
Nokkrir yfirmolar í kynningu í þyngra hollinu

Tarfurinn með sigurlaunin: Guttormsnautið og deddbikarinn. - Masterinn og Miðnæturdeddarinn eru þarna til hliðar
ÍKF METAL hélt Íslandsmót sitt í réttstöðulyftu og Guttormsmótið á Eiðistorgi í gær og féllu þar mörg Íslandsmet. Frábær árangur náðist sérstaklega í réttstöðunni þar sem eigi færri en sex molar tóku 315kg eða meira og þar af einn með 400kg,sjálfur Benni tarfur sem vann yfirburðasigur í stigakeppni beggja mótanna. Þetta er alveg einstakur árangur í íslenskri páversögu en mikill afreks-uppgangur er hjá Metal núna og fjöldi manna að undirbúia sig fyrir þátttöku á HM í Las Vegas um miðjan nóvember. Nokkrir nýliðar kepptu í gær og vakti mesta athygli Þröstur Ólason fyrir afl og góðan stíl í réttstöðunni en hann tók 250kg á þessu fyrsta móti sínu og er þarna mikið efni á ferð. Við birtum hér á eftir nokkrar myndir frá Sunnu Hlín og frá Ása flæðilurki af facebook.

Einar Guðnason tekur drengjamet 205kg í 82,5kg flokki. Hann tók síðan 215kg í aukatilraun.
ÚRSLIT ÍSLANDSMÓTSINS Í RÉTTSTÖÐULYFTU 2009
LÉTTARA HOLL:
82,5kg.flokkur
1. Einar Guðnason 80,5 - 205kg. - (4.tilr. 215kg) - Íslandsmet drengja
Flottar lyftur hjá Einari sem aðeins er 17 ára gamall og verður verðugur léttmoli þegar hann þyngir sig upp í 90kg flokk…

Svavar Hlöllahlúnkur tryggir sér sigur í 90kg flokknum með þessari fínu lyftu 235kg.

Frikki fríski fékk silfur í 90 með þessari bætingu 230kg með flottum sumostíl

Stefán Björnsson fékk bronsið í 90 á sínu fyrsta móti. Hann tekur hér 210kg sem var þó dæmt af vegna einhvers…
90kg.flokkur.
1. Svavar Smárason 89,1 - 235kg
2. Friðrik Sigurðsson 88,2 - 230
3. Stefán Björnsson 88,1 - 200

Valdi kerfismoli sigurvegari í 100 tekur Íslandsmet með 290kg…hroðalega falleg átök…

Þröstur Ólason silfurhafi í 100 tekur glæsilega 250kg
100kg.flokkur
1.Valdimar R Valdimarsson 96,8 - 290kg - (Íslandsmet)
2. Þröstur Ólason 90,9 - 250
Kerfismolinn sýndi mikið öryggi í keppninni og fór með seríuna: 255 - 275 - 290kg en síðasta lyftan var ansi góð. 300 í aukatilraun fór ekki þennan daginn en spyrjum að leikslokum í Las Vegas…Það var ekki að sjá á Þresti að hann væri að keppa í fyrsta sinn en hann skráði sig í rangan þyngdarflokk en 90kg flokknum hefði hann rúllað upp í deddinu en hann tók allar lyftur gildar í góðum stíl: 225 - 240 - 250kg.

Sigurjón miðnæturdeddari er alltaf sterkur en laut nú í lægra haldi fyrir Masternum í tíunni

Gunnar master leikur sér að 255kg í fyrstu tilraun
110kg.flokkur
1. Gunnar F Rúnarsson 106,7 - 270kg
2. Sigurjón Ólafsson 108,3 - 250
3. Hermann Haraldsson 104,3 - 125
Gunnar master var hér öruggur sigurvegari, Hann tók fyrst 255 og síðan nokkuð þunga en örugga lyftu með 270kg. Kallinn var síðan sprunginn í þriðju með 280..en æfingaundirbúningur fyrir 300 fer svo að hefjast…Grjóni var ekki í sínu besta formi en mætti samt hress og glaður og tók silfrið en Hemmi tók bara eina létta svona til að sýna lit…

Molar í þyngra holli - fremstur á myndinni er Jakob Egils sem ætlar að dedda 300 á árinu….

Hrikinn deddar Íslandsmet 320kg… og gerði Steve verulega glaðan…
ÞYNGRA HOLL:
125kg.flokkur
1. Bjarki Ólafsson 124,4 - 320kg - (Íslandsmet)
2. Bjarki Þór Sigurðsson 120,3 - 315
3. Jakob Egilsson 112,3 - 275
4. Hallgrímur Stefánsson 124,1 - 220
Það var skemmtilegt einvígi í þessum flokki..Hrikinn tók 285kg í fyrstu og síðan vel heppnað stökk í metið með 320 en í 325 var púðrið þrotið…Geysirinn tók 300 í fyrstu og síðan 315kg sem var nálægt toppi…og reyndi síðan í þriðju að klekkja á Hrikanum með mettilraun við 322,5 en það hafðist ekki…Kobbi tók 275 létt í fyrstu og síðan bjartsýnisstökk í þristinn en andinn á staðnum leyfði ekki minna…það reyndist of þungt en það verður betur tekið á þeirri þyngd í haust hjá kappanum…Hallgrímur var að keppa á sínu fyrsta móti og sýndi ágæta takta og verður innan skamms kominn í 250 eða svo…

Palli fermeter í súperformi bætti Íslandsmet Bollunnar úr 350kg í 355 og átti góða tilraun við 370kg…
140kg.flokkur
1. Páll Logason 138,3 - 355kg - (Íslandsmet)

Benni tarfur undirbýr sig andlega með Stebba stórskjóðu fyrir 400kg deddið

Benni tarfur deddar 400 á glæsilegan hátt!
140+kg.flokkur
1. Benedikt Magnússon 162,6 - 400kg - ( Íslandsmet)
2. Úlfur Orri Pétursson 143,0 - 350 - (Íslandsmet unglinga)
3. Ásbjörn Ólafsson 147,6 - 320
Mjög skemmtileg keppni í súpernum….Tarfurinn tók 370kg í fyrstu tilraun skítlétt og síðan vel örugga lyftu með 400kg og lét það nægja enda stigabikarinn í höfn…Úlfurinn tók bætingu í fyrstu með 325kg og stökk síðan í 350kg sem fór upp en var fremur tæp en fékkst gild og þar með glæsilegt unglingamet..hann reyndi síðan við 372,5 í síðustu tilraun til að taka stóra bróðir í deddinu en það vantaði talsvert á það núna…Flæðilurkurinn var vel sterkur og tók létt 320kg í fyrstu en náði ekki að klára alveg 350kg í 2. og 3 tilraun sem var samt mikill andi…

Flæðilurkurinn var svona nálægt því að klára 350kg!

Úlfur Orri deddar af hrikalegri hörku 350kg múrinn…

Stebbi spjóti hinn ötuli stangarmaður ásamt yfirdómaranum Elvari Óskarssyni sem leit ansi vel út…
GUTTORMSMÓTIÐ - ÚRSLIT:
Fyrst kemur líkamsþyngd svo bekkpressa og réttstaða
82,5kg fl.
1. Einar Guðnason 80,5 - 137,5 - 205 - 342,5kg

Einar Guðna tekur 130 skítlétt í fyrstu tilraun
90kg.fl.
1. Svavar Smárason 89,1 - 190 -235 - 425kg
2. Friðrik Sigurðsson 88.2 - 192,5 - 230 - 422,5

Kerfismolinn spreytir sig á 230kg á bekk..en met Ringos 227,5 hélt velli…
100kg.fl.
1. Valdimar R Valdimarsson 96,8 - 217,5 - 290 - 507,5kg

Ingvar ringo gefur Hemma góð ráð fyrir bætinguna með 207,5..Fermeterinn hlustar á í leyni…

Hemmi tekur bætingu með 207,5kg..Ringo er alveg gapandi yfir aflinu í formanninum…

Masterinn masterar 192,5kg á þremur hvítum…
110kg.fl.
1. Gunnar F Rúnarsson 106,7 - 192,5 - 270 - 462,5kg
2. Sigurjón Ólafsson 108,3 - 150 - 250 - 400
3. Hermann Haraldsson 104,3 - 207,5 - 125 - 332,5
125kg.fl.
1. Bjarki Ólafsson 124.4 - 180 - 320 - 500kg
2. Jakob Egilsson 112,3 - 140 - 275 - 415
140kg.fl.
1. Páll Logason 138,3 - 220 - 355 - 575kg
- Jón B Reynisson 138,6 - féll úr í bekknum
140+kg.fl.
1. Benedikt Magnússon 162,6 - 210 - 400 - 610kg.
2. Ásbjörn Ólafsson 147,6 - 230 - 320 - 550
- Hörður Ingi Stefánsson 157,3 - féll úr í bekknum

Höddi brain og Fermeterinn áttu misjöfnu gengi að fagna….
Hvað bekkpressuna varðar á þessu móti þá eru helst punktar þeir að Frikki fríski kom vel á óvart með stórbætingu 192,5kg en Metal KING sloppur Hlölla rifnaði í tætlur í hans einu tilraun með 190 og kallaðist það gott að hann skyldi klára þá lyftu óslasaður. Valdi kerfis var í hrikalegum ham og tók bætingu um 17,5kg í fyrstu með 217,5 en tók Masters-stíl (3cm lyfta) með tilraun við nýtt Íslandsmet 230kg en KERFISMOLINN HEFUR EKKI SAGT SITT SÍÐASTA ORÐ MEÐ ÞESSA ÞYNGD þótt síðar verði…Masterinn náði sér líka vel á strik og fór með allar lyftur í gegn 170-182,5-192,5 og þótti óvenju skynsamur í vigtarvali…
Palli fermeter keppti á kjötinu eins og Flæðilurkurinn og Tarfurinn..Palli rétt missti 230 en þá þyngd tók Ásbjörn glettilega vel og var nærri búinn að taka 240..

Benni breiðsíða lagði allt undir á bekknum…
Breiðsíðan gamblaði hátt og byrjaði á Íslandsmeti með 280kg..hann komst ekki niður á kassa með það..en hann hækkaði svo í 290 og klikkaði á því og svo á 300 einnig í þriðju..Menn voru á því að kappinn væri einfaldlega í of þröngum slopp því menn verða vitanlega að komast niður á kassa með byrjunarþyngd í það minnsta en Big-Ben hefur marga fjöruna sopið og kemur öflugur aftur…Bílskúrsfélagi hans Höddi brain tók einnig áhættu og byrjaði á 220kg..hann fór upp með fyrstu lyftu en hann stoppaði ekki niðri og síðan klikkaði hann á þyngdinni í næstu tveimur…Benni tarfur flengdi örugga seríu með 180-200-210 og vann síðan Guttormsnautið með sínu hrikalega deddi og er aftur kominn á beinu brautina í pávernum…
Dómarar voru: Magnús Ver Magnússon, Elvar Óskarsson og Ómar Jóhannesson. Ritari var Árni Gestsson og kynnir Kári magister. Stangarmenn voru Ingvar Ingvarsson og Stebbi spjóti.

Efnilegir pávermenn…Einar Guðna og Hallgrímur Stefánss.
Share on Facebook