Archive for April, 2009

Benedikt Magnússon með sitt sögufræga heimsmet í deddi 440kg árið 2005

Íslandsmót WPC félagsins í páver fer fram á laugardaginn að þverholti 19 en mótið hefst kl.13.00 í nýrri æfingastöð Magga Vers sem hann kallar  Jakaból eftir frægum æfingastað kraftamanna í gamla daga. Það á enginn einkarétt á svona nafni en það verður bara til eitt Jakaból í hugum allra þeirra sem muna eftir hinu eina og sanna Jakabóli í Laugardal…Fremur furðuleg ákvarðanataka hjá fjórum sinnum sterkasta manni í heimi að velja ekki nútímalegra nafn á stöðina…

Það sem þegar hefur vakið mikla athygli á mótinu á laugardaginn er að Benni tarfur er skráður til keppni í súpernum en þessi mikli kappi hefur ekki keppt í páver í nokkur ár þótt hann hafi verið í átökum  í hjónasænginni og kraftakeppnum á síðari tímum. Ekki er vitað í hvers lags formi Tarfurinn er en eitt er víst að aldrei verður neinn svikinn af því að sjá þennan heimsfræga deddara rífa í stálið …Hver veit nema þetta mót  verði upphafið að því að Ofurtarfurinn endurheimti heimsmet allratíma í réttstöðunni?….

Share on Facebook

Comments 11 Comments »

PÁVERFÉLAG MEÐ METNAÐ!

Íslandsmót Metal í réttstöðulyftu og Guttormsmótið mun fara fram laugardaginn 18 júlí n.k. Keppnisstaður verður auglýstur síðar. Mótinu hefur aðeins verið frestað vegna utanlandsfarar nokkurra stjórnarmanna Metal á Evrópumótið í Hollandi. Munið að æfa vel  andskotarnir ykkar…Bæting í deddi fæst aldrei gefins….

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Sir Magister Cat ritstjóri Kraftaheima í sendiráði Íslands í Kanada í fyrra

Núna um miðnættið datt inn milljónasta heimsóknin á vefinn frá upphafi stofnunar á haustdögum 2003. Það hafa nokkrir pávermenn starfrækt vefinn með Magister frá því þetta hófst allt saman og eru þar fyrst nefndir Arnar Gunnarsson og Gunnar Freyr Rúnarsson (master) á fyrst árunum sem stofnendur og svo þeir Jóhannes Eiríksson Omegakraftur og Fjölnir Guðmannsson teygjutvister á síðari tímum.

Það hefur ekki alltaf verið dans á rósum að halda úti vefnum þrátt fyrir ótvíræðar vinsældir hans en með  Molastríðinu margfræga og klofningi í páverheiminum á sínum tíma mynduðust óvina og öfundarhreyfingar gegn bæði ritstjóranum og ÍKF METAL m.a. vegna aðkomu ritstjórans að stofnun Metal ofl. Eins og menn vita þá var vefurinn  eyðilagður um síðustu áramót af vissum óvini Metal sem nú hefur róað sig niður. Það hefur aðeins hefur verið hægt að endurheimta helming efnisins og gamla útlið hefur ekki heldur náðst aftur en ekki er þó langt í það að hinir frægu kyndlar munu  birtast …

Friður hefur nú verið saminn í páverheiminum þar sem hver páverfélög og sambönd um sig vinna að sínum málum og aðstoða hvert annað ef þörf þykir  á og einbeita sér að framgöngu íþróttarinnar á öllum vettvangi innanlands sem utan.  Sem dæmi um friðarviljann þá lánaði Kraft nýlega fullt af lóðum til ÍKF METAL á Íslandsmót þeirra síðarnefndu sem fram fór fyrir nokkru síðan. - ÁFRAM MEÐ PÁVERINN!

Share on Facebook

Comments 7 Comments »

Hið nýja Jakaból Magga Vers

Meistaramót WPC í kraftlyftingum 2009

og formleg opnun á Jakabóli verður Laugardaginn 2 maí kl 13.00

í húsnæði Jakabóls að þverholti 19

Viktun keppanda verður í Jakabóli Föstudaginn 1 maí kl 18 - 19

Ef einhver kemst ekki þá í viktun hafið þá samband við Magnús Ver í síma 6630001 og við leysum málið.

Jakaból býður svo öllum í kraftabollu kl 21.00 um kvöldið.

Þeir sem eiga eftir að skrá sig gerið það í síma 6630001 eða sendið

E-mail til magnusver63@hotmail.com

Share on Facebook

Comments Comments Off

Sigfús  Fossdal skyrframbjóðandi Borgarahreyfingarinnar

Stolt norðlendinga Skyrfús Fossdal er nú skráður í 11 sæti á kjörlista Borgarahreyfingarinnar  í  Norðausturkjördæmi.

Kosningamiðstöð Borgarahreyfingarinnar staðsett að
Brekkugötu 3
Akureyri

Sæti Nafn Titill Heimilisfang
1 Herbert Sveinbjörnsson Kvikmyndagerðarmaður Nönnugata 16
2 Björk Sigurgeirsdóttir Framkvæmdastjóri Lagarfelli 25
3 Hjálmar Hjálmarsson Leikari Reynigrund 83
4 Ragnhildur Arna Hjartardóttir Námsmaður Drekagil 28-403
5 Rakel Sigurgeirsdóttir Framhaldsskólakennari Skarðshlíð 26b
6 Daníel Freyr Jónsson Verkefnastjóri Hafnarstræti 35
7 Rannveig Þórhallsdóttir Rithöfundur Hafnargata 42
8 Arinbjörn Kúld Neyðarvörður Kjarnagata 16
9 Erna Kristín Kristjánsdóttir Kennari Hólatún 1
10 Sigurbjörg Árnadóttir Blaðamaður Lækjargata 4
11 Sigfús Fossdal Íþróttamaður Stafholt 5 kj
12 Elís Másson Bóndi Hrísar
13 Bjarki Hilmarsson Húsasmiður Bakkahlíð 14, nh
14 Hjörtur Þór Hjartarson Verkamaður Skarðshlíð 13 d
15 Guðjón Ólafsson Bifreiðarstjóri Ekkjufell
16 Ólafur Örn Pétursson Framkvæmdarstjóri Hafnargata 42
17 Gunnar Sigfússon Forseti nemendafélags Lautavegur 11
18 Hilmar Þór Óskarsson Sölumaður Ægisgata 5
19 Hansína Sigurgeirsdóttir Geislafræðingur Björtuhlíð 11
20 Sveinbjörn S Herbertsson

UM SKYRFRAMJÓÐANDANN MÁ LESA EFTIRFARANDI Á VEFSÍÐU HREYFINGARINNAR:

Fæðingardagur og ár: 9 júní 1983
Heimilisfang:
Stafholt 5 kj
Hjúskaparstaða:
Sambúð
Staða og laun fyrir núverandi starf:
C.a. 255.000 með öllum álögum fyrir skatt.
Stjórnarseta í fyrirtækjum:
Engin
Nefndarstörf:
Engin
Hlutabréfaeign frambjóðenda, maka og barna:
Engin
Fasteignir í eigu frambjóðenda, maka og barna:
Engin
Hagsmunatengsl við atvinnulíf eða félög:
Engin
Hlunnindi, ef einhver eru: Einstaka fyrirtækjastyrkir vegna íþrótta.

(ÞARNA VANTAR GREINILEGA FORMENNSKU Í AFA OG SVO UPPTALNINGU Á NÚGILDANDI ÍSLANDS OG HEIMSMETUM Í PÁVER AUK RÍKJANDI TITLA  Í EIGU KAPPANS osfrv.)

X - SKYRFÚS! -HANS TÍMI MUN KOMA! -

BÍÐIÐ BARA ÞAR TIL FRAMBOÐSRÆÐAN FYRIR ÞAR NÆSTU KOSNINGAR VERÐUR TILBÚIN!

Share on Facebook

Comments Comments Off

Amsterdam - borg gleði og pávers!

Evrópumót WPF sambandsins fer fram dagana 26-28 júní í Amsterdam Hollandi og er þegar búið að ganga frá skráningu þriggja keppenda  úr Metal og góðar líkur á því að 4-5 verði í viðbót.  Þeir sem nú eru skráðir eru eftirfarandi:

Páll Sigurðarsson opinn flokkur 100kg fl.

Kári Elíson öld,flokkur páver 55-59 ára  82,5kg fl.

Ingvar Ingvarsson öld.flokkur bekkpressa 45-49 ára 110kg fl.

————————————

í fyrra átti Metal tvo keppendur á þessu móti þannig að núna verður örugglega bætt um betur! - Þeir aðrir  sem eru heitir fyrir ferðinni en hafa enn ekki haft samband til keppnissskráningar eru:

Hermann Haraldsson, Flosi Jónsso, Bjarki Sigurðsson, Sigurbjörn Arnarson og Gunnar F Rúnarsson.

SUMARIÐ ER TÍMINN TIL ÁTAKA!

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Stebbi Spjóti og Eiki gufubaðsstjóri- góðir af gamla skólanum…

Gunnar Freyr Rúnarsson master brá sér í dag í Mosfellsbæinn á Íslandsmót Kraft í páver og tók nokkur myndbönd. M.a. náði hann hinum þekkta athafnatollara Stefáni Svavarssyni spjóta í virkilega góðri bætingabeygju með 265kg: HÉRNA

Gunnar Freyr master ásamt Auðunni Kópavogströlli á góðri stundu…(Prellinn í baksýn)

Hinn margfrægi meistari Auðunn Jónsson fór einnig mikinn á mótinu og tók 370 í beygjum og kemur skítlétt byrjunarbeygja hans: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Rúnar Óttarsson- æfir vel þessa dagana…(ljósm. GFR master)

Það var hörkuæfing í raunveruleikanum í gær. Bjarki hriki sem deddaði 310 létt í vikunni beygði 260×3 og átti vel inni…Fóstbróðir hans Grjóni miðnæturdeddari deddaði vel hratt seríunni: 230 -250-260 en þeir kappar ætla báðir að keppa á Íslandsmóti WPC í páver sem fram fer eftir tvær vikur eða svo. Bjarki geysir er einnig að spá í það mót sem upphitun fyrir EM í Amsterdam og hann deddaði 300 örugglega en svoldið þreytulega enda stutt frá 290×2. Palli Patrópáver deddaði 200×3 án stáls og tók síðan bætingarþrist með 205×3 á eftir því og einnig 165×3 af palli…endalusar bætingar þar á bæ en stefnan er að hann taki 600kg total múrinn á EM….

Rúnar Óttars er hættur við EM en æfir samt vel og beygði án stáls 180×2 og er að ná þar upp aðeins meiri hraða en áður…Baldi bekkur mætir alltaf í föstudagsbekk og hefur nú um skeið tekið 160×4 á bekknum og á góðum degi 160×5 en hann ætlar ekki út að keppa fyrr en á næsta ári í Englandi…(HM í Somerset)…Alltaf nóg af  alþjóðlegum verkefnum hjá Metal…

Share on Facebook

Comments Comments Off