Archive for October, 2008

Sir Magister Cat að pæla út deddið fyrir HM…

Áætlanir Magisters fyrir deddið á HM eru að ganga upp miðað við allt…Hann hefur þó engar beygjur getað tekið til stuðnings vegna þess að öxlin eftir uppskurðinn í vor þolir það ekki…Ýmsar æfingar aðrar af minna gæðakaliberi hafa verið notaðar í neyð í staðinn. þ.a.s. fótréttur og fótkrull osfrv. Í dag deddaði kallinn 270kg sæmilega…gott start en lenti í veseni með gripið í efri hluta lyftunnar og kláraði því tæplega. Gripæfingar því á dagskrá næstu 10 daga…

Balli bekkur var ekki nægjanlega frískur í þungan bekk og lét 190kg nægja en tekur könnun með Ingvari á mánudag. Flosi spider er á fullum skriði í guðsgreininni og tók í vikunni niður á kassa með stoppi bæði 165 og 170kg í virkilega hröðum og fínum lyftum og síðan 180×3 af þreföldum búkka. Svei mér þá ef kallinn tekur ekki bara 180 úti í Vín!..Það myndi verða frábært því þegar Flosi var ungur fyrir 15-20 árum tók hann sitt besta 187,5kg á bekk….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Í gær mætti molahirðin sem hefur verið að æfa í Orkuverinu á bekkpressuæfingu.  Menn eru greinilega búnir að ná að keyra vel upp fyrir ferðina út til Vínar, og var árangurinn eftir því.

Hemmi Haralds fór í 210kg, náði því ekki alla leið niður á brjóst, en pressaði því létt upp.  Heisi var þarna frekar rólegur og fór upp í 270kg niður á tvöfaldan búkka.  Bollan fór upp í 280kg niður á einfaldan búkka, en maður kvöldsins var Palli Fermeter, sem fór með 275kg niður á brjóst og kláraði það alla leið!

Pallinn ánægður með 275!

-
Það er nokkuð ljóst að árangur landsliðsins á bekk verður mjög góður, en þetta skýrist allt betur á lokaæfingunni á bekk sem verður í næstu viku.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Stefán Hallgrímsson spengilegur t.v. ásamt Gumma lærisveini

Á æfingu í vikunni var foringinn sjálfur á sveimi í stöðinni og kom af stað ýmsum umræðum. T.d. var rætt um bandaríkja forseta  og forsetaefnin í væntanlegum kosningum og hinn fallna kapitalisma ofl. Tvister læknanemi hakkaði forsetaefnin í sig fyrir hönd sérstakra atvinnurekanda á íþróttasviði svo það kom á á foringjann sem jafnaði sig þó fljótlega á því. Í framhaldinu skyndilega segir Steve: “Ég virði bara tvo menn í heiminum”..“Og hverjir eru það?” spurði einhver. Og ekki stóð á svarinu hjá Steve: “Það eru Dabbi kóngur og Kötturinn!”…. Þetta stakk nú upp í nokkra viðstadda þar sem fyrra nafnið er nú heldur umdeilanlegt um þessar mundir en að sjálfsögðu hafa menn vel skilning á því síðara…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ingvar Ingvarsson í guðsgreininni

Sprengjumaðurinn Ingvar ringo er dottinn úr þunglyndinu eftir slysið um daginn og mætti galvaskur í Steve Gym í dag í fylgd Súperskottunnar sem aðstoðaði kappann eftir föngum með sjúkrabindi um úlnliðinn ofl. Eftir að Ingvar hafði tekið 190kg á kjötinu tróð Tvisterinn honum í  Metal king slopp…og á ýmsum búkkum tók hann 210-220-230kg. Síðan var farið í 240kg en sloppurinn reyndist aðeins of þröngur til að þyngdin kæmist niður á kassann…Tvisterinn græjaði það mál og síðan var aftur farið í 240kg…Það tók Ingvarinn bara nokkuð létt með góðri sprengju….

Að viku liðinni ætlar kappinn í 250kg eða svo….Þá er ætlunin að fá Valda kerfismola til að græja sloppamálin fyrir Ingvar en það var einróma álit manna á staðnum að hann væri bæði hæfastur og ósérhlífnastur til þeirra mála af öllum nýmolum landsins og virkilega treystandi til þess að gera Ingvar að heimsmeistara á bekk…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Flosi Jónsson spider, alltaf flottur í tauinu

-
Það er slatti af öldungum að æfa á fullu fyrir HM í Vín og eru þrír þeirra að taka á því í Steve Gym….Baldi bekkur er að jafna sig eftir léttan 210kg bekk fyrir 9 dögum síðan en þetta gerir aldurinn á kallinum…Hann tekur væntanlega góðan bekk aftur á föstudaginn kemur eftir allt fína nuddið hjá tælensku flottdömunni undanfarið…

Flosi spider er allur að finna sig eftir nokkrar búkkaæfingar á bekknum og er byrjaður að taka á kassann líka í framhaldslífi…Hann fór örugglega með 160 á föstudaginn en hefur tekið 180 af þreföldum búkka…. Magister var nokkuð illa upplagður vegna svefnrugls þennan dag en deddaði engu að síður 260kg í stáli og dettur í mun meira næsta föstudag….

Stjórn Metal sér um að  verið er að hanna landsliðsgalla á keppendur Íslands í Austurríki sem þeir fá frítt og eru viðkomandi molar beðnir um mæta í Henson umboðið til mátunar í vikunni…Sendið síðan númerin með tölvupósti til Skottunnar sem pantar gallana.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ingvar í léttri beygju á Bikarmótinu

Menn hafa nú furðu lítið verið að spyrjast fyrir um heilsu þessa mikla kappa eftir slysið á þriðjudaginn en þó eru alltaf einhverjir umhyggjusamir sem senda ritstjóranum línu þegar eitthvað kemur fyrir svona mikilhæfa pávermenn eins og Ringoinn….Magister heimsótti sjúklinginn í gærkvöldi sem var ansi óhress með þetta allt saman…Ingvar var með talsvert svöðusár á sköflung sem er þó þegar farið að gróa á fullu….Hann er mjög bólginn á öðrum úlnlið og fingrum og getur mjög lítið hreyft hendina en er þó óbrotinn…Hann ætlar að reyna að taka bekkæfingu eftir helgi og sjá til með það hvort það gangi ekki nægilega vel til að hann geti keppt úti á HM…Kraftaheimar óska ho

Share on Facebook

Comments No Comments »

Aðalfundur ÍKF METAL sem er aðili að alþjóðasambandinu WPF, verður haldin á stofndegi félagsins 22.nóv.ár hvert. Ákveðið hefur verið af stjórn félagsins að þeir sem vilja eiga kostningarétt á fundinum þurfi að vera búnir að vera félagsmenn í það minnsta einn mánuð fyrir fund. Í ár er gerð undanþága frá þessari reglu og hafa menn tækifæri til þess að skrá sig til 1.nóv. Árgjald félagsins er.5.000kr.

Óskir um breytingar og tilllögur um mót þurfa að berast ritara félagsins Kára Elísonar, sirmagistercat@gmail.com fyrir 1.nov næstkomandi. Á fundinum verður lögð fram skýrsla stjórnar, uppgjör gjaldkera,tillaga að mótaskrá, teknar fyrir óskir og tillögur félagsmanna og kosning stjórnar.Fund

Share on Facebook

Comments No Comments »

Finnsku gestamolarnir á Bikarmóti Metal 2008 í Perlunni

De finska sisu

Lengst til vinstri er Panu Lappalainen og á hinum endanum er Jani Murtomaki. Molarnir í miðið eru vinir þeirra sem aðstoðu þá á mótinu og hjálpuðu einnig til við stangarmennsku þegar íslenskir molar voru of hræddir til að standa við miklar þyngdir í beygjum….

Murtomaki var mjög ánægður með þetta glæsilega mót ÍKF METAL og hefur sett komment um það hér í næstu frétt fyrir neðan en kommentið er á þessa leið:

Jani Murtomäki okt. 20th, 2008 at 19.22 Edit

Thank you all for the very good competition! I really enjoyed to be at Iceland and lift there! Competition place and competition organizing was very good. You definitely know how to make a good competition. Congratulations to all lifters from me! I’ll be back next year. You all are very nice peoples!Jani Murtomäki
Share on Facebook

Comments No Comments »