Posted by KE in Fréttir

Íslandsmeistaramót IKF Metal í kraftlyftingum fer fram þann 10 apríl næstkomandi. Keppnin verður haldin í Laugardalshöll. Hliðarsal í nýbyggingu og hefst kl.13.00 - Vigtun í StveGym föstudag 9 apríl kl.13-14 og aftur kl.18-19.
SKRÁNINGU LÝKUR ÞRIÐJUDAGINN 6 APRÍL!
Skráning fer fram á sirmagister@visir.is
Ef menn vilja tryggja sér keppnisrétt á Evrópumóti á Akureyri í júní þá er þetta síðasta mótið til þess.
ÞEIR SEM ÞEGAR HAFA SKRÁÐ SIG:
KONUR:
56kg.fl.
Jóhanna Rut Ingimarsdóttir (17 ára)
67,5kgfl.
Stefanía María Arnardóttir (ungl.)
75kgfl.
Halla Rún Friðriksdóttir
KARLAR:
67,5kg.fl.
Rúnar Geirmundsson
75kg.fl.
Kári Elíson
Jóhann Páll Hreinsson
Magnús Ingi Ingvarsson (16 ára)
82,5kg.fl.
Bjarki Pálsson
Kári Árnason
Einar Orri Karlsson
Hilmar Henning Heimisson (20 ára)
90kg.fl.
Einar Örn Guðnason (18 ára)
Þröstur Ólason (21 árs)
Svavar Smárason
100kg.fl.
Valdimar R Valdimarsson
Þór Sigurðsson
Sigurður Kristján Grímlaugsson (14 ára)
Nikulás Rúnar Sigurðsson
Einar Hannesson
Hafliði Arnar Bjarnason
Árni Þór Sigfússon
110kg,fl.
Andri Örn Jakobsson (23 ára)
Gunnar Freyr Rúnarsson
Bjarki Þór Sigurðsson
Rögnvaldur Björnsson
Þorsteinn Grétar Júlíusson (19 ára)
125kg.fl
Jakob Snær Egilsson
Bjarki Elí Ólafsson
-140kg.fl.
Páll Logason
140+kg.fl
Jóhannes Birgir Atlason
Úlfur Orri Pétursson
Hafþór Júlíus Björnsson (21 árs!)
Share on Facebook
5 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Benedikt Magnússon is beyond human power…
SJÁIÐ GREININA OG MYNDBAND: HÉRNA
Share on Facebook
No Comments »

Arnold og Wally á góðum degi á Arnold Classic fyrir nokkrum árum
Hinn yfirlýsti sófajötunn og Kanadakanslari Völundur Wally Þorbjörnss mætti glaðbeittur í raunveruleikann í dag…Hann sagðist ekki hafa séð gosið í dag þar sem ekki væri flugveður en hann myndi fara með þyrlu þangað á morgun….Ritstjóranum brá nú heldur betur í brún þegar hann sá hversu mikill um sig Wally var um miðjuna…Flæðimassinn leyndi þó glettilegu afli því Völlli fór nokkuð vel með á bekknum 170×3!..Eftirlit var haft með fjósinu sem fór ekki þangað sem það vildi fara vegna þunga og fyrirferðar…Menn voru almennt undrandi á þessu bekkpressuafli kappans sem er auðvitað bara glettilegt af óæfðum manni. “Þú verður nú að gefa Skemmujarlinum átprógrammið þitt!” sagði Magister. “Þess þarf nú ekki”svaraði Wally, við erum svipað þungir um 140kg!”…Reyndar steig hann aldrei á vigt en ritstjórinn álítur að 145-150kg sé nærri raunskjóðuþyngd. - Wally glotti ennfremur hressilega og bætti við: “Ég tók reyndar 160×5! ábekknum kl.2 í dag í Jakabóli hjá Magga..Ég vissi hinsvegar að Jarlinn tæki það ekki gilt nema kötturinn væri viðstaddur svo ég mætti hingað bara enn sterkari!”

Fjölli teygjutvister
Skömmu eftir að Wally var farinn af vettvangi birtist Fjölli og tveir lærisveinar hans þeir Kári yngri og Þröstur. Magister sagði Fjölla frá bekknum hjá Völla að hann hefði tekið 160×5 kl.2 og svo eiginlega ekkert hitað upp í SteveGym aðeins tekið 60×5- 100×5 140×1 og 170×3..Þá leit Tvisterinn kankvís á ritstjórann og sagði: “Blessaður, svona feit skjóða heldur hita svo lengi!”
Share on Facebook
12 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Þeir páver-aldavinir Gunnar skemmujarl og Völundur Wally Kanadakanslari eru nú báðir löngu hættir í páver en fylgjast vel með á vesturvígstöðvunum og þrátt fyrir að þeir séu báðir óumdeildir sófajötnar kemur öðru hvoru upp hjá þeim topp-metingur um hvor sé sterkari á bekk..NÚNA!.
Skemmujarlinn eða Sófajarlinn af Danmörku datt inn á nokkrar æfingar í danaveldi um daginn og henti upp tilveruréttinum á kjötinu (150) eftir að hafa tekið 140×2…Wally sagðist umsvifalaust geta gert betur en þetta hvenær sem væri….Hann er nú staddur á klakanum og er að leigja sér einkaflugvél til að skoða gosið í Fimmvörðuhálsi..þegar því er lokið ef veður leyfir flýgur Völs beint til borgarinnar þar sem hann ætlar að taka Skemmujarlinn á bekk í SteveGym á milli kl.18 og 19…Hvort sem hann tekur 152,5 eða 160 mun ekki líða á löngu þar til svar við því mun berast úr baunalandi…(Raunar getur Skemmujarlinn verið pollrólegur yfir þessu öllu því hann á alltaf 240kg á bekk á móti 212,5 hjá Wally á hverju sem gengur í sófamennskunni)..En við segjum samt: Áfram sófajötnar!
Share on Facebook
5 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Tommy Pitkanen Finland real power…
Á barmóti Murtomakis voru margir hrikalegir molar..einn af þeim keppti í 100kg flokki gegn Valda kerfis..Tommy Pitkanen tók í kjötbekk 240kg!..en skjóðuþyngd hans var aðeins 92kg…..Á klakanum getur enginn maxað þetta nema Sigfús the great sem hefur lofað 250+ í sumar…
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Fréttir

Murtomaki páverhjónin héldu sitt árlega barmót um helgina
Þá eru íslendingarnir búnir að taka á því á barnum í Finnælandi en mótið var kjötmót í bekk og deddi…Því miður komst ritstjórinn ekki á mótið vegna anna við að vinna Íslandsmeistaratitla og Fjölli ekki heldur þrátt fyrir að vera sérstaklega boðnir að keppa….Heiðri klakans héldu þeir uppi með sóma og sann þeir Valdi kerfismoli og Benni tarfur…Kerfis tók í 100kg flokki 170 á bekk og 270 í deddi sem telst fínt fyrir hann á þessu stigi en ekki vitum vér hvort hann reyndi við eitthvað meira… Benni tók hroðalega á því eins og hans er von á vísa og myndaðist svo mikil stemning í húsinu þegar hann reif upp deddið að barinn næstum hrundi og þakið ætlaði af kofanum…Tarfurinn í súpernum tætti upp 402,5kg skítlétt og reyndi síðan í algerri geðveiki við 487,5kg..tók það vel af stað en klikkaði síðan á þessari ómennsku þyngd..Það er ekki hægt að fá staðfest heimsmet á svona móti en eins og kunnugt er þá á Andy Bolton allra tíma heimsmetið 457.5kg, Benni þurfti því ekki meira en 460 til að taka heimsmetið óstaðfest en hann hugsar alltaf hærra en allir venjulegir menn..Við vitum ekki enn hvað Gemma tók í deddinu en það fréttist síðar.
LYFTAN HANS BENNA MEÐ 402,5KG: HÉRNA
Share on Facebook
8 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Vilhjálmur Stefánsson ketill ásamt aðdáanda í Vegas í fyrra..
Það voru heldur betur morgunátök í guðsgreininni í SteveGym…Villi ketill var þar mættur í slaginn kl.rúmlega 9 alla leið frá Blönduósi til að komast í sannan fíling…Teygjutvisterinn var búinn að hafa samband við ritstjórann af þessu tilefni sem bauðst strax til að opna gymið eldsnemma morguns fyrir þá kappa…Masterinn mætti svo líka til að forvitnast hvað það væri sem drægi köttinn svona snemma á fætur í gymið…Málið var sloppabekkur hjá Ketilnum….léttur bekkur hjá Tvister og hallandi bekkur hjá Master en SirCat var yfirráðgjafi í þyngdavali svo að Tvisterinn myndi ekki setja Villa í einhverja vitleysis búkkabiblíu…
Villinn var með tvo Titan sloppa meðferðis og tók einhver óteljandi sett í þeim til skiptis þannig…Hann tók 180-190- 200 af þremur biblíum og svo aftur 200 af tveimur biblíum..Þá var aftur farið í venjulegan bekk og 180 flaug upp..190 hinsvegar fraus óvænt niðri á kassa..Það sauð á Katlinum við þetta klúður en jákvæðnin var samt til staðar og aftur var farið í þyngdina..“ÞAÐ ER BARA AÐ VERA JÁKVÆÐUR STRÁKAR!” heyrðist frá kappanum….Lyftan var síðan hörkubarátta með stoppi og öllu…. og upp fór 190kg!…Ketillinn reynir sko við tvistinn á Íslandsmóti ÍKF Metal 10 apríl!…..VIÐBURÐUR sem enginn mun gleyma!
Share on Facebook
2 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Bjarki Þór Sigurðsson
Það var einvalalið á æfingu dagsins í raunveruleikanum og má þar t.d. nefna Spiderinn sem pumpaði 135 4×4 á þrefaldri búkkabiblíu skítléttur á skjóðuþyngd..Bekkurinn lét sér einnig nægja þá þyngd núna vegna eymsla í öxl..Patrópáver repsaði endalaust í deeddinu ásamt Rúnari seigluhesti og Ölli vinur pumpaði sín klassísku 100kg á bekk á meðan Kötturinn tók hjartabætingu kjötlega í beygjum með 165 “like a water” Maður dagsins var hinsvegar Bjarki geysir sem renndi létt í gegnum þrautina og tók allt á kjötinu…Fyrst 230×3 í beygjum, síðan 120×1 á bekk og endaði á glettilegu deddi með 280×2!…Það verður skemmtilegur 110kg flokkur á Íslandsmóti ÍKF Metal 10 apríl….Við munum síðan á næstunni fjalla um mögulegt heimsmetaregn á mótinu sem verður einstakt í sinni röð…ekki einungis á Íslandi heldur í gervallri Evrópu…
Share on Facebook
1 Comment »