Archive for December, 2009

Fagnið nýju ári til gleði og gæfu!

Kraftaheimar óska öllum áhugamönnum um páver og krafta gleðilegs nýs árs…Bætingar eru í blóði hvers og eins!…Njótið lífs og bætinga með gleði í hjarta og eignist þannig framtíð bjarta!

Bestu kraftakveðjur frá ritstjórninni….Kári köttur, Fjölli teygjutvister og Jói Omegakraftur

Share on Facebook

Comments No Comments »

Sigfús Fossdal bekkpressujöfur

Félagar í ÍKF METAL hafa kosið Sigfús Fossdal Kraftlyftingamann ársins. Sigfús er vel að sæmdarheitinu kominn þar sem hann m.a. varð heimsmeistari í bekkpressu og lyfti mestum þyngdum sem íslendingur hefur gert bæði í bekk með 345kg  og í hnébeygju þar sem hann tók 435kg og vann til silfurverðlauna á HM í samanlögðu.

Sigfús hefur nú um skeið verið sterkastur og bestur klakverja á erlendri grundu og mun hann eflaust verða hrikalegur í bardaganum við Palla fermeter að ná 1200kg í totali árið 2010. Palli varð einmitt annar í þessu kjöri hjá Metal en hann varð sem kunnugt er heimsmeistari unglinga í Las Vegas þar sem hann m.a. beygði 400kg eins og hundaskít..Valdi kerfismoli og Ingvar ringo  sem báðir eru þokkalegustu jaxlar urðu síðan jafnir í 3-4 sæti en aðrir molar hlutu eigi mikla náð kjósenda að þessu sinni…..

-

Herdís Hulda Guðmannsdóttir  - Tvister-sister

Herdís var kjörin kraftlyftingakona ársins.   Hún var reyndar sú eina sem keppti hjá félaginu á árinu en maður trúir nú ekki öðru en að kellingar almennt fari nú að gera betur í þessum efnum…Herdís var alveg vel að þessum heiðri komin þar sem hún varð Bikarmeistari og sýndi feikna tilþrif í beygjum og deddi þar sem hún setti Íslandsmet í báðum greinum.

TIL HAMINGJU SIGFÚS OG HERDÍS!

Share on Facebook

Comments 2 Comments »

Forstjóri gæða-heildsölunnar Medico í Kópavogi er vel frískur náungi á alla lund..Það er ekki aðeins gaman að prútta við hann í verslun og viðskiptum heldur er einnig gaman að spjalla við hann um páver og fleira…Einar birtist í raunveruleikanum í dag og heilsaði mönnum með virktum..

Hann leit á annan bekkinn þar sem einhver lóð höfðu verið skilin eftir á stönginni og spurði: “Eru þetta ekki 100kg sem eru á stönginni…haldið þið að ég geti tekið það?..”Þú verður bara að prófa þetta svaraði Magister..Þá kemur í ljós hvort þú ert maður eða mús!” (kötturinn hafði reyndar áður marið þetta þrjú reps eða svo)..

Einar  lagðist þar með á bekkinn og Rúnar málarameistari stóð við…Í raunveruleikanum er hægt…og Einar henti stönginni upp eitt reps og síðan 5 reps í viðbót og var lítt móður á eftir…Það má ekki vanmeta heildsalakraftana svo mikið er víst…Einar labbaði síðan til Magisters nokkuð léttur á svip og sagði:”Ég get alveg sagt þér það Kári að á góðum degi repsa ég alveg 110…

Þeir sem vilja kynnast aflinu sem Medico selur ættu að fara á vefslóðina: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Kosningunni lýkur á miðnætti annað kvöld svo drífið í að kjósa þið sem eigið eftir að gera það!

Kosning um kraftlyftingamann ársins  (Metalmola) er hafin.  Aðeins þeir sem kepptu hjá félaginu á árinu eða eru skuldlausir félagsmenn geta kosið.  Menn mega kjósa hvern þann sem þeim líkar en allir keppendur Metal 2009 eru í framboði þannig lagað…Atkvæði sendist til Hemma Haralds formanns félagsins á netfangið: hermann@xnet.is

Kosningu lýkur 30 desember en úrslit verða síðan bir á gamlársdag á Metalvefnum: HÉRNA

Þeir félagar Metal sem ekki náðu að keppa árinu og hafa ekki borgað árgjald og þeir sem vilja gerast félagar eða styrktarfélagar svo þeir verði örugglega löglegir í kosningunni gefst núna kostur á að borga árgjald 2009 með góðum svokölluðum gjaldkera-afslætti eða aðeins kr.4.000.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Fyrsta Jólamót AFA og Viking Gym fór fram í húsakynnum Viking Gym í gær þann 27.desember. Keppendur á mótinu voru 19 og stóðu þar margir sig með stakri príði. Mikil barátta var í -125 kg fl, þar sem tókust á Elís Hólm, sem nýfrelsaður er úr kreppunni, og Páll Pálsson, bróðir Guðmundar og Alfreðs Pálssona, en Alli er fyrrum Íslandsmeistari í kreppu, en Páll er þyngstur þeirra bræðra og sýndi að hann er engin eftir bátur þeirra á bekk. Báðir kepptu þeir á kjötinu, og reyndur báðir við 200kg í þriðju umferð. Páll náði sinni upp en fékk ógilda en Elís klikkaði naumlega á henni, Elís sat eftir með 190kg, en Palli með 185kg, og vann Elís því góðan sigur eftir góða keppni.

Bjarni Grétar Jónsson vann svo -90kg flokkinn með 170kg, en hann er aðeins 19 ára og keppti því sem drengur og vann þar stigabikarinn. En upp úr stóðu svo lyftur Árna Freys og Kristins Ara, en Árni tók frábæra 210 lyftu í -100kg.fl sem tryggði honum sigurinn í flokknum og stigabikar í opnu flokki. Kidzenegger tók svo bætingu í -140kg.fl en hann keppti í þeim flokki í fyrsta skipti, með 227,5 kg og þar með flokkurinn unninn og stigahæstu unglinga, en Kiddi verður kominn upp úr þeim aldursflokki í lok vikunnar. Kiddi varð jafn framt stigahæsti maður mótsins, aðeins einu stigi á undan Árna.

Aflraunafélag Akureyrar og Viking Gym vilja þakka Elvari Óskars, Einari Birgis og Þorvaldi Vestmann fyrir dómgæslu dagsins, Stjórn KFA fyrir að lána okkur vigt og auka bekk, auk þess sem þessir snillingar sáu um stangarmennsku á mótinu, og öllum keppendum, aðstoðarmönnum og áhorfendum kærlega fyrir, þið öll gerðuð daginn ógleymanlegan.

Kristinn Ari - Kiddzenegger sterkastur hjá AFA með bætinguna 227,5kg  í guðsgreininni

Árni Freyr Árna tók glettilega bekk með 210kg….


Bjarni Grétar Jónsson einn af þeim efnilegri fyrir norðan…

Úrslit: Jólamót AFA og Viking Gym 2009

Þyngdarfl. Þyngd Nafn Aldursflokkur Besti fyrir 1. lyfta 2. lyfta 3. lyfta Best 4. tilr. Wilks st. Wilks stig
#VALUE!
-67,5 63,8 Jón Guðni Þórarinsson Drengja(18) 95 Æ -85 85 -92,5 85 0,8067 68,5695
#VALUE!
-75 70,7 Pascal Pálsson Drengja(16) Æ115 105 110 -115 110 0,7437 81,807
-75 72,2 Aðalgeir Hilmarsson Ungl.fl.(20) 85 -90 90 -117,5 90 0,7322 65,898
#VALUE!
-82,5 82 Ívar Helgi Grímsson Drengja(17) Æ100 90 95 -105 95 0,6724 63,878
-82,5 77,8 Hilmar Henning ungl.fl.(19) Æ105 -90 95 -105 95 0,6951 66,0345
-82,5 79,7 Erlingur Guðmundsson Opin(30) 100 120 -130 -130 120 0,6843 82,116
#VALUE!
-90 87,8 Halldór Valur Stefánsson Ungl.fl.(22) 80 75 82,5 -90 82,5 0,6467 53,35275
-90 89,5 Sigurður Kristján Grímlaugsson Drengja(14) Æ85 85 -90 -90 85 0,6402 54,417
-90 87,6 Þóroddur Einar Þórðarson Drengja(19) Æ120 105 120 -125 120 0,6475 77,7
-90 88,6 Bjarni Grétar Jónsson Drengja(19) 145 160 170 -175 170 0,6436 109,412
-90 84,6 Atli Viðar Jónsson Ungl.fl.(22) Æ90 80 90 95 95 0,6601 62,7095
#VALUE!
-100 100 Árni Freyr Árnason Opin(26) 180 195 200 210 210 0,6086 127,806
-100 92,5 Ómar Þorri Gunnlaugsson Drengja(18) Æ135 125 137,5 150 150 0,6298 94,47
#VALUE!
-110 101,1 Snorri Guðjónsson Opin(25) Æ140 -120 130 -135 130 0,606 78,78
#VALUE!
-125 117,6 Páll Pálsson Opin(25) Æ 200 kg 170 185 -200 185 0,5777 106,8745
-125 114,3 Elís Hólm Þórðarson Opin(26) 140 180 190 -200 190 0,582 110,58
#VALUE!
-140 128,5 Kristinn Ari Hinriksson Ungl.fl.(23) 200 200 215 225 227,5 0,5668 128,947
-140 132,1 Erling Tom Erlingsson Opin(31) Æ 135 kg -120 120 -130 120 0,564 67,68
#VALUE!
140 150 Jóhannes Atlason Opin(27) Æ100 90 100 -115 100 0,5533 55,33
Share on Facebook

Comments No Comments »

Heimsmeistaraklúbburinn stofnaður 14 nóvember 2009 í Las Vegas USA , Riviera hótelinu herbergi 670.

Fyrir heimsmeistara í páver.

4 Heimsmeistarar öldunga voru á stofnfundinum: Ingvar ringo, Kári magister, Gunnar master og Flosi spider

HEIMSMEISTARAKLÚBBURINN - lög -og létt ákvæði - Samþykkt af stofnendum 14 nóv 2009

Kjörorð Heimsmeistaraklúbbsins : EINU SINNI HEIMSMEISTARI ALLTAF HEIMSMEISTARI!

Því miður sáu ekki allir nýkrýndir heimsmeistarar Metal í Vegas sér fært að mæta á stofnfundinn sökum anna með konum eða öðrum aðdáendum sínum..Hér á eftir kemur ágrip af helstu lögum og reglugerðum klúbbsins sem vér munum eftir frá þessum merka fundi. Samþykkt var einróma að bjóða Stefáni Hallgrímssyni (Steve) að verða heiðursmeðlimur en hann er margfaldur heimsmeistari í frjálsum íþróttum og hefur búið til marga páver heimsmeistara í stöð sinni SteveGym. Nokkrir velvaldir og auðmjúkir waterboys fengu að vera viðstaddir stofnfundinn  til að ná í drykkjarföng handa heimsmeisturunum og taka myndir..

Flosi spider ásamt Sir Cat nýkjörnum formanni Heimsmeistaraklúbbsins…..

1. GREIN. - hlýðni - viska - lærdómur

Yngri heimsmeistarar skulu ætið hlýða þeim eldri og reyna eftir megni að nema visku þeirra sér til aukins þroska á öllum sviðum til  frekari afls og lærdóms.

2.GREIN. - Aðild - Einu sinni heimsmeistari alltaf heimsmeistari!

Allir heimsmeistarar ÍKF Metal í páver eða í einstökum pávergreinum verða sjálfkrafa félagar í klúbbnum. Þeir sem einu sinni hafa orðið heimsmeistarar verða alltaf ævifélagar í kklúbbnum.  Heimsmeistarar í liðakeppni fá einnig aðild. Heimsmeistarar úr öðrum samböndum geta  orðið félagar sé þeim boðið það af stjórninni eða þeir sækja um aðild.Klúbburinn starfar sjálfstætt og er ekki undir stjórn eins eða neins.

3.GREIN. - Markmið

Markmiðið er að Ísland eigi heimsmeistara á ári hverju og stefni að fjölgun þeirra í öllum aldursflokkum í páver. Heimsmeistarar  hvetji aðra til titlasöfnunar til að  bæta framfarir í íþróttinni og auka  þannig umfjöllun og athygli á afrekum pávermanna. Heimsmeistaramolar skulu ætíð vera jákvæðir á hina máttlausari til að hvetja þá til  framfara og afreka í lífi og páver. Heimsmeistarar skulu ávallt stuðla að góðum hvatningaranda til að auka á gleði og bætingar hjá pávermönnum.

Þrír Metal heimsmeistarar úr SteveGym: Baldvin bekkur, Gunnar master og Kári köttur…

4.GREIN - Aðalfundur og slíkt.

Aðalfundur skal vera ár hvert eða annað hvert ár sé það nauðsynlegt og þá eingöngu á góðu hóteli  í borg þar sem  HM fer fram . Stjórnarfundir skulu haldnir í tengslum við stórmót eins og Íslandsmót eða önnur alþjóðamót smbr. EM ofsfrv. Til að Aðalfundur teljist löglegur skulu a.m.k. 4 virðulegir heimsmeistarar verða viðstaddir. Leyfilegt er að einn eða fleiri waterboys verði í slíkum fundum til að nauðsynleg  þjónusta  sé veitt við andlega og likamlega næringu  meistaranna sem eru að hugsa framtíðina….

5.GREIN - Byrjunarþyngdir á mótum

Enginn er öruggur gegn örlögunum en heimsmeistarar hafi það hugfast á mótum að tryggja sér eins örugga byrjunarþyngd og hægt er. Þeir skulu og ráðleggja minni spámönnum og öðrum að gjöra slíkt hið sama svo menn séu ekki að falla úr keppni að óþörfu.

Sir Cat - fyrsti formaður Heimsmeistaraklúbbsins!

6.GREIN. Kosning formanns

Formaður skal kjörinn á Aðalfundi til 1 árs í senn eða þar til annað verður ákveðið. Fjöldi stjórnarmanna verður kosinn á aðalfundi eftir áhuga og þörfum hvert sinn.

7. GREIN. Heimsmeistaratal.

Stjórnin skal rita Heimsmeistaratal og fylgjast með að því sé viðhaldið. Meðlimir klúbbssins eru nú eftirtaldir:

1. Kári Elíson (formaður)

2. Flosi Jónsson (varaformaður)

3. Gunnar Freyr Rúnarsson (stjórnarmaður)

4. Ingvar Jóel Ingvarsson

5. Sigfús Fossdal

6. Páll Logason

7. Jón Gunnarsson

8. Þorvaldur Kristbergsson

9. Ísleifur Árnason

10.Baldvin Skúlason

11. Jóhannes Hjálmarsson

12. Torfi Ólafsson

13. Guðni Sigurjónsson

14.. Stefán Hallgrímsson (heiðursmeðlimur)

.

MYNDIR AF NOKKRUM HEIMSMEISTURUM:

Ingvar ringo heimsmeistari öldunga á bekk meö 300kg í 125kg flokki og einn af stofnendum Heimsmeistaraklúbbsins

Sigfús Fossdal heimsmeistari í Vegas á bekk í opnum flokki súper með 342,5kg smellir sigurkossi á fegurðargyðju mótsins…

Palli fermeter heimsmeistaru unglinga í Vegas í 140kg flokki með 400-280-355- 1035kg!

Sigfús skyri og Masterinn - sigurvegar í Las Vegas!

Flosi Jónsson  glettilegur heimsmeistari öldunga á bekk í 90kg flokki með 162,5kg.

Dr.Teygjutvister verðandi síðar meir meðlimur Heimsmeistaraklúbbsins gefur Spidernum góð ráð fyrir bekkinn…

Tveir heimsmeistarar í góðum félagsskap…

Ingvar heimsmeistaraklúbbs-meðlimur ásamt nokkrum góðum klakverjum  á keppnisstað Riviera hótelsins í Vegas. Villi ketill hvatningameistari er lengst til vinstri….

Jón bóndi brattur með gullið í 100kg flokki öldunga með  heimsmet 820kg í totali!

Tveir heimsmeistarar sitja til borðs með tveimur óbreyttum….Heimsmeistara-klúbbsfélögum ber líka að vera sem alþýðulegastir…

Verðlaunin í Las Vegas  sem meðlimir hins íslenska Heimsmeistaraklúbbs hirtu megnið af....

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Jólamót A.F.A. og Viking Gym í Bekkpressu

Gleðilega hátið

Við hjá Aflraunafélagi Akureyrar, vildum minna alla á mótið sem er á sunnudaginn  hjá okkur í Viking Gym, Tryggvabraut 22 Akureyri (3 hæð fyrir ofan axels bakarí)

Minni líka alla keppendur á að borga keppnis gjaldið í vigtuninni sem er kl 13:00, og að mæta tímanlega fyrir keppni, mótið byrjar kl 15:00 og þá eiga léttu molanir að vera tilbúnir og búnir að hita upp.

Fyrir stiga sigur í unglinga- opnum- og öldungaflokki mun Viking Gym gefa mánaðarkort hjá sér.

Aflraunafélag Akureyrar
www.aflraunir.net

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Ungur Stebbi spjóti tekur krabbann …

Hinn eini og sanni Spjóti hlífur aldrei stálinu eða sjálfum sér…Hann býr nú suður með sveit og á þar börn og buru en gleymir aldrei guðsgreininni…(þarf stundum að minna hann á deddið)  Kappinn er nú  að detta í anda því hann er búinn að sjá að Masterinn sá hrikalegi öldungur er að stinga hann af í bekknum og ætlar að fara gera eitthvað raunhæft í málinu..eins og t.d. að stúta 200kg múrnum á bekk í keppni..Spjóti tók núna af þessu tilefni fína þristabætingu sloppaður á bekknum með 180×3!..Gefur góð fyrirheit…Á eftir þessu henti hann upp 235kg deddi og lofar meiru á nýju ári…

Okkar Spjóti-aldrei fúll á móti…

Spjótinn undirbýr  massann fyrir sitt fyrsta kreppumót á níunda áratug síðustu aldar…

Share on Facebook

Comments 11 Comments »