Archive for May, 2009

Evrópumótið EPC er í Amsterdam 26-28 júní

Það voru fjölmargir sem mættu í SteveGym í gær til að taka á því í réttstöðunni. Myndaðist hálfgerð biðröð 10 manna eða svo fyrir hvert sett…Þrír Evrópumótsfarar tóku vel á því og var Gunnar Freyr master frískastur þegar hann repsaði 250 skítlétt en Gunni á góða möguleika úti í deddinu í 110kg flokki yngstu öldunga 40-44 ára og ætti að ná titli með 270-290kg en þær þyngdir eru ekkert mál fyrir kappann eins og hann lyftir núna. 250kg settið er á myndbandi: HÉRNA

Kári magister  í úða Niagrafossa, en núna lenti hann í mótvindi með 250kg  í réttstöðu..

Ritstjórinn hefur verið að togna á nokkrum stöðum undanfarið auk annarra ótilgreindra veikinda sem hafa gert það að verkum að hann hefur lést um mörg kíló úr 80kg oní 76,5kg með með tilheyrandi máttleysi. Hann skrölti þó í gær í deddseríuna: 210×2 230×1 og 250×1..síðasta lyftan var klettþung og kláraðist ekki fullkomlega. Þá lyftu má sjá á myndbandi: HÉRNA

Á milli 140 - 150 keppendur eru skráðir á Evrópumótið en þar keppa einnig unglingar og konur.  Á eftirfarandi link þar sem stendur paticipiants EC 2009 má sjá keppendalistann. HÉRNA

Palli Patrópáver,hinn athyglisverði nýliði  verður eini fulltrúi ungu kynslóðarinnar á Íslandi á Evrópumótinu og er nú að stíga upp úr þreytutímabili mikilla puðæfinga og tók 220 repsabætinguí deddinu en myndband af því setti kemur: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Aflraunafélag Akureyrar stefnir að halda sitt annað mót núna 20 júni. og er þetta gamalt mót sem við erum búnir að vekja aftur upp.
Aflraunameistarinn var haldinn síðast að mig minnir 1989. en var vakin upp í fyrra (2008) af Magnús Ver Magnússyni og formanni A.F.A Sigfús Fossdal .
Er nú A.F.A. búnir að taka við mótinu og verður það haldið einsog áður sagði 20 júni sem blandast saman við bíladaga á Akureyri. Mótið Byrjar ca kl 12. og verður haldið niðri miðbæ og útá flugvellinum á Akureyri.

Greinarnar sem verða eru:

Flugvéla dráttur
Bóndaganga
Drumbalyfta
Uxa ganga

Þetta eru greinarnar sem eru ákveðnar en á mótinu verða 5-8 greinar
Contact Info
Email:
Website:
http://www.aflraunir.net
Location: Akureyri

Einn af molunum frá Drumbalyftu Íslands sem einnig fór fram á Akureyri

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Ingvar “ringo” Ingvarsson bekkjast á…

Það var hörkuandi sem sveif yfir vötnunum á bekkæfingu mánudagsins í Þrekhúsinu í Vesturbæ Reykjavíkur…Heimsmeistari öldunga á bekk frá því í Austurríki í fyrra, Ingvar ringo er á miklum skriði.  Hann er enda staðráðinn í því að ná aftur heimsmeti sínu á bekknum sem var 245,5kg í 110kg flokki öldunga 45-49 ára en bretinn Tony Brown bætti það núna í apríl í 252,5kg og er það því gildandi Evrópumet einnig. Það gæti orðið skemmtilegt einvígi á milli þessara tveggja kappa mæti Tony til leiks á Evrópumótið í Amsterdam. Ringo á eftir að sloppast en hann tók á æfingunni 215kg á kjötinu en myndband af lyftunni kemur: HÉRNA

Það voru ýmsir  Metalmolar sem voru þarna í átökum eins og t.d. Flosi spider sem tók létt 165 af búkka og Hemmi formaður sem stöðugt er öruggur með að repsa þannig 170. Sleifurinn er í “off season” formi að taka áttur á bekknum og Frikki fríski sem er að massa sig upp í 90 henti upp 140kg á kjötinu. Palli Patrópáver og Magister Cat höfðu fremur hægt um sig þótt hinn síðarnefndi tæki sjúkrabætingu á bekknum frá uppskurðinum 2008. Evrópumótsfarinn Gunnar master tók fína seríu af búkka með: 170-190-200 og á eftir því niður á kassa með 185kg en myndband af þeirri lyftu má sjá: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Arnar Már Jónsson - Loggurinn óviðjafnanlegi

Hinn víðkunni kraftafrömuður Arnar loggur hefur nú sagt af sér sem forseti páverfélagsins WPC Ísland. Við forsetaembættinu tekur ekki ófrægari kappi en Magnús Ver Magnússon sem nýlega hefur opnað gym og er líklega sestur í helgan stein keppnislega og hefur því meiri tíma til félagsstarfa osfrv.

Magnús Ver Magnússon

Fráfarandi forseti Arnar Már skilar af sér ágætu búi hjá   WPC  en félagið hefur þegar haldið 2  mót á árinu en Loggurinn hefur í nógu að snúast sem einn helsti krafta og pávermálaráðherra hjá Íþróttasambandi fatlaðra og ætlar að einbeita sér að því ásamt ýmsum öðrum mikilvægum starfa. Kraftaheimar óskar Loggnum velgengni í sínum málum sem og Verinu í forsetaembættinu….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Gunnar Freyr Rúnarsson dottinn í fíling

Það var vel mætt á æfingu dagsins í Steve Gym. Mikla athygli manna vakti endurkoma Mastersins sem hefur haft gymið í frysti um nokkurra ára skeið. Kappinn var þrælhress enda á leið á EM  í páver þar sem hann keppir í bekk og deddi í Hollandi í næsta mánuði. Gunni repsaði 240kg í deddinu og er myndband af því: HÉRNA

Magister er einnig að komast í betra form en um margra ára skeið og tók örugga beygju án stáls með 190kg: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Ringo, Hemmi og Magister

Það var hörku bekkæfing í Þrekhúsinu í gær og mættu þar allir væntanlegir EM farar til Hollands…Sumir voru geysifrískir en aðrir ekki…Ingvar ringo setti sig í fyrsta gír með lappirnar upp á bekknum og tók þar takmarkið á kjötinu 200kg og þótt lyftan væri ekki með stoppi var hún býsna örugg en Masterinn sem var sjálfur yfirgengilega hress mætti með kvikmyndavél og myndaði þessa lyftu Ingvars sem kemur: HÉRNA

Gunnar Freyr master hefur nú í nokkra mánuði verið að drattast með smáþyngdir í andlausum æfingastöðvum en er nú að taka sér tak með því að mæta í Þrekhúsið og á nú bara Steve Gym eftir til að ná deddinu upp…Kappinn var í roknastuði á bekknum og sloppaður henti hann  skítlétt upp seríunni: 160-170-180kg allt hratt og frískt. 180kg lyftuna má sjá: HÉRNA

Hemmi tók að mestu búkkabekk upp í 170kg nokkur reps en þeir  Patrópáver og Magister voru báðir helþreyttir og tóku létt á því en bæta það upp fljótlega….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Þorvaldur Kristbergsson

Líflegt viðtal við Borgarnesbolluna er komið í hús og verður sett inn á vefinn eftir 3-4 daga en ritstjórinn er í miklum önnum núna hvað varðar páver æfingar og vinnu og er í miðri næturvaktarsyrpu sem lýkur á fimmtudag….Reyndar fer kallinn þá í sumarfrí fram yfir Evrópumót og munu þá þyngdir og skrif aukast verulega frá því sem nú er….

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Palli Patrópáver

Stutt yfirlit yfir æfingu dagsins í Steve Gym…Palli Patrópáver beygði bætingu með 180 án stáls nokkuð öruggt en hann hafði fyrr í vikunni tekið bætingaseríu á bekk á kjötinu með 100×4 105×3 og 110×1…Baldvin bekkur tók 170 í þröngum bekk en hann hefur verið að taka þessa þyngd þrjú reps undanfarið með venjulegu gripi…Magister beygði 180 án vanræða og deddaði síðan 240 af upphækkun vel öruggt og stefnir á gott dedd Í Hollandi á EM…Evrópu og heimsmet hjá WPF eru skráð sér og eru sum Evrópumetin því jafnvel betri en heimsmetin. Þannig er Evrópumet öldunga í aldursflokki Magisters 265 í 82,5 en heimsmetið aðeins 250…(Þetta verður lagfært!)

Share on Facebook

Comments No Comments »