
Séra Gunnar Sigurjónsson - Sterkasti prestur heims!
Fyrstu fréttir af keppninni um titilinn Sterkasti prestur í heimi. Keppnin fór fram í Digranesi í dag og bíðum við eftir myndum frá þessari skemmtilegu keppni. Skólahljómsveit Kópavogs lék við kynningu og bæjarstjórinn Gunnar Birgisson hélt setningarræðu.
Það er ekki að orðlengja það en Séra Gunnar vann allar greinarnar og bætti sig hrikalega og tók múrinn 600kg í samanlögðu! Annar varð finninn Teijo Mathlin með 532,5kg. Daninn Östergard varð þriðji en hann keppti aðeins í bekknum.
Kraftaklerkurinn sem viktaðist 120kg tók flotta seríu í beygjum þar sem hann fór með allar lyftur gildar þrjú hvít: 185-200- 210kg! og átti eitthvað inni. Bekkurinn gekk ekki eins vel en þar tók Gunnar 130 -140 og klikkaði síðan á 145 fremur naumlega. Torkennileg meiðsli á öxl hafa aðeins verið að stríða honum þar undanfarið. Þegar komið var að deddinu var nokkuð ljóst að byrjunarþyngdin með 230kg myndi tryggja honum sigurinn og það fór skítlétt. Þá hrópuðu hinir 100-200 áhorfendur allir sem einn á Kraftaklerkinn þegar hann óð í 250kg! og tók hann þá þyngd glæsilega og 600kg í samanlögðu. Í síðustu lyftu fór Gunnar einnig upp með 260 í ævintýralegri lyftu þar sem hann streðaði endalaust undir hvatningarhópum allra í salnum…. Því miður sáu hinir ágætu dómarar eitthvað athugavert við lyftuna og dæmdu hana ógilda.

Séra Teijo Mathlin
Finninn Séra Teijo Mathlin sem viktaðist 100kg þungur,nokkuð hávaxinn og vel stæltur, lyfti sérlega glæsilega og tæknilega og var gaman að sjá hversu vel skólaður hann er af afburða þjálfara greinilega. Teijo veitti Gunnari harða keppni í beygjunum en var full varkár á byrjunarþyngdina en hann bætti sig um 20kg og fór með allar beygjur í gegn: 160-180-200kg og átti inni. í bekknum tók hann: 120-127,5 og klikkaði síðan á 135kg. Bekkurinn í keppninni var tekinn á kjötinu. Deddið var þannig að Teijo tók: 190-205kg en fékk bætinguna 215kg ógilda. 532,5kg total var engu að síður bæting.

Séra Kristian Östergard
Daninn Kristian Östergard sem var aðeins 67,5kg þungur tók á bekknum: 100-105kg en klikkaði síðan á bætingunni 115kg. Stíllinn hjá honum er svona frjálsíþróttastíll þar sem stöngin fer of nálægt hálsi og fullt af vöðvum virka lítið í hreyfingunni. Einnig er Östergard einfættur og háði það honum að því er virtist í fótastöðunni og í spennunni. Engu að síður gott hjá honum að mæta og keppa gegn hinum jöxlunum.
-
Dómarar voru: Magnús Ver Magnússon, Fjölnir Guðmannsson og Helgi Hauksson sem yfirdómari. Stangarmenn voru: Valdimar kerfismoli, Ingvar ringo og Gunnar Freyr master. Hnébeygjuvefjari var Flosi Jónsson og ritari var Jóhanna Eiríksdóttir. Kynnir: Kári magister. Gamla kempan Óskar Sigurpálsson kom einnig að og veitti ýmis ómetanleg ráð. Athygli vakti að þeir kraft menn sem höfðu sérstaklega óskað eftir því að starfa við mótið og lofað því reyndar, mættu ekki að undanskildum Helga Haukssyni sem stóð sig með prýði. Mótshaldari var stöðin NAUTILUS og afhenti eigandi stöðvarinnar frá Svíþjóð verðlaun keppninnar.