
Model Skyri Fúsdal
Það hafa nokkrar fyrirspurnir borist þar sem óskað hefur verið eftir því að sjá síðustu guðsgreinarbætingu hjá Skyranum en það eru ekki allir sem eru að þvælast á fésinu osfrv. Það hefur vitnast að þessi lyfta með 332,5 hafi verið býsna góð . Kappinn hefur einnig staðfest í léttu spjalli við fréttastofuna að hann stefni raunhæft á 350kg múrinn í Vegas. Í spjallinu kom fram að Sigfús er á góðri bataleið með lærið eftir stanslausa hljóðbylgjumeðferð og nudd ofl Vonast hann sannarlega eftir því að geta tekið 400+ í beygjum úti og tryggt þannig hrikalegt total fyrir Ísland..Lyftan með 332,5kg kemur: HÉRNA

jón B Reynisson er í heimsmeistaraformi á bekknum…
Breiðsíðan hefur að sjálfsögðu æft vel fyrir Vegas, en þótt ótrúlegt sé verður það hans fyrsta alþjóðamót á nokkuð löngun og farsælum páverferli…(Til smásamanburðar má segja frá því að fyrsta mót Magisters í útlöndum var 1973 og er sá alþjóðaferill kominn yfir 35 árin en það er önnur saga..) Benni stefnir vitanlega á heimsmeistaratitill í Vegas enda ekki á færi allra mola sem eru komnir yfir 45 ára aldur að bekkjast á með 270kg+…Kappinn hefur verið að leika sér með 250-260kg þyngdir á æfingum undanfarið og mega hinir mörgu aðdáendur Breiðsíðunnar vera vissir um að hann byrji öruggt úti og klári dæmið….
Share on Facebook
1 Comment »

Páll Sigurðarson Patreksfirðingur..
Heimsmeistaramótið í páver og einstökum greinum íþróttarinnar í Las Vegas nálgast óðfluga sterkum skrefum…Ýmsir Metalmolar sem þar verða hafa orðið fyrir skakkaföllum… Stálið er grimmt og menn verða bara að verða jafngrimmir á sálinni…Hemmi formaður er að losna með hendina úr fatla og er að skríða hratt saman og getur farið að gera sjúkraæfingar fljótlega..Hann verður nógu sprækur til að rífa kjaft á þingi WPF í Vegas þegar þar að kemur..
Palli patrópáver er búinn að vera slæmur í bakinu eftir erfiðar næturvaktir og hefur átt erfitt uppdráttar í deddinu vegna þessa…Kappinn lætur þó ekkert buga sig undir leiðsögn Kattarins og tók fína bætingu á bekknum í dag..Aðalsería hans var öll tekin með stoppi niðri og var býsna örugg: 120×1 130×1 og svo bætingin 140×1!…Þrönga Latabæjarsloppnum hefur verið lagt og núna lyftir Palli í víðari slopp sem heldur stílnum mikið betur…Það er betra að fara í þröngar píkur en þrönga sloppa…

Flosi Jónsson slappar af á milli bysepæfinga….
Spiderinn mætti í síðasta toppinn fyrir Vegas. Eitthvað var bakið að stríða kallinum hvað varðar stífleika og frískleikinn áberandi minni en fyrir svona 2-3 vikum síðan. Kannski ekki skrýtið því það er búið að vera langtíma tæknisköfun á þessum bæ…Magister nennti ekki að horfa á lyfturnar með búkkabiblíum en í löglegum bekk tók Flosi 160×1 og svo aftur 160×1..og lét það nægja..Spurning hvort byrjunarþyngdin úti verður ekki 155-157,5 áður en lagt verður í heimsmetið..(165)

Palli fermeter hefur verið að viða að sér matarbirgðum til að bíta og brenna á lokasprettinum fyrir Vegas..
Fermeterinn núverandi heimsmeistari unglinga er sá sem hvað mestar vonir eru bundnar við í Vegas ásamt Skyrfjallinu… Hefur kappinn lagt línurnar fyrir gott total yfir tonn úti..Í gær varðPalli fyrir áfalli þó þegar enn einn Metalsloppurinn rifnaði utan af honum í bekk…Eitthvað tognaði kappinn í brjóstvöðva við þetta en vonandi jafnar hann sig tímanlega fyrir heljarátökin úti…Góðar bataóskir fylgja til hans!

Magister hjartaköttur er að braggast vel…
Hjartakötturinn tók aðeins á tilverunni til að athuga púlsinn í þessum heimi..Beygja með 150 var í góðri dýpt en smáspennulaust í neðstu stöðu…200kg dedd var síðan öruggt en hraðalítið…Enda varla hægt að segja að kisinn þori að draga djúpt að sér andann enn sem komið er….En þetta kemur!!!
Share on Facebook
19 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Eitt af mörgum táknum fyrir Las Vegas ævintýraborgina í eyðimörkinni
Tákn hafa fylgt mannkyni frá örófi alda. Merking þeirra getur verið margslungin og eigi öllum ljós…Fyrir u.þ.bil 15 árum barst Magister sérstakt tákn sent frá dömu einni í Las Vegas..ýmis skilaboð fylgdu með sem ekki verða rakin hér en táknið sjálft hefur fylgt Magister og það var ekki fyrr en núna á dögunum sem merking táknsins var ráðin…Magister verður myndaður með táknið á næstunni og mun myndin verða birt hér á vefnum svo menn sjá að þetta er ekki neinn tilbúningur gerður í væntanlegri Vegasferð…
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Fréttir

“Þú ert Benni fæddur til að dedda 500. Ekkert sýróp fyrir þig, bara andi! - 500kg hugsaðuu þér! Og þú ert eini maðurinn á jörðinni sem getur það!… 500..500…”
Tarfurinn: “Þú ert alltaf að tala um þetta Steve, ég er ekki að hugsa um 500 lengur ég ætla að taka 600!!”
Magister heyrði óminn af þessum ágætu ræðuhöldum Foringjans og höfðu lesendur greinilega góðan anda í þankagang þeirra félaga og þökkum við fyrir mjög skemmtilegar athugasemdir við getraunina.
Share on Facebook
4 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Kraftaheimar óska Benna tarfi og super-Gemmu til hamingju með hina nýju og glæsilegu kraftasíðu SuperGym sem er farin í loftið. Sjáið hana: HÉRNA
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Fréttir

Eins og sést er Tarfurinn farinn að daufheyrast yfir ræðuhöldum Foringjans…Hvað sagði Steve?…Sendið inn tillögur..Svarið kemur á morgun!
Share on Facebook
10 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Verið að fínpússa styttuna af Vladimir Putin fyrrverandi forseta Rússlands
Nú er það í fréttum um allan heim að rússneska kreppusambandið (vaxtarrækt) sé um þesar mundir að gefa Arnold Schwarzenegger styttu af Putin fyrrverandi forseta landsins og núverandi forsætisráðherra. Það er sagt að efir að Arnold hætti að safna vöðvum fór hann að safna styttum af merkilegum mönnum..Listamaðurinn Alexander Chernohcyokov frá Pétursborg gerir styttuna einmitt í Pétursborg sem er heimabær Putins.

Þessi mynd af Putin hefði nú verið flottari efni í styttu!
Fréttir af netinu af þessari skemmtilegu gjöf rússanna má sjá m.a. á eftirfarandi fjölmiðlum:
TIMES ONLINE: HÉRNA
TVNZ: HÉRNA
VISIR.IS: HÉRNA

Bronzstytta af Arnold sem Conan villimaður en það kvikmyndahlutverk kom Arnold á kortið í Hollywwod
Arnold er án efa frægasti kreppungar veraldar og hafa að sjálfsögðu verið gerðar styttur af honum…Kraftaheimum finnst að Putin eigi að fá styttu af Arnold í staðinn…Svo ætti íslenska vaxtarræktarsambandið að láta gera styttu af Magga Bess og afhenda Arnold við tækifæri..Engin spurning..gæti orðið flottur viðburður!

Magnús Bess kreppukóngur klakans
Share on Facebook
1 Comment »
Posted by KE in Fréttir

Fjölli: Þú færð aldrei systur mína og svo á Kötturinn örugglega nokkur líf eftir svo við getum útskrifast og hætt í þessari geðveiki!”
Ein heimild að Tobbi hafi sagt: “Þú nálgast mig kannski í deddi þegar þú hefur slátrað þremur hamborgurum í viðbót!”
Share on Facebook
5 Comments »