Archive for February, 2009

Öll tæki ÍKF METAL hafa nú verið flutt í Þrekhúsið við KR-heimilið vestur í bæ og verður æfingaaðstaðan orðin klár á mánudag. Menn geta því mætt á mánudag og skoðað aðstæður.  Metal hefur sér 100fm sal sem er lokaður af þannig að almenningur sem gutlar í heilsuræktinni sjálfri getur dundað sér í friði fyrir molunum sem taka á því í afreksandanum.

Það verða ýmis kortatilboð í gangi fyrir pávermenn í Þrekhúsinu sem hægt er að kynna sér á staðnum eftir helgi. Um að gera og mæta og stuðla þannig að nýrri bætingaframtíð fyrir sjálfan sig.

þEIR SEM VILJA SPYRJA UM EITTHVAÐ GETA HRINGT Í iNGVAR RINGO SÍMI: 660-8911

Stjórn ÍKF METAL

ÖFLUGASTA PÁVERFÉLAG LANDSINS!

Share on Facebook

Comments 12 Comments »

Hringrás  -  fyrirtæki á heimsmælikvarða!

Páverfélagið öfluga ÍKF METAL hefur nú gert samning um æfingaaðstöðu í æfingastöðinni Þrekhúsið í Vesturbæ Reykjavíkur. Þetta hefur nú verið gert með aðkomu og styrk frá hinu fræga  endurvinnslu fyrirtæki Hringrás sem er nú um stundir eitt best rekna fyrirtæki á Íslandi samkvæmt því sem ýmsir toppar í atvinnulífi landsins segja.

Forstjóri Hringrásar Einar Ásgeirsson var t.d. um daginn í viðtali í útvarpinu vegna óvenjulegrar velgengni fyrirtækisins á krepputímum og sagði hann þá m.a. einn helsta þáttinn í því vera góða starfsmenn. Nefndi hann í því sambandi sérstaklega Heimsmeistarann í bekkpressu Ingvar ringo Ingvarsson sem sýndi með dugnaði sínum þverskurðinn af öðrum gæða starfsmönnum fyrirtækisins. Þess má geta að Einar sjálfur er hógvær maður sem er ekki að stæra sig af því að hafa á undanförnum árum gert Hringrás að því stórveldi sem það nú er, þótt það sé honum mest að þakka. Afi hans stofnaði fyrirtækið á sínum tíma árið 1950 og hét það þá Sindra stál. Heimasíðu fyrirtækisins má lesa : HÉRNA

Stefnt er að því að flytja eigur Metal í Þrekhúsið á næstu dögum og mun vefurinn greina meira frá því þegar menn geta byrjað að æfa þar undir merkjum Metal en ársgjald mun aðeins vera kr.25.000  eða sem nemur 2.100kr á mánuði. Betra mun það ekki gerast en félagið fær 100fm æfingasal til afnota.

Þrekhúsið er við KR heimilið í Vesturbænum og menn geta kíkt á heimasíðu þess: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 2 Comments »

Breiðir handleggir verða ekki metnir til fjár….

Á æfingu í Steve Gym voru þeir handleggjafrömuðir Baldi bekkur og Bjarki hriki að pumpa byssurnar á fullu í bysepvélinni undir stiganum þegar Foringinn fer að tala um handleggjabreidd þeirra og segir:  „Strákar,sjáiði handleggina á þeim, þeir eru örugglega 50cm breiðir!“

Magister blandar sér þá í umræðuna: „Ekki tala um handleggina á þeim Steve, fyrr en þeir eru búnir að ná minningargreinar-handleggjunum hans Donna!“

„Hvað meinarðu? Spurði Steve þá. – Magister upplýsti málið:  „ Í minngargrein í Mogganum um daginn skrifaði Donni um einhverja kellingu að hún hefði alltaf hjálpað honum að binda bindishnútinn í vinnunni því hann ætti svo erfitt með það vegna 60cm vöðvamikilla handleggjanna!“

Þetta vakti auðvitað nokkra kátínu í stöðinni og aukaumræðu um flæðimassa osfrv. sem ekki verður farið nánar út í hér…..

Share on Facebook

Comments No Comments »