Archive for September, 2008

Kraftaheimar…alltaf jafn vinsæll kraftavefur!

Fyrir nokkrum dögum náðst sá áfangi að vér fengum 900.000 heimsóknina hingað. Kraftaheimar eiga einmitt 5 ára afmæli um þessar mundir svo þetta er vel við hæfi. Það er misjafnlega mikill tími sem ritstjórnin hefur til að sinna vefnum en hana skipa þeir Kári magister ritstjóri og Fjölli teygjutvister sem aðstoðarritstjóri en hann er í “heavy” læknanámi nú um stundir.

það er raunar mesta furða hvað Magister getur skrifað á vefinn miðað við að fyrir tveimur árum fór hann að búa með Möttu meiriháttar sem er auðvitað aukið álag, en reyndar einnig minna á ýmsan annan hátt t.d. hvað varðar matseld, þvotta og þrif og þess háttar verkefni heimavið sem henta auðvitað kvenpeningnum betur eins og reynsla síðustu 10 þúsund ára í mannkynssögunni sýnir. Vér náum örugglega milljónustu heimsókninni á næsta ári og verða líklega hátíðarhöld í landinu af því tilefni…..

Share on Facebook

Comments No Comments »

Akureyri er fallegur bær með fallegum molum….

Í gærkvöldi, þann 28.09.2008, var Aflraunafélag Akureyrar stofnað. Að stofnuninni komu Sigfús Fossdal, Jón Þór Ásgrímsson, Ingibjörg Óladóttir, Eyjólfur Unnarsson og Sólveig Ásgeirsdóttir. Félagið mun þjóna bæði aflraunar og kraftlyftingamönnum, og er tilgangur þess að vinna að uppgangi íþróttanna í heimabyggð sem og á landsvísu. Í því fellst m. a. að koma félaginu upp keppnisgræjum og halda mót heima við. Mót sem stefnt er á að halda á næsta ári eru: Aflraunameistari Akureyrar og Aflraunameistari Íslands, ásamt liða keppni í kraftlyftingum.
Í áraraðir hafa Akureyringar átt fyrsta flokks menn í kraftaíþróttum og ætlar félagið  að halda því gangandi, og bjóða nú mönnum upp á að æfa markvisst fyrir aflraunirnar líka. Akureyringar hafa á góðum grunni að byggja og munu framkvæmdirnar eflaust verða markvissar og vonandi árangursríkar einnig.

Aflraunafélag Akureyrar er skammstafað AFA…Og er ekki úr vegi að gera afa aflrauna á Akureyri Flosa Jónsson að heiðursfélaga sem allra fyrst!….Fyrsti formaður félagsins er skyrhöfðinginn sjálfur, Sigfús Fossdal. Kraftaheimar óska gervöllum Akureyringum til hamingju með þetta nýja og metnaðarfulla Aflraunafélag.

Sigfús Fossdal, formaður Aflraunafélags Akureyrar

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ólafur Sigurgeirsson fógeti

Í tilefni af Fógetamótinu í bekkpressu sem var um helgina en það er Minningarmót um Ólaf Sigurgeirsson kraftlyftingafrömuð sem lést árið 2006, þá er ekki úr vegi að rifja upp atvik sem gerðist árið 1983 í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Þar fór þá fram Norðurlandamótið í páver en Óli fógeti var að sjálfsögðu aðalhvatamaður þess að mótið var haldið hér á landi og var hann jafnframt helsti skipuleggjandi og landsliðsþjálfari Íslands.

Einn af keppendum klakans var Kári magister sem á þessum tíma var oftar en ekki  kallaður Kötturinn…Kári keppti þarna í 67,5kg flokki og þegar að síðustu greininni réttstöðulyftu var komið var hann í mikilli baráttu um gullið við norðmann nokkurn Björn Holmsen að nafni en aðrir keppendur áttu ekki möguleika…Kári hafði nýbætt Íslandsmetið í 252,5kg í nokkuð þungri lyftu en það var ekki nóg…Til að verða Norðurlandameistari í fyrsta sinn varð hann að taka meira og bæta metið í 257,5kg í síðustu lyftu…Það var mikil spenna í lofti í höllinni og á meðan sett var á stöngina gekk Óli fógeti sem var mikill sérfræðingur um fornar hetjur og þjóðflokka mannkyns  og fleira til Kára og sagði: ” Köttur, við íslendingar erum komnir af Herúlum sem voru miklir garpar, en þessi andstæðingur þinn er aðeins norðmaður sem kominn er af krypplingum í allar ættir..Ætlar þú að láta svona mann vinna þig?”

Þetta hreyfði nú heldur betur við Kettinum sem rétt á eftir óð hrikalega stemmdur að stönginni…Út í salnum heyrðist Ölli vinur endurbæta kattarnafnið með hvatningaröskri sem yfirgnæfði allt: “Taktu á þessu Tígrisköttur!” Það fór líka svo að upp fór þyngdin í geðveikri lyftu og íslenskir Herúlar fögnuðu eftirminnilegum sigri….

Kári köttur og Herúli á árunum þegar saga þessi gerist

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ólafur Sigurgeirsson fógeti

Í tilefni af Fógetamótinu í bekkpressu sem var um helgina en það er Minningarmót um Ólaf Sigurgeirsson kraftlyftingafrömuð sem lést árið 2006, þá er ekki úr vegi að rifja upp atvik sem gerðist árið 1983 í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Þar fór þá fram Norðurlandamótið í páver en Óli fógeti var að sjálfsögðu aðalhvatamaður þess að mótið var haldið hér á landi og var hann jafnframt helsti skipuleggjandi og landsliðsþjálfari Íslands.

Einn af keppendum klakans var Kári magister sem á þessum tíma var oftar en ekki  kallaður Kötturinn…Kári keppti þarna í 67,5kg flokki og þegar að síðustu greininni réttstöðulyftu var komið var hann í mikilli baráttu um gullið við norðmann nokkurn Björn Holmsen að nafni en aðrir keppendur áttu ekki möguleika…Kári hafði nýbætt Íslandsmetið í 252,5kg í nokkuð þungri lyftu en það var ekki nóg…Til að verða Norðurlandameistari í fyrsta sinn varð hann að taka meira og bæta metið í 257,5kg í síðustu lyftu…Það var mikil spenna í lofti í höllinni og á meðan sett var á stöngina gekk Óli fógeti sem var mikill sérfræðingur um fornar hetjur og þjóðflokka mannkyns  og fleira til Kára og sagði: ” Köttur, við íslendingar erum komnir af Herúlum sem voru miklir garpar, en þessi andstæðingur þinn er aðeins norðmaður sem kominn er af krypplingum í allar ættir..Ætlar þú að láta svona mann vinna þig?”

Þetta hreyfði nú heldur betur við Kettinum sem rétt á eftir óð hrikalega stemmdur að stönginni…Út í salnum heyrðist Ölli vinur endurbæta kattarnafnið með hvatningaröskri sem yfirgnæfði allt: “Taktu á þessu Tígrisköttur!” Það fór líka svo að upp fór þyngdin í geðveikri lyftu og íslenskir Herúlar fögnuðu eftirminnilegum sigri….

Kári köttur og Herúli á árunum þegar saga þessi gerist

Share on Facebook

Comments No Comments »

Jón Benóný Reynisson bekkpressukóngur

Minningarmótið það þriðja í röðinni um Ólaf Sigurgeirsson fógeta fór fram í Perlunni í dag og heppnaðist vel eins og allt sem ÍKF METAL gerir á páversviðinu.

Þrátt fyrir að nokkrir keppendur heltust úr lestinni á síðustu stundu mættu 8 hressar kempur til leiks í hinum ýmsu þyngdarflokkum. Hinn fornfrægi bekkpressukóngur Benni breiðsíða oft kallaður Big-Ben kom sá og sigraði með frábærum árangri í 140kg flokknum þegar hann pressaði 240kg með tilþrifum og vann með því besta afrek mótsins og hlaut að launum hinn veglega Fógetabikar. (Þess má geta að Sigfús Fossdal sem á mestu sloppaþyngd landsins 302.5kg á best í keppni 210kg á kjötinu sem sýnir glöggt hversu mikill yfirburðamoli  Benni er í raun og veru í styrk á klakanum.)

ÚRSLIT FÓGETAMÓTSINS:

67,5 kg. fl.

1. Brjánn Fransson - 85kg

Brjánn sem er nýr í sportinu vigtaðist inn aðeins 62kg eða svo og átti ágætt mót. Hann rétt klikkaði á 90kg í sinni síðustu tilraun.
75kg. fl.

1. Ingvar A Egilsson - 120kg

Ingvar þessi sem ber viðurnefnið “Rambó” er skemmtilega byggður náungi sem getur orðið þó nokkuð sterkur án efa þyngi hann sig upp í 82,5 en “Ram” þurfti að létta sig oní flokkinn. 120 fór örugglega upp hjá honum í fyrstu tilraun en síðan klikkaði kappinn nokkuð óvænt á 125 en þar kom greinilega léttingin niður á árangrinum.
100kg.fl.

1. Hermann Haraldsson - 165kg

2. Sigurjón Ólafsson - 150

Hemmi var hér hinn öruggi sigurvegari sem vænta mátti. Þetta var þó ekki hans dagur þannig því eftir að hann tók 165 í fyrstu tilraun mistókst honum tvisvar við 170 sem var aðeins of þungt að þessu sinni. Grjóni var vel frískur og fór í gegn með allar lyftur þar sem hann endaði á tilveruréttinum sem er mjög gott hjá honum svona á kjötinu.
110kg. fl.

1. Ingvar Ingvarsson - 190kg

2. Fjölnir Guðmannsson - 135

Ingvar ringo kom til mótsins beint utan að landi og var aðalmaðurinn í lóðaflutningum og uppsetningu mótsins sem kom aðeins niður á frískleikanum. Hann tók 180 í fyrstu fremur létt og 190 var örugg lyfta þótt gerð væri á snigils hraða. 200 í síðustu reyndist síðan of þung fyrir kappann sem fer bráðum að huga að uppkeyrslunni fyrir HM í Vín. Fjölli tvister tók þarna sína þriðju könnun á skömmum tíma og var bara glettilegur. 120 í fyrstu var létt og bætingin með 135 fín lyfta þótt hún væri díselkennd. 140 í síðustu..þá var kallinn sprunginn…
125kg. fl.

1. Bjarki Ólafsson - 160kg

Hrikinn fór í léttar þyngdir og tók eiginlega ekkert á því. Fyrst flaug 150 upp og þá 160 líka. 170 var heldur engin fyrirstaða en þá lyfti hann rassinum og lyftan dæmd af. 180-200 á kjötinu býr í kappanum en þá er að þora að byrja aðeins hærra….
140kg.fl.

1. Jón B Reynisson - 240kg.

Benni sem vigtaðist inn rúm 135kg óétinn tók þarna glæsi seríuna: 220-230-240kg og var það allt gert með góðum hraða,  sprengikrafti og léttu bumbubombi….Ef Benni færi í einkakennslu hjá Tvisternum í sloppanotkun tæki hann líklega 312,5 eða meira á bekknum…

Ritari og leikstjóri var Jóhanna Eiríksdóttir sem naut aðstoðar á borðinu hjá Hildu Hundestuen og ekkju Ólafs heitins, Heiðrúnu Gunnarssdóttur. Kynnir var Kári magister.

Dómarar voru: Magnús Ver Magnússon, Bjarki Ívarsson og yfirdómari Alfreð Björnsson. Stangarmenn voru þeir Tobbi læknanemi og Bjarki geysir og stóðu sig með prýði.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Kraftaheimar hafa lyft Grettistaki í íslenskri kraftamenningu

Nú þurfa menn ekki lengur að innskrá sig til að skrifa komment á vefinn. (Það verður þó fylgst með því að menn séu ekki með árásarkomment á ritstjórann eða ÍKF METAL undir fölsku nafni. Ritstjórnin áskilur sér rétt að eyða skeytum sem tæknimenn finna út að eru skrifuð undir fölskum nöfnum.)

Það hefur heldur róast yfir ýmsum hitamálum á netinu þótt varaformaður kraft Gaui turn hafi verið að hella olíu á eld með rugli, kjaftæði og stælum í sérstaklega fáránlegu og hrokafullu viðtali í blaðinu 24 stundir núna fimmtudaginn 25 september. Þar er skotið föstum skotum á dyraverði landsins og alla þá sem standa utan kraft en Gaui virðist líta á kraft sem heilagan félagsskap!  Þar má  af öðru rugli nefna að þar er því haldið fram að kraft hafi verið stofnað árið 1998 en Magister var nú einn af stofnendunum og það var árið 1985!!

Eins og sjá má á þessu merki kraft sem Ólafur Sigurgeirsson hannaði á eigin spýtur þá er stofndagurinn 2 mars 1985. Minningarmótið um Ólaf fógeta fer fram í Perlunni kl.13.00 laugardag.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Vigtun fyrir Fógetamótið verður í Steve gym á morgun, föstudag, kl.13-14 og kl.18-19 ef með þarf.

FYRIR ÞÁ SEM VITA EKKI HVAR STEVE GYM ER ÞÁ ER ÞAÐ Í EINA HÚSINU SEM ER Í PORTINU Á BAK VIÐ HLEMM, GRETTISGÖTU 87. STÁLHURÐIN Á ENDANUM.

(ATHUGIÐ AÐ ÞESSI MJÓNA SEM ER Á MYNDINNI ER EKKI FÉLAGSMAÐUR METAL EN ÆTLAR AÐ GANGA Í FÉLAGIÐ TIL AÐ BÆTA SKJÓÐUNA)

Fjöldi keppenda: 10

Share on Facebook

Comments No Comments »

Stefán Sölvi Pétursson á efsta þrepi verðlaunapallsins New Hampshire

Stórskjóðan er vinsæll í kraftaheiminum og fær boð um að keppa í öllum heimshlutum. Kappinn keppti um síðustu helgi í Loon Montain í New Hampshire og stóð sig frábærlega. Keppnin var blanda af kraftaþrautum og hefðbundnum hálandagreinum og er árlegur viðburður og ber heitið:  NEW HAMPSHIRE HIGHLAND GAMES 2008.

-

Voru þarna margir öflugir molar með gott skjóðuútlit eins og sjá má á myndunum hér fyrir ofan og neðan. Dómari í mótinu var enginn annar en sjálfur Magnús Ver Magnússon sem setur alltaf loka-gæðastimpilinn á svona kraftamót með nærveru sinni.
Keppt var í 45kg steinakasti, 25kg lóðakasdti yfir rá, bændagöngu með náttúrulegum steinum, staurakasti, náttúrusteini yfir höfuð á repsum, skjaldarburði, staurakasti og Atlas steinatökum. Þrír efstu menn urðu: 1. Stefán Sölvi, 2. Gerard Benderoth, 3. Sam MacMahon.

-
Pétur Guðmundsson kúluvarpari, ofur lögga og kastþjálfari var að keppa þarna í masters hálandaleikum. Þ.e.a.s. 40 ára plús. Hann endaði í 2.sæti á eftir fimmföldum heimsmeistara Ryan Vierra.

Maggi Ver yfirdómari lengst til vinstri ásamt fríðum hópi

Share on Facebook

Comments No Comments »