -320-195- 330- 845kg
2. R.Nobile Bretland -330-205- 310-845
3. R.Kiviranta Finnland - 310-185-325-820
4. Friðrik Jósepsson Ísland- 300-200-290-790.(bekkur á kjötinu)
———————–
5.T.Niehoff Holland -220-167,5-290-677,5
og svo nokkrir aðrir með 600+

Frikki var nú svoldið óheppinn með andstæðinga því ef hann hefði verið í 110kg flokknum hefði hann fengið brons. Frikki fór með allar beygjur í gegn skítlétt:270-290-300 og átti mikið inni. Á þessu móti fór hann í fyrsta sinn í stálbrók og vissi ekki alveg getu sína. Þegar Magister hitti kappann seinna sagði Frikki eftirfarandi um þessa sögulegu 300kg beygju: “Ég get alveg sagt þér það að það hefði engu máli skipt hvort það hefði verið einhverjar 25kg plötur í viðbót sitthvorum megin á stönginni,ég hefði ekki fundið fyrir því!”

Það fór hinsvegar svo að Frikki meiddist í baki nokkru síðar og varð að hætta i páver og var það mikill missir því hann hefði eflaust orðið alþjóðleg stjarna. Frikki átti á tímabili t.d. öll Íslandsmetin á bekk í 90-100 -110kg flokkunum…
Kappinn er nú nýkominn á Facebook og er þegar í góðu sambandi við marga pávermenn…

Share on Facebook

Comments 1 Comment »