
Víkingar hafa alltaf verið tákn eldmóðs og afls….
Sigfús Fossdal og Ingibjörg Óladóttir skyrfrú hafa verið að undirbúa opnun nýrrar æfingastöðvar fyrir norðan um hríð og heitir stöðin Viking Gym. Ekki sérlega frumlegt þar sem einhverjar stöðvar út í heimi heita þessu nafni en kannski hyggst Skyri síðar fara í útrás og sameina þessar stöðvar undir einum öflugum hjálmi…Kraftaheimar óska þeim skyrhjónum til hamingju með stöðina og nýja flotta bekkpressubekkinn sem Baldvin bekkur smíðaði og ber uppi komandi bætingar Skyrhöfðingjans og allra hinna er á bekk þennan leggjast með stálblik í augum…

Eigendur Viking Gym Sigfús og Ingibjörg spá í það hvernig best er að bekkjast á….
Fréttatilkynning frá Viking Gym kemur hérna um formlega opnun á laugardaginn:
VIKING GYM
Opnar formlega laugardaginn 3. október í Tryggvabraut 22, 3 hæð (fyrir ofan Axelsbakarí).
Frír aðgangur allan daginn, frá 11 til 16, og fríir prótein drykkir frá http://www.facebook.com/l/427c0;perform.is í boði.
Opnunar tímar frá og með 5. Oktober.
Mánudagur til föstudagar, 06:00 til 22:00
(aðgangur í salinn er til 21:00, en má æfa til 22:00)
Laugardaga frá 11:00 til 16:00.
Opnunartilboð út október:
Mánaðarkort 4500 kr
3 Mánaðarkort 9900 kr
6 Mánaðarkort 19900 kr Árskort 27500kr
Einkaþjálfarar og nuddarar til staðar.
Í oktober byrja svo lyftinga námskeið, bæði fyrir byrjendur og þá sem hafa einhverja reynslu (sitthvort námskeiðið). Þau hefjast 12 október, og standa í 4 vikur í senn. Skráning og fyrirspurnir í síma 8669049, hjá Sigfúsi).
Svo loksins á Akureyri, Powerburn námskeið. Brennsla og styrktaræfing saman í pakka sem hafa verið að skila ótrúlegum árangri. Fyrstu námskeiðin byrja 14. Október, skráning í fullum gangi, færri komast að en vilja. Upplýsingar og skráning hjá Ingibjörgu í síma 8670374, eftir klukkan 16:00.
Vonum að sem flestir láti sjá sig og skoði aðstöðuna.
Kveðja, Sigfús og Ingibjörg.
Share on Facebook










Entries (RSS)