Archive for August, 2009

Hér er vel togast á..einn á móti einum…!

Mbl. sagði um daginn frá léttum pælingum í Burma hvor sé í raun sterkari miðað við líkamsþyngd , maðurinn eða fíllinn…Fíllinn er án efa stærsta, þyngsta og sterkasta landdýr jarðar (aðeins gíraffinn er hærri) en spurning vaknar hvort við værum sterkari en fíllinn ef við værum svipaðir á þyngd…Í Burma fór fram reiptog á milli fíls sem vó 3492kg og 50 manna (!) sem samtals vógu 2893kg…. 50 á móti einum hljómar samt ósanngjarnt enda unnu mennirnir þetta merkilega reiptog!

Fílar eru líka þekktir fyrir að lyfta þungum trjástofnum og fleiru og öðru hvoru í sirkusum hafa menn dundað sér við það að lyfta fílum á sýningum…Aflraunamenn hafa þannig prófað að lyfta fílum með svokallaðri baklyftu en fjallað hefur verið áður um þá grein lyftinga í greinarflokknum um Louis Cyr hér á vefnum.

Hér sést kraftamaðurinn Joe Ragusa lyfta fíli með baklyftu á sýningu en hann sýndi þessa aflraun reglulega á síðustu öld í næturklúbbum og fyrir sjónvarp

Share on Facebook

Comments 2 Comments »

Búkkabiblíusögurnar halda áfram og postulum fjölgar…

Nokkrar línur í búkkaversi 2 í kafla 3 í búkkabiblíu SteveGym verða nú ritaðar ….Á föstudagsæfinguna voru mættir á búkkann þeir Baldi bekkur, Flosi spiderman , Fjölli teygjutvister og Tobbi talía , (Þorbjörn Have læknanemi  )….Magister horfði sem minnst á búkkadraslið en ritstjóralega neyddist hann til að fylgjast með framvindu mála….á milli þess sem hann pumpaði keðjubekk í fyrsta sinn og fílaði það frábærlega….Fjölli tók fyrst kjötbekk sem upphitun og endaði þar á jöfnun persónulegs mets 140kg sem var toppur en kappinn bar fyrir sig að hann væri lítt topp-upplagður en það var allt kjaftæði….Þá fór Tvister í búkkabekkinn með Spidernum og Tobba sem tók 140kg ágætlega en Baldi varð fljótlega að halda sér til hlés, enda nýkominn úr axla og olnboga- ómskoðun og fleiru hjá einhverjum doktor sem fannst byssurnar á Bekknum í hæsta móti óeðlilega stórar  og trúði ekki orði af því að kappinn væri jafn mikill engill og liðið hjá Kraft….Sannleikurinn er nefnilega oft þannig að hann hræðir menn…

Búkkakafli þessi þróaðist hinsvegar þannig að úr varð einhversskonar einvígi gamla og nýja pávertímans….Spiderinn og Tvister létu troða aér í sloppa og tóku fyrst báðir 180kg létt…Spider (sem vigtast aðeins 94-95kg núna í tæknisköfuninni)  fór þá í persónulegt og tók 200×2! (af 3 búkkum) og rétt missti 3 repsið…Tvisterinn sem vigtast 108-109kg tók hinsvegar 200×1 hægt og öruggt…Spider sem var vel frískur og flottur fór þá harður í 210kg en klikkaði á því en ekki er langt í þá þyngd…Búkkmester Fjölli fór einnig grimmur í 210 og tók það glettilega!…(allar þessar þyngdir af 3 búkkum) Það má því segja að seigla hins unga hafi sigrað frískleika hins aldna!…Þessir tveir búkkabiblíumenn lyfta nefnilega nokkuð ólíkt þar sem Tvister lyftir hægt en Spider hratt!…Gaman að þessu!

Share on Facebook

Comments 49 Comments »


Íslandsmót WPC í bekkpressu verður haldið

12 September. Sendið skráningu á: magnusver63@hotmail.com

LÍKLEGUR KEPPNISSTAÐUR!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Benedikt Magnússon tarfur í öllu sínu veldi…vigtast nú nær 180 kg en 170kg….

Nú eru uppi á klakanum alnafnar og fóstbræður til stáls  sem eru vægast sagt allfyrirferðamiklar skjóður  og geta ekki þrifist í anda ef súrefnisþjófar munu í nálægð vera…Þetta eru engir aðrir en þeir: Benedikt Magnússon tarfur og Benedikt Magnússon hinn eldri ….Þessir breiðmolar mættu á deddæfingu í raunveruleikann í gær og fóru mikinn…Tarfurinn vísaði hinum eldri veginn með 5 repsa deddi…og af vörum hans hrundi öðru hvoru setningin: “ÞAÐ ER ALLT LÉTT!”…

Benedikt Magnússon, hinn eldri….41 árs og 140kg skjóða..

Þeir skjóðukappar þrifu báðir í stöng með sett upp á  240×5…Það virtist ekki vera of létt hjá Benna eldri þar til Tarfurinn bætti 30kg á stöngina og gekk síðan að nafna sínum og horfði fránum augum meistarans á hina eldri skjóðu og sagði: “ÞAÐ ER ALLT LÉTT!”…Sá eldri gekk þá að stálinu og fleygði upp þessum 270kg 5 reps eins og ekkert..Þetta gjörðu þeir kappar svo tvisvar sinnum þar til Tarfurinn sagði:  “Má ég fara í 300?”… Ekkert svar heyrðist í salnum svo hann henti upp 300×5 eins og fiðri…

Þá fóru þeir á eftir þessu í dedd af búkka og byrjuðu á 200×5…Þá voru þeir báðir orðnir berir að ofan og að drepast úr hita og þurftu að opna út…Steve kom þá inn og var mjög ánægður með útlit nafnanna….Þess má geta að þetta var léttur dagur í deddinu hjá þeim fóstbræðrum en þeir dedda tvisvar í viku á mánudögum og fimmtudögum…Um það leyti sem verið var að þyngja meira á stönginni varð ritstjórinn að yfirgefa svæðið…. en það er alltaf eitthvað skemmtilegt á seyði í SteveGym…

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

þorvaldur Borgarnesbolla Kristbergsson beyglar 415kg

Þau leiðu tíðindi hafa borist stjórn Metal og öllum áhugamönnum um hrikalegar tölur í páver að Bollan hefur dregið sig úr landsliðshópnum til Las Vegas vegna meiðsla í baki. Hryggjarliðir í efra bakinu hafa smám saman verið að ganga til undanfarna mánuði og er þetta farið að há kappanum það mikið að hann getur ekki æft af fullum þunga og er með kvalir daglega orðið. Þetta er mikið áfall fyrir Bolluna því hann stefndi að hrikalegum tölum úti og ætlaði að verja heimsmeistaratitil sinn með stæl, en svona er þetta..Það eru ekki bara gamlir kettir sem lenda í meiðslum heldur ungir molar einnig. Bollan á eftir að vinna sig út úr þessu og mun hann eflaust koma til baka tvíefldur á næsta ári á Evrópumótinu hans Skyrfúsar á Akureyri…Farðu vel með þig Bolla, öllum kær!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Það er hægt að “púðra” sér til hita í SteveGym….

Hitablásarakerfið í SteveGym er nú varanlega bilað og eigendur húsnæðisins segja of kostnaðarsamt að setja upp nýtt hitakerfi…Steve tekur þessu létt þótt stutt sé í veturinn og það þýðir ekki fyrir neinn að kvarta í þessu efni…Ölli vinur hafði orð á þessu við Foringjann að það hefði einungis verið nokkurra stiga hiti í salnum þegar hann mætti á æfinguna….”Ég hlusta ekki á neitt svona!” svaraði Steve….” ÞAÐ BÆTIR SIG ENGINN Á ÞVÍ AÐ ÆFA VIÐ OF GÓÐAR AÐSTÆÐUR!”…

Svo bætti hann við: “Þegar María fór að dala hafði hún líka allt á hornum sér og fór að setja út á allt í gyminu!”…”Líttu á Palla Patró…hann kvartar aldrei neitt og er gegnsveittur  að bæta sig á fullu!…Ölli hikstaði og sagði: “En hvað um okkur gömlu hvað eigum við að þola mikið?”..Steve setti upp sérstakan svip:…”Þið gömlu kallarnir farið ykkur bara hægar!”…Og þannig lauk icecold umræðunni …

Dömurnar í Steve gym mæta núna í svona bolum á æfingar…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Dr. Teygjutvister Fjölnir Guðmannsson

Það var vel mannað í raunveruleikanum í gær og kom .m.a. Brasilíufarinn Freddi fighter og bekkjaðist á…Magister og Patrópáver tóku búkkabekk á fullu í tilefni af skemmtilegri umræðu um þá æfingu hér á vefnum undanfarið….Fjölli teygjutvister væntanlegur Vegasfari var þó maður dagsins en hann kannaði sig í beygjum brókarlaust en kappinn hefur verið að laga stílinn undanfarna mánuði og er nú meira uppréttur í beygjunni og harmonikkubakið á hverfandi hveli…Masterinn mætti á svæðið með bráðabirgðatökuvél og myndaði fína bætingu hjá Tvisternum með 200kg en sú lyfta kemur: HÉRNA

Á undan 200 tók Fjölli létta lyftu með 180 sem kemur: HÉRNA

Það er lýðum ljóst að Tvisterinn fer til Vegas með margar bætingar í farteskinu en stefnan hjá honum sem beygjutakmark er 250kg en topptakmark er þó 260kg…Við segjum meira frá HM förum á næstunni….

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Hér sést þokkalegur moli lyfta á einföldum búkka

Svokallaður búkkabekkur (benchpress on boards á ensku!) hefur verið að ryðja sér til rúms sem ný og öflug þjálfunaraðferð á síðustu árum. Fremstur í flokki ofurmola á þessu sviði er auðvitað bekkpressujöfurinn Ryan Kennelly sem á nærri 500 kg í keppni á bekk og æfir mikið með búkka..Búkkarnir sem notaðir eru í þessa æfingu eru svona hefðbundið frá einum upp í fjórfaldan.  Þjálfun á þennan hátt styrkir farveg lyftunnar á mismunandi stöðum eftir hve margir búkkar eru notaðir en í heild sinni hjálpa þeir mest við að klára lyftuna.  Sloppar nútímans sjá að mestu um startið en lyftarinn sjálfur þarf síðan að klára undir eigin  vélarafli og þar hjálpar búkkaþjálfunin gífurlega….

Léttmoli lyftir á þreföldum búkka. Þá styttist vegalengd lyftunnar talsvert og trysepinn kemur meira inn í átakið

Það eru nokkrir væntanlegir HM farar Metal sem æfa í SteveGym með svona búkkaþjálfun. Slíkt hefur þegar skilað góðum árangri eins og t.d. Baldvini bekk sem í fyrra  setti heimsmet öldunga 220,5kg í 50-55 ára aldursflokknum eftir 3 mánaða búkkaþjálfun þar sem hefðbundinn bekkur var lítið æfður.  Flosi spider komst þá einnig á skömmum tíma  upp úr “engu” á bekk upp í 170 kg með búkka sem undirstöðuþjálfun. Núna æfa SteveGym molar undir leiðsögn búkkameistarans Fjölla teygjutvisters ,en hann sýndi mönnum um daginn hvernig á að fara að þegar hann tók bætingu með 200×3 af þreföldum búkka.  Á föstudag æfðu menn með þyngdir frá 120-150kg  3-5 reps heil 8 sett..Mest af þreföldum búkka.

Best er að hafa góða aðstoðarmenn við búkkaæfingarnar..

Þegar nær dregur keppni fara menn í slopp og lyfta á búkka þannig 1-3 reps. Við munum síðar reyna að fá Dr. Teygjutvister  til að skrifa eitthvað meira um búkkabekk og gefa  einhver góð ráð í þeim efnum.

LINKUR UM BÚKKABEKK: HÉRNA

VILTU BÆTA ÞIG Á BEKK? : HÉRNA

Share on Facebook

Comments 42 Comments »