Posted by KE in Fréttir

Orri Geirsson er í hrikalegu formi!
FORSETAMÓT WPC verður haldið í Gym 80 Viðarhöfða laugardaginn 28 febrúar kl.14.00

Kvenlöggur keppa líka í páver!
Á meðal keppenda verður Jóhanna Eyvindsdóttir lögga og sterkasta kona Íslands á bekk! – Einnig tekur á því eilífðarstúdenta-legendið Gunnar Freyr Rúnarsson master og fleiri góðir molar!
Keppt verður á kjötinu í öllum greinum pávers til heiðurs forseta WPC , sjálfum Loggnum! - Sjá nánar: HÉRNA
Share on Facebook
No Comments »

Hermann Haraldsson og Jóhanna Eiríksdóttir á fyrsta bekkpressumóti Metal
Formannsskipti hafa nú orðið hjá ÍKF METAL. Jóhanna Eiríksdóttir einn helsti stofnandi og frumkvöðull félagsins hefur nú látið af störfum eftir farsælan feril þar sem hún gerði ótal margt gott og kom félaginu á stall sem einu því athyglisverðasta í heiminum og öflugasta á landsvísu. Henni er þakkað fyrir sín góðu störf og vonandi gengur henni sem best í því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
Hermann er boðinn velkominn í formannssætið en hann tekur við því fram að næsta aðalfundi þar sem ný stjórn verður kosinn og alveg eins líklegt að Hemmi verði formaður áfram. Það eru fullt af krefjandi verkefnum framundan hjá Metal þar sem næsta stórverkefni er Evrópumótið í Amsterdam í lok júní og stefnt ar að því að senda yfir 10 keppendur.
Share on Facebook
2 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Þorvaldur Kristbergsson Borgarnesbolla við hásinguna og dekkin á Skrímslinu í Hringrás. Hásingin ein vegur 6 tonn og dekkin 4 tonn!
Heimsmeistari WPF í 140kg flokki Valdi Borgarnesbolla heimsótti Ingvar ringo á athafnasvæði Hringrásar í borginni og urðu vinnfélagar Ringos og aðrir toppar í fyrirtækinu uppnæmir yfir því að fá þessa glettilegu skjóðu í heimsókn. Einar forstjóri Hringrásar fannst Bollan hrikaleg á velli og lét myndasmið fyrirtækisins taka nokkrar myndir við þetta tilefni.

Borgarnesbollan fílar sig vel hjá Hringrás!
Stefnt er að því á næstunni að hafa viðtal á vefnum við Bolluna og munum við þá birta fleiri myndir af kappanum við skrímslahásinguna í Hringrás!
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Fréttir

Ingvar ringo Tortímandi er að rífa niður fyrir Hringrás þessa 80 tonna vél sem forseti Bandaríkjanna lét framleiða
í Fréttablaðinu í dag á bls 26 (og einnig á visir.is) er mjög skemmtileg grein um heimsmeistarann á bekk Ingvar Ingvarsson þar sem sagt er frá hrikalegri vinnu hans fyrir stórfyrirtækið Hringrás. Greinin byrjar svona:
“Ingvar Jóel, sem kallaður er Ringó meðal félaga sinna í kraftlyftingafélaginu Metal og Tortímandinn þegar hann er í vinnunni, hefur að undanförnu fengist við að rífa niður í brotajárn eina stærstu vinnuvél landsins – sem lengi vel gekk undir nafninu Skrímslið.
„Þessi vél er merkileg. Hún var framleidd sérstaklega fyrir Richard Nixon í kalda stríðinu. Þá voru að aukast þungaflutningar til landsins og þessi vél – sem kölluð var skrímslið – er sérhönnuð til að taka á móti 30 tonna gámum,” segir Ingvar Jóel. Hann hefur fengist við það að undanförnu að rífa niður einhverja stærstu hjólavél landsins. Og veitir ekki af að hafa öflugan mann í því en Ingvar Jóel varð nýlega heimsmeistari öldunga í bekkpressu. Ingvar hefur starfað við niðurrif í um þrjátíu ár og kallar ekki allt ömmu sína. Kallaður Tortímandinn meðal vinnufélaga sinna.”
Menn geta lesið alla greinina á visi.is einmitt: HÉRNA

Tortímandinn Ingvar Jóel hefur að undanförnu starfað við að rífa niður í brotajárn vinnuvél sem var svo svakaleg að hún gekk undir nafninu Skrímslið. Segir Ingvar að Skrímslið hafi verið stolt Alfreðs Þorsteinssonar hjá Sölunefnd varnarliðseigna.
Share on Facebook
2 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Varya Akulova Rússlandi tekur 100kg í beygjum 8 ára gömul árið 2000
Vefsíðan Bored Space.com segir frá rússadömunni Akulovu sem er 17 ára gömul og er kölluð “Sterkasta stelpa heims” umfjöllun síðunnar er: HÉRNA

Heimasíða Akulovu er: HÉRNA
Share on Facebook
No Comments »

Það hefur verið talsvert um fyrirspurnir vegna pávermóta ársins hjá Metal og hér kemur mótaskráin með fyrirvara um tímanlegar breytingar ef nauðsyn er á því.
Mótaskrá (WPF) ÍKF METAL 2009
24 Janúar Íslandsmeistarmót í bekkpressu
4. apríl Íslandsmeistarmót ÍKF METAL
25-28 júni Evrópumeistaramót í Amsterdam
4.júlí Guttormsmótið og Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu
3.október Fógetamótið í bekkpressu
24.október Bikarmót ÍKF METAL
12-15 nóv. Heimsmeistaramót í Las Vegas
Share on Facebook
9 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Sigfús Fossdal deddar á American Cup
Íslensk frétta og myndasíða um kraftaíþróttir hefur nýlega hafið göngu sína og fjallar hún mest eins og er, um eðalsportið sjálft: páverinn. Góð myndasería er þar t.d. af Skyrhöfðingjanum frá American Cup þar sem Fúsi stóð sig glettilega. Menn geta litið á síðuna: HÉRNA
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Blog, Fréttir

Magister var í vetrarfríi frá páver og er nú byrjaður að detta aftur inn á æfingar. Hann hefur reyndar ekki enn tekið æfingu í Þrekhúsinu en ritstjórnin bíður nú eftir því að vefnum berist einhverjar myndir úr páversalnum þar og munu þær þá birtast hér en menn eru mjög ánægðir með þá æfingaaðstöðu sem Metal hefur nú skaffað öllum þeim sem vilja ná árangri og verða sterkir….
Share on Facebook
1 Comment »
Posted by KE in Fréttir

Öll tæki ÍKF METAL hafa nú verið flutt í Þrekhúsið við KR-heimilið vestur í bæ og verður æfingaaðstaðan orðin klár á mánudag. Menn geta því mætt á mánudag og skoðað aðstæður. Metal hefur sér 100fm sal sem er lokaður af þannig að almenningur sem gutlar í heilsuræktinni sjálfri getur dundað sér í friði fyrir molunum sem taka á því í afreksandanum.
Það verða ýmis kortatilboð í gangi fyrir pávermenn í Þrekhúsinu sem hægt er að kynna sér á staðnum eftir helgi. Um að gera og mæta og stuðla þannig að nýrri bætingaframtíð fyrir sjálfan sig.
þEIR SEM VILJA SPYRJA UM EITTHVAÐ GETA HRINGT Í iNGVAR RINGO SÍMI: 660-8911
Stjórn ÍKF METAL

ÖFLUGASTA PÁVERFÉLAG LANDSINS!
Share on Facebook
12 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Hringrás - fyrirtæki á heimsmælikvarða!
Páverfélagið öfluga ÍKF METAL hefur nú gert samning um æfingaaðstöðu í æfingastöðinni Þrekhúsið í Vesturbæ Reykjavíkur. Þetta hefur nú verið gert með aðkomu og styrk frá hinu fræga endurvinnslu fyrirtæki Hringrás sem er nú um stundir eitt best rekna fyrirtæki á Íslandi samkvæmt því sem ýmsir toppar í atvinnulífi landsins segja.
Forstjóri Hringrásar Einar Ásgeirsson var t.d. um daginn í viðtali í útvarpinu vegna óvenjulegrar velgengni fyrirtækisins á krepputímum og sagði hann þá m.a. einn helsta þáttinn í því vera góða starfsmenn. Nefndi hann í því sambandi sérstaklega Heimsmeistarann í bekkpressu Ingvar ringo Ingvarsson sem sýndi með dugnaði sínum þverskurðinn af öðrum gæða starfsmönnum fyrirtækisins. Þess má geta að Einar sjálfur er hógvær maður sem er ekki að stæra sig af því að hafa á undanförnum árum gert Hringrás að því stórveldi sem það nú er, þótt það sé honum mest að þakka. Afi hans stofnaði fyrirtækið á sínum tíma árið 1950 og hét það þá Sindra stál. Heimasíðu fyrirtækisins má lesa : HÉRNA

Stefnt er að því að flytja eigur Metal í Þrekhúsið á næstu dögum og mun vefurinn greina meira frá því þegar menn geta byrjað að æfa þar undir merkjum Metal en ársgjald mun aðeins vera kr.25.000 eða sem nemur 2.100kr á mánuði. Betra mun það ekki gerast en félagið fær 100fm æfingasal til afnota.
Þrekhúsið er við KR heimilið í Vesturbænum og menn geta kíkt á heimasíðu þess: HÉRNA
Share on Facebook
2 Comments »