Archive for November, 2008

Ísleifur Árnason varð heimsmeistari í 90kg flokki eftir harða keppni Opni 90kg flokkurinn á bekk á HM í Austurríki var spennandi og skemmtilegur. Sex léttmolar tóku á því og var Sleifurinn talinn sigurstranglegur ásamt þýskaranum Norman Krause sem einnig átti yfir 220kg á bekknum. Sleifur þurfti að tækniskafa sig oní flokkinn en hann fann fljótlega í upphitun að hann var ekki jafn sterkur og hér heima fyrir keppnina en þá var hann um 93kg á skjóðuna. Byrjunarþyngdin var ákveðin 210kg en þjóðverjinn byrjaði á 200kg og aðrir á talsvert minna og náðu ekki að blanda sér í gullbaráttuna.

Sleifurinn með hin glæsilegu sigurlaun og fáninn stoltur í baksýn

210kg í fyrstu tilraun hjá Sleifnum var örugg lyfta en ekki eins létt og félagar hans höfðu vonað en þó ljóst að meira var inni…Þjóðverjinn fékk hinsvegar 200kg ógilt nokkuð óvænt sem truflaði vitanlega hans áform talsvert…Krause tók aftur 200kg létt og fékk það gilt. Sleifurinn jókj síðan forystu sína þegar hann sýndi mátt klakverjans og pressaði vel upp 217,5kg en ljóst að það var nálægt toppi þann daginn. Í lok þriðju og síðustu umferðar myndaðist mikil spenna í lofti þegar Krause reyndi að taka titilinn af Sleifnum með 220kg…Þetta var hörð baráttulyfta en greinilega óhrein með mispressun ofl. fannst okkur allavega,  en upp fór hún..Þjóðverjum til vonbrigða en okkur til gleði var lyftan réttilega dæmd af en ekki mátti miklu muna því eitt hvítt ljós sást…Þar með var Ísleifur orðinn heimsmeistari og mesta púðrið var farið þegar hann klikkaði svo á 222,5kg í sinni síðustu lyftu…Glæsigur sigur hjá Sleifnum og fyrstur til að verða íslenskur heimsmeistari í opnum flokk á bekk takk fyrir!

Flottir Metalmolar á HM: Neðri röð: Flosi, Ingvar. Efri: Ísleifur, Jóhann, Baldvin

ÚRSLIT Í 90KG FLOKKNUM URÐU ÞESSI:

1. Ísleifur Árnason - Ísland  -        217,5kg.
2. Norman Krause - Þýskaland    200
3. Thomas Effner  - Þýskaland     177,5
4. Jochen  Puchmelter Austurríki 175
5. Eugen  Grets - Þýskaland       155
6. Roman Adolfo - Mexico           140

-

Ísleifur ásamt kærustu sinni Kristínu sem hvatti kappann vel í keppninni.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Yfirhöfðinginn er við öllu búinn í kreppunni í Kanada

Það eru ýmsir Icesave bankamenn frá klakanum á flótta víða um lönd og verða brátt eftirlýstir vegna þátttöku sinnar í bankahruninu…..Sumir þeirra eru taldir hafa augastað á að leita hælis í hinu risastóra gistihúsi Ofsans í Kanada vegna hinnar frægu gestrisni kappans…Einnig er allskonar annar óþjóðalýður á ferðinni sem Kanadakanslarinn kærir sig lítt um og hefur hann nú tekið námskeið í skotfimi og verslað sér hrikalegar skammbyssur til að geta örugglega varið óðalssetrið fyrir ágangi manna og dýra….

Ofsa-verkfærin….Skammbyssan hefur löngum þótt lög og réttur í Ameríku…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Þorvaldur Kristbergsson heimsmeistari  WPF 2008 Í 140kg flokki

Kraftaheimar ætla nú aðeins á næstunni að vera með smá umfjöllun um hvern og einn heimsmeistara sem Íslenska Kraftlyftingafélagið Metal fékk á HM hjá alþjóðasambandinu WPF í páver í Vín í Austurríki um daginn og svo einnig verður sagt í máli og myndum frá hinum keppendum Íslands á mótinu en íslenska liðið í heild sinni vakti mesta athygli áhorfenda og annarra sem á staðnum voru. Við byrjum sem sagt á Borgarnesbollunni….

-

Augun voru rauð þegar á Bollunni sauð….

Undirbúningur Bollunnar fyrir mótið hafði gengið mjög vel og m.a. hafði hann tekið nokkuð létt 400kg í beygjum á æfingu og 260kg á bekk…Hann hafði því sjálfur gert sér miklar væntingar sem og lesendur Kraftaheima sem flestir í könnun vefsins spáðu honum 420-435kg í beygjum..Nokkuð óraunhæft kannski miðað við reynsluleysi kappans og bara miðað við stórmót yfirleitt..Hvað um það Bollan hafði meldað byrjunarþyngdir upp á 390-260-340…Magister ráðlagði honum að lækka aðeins byrjunarþyngdina í beygjum en þeirri “vitleysishugmynd” var snarlega hafnað…

390kg var fyrsta þyngd en þegar Bollan hafði tekið stöngina úr stadífum sem var svokölluð Monolyft þá missti hann strax jafnvægið þegar hann ætlaði að beygja og þar með fauk sú tilraun út í loftið…Það fór um íslendingana…..Bollan harkaði hinsvegar af sér eins og ísbjörn og tók þyngdina í næstu tilraun og labbaði nú með þyngdina úr stadífunum eins og hann er vanur að gera heima og virtist þessi frábæra lyfta vera mjög nálægt toppi…Íslendingarnir hresstust nú heldur og Bollan settist niður alveg lafmóður og sagði: “Strákar,ég er alveg búinn!”…Það var ekki hlustað á svona kjaftæði og kjarkur laminn aftur í kappann sem fór í 405kg í þriðju og síðustu tilraun…Þetta var rosaleg bardagalyfta sem kappinn harkaði upp og fékkst gild! Glæsilegt! Fyrstur íslendinga frá upphafi til að taka 400+ í beygjum á Heimsmeistaramóti!

Bollan að byrja bekkinn….

Valdi hafði létst nokkuð á hangsinu á mótsstað og hafði vigtast inn 138.5kg en var um 146kg áður en lagst var í víking…Sloppurinn var því ekki eins þröngur og áður og betur tókst að komast niður á kassa með þyngdir eins og 220kg í upphitun og allt var skítlétt…Byrjunarþyngdin með 250kg sprengdist upp og vel ljóst að Bollan var að ná sér eftir beygjustreðið…lækkun byrjunarþyngdarinnar hafði þar góð áhrif…næst var farið í 265kg sem einnig flaug upp og gleðisvipurinn þandist um breitt smettið á kappanum…275kg í þriðju pressaðist einnig glæsilega upp með 3 hvítum ljósum eins og hinar lyfturnar.Allt í góðu gengi…Þreytan var þó farin að segja til sín í deddinu og var byrjunarþyngdin lækkuð í 330kg til að tryggja titilinn. Skynsemin var farin að ráða ferðinni…330 var þó fremur þung lyfta en örugg og gaf 1010kg í samanlögðu hvorki meira né minna! -Kappinn var síðan búinn á því þegar hann reyndi við 340kg í 2.tilraun en fyrirfram hafði verið búist við að Bollan yrði deddkóngur mótsins en þetta var samt glettilegt! -Heimsmeistari í opnum flokki 140kg með glæsibrag….!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Allir Íslendingarnir sem kepptu unnu til verðlauna.

Flosi tók 175kg á bekknum og vann silfur í -110kg flokki í sínum aldurshóp

Ingvar gerði sér lítið fyrir og setti nýtt heimsmet í -110kg flokki, 245,5kg og vann gullið, en Hemmi Haralds fékk brons í sama flokki með 195kg lyftu.

Baldvin bekkur keppti í 125kg flokki, klikkaði tvisvar á 200kg en náði því í þriðju.  Í aukatilraun fór hann í 220,5kg og setti heimsmet í sínum aldursflokki!
Kári vann gull á nýju heimsmeti í deddinu í 82,5kg flokki með 250kg, en hann fór upp með 270kg tvisvar og gripið sveik hann í bæði skiptin.

Jói Gísla keppti líka í deddi, og hann náði bronsi í sínum flokki.

Glæsilegur árangur hjá Íslendingunum, það verður ekki annað sagt!

Share on Facebook

Comments No Comments »

íSLEFUR HENDIR UPP 220 VIKU FYRIR HM -

http://mail.google.com/mail/#inbox/11d7468577fcd40e
Sleifurinn lendir í einum harðasta flokki mótsins en 8 jaxlar eru skráðir í 90kg flokkinn og þar af einn sem á 280kg best….

Share on Facebook

Comments No Comments »

WPF Alþjóðasambandið í páver er heldur betur að vinna á í páverheiminum. ÍKF METAL er aðili að þessu sambandi og Heimsmeistaramótið fer núna fram í Vín í Austurríki dagana 13-16 nóvember. 220 keppendur eru skráðir til leiks sem er nýtt met í sögu sambandsins. Eins og kunnugt er þá er bekkpressa ein vinsælasta íþróttagrein í heiminum og af þessum 220 keppendum eru 111 sem keppa eingöngu í bekknum. 26 konur keppa þarna líka þar af ein frá Íslandi, Ingibjörg Óladóttir sem tekur þátt í páverkeppninni sjálfri, en hún er núverandi Evrópumeistari í súper og bætir líklega núna heimsmeistaratitli við en hún er í hörkuformi og stefnir að því að verða sterkasta kona Íslands í páver frá upphafi.

-

Merki WPF alþjóðasambandsins í páver

Ísland sendir 15 keppendur á mótið og keppa þeir í hinum ýmsu aldurs og þyngdarflokkum. Þetta er gæðarjóminn af þeim pávermönnum sem til eru á klakanum og má búast við að 6-7 Heimsmeistaratitlar vinnist allt frá unglingaflokki upp í opinn flokk í súpernum þar sem Þorvaldur Kristbergsson Borgarnesbolla er hvað sigurstranglegastur.

KEPPENDUR ÍSLANDS ERU EFTIRTALDIR:

Ingibjörg Óladóttir 90+kg  opinn flokkur kvenna- páver

Eyjólfur Unnarsson 110kg unglingaflokkur - páver

Páll Logason 140kg unglingaflokkur - páver

Valdimar R Valdimarsson 100kg opinn flokkur karla - páver
Heiðar Geirmundsson 140kg opinn flokkur karla - páver
Þorvaldur Kristbergsson 140+kg  opinn flokkur karla - páver

Sigfús Fossdal 140+kg opinn flokkur karla - páver

————————–

Ísleifur Árnason 90kg opinn flokkur - bekkur

Hermann Haraldsson 100kg öldungaflokkur (45-50) - bekkur

Ingvar Ingvarsson 110kg öldungaflokkur (45-50) - bekkur
Flosi Jónsson 110kg öldungaflokkur (50-55) - bekkur

Baldvin Skúlason 125kg öldungaflokkur (50-55) - bekkur

—————————–

Kári Elíson 82,5kg öldungaflokkur (55-60) - Réttstaða

Gunnar F Rúnarsson 110kg öldungaflokkur (40-45) réttstaða

Jóhann Gíslason 125kg öldungaflokkur (45-50) réttstaða

——————————

14 þjóðir taka þátt í mótinu og má þar m.a. nefna öflugar þjóðir eins og Rússland, Búlgaríu, Bretland, USA og Ukraníu ofl. Aldrei nokkurn tíman í íslenskri páversögu hefur jafn mikill fjöldi keppenda farið á slíkt mót og ber það gott vitni um hið frábæra starf sem Íslenska Kraftlyftingafélagið METAL hefur unnið á ekki lengri tíma en einu ári,  en félagið var stofnað 22 nóvember 2007 en dugmikill formaður þess er Jóhanna Eiríksdóttir flugfreyja og athafnakona.

Share on Facebook

Comments No Comments »

“Ég sagði ykkur að ég tæki þetta strákar!”

Það var mikill andi í krafta-akademíu Egilshallar í gærkvöld.  Nokkrir HM farar ÍKF METAL voru að kanna byrjunarþyngdir sínar á bekknum og ómar stangarmaður Jóhannsson tók deddkönnun….Ómar sem er helreyndur jaxl í stálinu er núna loksins að verða alvörumoli í útliti og deddaði 260 örugglega en klikkaði á bætingunni 280kg sem fór þó vel af stað og skítliggur á næsta móti. En þeir sem eiga myndir af kappanum endilega að senda fréttastofunni nokkrar…Fjölli tvister, Ingvar ringo,Árni Gests,Jói Gísla og Höddi brain voru aðal aðstoðarmenn kvöldsins og Magister fylgdist grannt með öllu og gaf gáfuleg ráð öðru hvoru sem enginn hlustaði á….

Maður dagsins var Valdi bolla en hann var afar einbeittur og hrikalegur og tók fína bætingu á bekknum með 260kg lyftu sem var með góðu stoppi niðri. Palli fermeter var fremur þreytulegur og lét 250kg nægja en hann á mikið inni. Sleifurinn henti 220kg upp með góðum hraða og Baldi bekkur tók með stoppi 210 í sloppi númer 60 sem er yfirleitt aðeins á færi yfirmola í súpernum að nota. Hemmi Haralds tók 190 í góðri lyftu en hann hafði eins og Baldi tekið þungan bekk á mánudaginn en ekki komist niður á kassa með þyngdirnar fyrr en núna…Valdi kerfismoli tók svo 180 með löngu stoppi í nokkuð hægri og þreytulegri lyftu en hann var eitthvað slæmur í framhandleggjum. Þetta á allt eftir að fínslípast hjá þessum hrikalegu molum og bætingarnar liggja á Heimsmeistaramótinu í Vín í Austurríki dagana 13-16 nóvember….

FYLGIST MEÐ Á KRAFTAHEIMUM! - VEFNUM SEM SKILUR BÆTINGAR!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Sigþór Arnarson nýmoli og framtíðardeddari

Silli trappi úr Steve Gym hefur ekkert slegið af æfingum frá því hann sló í gegn á Bikarmóti Metal um daginn… Kappinn mætir alltaf í gymið með hrikalegan bætingasvip í hverjum andlitsdrætti….Í vikunni sást hann taka vel á trappanum þegar hann togaði upp í deddinu 270×2! og átti inni….300kg dedd liggur í vetur engin spurning og á Metal mótum næsta árs mun hann eflaust fara mikinn og sækja hart að 800kg múrnum í totalinu…

Share on Facebook

Comments No Comments »