Archive for July, 2008

Evrópumeistara parið Sigfús Fossdal og Ingibjörg Óla ásamt David Carter

Bretar hafa átt marga sterka pávermenn í gegnum aldirnar og einn af þeim er David Carter sem var upp á sitt besta á níunda áratug síðustu aldar eða svo, og er enn vel sterkur á sjötugsaldri. Hann keppir nú undir merkjum WPF (World Powerlifting Federation) og er einnig ritari þessa vaxandi alþjóðasambands sem ÍKF METAL er aðili að. Carter varð í júní Evrópumeistari öldunga 60 ára + í Forcheim í 140kg flokki þar sem hann setti nokkur heimsmet með tölurnar: 345-178-310-833kg. Skyrhjónin hittu kappann og spjölluðu aðeins við hann þar sem Carter lýsti ánægju sinni með að Ísland sé að koma þarna inn í WPF sem fræg páverþjóð.

David Carter deddar hér með stæl 375kg í gamla daga

Share on Facebook

Comments No Comments »

Foringinn sjálfur Stefán Hallgrímsson er enn að keppa á fullu í frjálsum íþróttum og bætti núna við enn einum alþjóða sigrinum þegar kappinn varð Evrópumeistari í fimmtarþraut öldunga 60-65 ára í Slóveníu fyrir nokkrum dögum. Hlaut Steve 3.763 stig og vann öruggan sigur. Kraftaheimar óska foringjanum til hamingju með titilinn! Þess verður þó að geta að Steve hefur einnig orðið Heimsmeistari öldunga og er hvergi hættur. Vefsíða Moggans segir frá þessu afreki Stefáns: HÉRNA

Steve árið 2004 ásamt molum sem hann hefur skapað….Viddi veiðihnífur lengst til hægri…(ljósm. Gunnar master)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Falskir kommentarar hafa líka átt góða daga undir hauspokanum!

Það hefur verið nokkuð kvartað við ritstjórnina vegna nýja kerfisins að þurfa að skrá sig inn undir réttu nafni til þess að skrifa komment á vefinn. Komment undir röngum nöfnum voru orðin svo mörg að það keyrði um þverbak.

Sumir falskir kommentakóngar hafa skrifað komment á Kraftaheima undir allt að 5 mismunandi nöfnum.(Sumir sem hafa skrifað undir fölsku nafni á Kraftaheima hafa reyndar farið vel með það en of mörg skemmd epli eru á sveimi því miður).

Þar sem kraftaheimar stefna að því að byggja upp kraftasport á Íslandi í stað þess að brjóta það niður verður þetta kommentakerfi áfram við lýði, enda verður það að teljast undarlegt ef menn þora ekki að standa með skoðunum sínum undir nafni.

Einfalt er að skrá sig sem notanda.  Blikkið á að skrá inn nýjan notanda og fyllið inn fullt nafn og e-mail, og einnig er gott að láta kennitölu fylgja sem auðkenni ef menn vilja.  Svo þegar við höfum staðfest hver kommentarinn er, þá er opnað á komment hjá þeim notanda, og hægt er að kommenta að vild innan velsæmismarka eftir það.

Share on Facebook

Comments No Comments »

ÍKF METAL HEFUR FORYSTU Í KRAFTLYFTINGUM Á ÍSLANDI

Íslandsmót félagsins í réttstöðulyftu verður laugardaginn 30 ágúst. Skráið ykkur til keppni sem fyrst á þetta stórmerkilega mót en þetta er fyrsta réttstöðumótið og mun aldrei gleymast þeim er sjá og taka þátt!

SKRÁNINGARLISTI:

KONUR

60kg.
Sólveig B Ásgeirsdóttir

KARLAR

FLOKKUR.

75kg.
Adam L Fannarsson

82,5kg.
Steinn H Sigurðarson
Friðrik Örn Sigurðsson
-
90kg.
Már Óskarsson
100kg.

Páll Árnason

Sigurjón Ólafsson
-
110kg.
Gunnar F Rúnarsson
-
125kg.
Sverrir Sigurðsson
Bjarki Ólafsson
Jón Þór Ásgrímsson
-
140kg.
Pétur Bruno Thorsteinsson
Kristinn Ari Hinriksson

Úlfur Orri Pétussson

140+kg.

Grétar Guðmundsson

SKRÁNING Á MÓTIÐ ER Á NETFANGINU: sirmagistercat@gmail.com

VIÐ HUGSUM STÆRRA!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Matthias Steiner jafnhendir hér 246kg í apríl s.l.

Vefsíðan ironmind.com greinir frá því að þjóðverjar séu nú komnir með hrikalegan lyftara til að berjast um gullið í súpernum á Olympíuleikunum í Peking. Á æfingamóti núna í júlí í Heidelberg tók Matthias 201 í snörun og 250 í jafnhendingu sem gerir 451kg í total. Þjóðverjar hafa með vissu árabili komið upp með geysi öfluga mola í súper allt frá þeim tíma er rússinn Vasyli Alexeev réði þar ríkjum á stórmótum heimsins. Má þar nefna menn eins og Gerd Bonk, Manfred Nerlinger og Ronny Weller. Kínverjar eiga vissulega a.mk. einn eða tvo mola upp á 440-450kg í total og svo koma rússar og búlgarir væntanlega með einhverja öfluga líka. Stefnir í mjög athyglisverðan súper á leikunum þótt Rezazadeh verði fjarri góðu gamni.

UFJÖLLUN IRONMIND ER: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Pávermennirnir Gunnar Freyr master og Emil Ólafsson tölvutryllir mættust við skákborðið

Þeir eru þó nokkrir molarnir í pávernum sem búa yfir andlegri fjölbreytni samhliða líkamlegym styrk…Athvarf geðfatlaðra í Reykjavík heitir Vin og þar eru reglulega haldin skákmót þar sem bæði vistmenn í kerfinu og starfsmenn og aðrir velunnarar mæta og reyna með sér í keppni á 64 reitum. Í gær fór þar fram opinbert mót þar sem m.a. þeir kappar Masterinn og Tölvutryllirinn áttust við í trylltum skákum. Tryllirinn kom á óvart og hafði betur framan af en Masterinn hafði betur um síðir enda frægur stórmeistarabani í styttri skákum. Gunnar Freyr sem hefur um árabil starfað á næturvöktum inn á Kleppi sigraði glæsilega í mótinu með því að vinna allar skákirnar. Hann hefur einnig skráð sig til keppni á Íslandsmót ÍKF METAL í réttstöðulyftu 30 ágúst og mun þar eflaust berjast um sigurinn í 110kg flokknum. Emil er hinsvegar í páverhvíld og er að hugsa sinn gang um þessar mundir.

UMFJÖLLUN UM MÓTIÐ MÁ SJÁ: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Matthias Steiner jafnhendir hér 246kg í apríl s.l.

Vefsíðan ironmind.com greinir frá því að þjóðverjar séu nú komnir með hrikalegan lyftara til að berjast um gullið í súpernum á Olympíuleikunum í Peking. Á æfingamóti núna í júlí í Heidelberg tók Matthias 201 í snörun og 250 í jafnhendingu sem gerir 451kg í total. Þjóðverjar hafa með vissu árabili komið upp með geysi öfluga mola í súper allt frá þeim tíma er rússinn Vasyli Alexeev réði þar ríkjum á stórmótum heimsins. Má þar nefna menn eins og Gerd Bonk, Manfred Nerlinger og Ronny Weller. Kínverjar eiga vissulega a.mk. einn eða tvo mola upp á 440-450kg í total og svo koma rússar og búlgarir væntanlega með einhverja öfluga líka. Stefnir í mjög athyglisverðan súper á leikunum þótt Rezazadeh verði fjarri góðu gamni.

UFJÖLLUN IRONMIND ER: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Vopnafjörður - Vel vinalegur bær fyrir austan fjall….

Fjölmargir heimamenn og aðrir á Vopnafirði skemmtu sér vel á laugardaginn þegar hið vaxandi öfluga íþróttafélag ÍKF METAL stóð fyrir léttri kraftakeppni í bænum. Í spjalli við fréttastofuna sagði Jóhanna Eiríksdóttir formaður Metal  að Vopnafjörður væri snyrtilegasti bær sem hún hefur stigið í fæti sínum í til þessa. Allir bæjarbúar voru tilbúnir að taka þátt og aðstoða við keppnina, þó var erfitt að finna lauslega hluti í hleðslugrein vegna þess hve vel var búið að taka til í bænum.  Veðrið var eins og best var á kosið, 20 stiga hiti og sól.

Keppendur og aðstoðarmenn á Vopnafjarðardögum Metal

Keppendurnir sex ýmist fagrir eða vígalegir

Keppt var í þremur greinum, trukkadrætti, hleðslugrein og bændagöngu.  Sigurvegarar voru Björn Hreinsson í karlaflokki og Inga Birna Ellertsdóttir í kvennaflokki.  Bárður Jónasson labbaði lengst í bændagöngunni með 150kg, 89,65m öllum að óvörum því þarna voru stærri menn sem fólk veðjaði á, eins og Hafnarstjórinn Björgvin og bróðir hans Björn.

Þessi glettilega dama Inga Birna Ellertsdóttir sigraði glæsilega í kvennaflokki


Björgvin  hafnarstjóri sem er hrikalegur lurkur tók þátt og sýndi hörkutilþrif

Bárður Jónasson brattur í bíldrættinum

Inga Birna sigurvegari dró hvergi af sér

Bændaganga í uppsiglingu - Áhorfendur fylgjast spenntir með

jóhanna silfurskotta var kynnir

Höddi brain úr varastjórn Metal hjálpaði vel til með Jóhönnu og Ingvari á þessum Vopnafjarðardögum

Mótið tókst í alla staði mjög vel og Vopnfirðingar tóku frábærlega á móti ÍKF Metal.  Vopnfirðingar stimpluðu sig þarna rækilega inn í aflraunakeppni sveitarfélaga.

ÍKF Metal vill þakka Magnúsi Má Þorvaldssyni bæjarfulltrúa og Þorsteini Steinssyni sveitarrstjóra og öllum þeim sem koma að mótinu fyrir frábært viðmót.

Share on Facebook

Comments No Comments »