
Rúnar Geirmundsson - Hroðinn….
-
Nokkra athygli vakti á síðasta páverári ungur og stæltur gæi sem sýndi skemmtilega hörku á keppnispallinum…Það er Rúnar Geirmundsson sem er bróðir hins kunna kraftamanns Heisa…
KRAFTAHEIMAR LAGÐI NOKKRAR SPURNINGAR FYRIR KAPPANN:
-HVERNIG STÓÐ Á ÞVÍ AÐ ÞÚ BYRJAÐIR Í PÁVER OG HEFURÐU VERIÐ Í ÖÐRUM ÍÞRÓTTUM?
“Ég var fyrst 12 ár í fótbolta (hvílík sóun!..innskot ritstjóra) og svo var ég í blaki og komst í unglingalandslið þar. Ég meiddist eitthvað í þessu sprikli öllu og sá svo páverljósið.” “Heisi bróðir er auðvitað frábær og hann hvatti mig áfram”
HVERJUM HEFURÐU HELST VERIÐ AÐ ÆFA MEÐ ?
“Ég hef helst verið að taka á því með Heisa og Þrumu-Þór og Dóra driver. Þeir eru allir hrikalegir og hafa tekið mig í gegn frá því ég byrjaði sem 56kg tittur en hef nú þyngst um 12kg undir þeirra leiðsögn og er orðinn 68kg og hef bætt mig í pávergreinunum um tugi kílóa.”

Á MÓTUM VIRKARÐU NÚ ÆSTUR OG GEÐVEIKUR,HVAÐ SEGIRÐU UM ÞAÐ?
“Ég er nú rólegasti maður sem þú finnur þangað til ég kemst í páver…Ég man aldrei eftir lyftunum mínum.aldrei..því ég kemst í einhvern annan heim!” “Einhverja geðveiki kannast ég ekki við nema í pávernum…þar fer ég í algjört blackout!”..(flottur!)
HVER TÓK UPP Á ÞVÍ AÐ KALLA ÞIG LÉTTMOLANN HINU HROÐALEGA FLOTTA VIÐURNEFNI:”HROÐINN”?
“það var módelið í kraftaheiminum þessi hroðalega fagri Orri Geirss sem kallaði mig þetta fyrstur. Ég ætla að standa undir þessu og stefni að því að verða óógeðslega sterkur og köttaður api!”

Heisi og Hroðinn taka hálfan krabba…
HVAÐ MEÐ NÆSTU MÓT OG BÆTINGAR?
“Ég verð með á RAW deddmóti Versins um helgina og verð kannski með á RAW beygjumóti SuperGym og svo Íslandsmóti ÍKF Metal í apríl..ég vil helst keppa allstaðar og bæta mig í hvert skipti!” Ég hef lofað að keppa aldrei í útbúnaði (aldrei að segja aldrei!)…á þessum mótum verð ég í 67,5kg flokki en Hroðinn ætlar að éta sig upp í 75kg flokk á Bikarmót ÍKF Metal í október og taka hrikalegar bætingar!”
HVAÐA ÞYNGDIR ER HROÐINN AÐ TAKA?
“Í augnablikunu er ég að taka 150 í beygjum, 85 á bekk og 160 í deddi allt á kjötinu en ég á vel inni því ég hef ekki toppað neitt síðan í fyrra.”
Kraftaheimar þakka þessum efnilega léttmola sem er í hroðalegum anda fyrir spjallið og óskar honum velgengni á næstu mótum. Eitt er víst að áhorfendur munu taka eftir þessum pávermanni á pallinum….
Share on Facebook