ÍKF METAL vann 5 Evróputitla í Amsterdam!
Posted by KE in Fræknar ferðasögur, Úrslit og metTveir Evrópumeistarar í Amsterdam -Kári magister og Ingvar ringo…
Ritstjórinn er að skríða saman eftir Hollandsförina því eftir megrun í 75kg flokkinn þar sem tæknisköfunin mistókst eitthvað þjáðist Cat af ofþornun og hjartsláttartruflunum en hitinn í Amsterdam var alltaf á bilinu 25-32 stig auk þess sem loftræsting á keppnisstaðnum var léleg. Allir keppendur Metal komust á verðlaunapall og var Ingvar ringo einn helsti afreksmaður mótsins í bekkpressu þar sem hann náði mestu þyngd mótsins 260kg ásamt einum öðrum mola (reyndar hrikalegum léttmola Bernard Delaney Írlandi sem tók þessi 260kg í 90kg opnum flokki)
Hluti áhorfenda á laugardeginum
Áður en maður fer nánar í árangur íslendinganna má segja það að það var mikið spurt út í hvar íslensku bollurnar væru eiginlega…af hverju yfirmolar Íslands væru ekki að keppa um Evrópumeistaratitla?…Það sást að þótt nokkuð sterkir rússar og búlgarar væru á mótinu þá náðu þeir ekki hinum háa íslenska bollustandard í þyngdum í beygjum og deddi,en þeir detta inn öflugri smám saman í náinni framtíð enda eru þessar þjóðir nýjir meðlimir WPF . Mesta beygja mótsins var 340kg og mesta deddið var 320kg. Mikla athygli vakti samt búlgarinn Alexander í 100kg opnum flokki, Hann hlaut gullið með tölurnar: 340-250-300-890kg (mesta total mótsins) Þessi búlgari var þó tiltölulega grannur og hávaxinn í flokknum og var útlitslega aðeins með góðar bífur en var hrikalega sterkur og harður og fór raunar mjög létt upp með 360 í beygjum sem var dæmd af 1-2. Hann keppti síðan daginn eftir líka á sunnudeginum og bætti sig þá í bekk í 252,5kg!
Alexander Kyurchev Búlgaríu- glæsilegur sigurvegari í 100kg opnum flokki tekur hér 280kg dedd í fyrstu tilraun með gamla stílnum-hann tók: 340-250-300-890kg
Magister Cat ásamt stórum rússa sem tók 210kg á bekknum á kjötinu
Árangur Íslendinga á EM varð þessi:
PÁVER: 75kg fl. öld (55-59 ára) 1.sæti Kári Elíson 190-115-220-525kg
Cat tók 180 og 190 í tveimur fyrstu beygjum nokkuð létt gildar með öllum hvítum og 200kg fór einnig örugglega upp en var dæmd af 1-2. Vegna krampa í mjöðmum í upphitun á bekknum var aðeins tekin ein örugg lyfta með 115kg,þannig að ekki var hægt að segja að ritstjórinn væri að græða mikið á sloppnum (Metal king nr.56 Ingvar) þar sem fyrir mótið var tekið 130 á kjötinu…Eftir að hafa verið alveg að andast eftir bekkinn þá var byrjunarþyngdin í deddinu lækkuð um 35kg og fyrst tekið 200kg og síðan heimsmet með 220kg nokkuð létt og 240kg fór einnig örugglega en var samt dæmt af 1-2 þar sem útrétting þótti ekki 100% góð. 525kg totalið eftir 5 tíma keppni var svo einnig heimsmet í þessum aldursflokki.
Palli patrópáver beygjir…
PÁVER: 100kg fl.opinn fl. 3.sæti Páll Sigurðarsson 190-135-230-555kg.
Patrópáver stóð sig glettilega og þótt monolyftið væri aðeins að trufla hann eins og Magister áður. Palli tók 175 létt í fyrstu beygjunni og síðan örugga með 190kg á þremur hvítum en klikkaði á 200kg í síðustu lyftu.en þá stóð Patró heldur þröngt þar sem eitthvað klikkaði að taka út úr monolyftunni. Bekkurinn var hraður og góður og allar lyftur vel léttar í seríunni: 115-125-135kg og virtist allavega 5kg vera inni….200kg dedd flaug upp í fyrstu og 220kg einnig létt í 2 tilraun en var dæmt af þar sem tærnar lyftust frá gólfi á meðan á lyftu stóð!..Samt var ákveðið að taka 230kg og fór það upp í svækjunni gild 3-0..Pallinn sló Ingvar alveg út í svita og þurfti að skipta um marga boli á meðan keppni stóð en keppnin hjá honum stóð í 5 og hálfan tíma.
Patrópáver deddar 230kg af öryggi
Ingvar ásamt hjálparhellunni Birgi Þorsteinssyni sem kallaður er Litli-Fúsi og býr í Amsterdam
BEKKPRESSA: 110kg fl. öld.45-49ára 1.sæti Ingvar Ingvarsson 260kg. (Heimsmet!)
Ringo búinn að vera í hrikalegum anda og hélt honum í hæstu hæðum allan tíman fyrir mót, í mótinu og eftir mót….Alltaf sást kappinn í molabol þar sem massinn blasti við mönnum og allsstaðar starði liðið á hann eins og hann væri marsbúi með stökkbreytta handleggi…Það hefur eflaust farið hrollur um Tony Brown heimsmethafa þegar hann mætti þessu íslenska fyrirbrigði í upphituninni því þótt Tony sé þokkalegasti moli þá minnkaði hann allur við hliðina á Ringo..Keppnin á milli þeirra var stórskemmtileg þar sem Tony barðist eins og hetja gegn ofureflinu og varð að játa sig sigraðan að lokum..Ingvar tók 240kg í fyrstu himinlétt en Tony tók forystuna með 245kg.fremur þungt..Ingvar fór þá í nýtt heimsmet með 253kg og fleygði því upp…Tony var í fullum og gír og með mikilli seiglu og hörku í hægri lyftu tók 255kg sem hefði verið heimsmet en það var dæmt af vegna tæprar útréttingar nokkuð réttilega. Í þriðju umferð klikkaði svo Tony á 255 á meðan Ingvar æddi í heimsmet með 260kg og tók það auðveldlega vel hratt og glæsilega!..Í 4 tilraun fór Ingvar svo upp með 270kg en það var dæmt af vegna mispressunar í lokin sem var nokkuð greinileg og lítið við því að segja þannig…Evrópumeistaratitill Ingvars með glæsibrag..sigur á heimsmeistara og heimsmethafa…Gerist ekki betra! -
MYNDBAND INGVAR HEIMSMET 260kg: HÉRNA
MYNDBAND TILRAUN VIÐ 270kg: HÉRNA
Hemmi formaður Metal ásamt erlendri valkyrju Angie Mc namara frá Írlandi sem deddaði 177,5kg í 67,5kg flokki
BEKKPRESSA: 100kg fl. öld. 45-49 ára 1.sæti Hermann Haraldsson 195kg.
Hemmi formaður stóðst alþjóðlegt dómarapróf með flottri einkunn upp á 9,7 í tvo daga í röð áður en hann keppti. Hann er því fyrsti alþjóðadómari ÍKF METAL og óskum við honum til hamingju með það!…Hemmi sem á best 202,5kg í 100 en 205 í tíunni stefndi á allra tíma bætingu í bekknum..Hann tók í fyrstu 195kg vel létt..Eftir óvænta aðvörun um að hann héldi of gleitt um stöngina ,breytti hann gripinu en fór svo upp með 207,5kg bætinguna en því miður varð hún dæmd af 1-2 því rassinn var víst tæpur..gremjulegt en svona er þetta!..í þriðju klikkaði hann á sömu þyngd því hitinn og léttingin var farin að taka sinn toll. Hemmi krækti samt í nokkuð óvænt gull með því að vinna helsta andstæðing sinn en sá varð hálf magnþrota í svækjunni.
BEKKPRESSA: 110kg fl. öld. 40-44 ára 1.sæti Gunnar F Rúnarsson 170kg.
Masterinn mættur í slaginn á sitt fyrsta alþjóðamót…170kg í fyrstu flaug upp en eitthvað dúaði stöngin á kassanum eins og um tvöfalt start væri að ræða og var lyftan dæmd af…önnur tilraun með sömu þyngd var þá tekin og núna var hún pottþétt…Magister ráðlagði næstu tilraun í 190 þótt 185 væri alveg raunhæft en undir áhrifum frá aðal aðstoðarmanni íslendingahópsins Gunnari Ólafssyni skemmujarli þá fór Masterinn í bjartsýniskast og lét melda 200kg…!…það varð svo 4cm lyfta frá kassa og reynsla stimpluð inn…
Gunnar master tekur 275kg í réttstöðu
RÉTTSTÖÐULYFTA: 110kg.fl.öld.40-44 ára 1.sæti Gunnar F Rúnarsson 275kg.
Masterinn var með sterkustu deddurum allra öldunga á mótinu óháð þyngdarflokki þannig að sigur hans í tíunni hérna var vel verðskuldaður. Fyrsta tilraun með 250 var hröð og skítlétt og 275kg í annarri var vel örugg en samt ljóst að ekki var mikið inni…Hann var greinilega upp á þyngd við bætingu..(persónulegt met 282,5kg)…290kg var síðan síðasta tilraunin…startið var ágætt en heldur mikið “stiff leggað” og fór stöngin upp að hnjám eða svo…Tvöfaldur Evrópusigur hjá Masternum var í höfn og fari hann á HM í Vegas verða örugglega meiri þyngdir á sveimi hjá honum!
Tveir helstu aðstoðarmennirnir á EM: Litli Fúsi og Gunnar skemmujarl,
jarlinn kom til mótsins frá Danmörku með Ingimundi Borgnesing en þessir kappar allir eru fyrrverandi pávermenn
Share on Facebook








Entries (RSS)