Archive for March, 2009

Borgarnesbollan fæst við hrikalegheit í Hringrás!

Þorvaldur Kristbergsson Borgarnesbolla fær fína umfjöllun í næsta hefti af hinu vinsæla kjafta-tímariti Séð og Heyrt sem kemur út núna  á fimmtudag í vikunni!

Bollan er í hrikalegu páverformi og keppir á Íslandsmóti Metal á laugardaginn kl.13.00 hjá Mótormax að Kletthálsi 13


Talið er fullvíst að Bollan muni reyna fyrst að slá Íslandsmet Skyrfúsar í beygjum í súpernum sem er 410.5kg og ef það tekst mun hann reyna við mestu þyngd allra tíma í beygjum á klakanum (435kg) Auðunn Jónsson hinn frægi páverkappi hefur til þessa lyft mest allra hér á landi með 432,5kg  lyftu sem hann tók árið 2005 í einvíginu við Benna tarf.

Spurningin núna er aðeins þessi: “HVAÐ GERIR BORGARNESBOLLAN?”….

Share on Facebook

Comments 8 Comments »

Jón B Reynisson er í hörkuformi! (ljósm.visir.is)

Benni breiðsíða (Big-Ben) mun mæta til keppni á Íslandsmóti Metal hjá Mótormax á laugardaginn kl.13.00  að Kletthálsi 13. Benni er reyndar slæmur í öðru hnénu en ætlar samt ekki að hætta við mótið heldur reyna við bætingu á bekknum þótt óvíst sé um þyngdir hjá honum í beygjum og deddi. Þyngdirnar sem teknar eru hjá “Molaklíkunni” sem æfir í bílskúrnum hans Benna á Kjalarnesi eru hernaðarleyndarmál en afl þeirra kappa sem þar um ræðir  mun uppljóstrað verða í heljarátökunum á laugardaginn kemur….EKKI MISSA AF ÞEIM VIÐBURÐI!!

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Ingvar ringo hrikalegur í SteveGym -2005 - (ljósm. GFR Master)

Háskólanemi af kvenkyni, Magnea nokkur fékk það hlutverk í Háskóla Íslands að gera heimildarkvikmynd um mann sem hefur upplifað kreppu og fékk dama þessi nasasjón af sérstöku lífshlaupi Ingvars Ingvarssonar…Hinn mikli hjarta uppskurður sem Ingvar fór í árið 2005 er þemað í myndinni.

Það er ýmsum vísindamönnum og læknum ráðgáta að eftir þennan uppskurð skuli Ingvar ekki aðeins hafa sloppið við að verða krypplingur  heldur er hann bráðlifandi og reykir enn á fullu og hefur einnig orðið heimsmeistari í bekkpressu og unnið fullan vinnudag í erfiðisvinnu ásamt óskertri getu á flengingarsviði til kvenna ofl. Reyndar hefur Ringo líka keppt í hinni eiginlegu kreppu..þ.a.s. vaxtarrækt með góðum árangri þannig að kreppuþema myndarinnar á mjög vel við í alla staði.

Myndatökur hafa staðið yfir undanfarið í Þrekhúsinu og á vinnustað Ingvars í Hringrás og á fleiri stöðum. Viðtal m.a. er við hjartalækninn sem skar Ingvar upp ofl.

“Það er mitt hjartans mál að lifa því lífi sem ég lifi!” - (Ingvar ringo)

Share on Facebook

Comments 8 Comments »

VIÐ HUGSUM STÆRRA!

-

Mótið fer fram hjá Mótormax Kletthálsi 13 klukkan 13.00 - Vigtun í SteveGym föstudag kl.13-14 og kl. 18-19

ÍSLANDSMÓT - ÍKF METAL -  KEPPENDALISTI:

75kg fl.

Daði Reynir Kristleifsson

Guðni Freyr Pétursson

Einar Orri Karlsson

82,5kg fl.

Einar Örn Guðnason

Gunnþór Máni Kristleifsson

Friðrik Sigurðsson

90kg fl.

Bárður Olsen

Heimir Kjartansson

100kg fl.

Valdimar R Valdimarsson

Páll Sigurðarson

Gunnar F Rúnarsson

110kg fl.

Fjölnir Guðmannsson

Jakob Snær Egilsson

125kg fl.

Bjarki Ólafsson

- 140kg fl.

Úlfur Orri Pétursson

Jón B Reynisson

140+kg

Þorvaldur Kristbergsson

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Páll Logason- WPC meistari

Svokallað Push and Pull mót fór fram í dag á vegum WPC páverfélagsins hjá Polaris umboðinu. Nokkur forföll urðu af skráðum keppendum en 7 mættu til leiks. Keppt var í bekkpressu (push) og réttstöðuluftu (pull).  Tveir yfirmolar vöktu mesta athygli áhorfenda en það voru þeir Palli fermeter og Emil tölvutryllir en þeir sýndu hvað mesta takta þótt afl þeirra hvors um sig væri nokkuð ólíkt, eða þannig…  Maggi Ver 4 sinnum sterkasti maður heims heiðraði páversamkomu þessa með nærveru sinni ásamt Hemma Haralds formanni ÍKF METAL og Ísleifi Árna  bekkpressu heimsmeistara  og  Baldvini bekk ofuröldingi og Magnúsi Korntop söngvara og fleiri vænum molum.

ÚRSLIT URÐU ÞESSI:

90kg.flokkur

1. Heimir Kjartanssson 89.7kg - 175 - 240 - 415kg.

Þarna fer vel byggður léttmoli sem lyfti tæknilega vel og skemmtilega og átti t.d. góða tilraun við 180 á bekknum. Heimir er búinn að skrá sig á Metalmótið næstu helgi og getur hann alveg eins bætt aðeins við þessar tölur í þeim hrikalega anda sem þá verður….

Gunnar Freyr Rúnarsson- fjölhæfur íþróttameistari

110kg.flokkur

1. Gunnar F Rúnarsson 102,1kg - 150 - 240 - 390kg

2. Sigurjón Ólafsson 101,5kg       - 150 - 235 - 385

Það var hér hörkukeppni í tíunni eins og búist var við þótt hvorugur þessara grónu keppnismanna væru í sérstöku formi. Gunnar master var reyndar með flensuskít ofan á  ríkjandi skort á afli en lét þó jákvæðan anda ráða för…Hann rétt missti 160 á bekknum og eftir að hafa deddað 225-240 var hann alveg búinn á því með 247,5kg. …Og  jafnvel Steve gat ekki gert gæfumunin hjá Grjóna miðnæturdeddara þegar hann þurfti að taka 245 í deddinu til að reyna að klekkja á Masternum…Þeir verða örugglega mun hressari á næsta móti….

Eggert Samúelsson

125kg. flokkur

1.Eggert Samúelsson 113,4kg - 145 - 240 - 385kg

2. Vignir Unnsteinsson 111,8kg - 130 - 235- 365

Eftir bekkinn var engin spurning um hvor myndi sigra en þótt Eggert gleymdi súpermann bolnum heima deddaði hann 240 í magnaðri lyftu. Vignir fatlamoli hefur verið mikið að bæta sig síðustu tvö ár en hann æfir fantavel og er jafnan athyglisverður á palli…

Palli fermeter - alltaf hrikalegur!

Emil Ólafsson

- 140kg. flokkur

1. Páll Logason 133,3kg - 200 - 330 - 530kg

2. Emil Ólafsson 129,4kg - 60 - 180 - 240

Palli fermeter var nú ekki búinn að undirbúa sig mikið fyrir þetta mót og tók tvistinn létt á kjötinu í bekknum en klikkaði á 220kg að þessu sinni.  Eftir að kappinn hafði tekið í deddinu 300 og 330 örugglega þá datt hann í skemmtilegan yfirfíling og reyndi við 400kg….Það fór með heljarafli  hratt af stað en líka ógnarhratt niður aftur…Menn taka vitanlega ekki svona þyngdir nema að þora að fara í þær….

Tryllirinn er alltaf hress og til í slaginn hjá WPC….

Emil tölvutryllir er einn af þyngri skjóðum fatlamolanna og gírar sig jafnan vel upp í átökum…Sumir töldu þó að Tryllirinn væri ekki sú allra besta auglýsing sem Metal sloppar fengju fyrir umboðið hjá Skyranum þegar han klikkaði á 90kg…Kappinn var þó mun frískari í deddinu þar sem 180 fór örugglega enda er Tryllirin kominn með stöng og lóð inn í stofu hjá sér þar sem hann deddar núna á fullu þar til honum verður sagt upp leigunni…

Stigahæstur allra á mótinu varð Palli fermeter með 298,4 stig en annar varð Heimir Kjartans með 265,4 stig og Gunni master þriðji með 235.4stig.

Yfirdómari var Flosi Jónsson og kynnir og leikstjóri Guðmundur Otri en yfirstangamaður og mótshaldari var Bárður Ólsen

Stórfyrirferðin Magnús Korntop var ein breiðasta skjóðan í áhorfendastúkunni…Kappinn vegur nú aðeins 225kg eftir að hafa verið þyngstur um 250. Hann sagði að að WPC mótin séu jafnan með þeim skemmtilegri þar sem mikill jöfnuður ríkir jafnan í mannvali til keppenda

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Foringinn á förnum dedd-vegi

Það er kunnugra en frá að segja að Steve á það til að lesa mönnum pistilinn í gyminu og oftast er það um hina órannsakanlegu vegi deddsins…Eitt slíkt augnablik náðist á myndband nýlega og hefur vefurinn fengið það til sýningar: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 2 Comments »

Úlfur Orri Pétursson

Það var mikið um að vera á deddæfingunn í SteveGym í dag þótt Foringinn sjálfur væri í kaffi og mætti ekki fyrr en öll átök voru búin…Úlfskjóðan  var í miklum hug og var staðráðinn í einhversskonar repsabætingu…Eftir að hafa hitað upp á þyngdum eins og 200×2 240×1 og 280×1 var komið að þyngd dagsins. Úlfskrumlurnar læstust um stöngina eins og sérstyrktur risakolkrabbi og upp fór 320×2!…Fyrra repsið virkilega gott en lærin fóru heldur mikið undir í seinna repsinu en bæting samt!…Frekari þyngd fer svo upp laugardaginn 4 apríl kl.13.00 á Íslandsmóti Metal hjá Mótormax að Kletthálsi 13.

Bjarki Þór Sigurðsson

Geysirinn mætti aftur til leiks eftir flensufárið og var mun frískari en menn áttu von á. Hann hitaði upp með beygjum fyrst upp í 185kg og fór síðan í deddið…260×3 var nokkuð létt svo meira var sett á stöngina…Hraðinn var kannski ekki mikill en styrkurinn var fyrir hendi og Geysir fór upp með 280×2!…Haldi öll plön eftir þetta mun þessi gæðadeddari standa sig vel á EM í júnílok.

Um aðra á æfingunni má segja það að Sverrir Sig tók 270×2 og ætti að fara repsa 280 eftir tvær vikur eða svo…Kobbi Snær tók milliþungaæfingu og stillti upp fínum þyngdum með 230×1 og 260×1 og verður tilbúinn í þá sigurþyngd sem þarf  í tíunni 4 apríl….Magister tók af upphækkun 210×2 öruggt en hann vegur aðeins rúm 77 kg þessa dagana og er allur að  tæknimassast upp þar sem öxlin er mikið betri en fyrir HM í fyrra og stefnir í að kisi geti hugsanlega keppt í öllum greinum á EM….Rúnar málari deddaði 180×4 af upphækkuninni en þessi vinnuhestur er ekki búinn að gefa upp  hvenær hann keppir næst….

Share on Facebook

Comments 6 Comments »

Bjarki Ólafsson bekkjast á…

Æ oftar þessa dagana  í SteveGym heyrist nafnið “Double Hriki”…og er þá átt við Bjarka hrika…Handleggirnir á kappanum eru nú út um allt og aflið í toppi..Á mánudag deddaði Hrikinn 285×5 og á eftir því 300×3! svona frekar léttilega og í gær tók hann undurlétt 270 í beygjum brókarlaust en reyndar á undan því hafði hann fleygt upp 190kg í þröngum bekk á kjötinu og átti 10-20kg inni!…Með vönduðum byrjunarþyngdum bætir hann sig hrikalega í öllu og ætti að stúta 800kg múrnum á Íslandsmóti Metal 4 apríl - en mótið hefst kl.13.00 hjá Mótormax að Kletthálsi 13

Share on Facebook

Comments 2 Comments »