Archive for January, 2009

Sigfús Fossdal pávertröll í Metal tekur 405kg í beygjum hyldjúpt

Eins og kunnugt er þá keppti Skyrfús á stórmótinu American Cup í páver um síðustu helgi og fór þar með sigur af hólmi í súpernum og varð þriðji stigahæsti maður mótsins að auki. Vefnum hefur borist  ferðasaga frá kappanum og birtum hana hér á eftir með smá lagfæringum ásamt úrslitum í flokknum hjá honum ásamt linkum á myndbönd,heildarúrslit mótsins og umfjöllun annarsstaðar osfrv. Við þökkum Sigfúsi fyrir greinina og óskum honum til hamingju með árangurinn.

AMERICAN CUP -  140 +kg flokkur

1.   Sigfús Fossdal  405   -  320   -  347,5  - 1072,5kg
2.   Lance Karabel   442,5 -  287,5 -  332,5  - 1062,5 -
-  Thad Coleman      387,5   O      O - féll úr

FERÐASAGAN:

Ég fór flaug suður á fimmtudeginum, og náði Ingvar ringo í mig út á völl og
skutlaði mér á BSÍ þaðan sem ég svo fór til Keflavíkur. Þaðan var ferðinni
heitið til New York, stutt stopp þar, og svo flogið áfram með American
Airlines til Los Angeles. Þar var ég svo að skríða upp á herbergi um 2 um
nóttina eftir um 26 tíma ferðalag. Ég mætti strax í viktun á
föstudagsmorgninum, bara svona til að ljúka því af. Ég viktaðist 344,6 pund
eða 156,2 kg ef ég man rétt. Strax í viktun hitti ég á Leonettu og Darren,
Havaii búana sem voru að keppa á Hm í Vín, og kynnist þarna nokkrum lyfturum.
Svo fór restin af föstudeginum í aflsöppun og át, enda mikil ferðaþreyta í
gangi.
Laugardagurinn var tekinn snemma, vaknað 8 og fengið sér að borða vel á
hótelinu, og svo beint á mótsstað. Mótið var með 3 hollum og var ég í 3
holli. Ég Leo og Darren hjálpuðum hvort öðru í gegnum stálbrækur vafninga og
annað og gekk það samstarf bara alveg frábærlega. Upphitun gekk vel hjá mér,
og var 380 byrjunarþyngd í beygjum létt formsatriði. Því næst fór ég í 400
eins og planið var. Ég lenti í því að fá stöngina upp á bakið og lenda á
tánum og náði því ekki að lyfta þeirri þyngd, en var nokkuð öruggur um að
þyngdin sjálf væri ekkert mál, þannig að ég ákvað að fara í 405, sértaklega
vegna þess að ég sá að Lance sem ég var í mestri keppni við í mínum flokki
var að fara í gegn með lyftu sem var 427,5, þannig að ég ákvað að ná mér í
nokkur kíló í viðbót. Sú lyfta var svo bara mjög góð og örugg hjá mér, þannig
að ég var kominn 10 kg yfir þeim beygjum sem ég tók í 1060 totalinu sem ég
átti best fyrir mótið. Lance fékk svo gilda lyftu með 442,5 og hafði mjög
gott forskot á mig.

Ég var hins vegar að byrja með 305 á bekknum en hann með
275 þannig að ég var ennþá inni í keppninni. Báðir tókum við okkar lyftur
nokkuð létt og fór ég því næst í 315 en hann í 287,5 og tókum við þetta
báðir, en ég valdi svo örugga þyngd 320 en hann reyndi við að mig minnir 290.
Hann klikkaði á því en ég tók 320 öruggt. Þannig að þegar þar er komið við
sögu var hann með 5 kg meira en ég í milli totali, og aðeins léttari en ég
þannig að ég þurfti 7,5 kg meira en hann í deddinu. Ég hafði beðið um 320 í
deddi en hann 322,5, ég ákvað því að hækka deddið hjá mér í 325 í fyrstu
lyftu til að geta haft forskot á að sjá hvað hann meldaði. Báðir höfðum við
þessar þyngdir nokkuð öruggt, en hann fór því næst í 332,5 en ég fór beint í
345. Hann tók sína nokkuð vel en mín var með smá skjálfta og var dæmd ógild
þar sem ég þótti hafa hrist hana of mikið. Lance óskaði því næst eftir 347,5
og hófst þá smá um hugsun. Ég bað um sama og hann, og vissi að hann þyrfti að
taka hana á unda. Ef hann næði henni færi ég svo í 355 til að vinna hann. Það
var þó ekki þörf á því þar sem hann átti ekki séns á þyngdinni þegar á
reyndi. Þá þurfti ég bara að klára mína lyftu með 347,5 og þá væri ég búin að
vinna flokkinn. Ég fór mjög öruggur í lyftuna enda hafði mér þótt lyftan á
undan vera mistök hjá mér þar sem hún var ekki það þung að hafi þurft að
hrista hana til að klára. Ég kláraði þessa lyftu sem var góður toppur og
persónlueg bæting og 1072,5 total í höfn, sem var mesta total mótsins.

Mér var á mótinu í alla staði vel tekið og þakkað mikið af Steve fyrir að
koma alla þessa leið til að keppa hjá honum. Mér var umsvifalaust boðið aftur
á næsta ári, og þáði ég það með þökkum, ásamt óskum um að fá að hafa með mér
amsk 1 lyftara, en Valdi Bolla hefur þegar sagt já við því að fara með mér,
ásamt því að það getur verið að fleiri komi með.
Um kvöldið bauð Alan Aert bauð mér svo út að borða eftir mótið, ásamt
aðstoðarmönnum og nokkrum útvöldum lyfturum, en Alan og konan hans Bonnie (Tittý)en
margir muna eftir þeim frá HM í Vín, eru aðalstyrkar aðilar USPF í
Kaliforníu, og eru sjálf að keppa. Sunnudagurinn var svo notaður í að skoða
Expoið, þær sýningar sem þar voru og fylgjast með Push and Pull amature
mótinu í power sem fram fór á sunnudeginum. Jafn framt hitti ég Mike Bridges,
kraftlyftingamann þarna úti, og þótti mér það mikill heiður, þessi maður er
búin að verða heimsmeistari í kraftlyftingum að mig minnir 4 sinnum og er
mikið nafn í sportinu. (Er einn mesti afreksmaður allra tíma í léttari flokkum en á best m.a. Í 82,5: 380-240-340-960kg í kringum árin 1981-83, innskot ritstjóra)
Miðað við hversu vel var tekið á móti manni þarna, og hver góður hópur af
lyfturum þetta var, hve góðir áhorfendur voru, og hversu vel mótið var
haldið, þá hlakkar mig mikið til að keppa á HM í Las Vegas í haust. Margir
góðir lyftarar þarna ætla að keppa þar og verður mótið í ár ennþá sterkara en
í fyrra. Ferðinn heim gekk vel. Út í Leifsstöð tók á móti mér með blómum sjálf Jóhanna skotta formaður ÍKF METAL og var það óvænt ánægja. Ég er þegar mættur beint í vinnu, þótt illa
sofinn og uppgefinn í skrokknum sé eftir keppni og ferðalag.
Mig langar sérstaklega að þakka öllum sem hjálpuðu mér með þetta. Ég hef í
raun engin orð til að lýsa því hvað ég er þakklátur fyrir að menn hafi haft
áhuga á því sem ég er að gera, og haft vilja til að aðstoða mig í því að geta
framkvæmt þetta. Ég til mig ótrúlega heppinn að búa við svo jákvæða menn í
sportinu eins og raun ber vitni hérna heima. Ég mun aldrei gleyma þessu.

Hér eru nokkrar myndir frá mótinu:
http://cssphotodesign.com/gallery2/main.php?g2_itemId=1954254
Hér er video af lyftunum hjá Sigfúsi:
http://www.powerliftingwatch.com/node/10414
Og hér er umfjöllun um mótið:
http://www.powerliftingwatch.com/node/10385

Kv Sigfús.

_______________________________


Share on Facebook

Comments 7 Comments »

Ingi Freyr Bragason

Hinn stórefnilegi ungmoli úr Metal ,Ingi Freyr hefur æft bekkinn vel undanfarna mánuði  og henti nýlega upp kjötbætingu með því að taka 170kg! - Ingi hefur reyndar verið slæmur í baki frá Bikarmóti Metal í fyrra og lítið sem ekkert getað æft beygjur og dedd en tekið því betur á því á bekknum. Þessi hæfileikaríki strákur hefur alla burði til að ná langt í íþróttinni og vonandi tekur hann nú stefnuna á Evrópumótið í Hollandi í júní en þar ætti hann að geta tekið 200kg múrinn og barist um Evrópututitil á bekk í unglingaflokki.

Evrópumót WPF  í páver, bekk og deddi fer fram í Amsterdam 26-28 júní 2009.  Það ættu allir Metalmolar ungir sem aldnir að spá í þetta mót sem eflaust verður frábært og nokkuð ljóst að við getum þar sótt marga góðmálma. - MEIRA SÍÐAR!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Þorvaldur Borgarnesbolla varð stigahæstur allra

Íslandsmót ÍKF METAL 2009 í bekkpressu fór fram í dag á Eiðistorgi og mættu 13 keppendur af 14 skráðum til keppni. Mótið gekk hratt og vel fyrir sig og varð árangur ágætur þar sem m.a. eigi færri en 6 keppendur tóku 200kg eða meira á bekknum og nokkrir nýjir ungliðar kváðu sér hljóðs. Borgarnesbollan hlaut stigabikarinn hið glæsilega horn sem Patreksfjarðargreifinn Helgi Auðunsson gaf sem farandgrip í fyrra. Annar á stigum varð Ísleifur sem setti glæsilegt Íslandsmet í 90kg flokknum með 222,5kg - ÚRSLIT URÐU ÞESSI:

75kg fl.
——–
1. Bergur Flosason 74,8  - -  90 kg.

Bergur keppti hérna á sínu fyrsta móti og rétt missti 100kg tvisvar sinnum en það fer örugglega létt á næsta móti þegar reynslan stimplast inn.

82,5kg fl.
———
1.Einar Örn Guðnason 79,5  –  135  - (Íslandsmet drengja)
2.Steinn H Sigurðarson 82,1  — 70

Einar Örn er efnilegur strákur úr Borgarnesi sem setti þarna ný Íslandsmet drengja með því að taka 125 og 135kg en missti svo 145 í aukatilraun. Tilverurétturinn (150) gæti farið á árinu…. Steinn sem aðeins er 15 ára keppti í fyrsta sinn á bekk og stóð sig með prýði og átti góða tilraun við 80kg

90kg fl.
——-
1.Ísleifur Árnason 88,9 — 222,5 -  (Íslandsmet)
2.Sindri Geirsson 87,8  — 100  -     (Íslandsmet drengja)

Heimsmeistari WPF í bekk sjálfur Sleifurinn sagðist nú ekki vera í toppformi en engu að síður kom hann með bætingu og nýtt met þegar hann fór með allar lyftur í gegn í seríunni: 200-210-222,5kg. Þegar kappinn dettur upp í 100kg flokk fáum við að sjá þyngdir 240+ engin spurning….Sindri er einn af efnilegum nýliðum Metal og  aðeins 15 ára tók hann þarna 100kg á fyrsta móti og setti drengjamet. Það munaði litlu með 110kg tvisvar sinnum en það verður skítlétt næst…

100kg fl.
——–
1.Hermann Haraldsson 99,9 — 202,5
2.Svavar Smárason 96,3 —    200

Hér var skemmtilegt einvígi hjá tveimur hrikalegum öldungum og eftir vel útfærða keppni sigraði Hemmi Haraldss með seríunni: 190-200-202,5kg en hann ætti alvarlega að spá í það að detta í tíuna og taka 220+….Svavar Hlöllahlúnkur sem einnig er á kafi í kreppunni og miðbæjar-fitness og ég veit ekki hvað var vel stemmdur og tók fína lyftu með 200 efir að hafa fyrst klúðrað 185 og þurft að taka það aftur. Það verður gaman að sjá hvað kallinn gerir þegar hann fer að einbeita sér að bekknum….

110kg fl.
——–
1.Ingvar Ingvarsson 105,6 - 200
2.Sigurjón Ólafsson 100,7 - 145

Heimsmeistari öldunga hjá WPF Ingvar ringo mætti hress til leiks þrátt fyrir að hafa lítt snert stöng frá því í Austurríki. í nóvember  Hann sagðist alltaf geta tekið 200kg og stóð við það þegar hann fór af öryggi með seríuna: 180-190-200kg og var alltaf jafn vinsæll hjá áhorfendum….Grjóni miðnæturdeddari var í miðlungsformi og lét 145kg nægja þennan daginn en verður örugglega sterkari næst.

125kg fl.
——–
1.Grétar Sigþórsson 112,3 - 210
Bjarki Ólafsson   116,0 - féll úr

Grétar var í ágætu formi en gerði fyrstu lyftu ógilda með 200 þar sem musinn var á lofti. Í 2 tilraun kom fín lyfta með 210kg og einnig fór hann upp með bætinguna 220kg en hún var dæmd af vegna svipaðra ástæðna og fyrsta lyftan. Kemur næst….Bjarki hriki hafði verið veikur af flensuskít og náði sér ekki á strik þrátt fyrir aðstoð Steve. Bjarki byrjaði á 200kg sem hefði verið persónuleg bæting um 15kg en það var of þungt þennan daginn en kappinn á eftir að stúta þessum múr síðar og miklu meira en það…

140kg fl.
——–
1. Þorvaldur Kristbergsson 138,3 - 260
Jón B Reynisson 136.1 - féll úr

Athyglisverðir yfirmolar hér á ferð. Heimsmeistari WPF í opnum flokki í páver Þorvaldur Bolla er kominn á fullt aftur og þetta mót var hliðar áfangi í væntanlegri mikilli bætinga yfirferð hins nýja árs. Fyrst tók hann 250kg öruggt en klikkaði svo naumlega á 260kg. Heimsmeistara-harkan kom síðan upp og hann pressaði vel upp þessi 260kg í 3 tilraun. Þetta nægði gullið því Benni breiðsíða eða Big - Ben hafði ekki byrjunarþyngdina með 280kg þrátt fyrir góð tilþrif. Kappinn var einfaldlega of hægur og þreyttur eftir miklar æfingar undanfarið þar sem hann hefur verið að taka 290kg á nærri hverri einustu æfingu og þetta sat því miður of mikið í honum og því fór sem fór.

Dómarar voru þeir: Gunnar Freyr Rúnarsson, Már Óskarsson og svo Flosi Jónsson sem var yfirdómari. Leikstjóri og kynnir var Kári magister.

Frábærir stangarmenn voru þeir: Árni Gestsson og Jóhann Gíslason

Share on Facebook

Comments 11 Comments »

Sigfús Fossdal - Besti pávermaður Íslands keppir í USA

Við íslendingar erum nú flottastir þjóða að safna fyrir ýmis málefni og það kostar alltaf sitt að keppa fyrir þjóðina í páver í útlöndum…Stöndum nú saman og styrkjum Skyrann! - Eini fulltrúi klakans á American Cup!

Hvert einasta lítið framlag skiftir máli og mun hjálpa  til.
Vinsamlega leggið inn á reikning Sigfúsar reikningur 1145-26-6945 kennitala 090683-3229.

BÆTINGAR KOSTA EKKI AÐEINS BLÓÐ, TÁR OG SVITA, HELDUR PENINGA LÍKA!

Share on Facebook

Comments 13 Comments »

Arnar Styr Björnsson

Í Steve Gym eru ýmsir nýmolar að taka á því og einn af þeim efnilegri er hávaxinn moli Arnar Styr sem er á miklu þyngingar og bætinga prógrammi hjá Foringjanum. Styrinn vegur nú um 120-125kg og er yfir 190cm á hæðina þannig að hann getur enn fyllt vel út í skjóðurammann…

Reyndar tognaði Addi í bakinu í beygjum í vikunni en eftir að hafa mokað í sig bólgueyðandi mætti hann á bekkæfingu í dag…Steve var mjög ánægður að sjá hann og hvatti hann grimmur til bætinga…Þótt Addi yrði vegna meiðslanna að hafa lappirnar uppi þá jafnaði hann fyrst sitt besta með léttri 130kg lyftu…(á kjötinu vitanlega) Þá kom bætingakrafan og Magister bannaði Foringjanum alveg að vera með eitthvað hjálparsystem ef sú lyfta yrði þung..Sett voru 140kg á stöngina og það tók Addi síðan bara nokkuð vel.  Þegar bakið lagast hendir hann örugglega upp tilveruréttinum….

MUNIÐ ÍSLANDSMÓT METAL Í BEKKPRESSU Á LAUGARDAG KL.13.00 Á EIÐISTORGI

Share on Facebook

Comments No Comments »

Sigfús Fossdal fékk heiðursboð til Los Angeles

Heimsmeistari WPF í súpernum sjálfur Skyri ákvað að slá til að keppa á American Cup sem USPF sambandið stendur fyrir um næstu helgi. Fúsi hefur ekki haft mikinn tíma til undirbúnings en lætur ekki sleppa frá sér slíkt kostaboð  eins og þetta. Heimasíða mótsins og keppendalisti er HÉRNA en aðeins fáum útvöldum er boðið í hverjum flokki.

Miðað við takmarkaðan mögulegan undirbúning meistarans hafa hlutirnir gengið ágætlega á æfingum og nýlega tók hann 400kg í beygjum sem var að vísu tæp á dýpt en örugg lyfta og svo 315kg á bekk sem var toppur þann daginn en deddið hefur hann ekki toppað en á góðum degi gæti bæting í beygjum legið og svo í totali…Umfjöllun um 400kg æfingabeygju Skyrans má finna á vefsíðunni Powerlifting watch og svo ýmis skemmtileg komment: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 7 Comments »

Bjarki ólafsson

Bjarki ólafsson

Bjarki hriki úr Steve Gym hefur verið í feikna formi í vetur og er nú skráður á Íslandsmót Metal í bekk á Eiðistorgi á laugardag kl.13.00. Hrikinn sem á um 185kg best í keppni á bekknum ætlar heldur betur að bæta þann árangur og stúta 200kg múrnum. Í síðustu viku tók hann á æfingu undir stjórn Foringjans 210kg! - Þessi bæting var ekki tekin út með sældinni því 4-5 sinnum áður hafði Bjarki farið úr og í sloppinn sem honum fannst heldur þröngur eins og lífstykki á prinsessu eða þannig. Steve er nú að hvetja Hrikann til að halda andanum uppi og halda sínu bætingastriki á mótinu sjálfu….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Eiðistorg á Seltjarnarnesi er glæsilegur staður!

Íslandsmót Metal í bekkpressu verður 24 janúar kl.13.00 á Eiðistorgi. Vigtun keppenda í Steve Gym daginn áður,föstud. kl.13.00 -14.00  og svo kl.18.00-19.00

Eiðistorg er ein af perlum Vesturbæjar!

Keppendur eru eftirtaldir:

Fjöldi keppenda: 14

Karlar

75,0 kg

  • Bergur Már Flosason

82,5 kg

  • Einar Örn Guðnason

Steinn Hermann Sigurðarson

    90,0 kg

    • Ísleifur Árnason
    • Sindri Geirsson

    100,0 kg

    • Hermann Haraldsson
    • svavar smarason
    • Brynjar Karl Guðmundsson

    110,0 kg.

    Sigurjón Ólafsson

    Ingvar Ingvarsson

    125,0 kg

    • Grétar Kristófer Sigþórsson
    • Bjarki Elí Ólafsson

    125,0+ kg

    • Jón Benóny Reynisson

    140,0 kg

    • Þorvaldur Bolla Kristbergsson
    Share on Facebook

    Comments 5 Comments »