Archive for August, 2008

Tveir sterkir: Louis Cyr og Valdi Borgarnesbolla

Íslandsmótið í réttstöðulyftu fór fram í dag á Eiðistorgi en 15 keppendur mættu til keppni af 19 skráðum. Helst bar til tíðinda að Þorvaldur Kristbergsson var hreint og beint hrikalegur í 140kg flokknum og bætti sig manna mest…um heil 10 eða 25kg eða svo…Bollan fór með seríuna: 310-327,5-350kg!!…Sérlega glæsilegar lyftur hjá kappanum sem sprengdi þyngdirna upp með ógnarhraða..Líklega er þarna kominn næsti 400kg deddari á klakanum ef heldur sem horfir. Bollan vann að sjálfsögðu stigabikar mótsins mjög verðskuldað og óskar Kraftaheimar honum til hamingju með glæsilegan árangur.

-
Það voru þrír aðrir keppendur sem dedduðu yfir 300kg á þessu stórskemmtilega móti hjá ÍKF METAL. Farið verður betur yfir úrslitin í grein sem Tvisterinn ætlar að rita um mótið á morgun….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Listi yfir þá Íslendinga sem lyft hafa 1000kg-1099kg samanlagt í kraftlyftingum.

1090.0kg - Benedikt Magnússon


Nafn HB BP RL Besta Total Dagsetning
Benedikt Magnússon 156.0 405.0 275.0 410.0 1090.0 16.4.2005
Bestu tölur í greinunum 405.0 275.0 440.0 (1120.0)

1020kg - Sigfús Fossdal

Nafn HB BP RL Besta Total Dagsetning
Sigfús Fossdal +140kg 380.0 300.0 340.0 1020.0 27.6.2008
Bestu tölur í greinunum 380.0 302.5 342.5 (1025.0)

1017.5kg - Hjalti Árnason

Nafn HB BP RL Besta Total Dagsetning
Hjalti Árnason +125kg 400.0 246.0 372.5 1017.5 1991
Bestu tölur í greinunum 400.0 246.0 375.0 (1020.0)

1015.0kg - Magnús Ver Magnússon

Nafn HB BP RL Besta Total Dagsetning
Magnús Ver Magnússon -125kg 400.0 245.0 370.0 1015.0 1991
Bestu tölur í greinunum 400.0 277.5 375.5 (1052.5)
Share on Facebook

Comments No Comments »

Kristinn Óskar Haraldsson

TIL HAMINGJU MEÐ ÞÁ KRAFTA-TITLA SEM HAFA DOTTIÐ Í HÚS HJÁ ÞÉR ÞETTA ÁRIÐ - GLÆSILEGUR SIGUR Á STERKASTA MANNI ÍSLANDS! - HVAÐ HEFUR ÞÚ UNNIÐ ÞANN TITIL OFT?

Takk fyrir það! - Hef unnið fjórum sinnum núna en aldrei þurft að hafa svona mikið fyrir því
eins og í ár.

ER ÞAÐ BRJÓSKLOSIÐ SEM STOPPAR ÞIG AF NÚNA MEÐ WORLD STRONGEST? HVERNIG ERTU AF ÞVÍ OG HVERNIG ERU BATAHORFUR?

Það sem er að bakinu á mér er eitt brjósklos, ein útbungun á brjóski og
svo eru liðbogarnir á neðsta hryggjarliðnum ekki fastir við hann heldur
hanga á örvef og einhverju drasli og sá hryggjarliður er líka skriðinn út
úr hryggjarsúlunni á mér um 4mm. . . þessi meiðsl eru komin til að vera og
ég dofna reglulega upp í vinstri fætinum sem háir mér í nokkrum greinum.

Það er samt ekki það sem er að stoppa mig í ár, var svona líka á WSM í
fyrra og jafnvel aðeins verri en ég er núna.

Þetta byrjaði í júní á því að ég ofkeyrði mig þegar ég keppti 5 daga af 8
í röð og ónæmiskerfið í mér bara hrundi. . . fékk flensu og 2 sýkingar
eftir Sterkasta mann íslands og keppti þannig á laugardeginum eftir og það
var ekki að gera neina spes hluti fyrir mig. . . svo fékk ég geðveikis
matareitrun þegar ég var erlendis í júlí og er bara enn að ná mér eftir
það, var mjög illa farinn þegar ég kom heim.

Staðan með WSM í ár er sú að ég fékk einfaldlega ekki boð á hvorki
það né neinn qualifier. . . Stefán Sölvi fékk boð um að vera 2. varamaður
og svo fór það þannig að einhverjir 2 duttu út og Stebbi datt inn sem er
bara dúndur.

Doris og Boris!

JA HÉRNA! - MUNTU SAMT EKKI HALDA ÓTRAUÐUR ÁFRAM Í AFLRAUNUM EÐA HÆTTA OG GERAST DÓMARI EINS OG VERIÐ?

Ég tek á því þangað til bakið springur endanlega. . . svo er spurning
hvenær eða hvort það gerist!

Verð samt væntanlega eitthvað að dæma líka. . . verð t.d. dómari á
Sterkasta fatlaða manni heims nú í ár en ég ætla nú ekkert að leggja
dómgæsluna sérstaklega fyrir mig, Maggi er fínn í því!

Yfirmolarnir Boris og Stebbi stórskjóða eru bestu vinir jafnt innan sem utan keppni

HVERNIG SÉRÐU STÓRSKJÓÐUNA FYRIR ÞÉR Á HANS FYRSTA WORLD STRONGEST MÓTI?

Það er svo mikill sómi af þessum dreng að það hálfa væri nóg og hann á
eftir að leggja allt í sölurnar til að koma íslandi í úrslitin.

Ótrúlega hæfileikaríkur aflraunamaður sem gefur aldrei eftir í æfingum,
mataræði eða neinu sem viðkemur sportinu.

Stebbi hefur líka réttu bygginguna í þetta, tröllslega vaxinn, hrikalega
sterkur og aðeins 22 ára. . . ég er bara eins og strumpur við hliðina á
honum. (og fyrir þá sem eru inní strumpunum þá vil ég taka það fram að ég
er eins og kraftastrumpur!)

Um leið og Stebbi nær að vinna upp þessar fáu “lélegu” greinar sem hann á
eftir þá verða honum allir vegir færir.

Hann er reyndar búinn að vera mikið á keppnisferðalögum í ár
og ég veit að hann hefur ekki haft tækifæri til að
undirbúa sig eins og æskilegt er þar sem hann fékk boð með mjög
stuttum fyrirvara.

Riðillinn hans er mjög erfiður en eftir að aflraunaheimurinn fór að renna
saman aftur eru held ég allir riðlar orðnir erfiðir þannig að ég hugsa að
þetta fari þannig að þeir sem klúðra minnst fara uppúr riðlinum.

Ég óska Stefáni Sölva til hamingju með boðið á stærsta aflraunamót heims
og ég veit að hann verður landi og þjóð til óendanlegs sóma.

Áfram Ísland!

VIÐ ÞÖKKUM STERKASTA MANNI ÍSLANDS FYRIR SPJALLIÐ OG SEGJUM: ÁFRAM BORIS!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Már Óskarsson undirbýr sig fyrir gott dedd á móti í Jötunheimum fyrir norðan

Uppkeyrslan hjá Mása fyrir Íslandsmótið í réttstöðu um helgina hefur gengið vel fyrir sig og sér kappinn fram á nýja og skemmtilega tíma í sportinu fyrir sig og aðra undir forystu ÍKF METAL.

Á síðustu repsa æfingunni um daginn deddaði Mási 235×3 og átti inni…Hann keppir í 90kg flokknum og ætti samkvæmt þessu að taka 250+. Endurkoma Mása núna markar nokkur þáttaskil í ferli kappans og ætlar hann nú að setja sér ný og göfug markmið í deddinu og stefna að því að taka 300kg fyrr en síðar…!

Þetta er hinn rétti andi! Það skiptir öllu….

Það er allt hægt og ekkert ómögulegt þegar menn trúa á það!…Almættið hefur ekki sett nein takmörk á bætingar,menn gera það sjálfir!….. (Magister)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Flosi Jónsson páverfrömuður að norðan

Enn bætast félagar í öflugasta páver samfélag landsins ÍKF METAL…Flosi Jónsson sem var í mörg ár formaður Lyftingaráðs Akureyrar og KFA sem hefur margoft orðið Íslandsmeistari í páver (og reyndar líka í lyftingum og frjálsum íþróttum) hefur ákveðið að ganga í Metal og segja sig alfarið úr hinum hverfandi samtökum kraftlyftingasambandsins (kraft) sem hafa oftar en einu sinni hringt í hann og verið með allskyns leiðindi.
Flosi mun dæma á laugardaginn á Íslandsmótinu í réttstöðulyftu sem fram fer kl.14.00 á Eiðistorgi. Aðrir dómarar munu verða þeir Magnús Ver og Hermann Haraldsson.

Þess ber að geta að Flosi gull sem einnig hefur verið nefndur Spiderinn og Selurinn af þeim norðanmönnum æfir nú bekkinn vel um þessar mundir og hefur sett stefnuna á að keppa í öldungaflokki á HM í Vín í Austurríki ásamt mörgum öðrum góðum Íslandsþegnum. Það hafa þegar verið bókuð 15 sæti í flug á HM og þeir sem vilja staðfesta þátttöku sína hafið samband við stjórn ÍKF METAL sem fyrst.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Vigtun fer fram í Silfursporti á föstudag kl.14.00 og einnig kl.18.00

FÉLAG MEÐ ÁBYRGÐ OG KRAFT!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Íslandsmótið í réttstöðulyftu fer fram á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi laugardag. 30 ágúst kl.14.00

19 keppendur eru skráðir til keppni á þetta fyrsta deddmót hjá ÍKF METAL - Félagið sem heldur utan um framtíð hins íslenska pávers!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Bjarki Þór Sigurðsson

Hinn gamalreyndi páverjaxl Bjarki geysir er nú að detta í form…Hann er nú að verða einn af mörgum flóttamönnum úr kraft sem eru að yfirgefa þá skútu vegna óstjórnarinnar þar á bæ og ofsókna á hendur almennum pávermönnum sem vilja njóta frelsis, réttlætis, framfara og gleði….
Bjarki deddaði núna fyrir helgi 280×3! vel öruggt og stefnir á bætingu þar á Bikarmóti Íslenska kraftlyftingafélagsins Metal í október…Bjarki  er ekki aðeins góður félagi heldur hefur hann einnig unnið marga titla í páver og er mikill fengur fyrir ÍKF METAL að fá  kappann til liðs við hinn góða hóp sem þar er fyrir.

Share on Facebook

Comments No Comments »