Þáttur um keppnina IFSA Sterkasta Mann Íslands 2008 verður sýndur á RÚV sunnudaginn 28.desember. Á gamlársdag verður síðan þáttur um Austfjarðartröllið 2008 sýnt kl 14:50.
Archive for December, 2008 Þáttur um keppnina IFSA Sterkasta Mann Íslands 2008 verður sýndur á RÚV sunnudaginn 28.desember. Á gamlársdag verður síðan þáttur um Austfjarðartröllið 2008 sýnt kl 14:50.
Völundur er helsti jólasveinn ÍKF METAL í ár Keppendur Metal á HM, stjórn og aðstoðarmenn og helstu velunnarar eru boðnir í mat á Fjörukránni á morgun laugardag kl.19 af sjálfum Völundi Þorbjörnssyni Kanadakanslara. Mætið hress og fagnið glæsilegu ári hjá helsta kraftlyftingafélagi landsins….Á eftir matnum verður stiginn dans undir þjóðlegri tónlist hins mikla Hafnarfjarðargoðorðs að víkingasið undir blessun öflugra goða…. Kraftaheimar óska öllum lesendum vefsins nær og fjær gleðilegrar hátíðar og friðar í hjarta án þess að kvarta…Étið nú almennilega vinir og óvinir svo þið hafið orku til átaka á öllum sviðum! Kári Magister vill benda mönnum á að senda ekki tölvupóst á gamla netfang hans á G-mail þar sem tölvuþrjótar hafa brotist inn í póstkerfið og eru m.a.að senda út falspóst í nafni hans. Auk þess sem sömu aðilar hafa sent Magister ýmsar alvarlegar hótanir bæði beint og í gegnum þriðja aðila. Þessir menn hafa einnig birt svívirðingar ofl. um hann í komment á nokkrar vefsíður. Málið hefur verið kært til lögreglu og er það nú í rannsókn.Þess skal getið að hótanirnar fóru að berast ritstjóranum daginn eftir að dæmt var í máli Úrsusar gegn Fréttablaðinu þar sem Fréttablaðið vann málið. Magister var eitt lykilvitna blaðsins og mun verða það í Hæstarétti líka ef málið fer þangað þrátt fyrir þessar hótanir.-Nýtt netfang eins og er hjá ritstjóranum er: sirmagister@visir.is Mynd tekin á Íslandsmóti í lyftingum í apríl í vor
Opna Jólamót Ármanns í lyftingum fór fram í gær í Þróttaraheimilinu. Aðstaða þar fyrir lyftingar er aldeilis frábær og náðist ágætis árangur á mótinu. Ritstjórinn er nú ekki með öll úrslitin en meðal helstu úrslita má nefna það að Hrannar Guðmundsson einn af sonum hins fræga kappa Gvendar Sig sem einnig keppti á mótinu var atkvæðamestur og bætti öll Íslandsmetin í 77kg flokknum með stæl. Hrannar snaraði 94kg og jafnhenti 122kg sml.216kg. Hrannar lyfti af mikilli ættarhörku og krafti en minna fór fyrir liðlegheitum sem þó er hægt að lappa upp á í næstu teygju-æfingabúðum… Sigurður Einarsson sigraði í 84kg flokki og setti nýtt Íslandsmet í snörun með 108kg sem var glettileg lyfta eftir að Sigga hafði mistekist með þyngdina í fyrri tilraun. Hann jafnhenti svo 133kg og sml. 241kg. Jólameistari í 105kg flokki varð síðan sjálfur super grand old champ Guðmundur Sigurðsson, sem snaraði 90kg og jafnhenti 120kg sml.210kg. Þegar Silverinn hafði í 2.tilraun snarað 90kg nokkuð lipurlega sagði Ingvar ringo við hann: “Þetta var nú miklu betra en fyrsta lyftan!” Gvendur leit þá kankvís á hann og svaraði að bragði: “Maður bætir í svona eftir þörfum!” Olympíufarinn Gvendur Sig er enn að vinna lyftingamót á sjötugsaldri! - ![]() Hjalti Úrsus á góðri stundu nokkru fyrir málaferlin gegn Fréttablaðinu
-
Ritstjórar Fréttablaðsins, Þorsteinn Pálsson og Jón Kaldal, og 365 miðlar voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaðir af meiðyrðakæru sem Hjalti Árnason höfðaði gegn þeim. Krafðist Hjalti þess að ummæli sem birtust í Fréttablaðinu á síðasta ári yrðu dæmd dauð og ómerk og að fá greiddar 10 milljónir króna í miskabætur.
Margir hlógu sig máttlausa þegar heyrðist af þessu meiðyrðamáli Dúdda sem nú hefur gert kappann að enn meira athlægi..Það voru ummæli Súperskottunnar Jóhönnu Eiríksdóttur í Fréttablaðinu í fyrra sem fóru svona rosalega í þær fínustu hjá Hjalta..10 milljóna skaðabótakrafa hans þótti með því fyndnasta sem lögfræðiheimurinn hafði heyrt lengi og voru þar flestir gáttaðir á þennan makalausa málatilbúnað…Úrsusinn notaði í málinu t.d. illa gerða fundargerð Maríu títlu hjá kraft sem Kári Magister pakkaði saman í vitnastúku fyrir réttinum ásamt fleiru ,en Magister var eitt aðalvitni Fréttablaðsins sem gerði bæði Dúdda og lögfræðing hans að taugahrúgum í réttarsal…Nokkrum dögum eftir réttarhöldin sagði Úrsusinn við einn kunningja sinn aðspurður um horfurnar í málinu: “ÉG ER EKKI VISS UM AÐ VINNA ÞETTA MÁL LENGUR ÞVÍ HELVÍTIÐ HANN KÁRI FÓR OFFARI Í RÉTTINUM!!”
FRÉTTABLAÐIÐ HRÓSAÐI SIGRI GEGN DÚDDA FERG! “Hjalti krafðist þess að eftirfarandi ummæli sem birtust í Fréttablaðinu 8. október 2007 verði dæmd dauð og ómerk. ,,Kraftlyftingamenn sem vilja ekki lyfjapróf þröngvuðu formanni sínum frá völdum.“ ,,Ekki hafi verið vilji fyrir því meðal áhrifamanna í sambandinu vegna þess að því myndu fylgja regluleg lyfjapróf“ ,,…í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu. Þar á hún við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason, en hvorugur þeirra situr í stjórn sambandsins.“ Í umdeildri frétt kemur fram að Jóhanna Eiríksdóttir hafi viljað að kraftlyftingamenn sæktust eftir aðild að Íþrótta og Ólympíusambandi Íslands, en ekki hafi verið vilji fyrir því meðal áhrifamanna í sambandinu vegna þess að því myndu fylgja regluleg lyfjapróf. Í beinu framhaldi segir í fréttinni að stjórnin hafi ekki fylgt formanninum að málum og þá hafi skipstjórinn ekkert að gera í brúnni lengur. Jafnframt segir í beinu framhaldi, innan tilvitnunarmerkja: Þeir eru ekki mikið fyrir breytingar þarna og í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu“. Þá segir í beinu framhaldi að þar eigi Jóhanna við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason en hvorugur þeirra sitji í stjórn sambandsins. Segir í niðurstöðu héraðsdóms að óumdeilt sé að Hjalti er þekktur kraftlyftingamaður. „Í fréttinni sjálfri er ekki greint frá því að stefnandi hafi verið á þeim fundi sem fréttin greinir frá, en við meðferð málsins kom það fram. Þótt stefnandi sé nafnkunnur kraftlyftingamaður og hafi verið á fundi þeim sem greint er frá í fréttinni, beinast hvorug ofangreindra ummæla sérstaklega að honum, heldur að ótilgreindum hópi kraftlyftingamanna sem voru á fundi þessum.” Meira má lesa um þetta hjá mbl.is :HÉRNA
10 milljón króna maðurinn í því besta: Metalbol! - (Umboðsaðili Metal á Íslandi er Jóhanna Eiríksdóttir!) - Frétt á visi.is: HÉRNA Íslenskar bollur voru vinsælt myndaefni og hér má sjá einn aðdáanda með þeim Valda, Palla og Heisa. Kári magister setur heimsmet öldunga 55-60 ára með 250kg í fl.82,5kg Magister var að hugsa um að fara í reiðtúr en sleppti því svo til öryggis… Flosi og Ingvar halda á Fermeternum nýkrýndum heimsmeistara unglinga Ingvar ringo heimsmeistari öldunga 45-50 ára á bekk í 110kg flokki á nýju heimsmeti 245.5kg og Hermann Haraldsson t.v. náði bronsi með 195kg Flosi Jónsson t.h. hlaut silfur á bekk í öldungaflokki 50-55ára með 175kg í 110kg flokki Mikið og flott verðlaunahaf var hvern mótsdag í Vín! (FLEIRI MYNDIR MJÖG FLJÓTLEGA!) Sterkasti prestur heims, Séra Gunnar Sigurjónsson ætlar ásamt Kópovogsfélögum sínum á gamlársdag að stofna æði sérstakan klúbb um kraftlyftingar þar sem réttstöðulyfta og skjóðuþyngd manna hefur hvað mest vægi ásamt samstöðu og góðu skapi…
Frumdrög að lögum félagsins eru þegar tilbúin. Þar segir m.a eftirfarandi tekið af heimasíðu Kraftaklerksins: Lög kraftlyftingaklúbbs kátra kappa í Kópavogi K-5 2.grein. Markmið. 3. grein. Félagar. 4. grein. Kosningarréttur og kjörgengi MEIRA UM ÞETTA MÁ SJÁ: HÉRNA |
Kraftaheimar óska öllum lesendum vefsins nær og fjær gleðilegrar hátíðar og friðar í hjarta án þess að kvarta…Étið nú almennilega vinir og óvinir svo þið hafið orku til átaka á öllum sviðum!
Kári Magister vill benda mönnum á að senda ekki tölvupóst á gamla netfang hans á G-mail þar sem tölvuþrjótar hafa brotist inn í póstkerfið og eru m.a.að senda út falspóst í nafni hans. Auk þess sem sömu aðilar hafa sent Magister ýmsar alvarlegar hótanir bæði beint og í gegnum þriðja aðila. Þessir menn hafa einnig birt svívirðingar ofl. um hann í komment á nokkrar vefsíður. Málið hefur verið kært til lögreglu og er það nú í rannsókn.Þess skal getið að hótanirnar fóru að berast ritstjóranum daginn eftir að dæmt var í máli Úrsusar gegn Fréttablaðinu þar sem Fréttablaðið vann málið. Magister var eitt lykilvitna blaðsins og mun verða það í Hæstarétti líka ef málið fer þangað þrátt fyrir þessar hótanir.-
Mynd tekin á Íslandsmóti í lyftingum í apríl í vor



Sterkasti prestur heims, Séra Gunnar Sigurjónsson ætlar ásamt Kópovogsfélögum sínum á gamlársdag að stofna æði sérstakan klúbb um kraftlyftingar þar sem réttstöðulyfta og skjóðuþyngd manna hefur hvað mest vægi ásamt samstöðu og góðu skapi…

Entries (RSS)