Archive for April, 2008

Stytta af Louis Cyr frægasta aflraunamanni Kanada í Montreal

Fyrir allmörgum árum þýddi Magister lauslega ævisögu þess kraftamanns sem hefur verið nefndur: STERKASTI MAÐUR SEM NOKKRU SINNI HEFUR LIFAÐ, eftir samnefndri bók George F Jowett sem kom út 1927. í meira en 20 ár var þessi þýðing týnd í miklu skjala og bréfasafni Magisters en fannst óvænt núna á dögunum þar sem aðeins ein blaðsíða hafði alveg glatast. Nú er meiningin að pikka þetta á tölvuna og setja þetta á vefinn í 3-4 styttum köflum.
Kraftamenn nútímans og aðrir áhugamenn um krafta hafa gott af því að lesa um liðnar hetjur og afrek þeirra en Louis Cyr lyfti m.a. mun þyngra handlóði en notað hefur verið í kraftakeppninni Arnold Classic sem dæmi. Það er einmitt meiningin í ferð ÍKF METAL til Kanada í júní að skoða þessa styttu af kappanum. Fyrir þann tíma verða menn búnir að kynnast helstu afrekum hans á kraftasviðinu hér á vefnum og skilja því betur af hverju þessi stytta var reist…..

FYLGIST MEÐ Á KRAFTAHEIMUM  ÞAR SEM SAGA, MENNING OG KRAFTAR HALDAST Í HENDUR…..

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hemmi kreppir eins og hann getur

Hermann Haraldsson er einn af þeim köppum sem elstu menn muna eftir í kraftasportinu…Allt frá því 1973 hefur hann tekið þátt í lyftinga og pávermótum og fleiru allt til þessa árs þegar hann steig á verðlaunapall hjá hinu nýja félagi ÍKF METAL. Á löngum ferli hefur Hemmi keppt frá 52kg flokki upp í 110kg flokk og á leið sinni att kappi við ýmis þekkt nöfn í kraftaheiminum eins og. t.d. Sverri Hjalta, Kára magister, Fredda fighter, Jón Bónda og marga fleiri. Hvað páver varðar hefur hann unnið til margra verðlauna og varð t.d. Íslandsmeistari í páver 1983 í 82,5 þegar hann tók tölurnar: 175-132,5-220-527,5kg og einnig varð hann Íslandsmeistari á bekk 1990 í 100kg flokki þegar hann tók 190kg. Í vaxtarrækt varð hann Íslandsmeistari 1993.

Þar sem Hemmi hefur keppt í þessu öllu, kreppu , páver og lyftingum við góðan orðstír fannst Kraftaheimum tilvalið að fá hann í viðtal.
1.
GERÐU NÚ GREIN FYRIR HELSTA ÆVIÁGRIPI….

Fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Stundaði sjómennsku og fleiri störf áður en ég fór til Danmerkur í fjögur ár og lærði skipatæknifræði. Síðar tók ég meistaranám í rekstri og stjórnun fyrirtækja. Hef starfað við ýmislegt m.a.rekið fyrirtæki og starfað sem einkaþjálfari, en ég starfa á skipaverkfræðistofu í dag. Ég er í sambúð og á fjögur börn á aldrinum 5-24 ára.
Byrjaði snemma í lóðunum og hef verið að taka eitthvað á því með örfáum hléum síðan 1975. Hef orðið Íslandsmeistari í kraftlyftingum, bekkpressu, vaxtarækt og sjómanni .
—————————————————————————–
2.
HVERNIG STÓÐ Á ÞVÍ AÐ ÞÚ SVONA KORNUNGUR EYJAPEYI FÓRST AÐ LYFTA?… ÞEGAR ALLT SNÉRIST UM EYJA- MOTTÓIÐ: Á EFTIR BOLTA KEMUR BARN

Ég var að sjálfsögðu í fótbolta sem gutti og stofnaði meira að segja fótboltafélagið Smyril ásamt fleirum. En það blundaði alltaf í mér kraftadella og byrjaði ég 11-12 ára gamall að æfa eftir hinu fræga Atlas kerfi. Svo slysaðist ég inná lyftingaæfingu hjá hinum helöfluga eyjamanni Frikka Jóseps og þá voru örlögin ráðin. Skömmu síðar flúði fjölskylda mínuppá Selfoss undan eldgosinu, þar sem við dvöldum í hálft ár, og þá hóf ég æfingar hjá lyftingadeildinni þar, sem blómstraði á þeim tíma undir stjórn Róbert Maitsland.
—————————————————————————

Snarað af miklum móð í Eyjum
3.
MANSTU HVAÐ ÞÚ TÓKST Á FYRSTA LYFTINGAMÓTINU?

Fyrsta árið sem ég lyfti þá keppti ég bæði í Ólympískum og Páver, aðeins búinn að æfa örfáa mánuði. Líkamsþyngdin var aðeins 42 kg og tók ég 30kg í snörun og 40kg í jafnhendingu. Í Pávernum tók ég 52,5kg - 40kg-102,5kg.
——————————————————————————-

4.
VAR EKKI SKÖRIN (ÓSKAR SIGURPÁLSSON) RAUNVERULEG ÞJÓÐSAGA Í EYJUM SÖKUM KRAFTAFRÆGÐAR OG LÖGGUSTARFS?

Jú svo sannarlega. Hann var mjög vel liðinn þarna sem lögga og var náttúrulega frægur fyrir krafta sína. Fram að því er hann kom höfðum við Gunnar Steingríms, Jói Gísla ofl.verið að æfa frekar óskipulega og gerðum ýmsar vitleysur, og kom hann reglu á þetta, kenndi okkur og hvatti og byggði upp flotta lyftingadeild þarna.
——————————————————————————

Ekkert gefið eftir á bekknum!


5.
HVERNIG VAR ÞAÐ FÓRSTU Í KREPPUNA Á UNDAN PÁVERNUM EÐA HVAÐ?

Fyrstu árin þá æfði ég Olympískar lyftingar og þegar fyrsta Íslandsmeistaramót í kreppu var haldið þá tók ég þátt, en var ekki búinn að æfa neitt fyrir kreppu. Uppúr því fór ég að æfa Páver en vegna þrálátra bakmeiðsla fór ég útí kreppu uppúr ´91 og hef reynt samhliða því að keppa í bekknum þegar ég get.
—————————————————————————
6.
SEGÐU OKKUR NÚ EITTHVAÐ FRÁ KREPPUFERLINUM EN Á TÍMABILI VAKTIR ÞÚ ÞAR MIKLA ATHYGLI FYRIR GÓÐA SKJÓÐU

Eins og fyrr segir þá tók ég þátt í fyrsta kreppumótinu á Broadway 1982 og aftur ´83

En síðan ekkert fyrr en ´91 og svo á nokkrum mótum eftir það. Mér tókst að sigra minn flokk ´93 og varð annar overall en annars gekk þetta upp og ofan.
– ——————————————————————

Glettilega byggður kreppungur


7.
ÁTTU GÓÐAR MINNINGAR ÚR KREPPUNNI OG HVERNIG VAR AÐ STÍGA SVIÐ Í FYRSTA SKIPTI?

Það er alltaf gaman að keppa, hvort sem það í kreppu eða öðru og á ég margar góðar minningar og eignaðist ég marga góða kunningja í gegnum árin.

Ég var reyndar alltaf stressaður áður en ég fór á svið, en ég man að á fyrsta mótinu þá var húsfyllir á Broadway sennilega á milli 1000-1500 manns og ég hélt að ég myndi deyja úr stressi. Mig langaði mest að hætta við alltsaman, en beit á jaxlinn og kláraði dæmið.
———————————————————-
8.
HVAÐ ÁTTU BEST Í LYFTINGUM?

Ég á best 235-205-260 í Páver og í Ólympískum 105 í snörun og 135 í jafnhöttun.


——————————————————

200kg á Íslandsmeistaramóti ÍKF METAL á bekk

9.
NÚ ERTU MEÐ HRIKALEGT ÖR Á ÖÐRUM HANDLEGGNUM SEM GEFUR KARLMENNSKU ÞINNI MEIRI DÝPT,SEGÐU SPENNTUM LESENDUM AÐEINS FRÁ TILKOMU ÞESS

Ég fékk þetta ör 17 ára gamall, þegar ég í algjöri hugsunarleysi stakk hendinni ofan í risasteypuhrærivél í steypustöðinni í Eyjum. Handleggurinn klemmdist illilega saman og munaði minnstu að hann færi af. Það þurfti að taka húð af læri og græða á handlegginn, þannig að ég er með ör þar líka. Ég var mest hræddur um að ég þyrfti að hætta að lyfta en sem betur fer slapp ég það vel að ég gat haldið áfram, en hreyfigetan er mun minni en eðlilegt er.
——————————————————
10.
ÁTTU EINHVER ÖNNUR ÁHUGAMÁL EN STÁLIÐ?

Mótorhjól hafa alltaf verið áhugamál hjá mér og á ég eitt öflugt núna. Einnig les ég mikið og hlusta á tónlist.
—————————————————–

Tekið á því í beygjum, takið eftir hægri framhandlegg (Wreskí Wolf stendur við)


11.
HVENÆR VAR ÞITT FYRSTA PÁVERMÓT?…

Mitt fyrsta pávermót var 1973.
—————————————————-
12.
ÞÚ HEFUR ALLTAF VERIÐ SAGÐUR VEL FLENGSÆLL Á KONUR…ERTU MEÐ DRAUMADÍSINNI NÚNA?

Já, ég er búinn að vera með sömu konunni núna í 11 ár og eigum við 2 börn saman.
——————————————————-

Hemmi þekkir hvað það er að bekka 200kg!

13.
HVERNIG TILFINNING VAR ÞAÐ AÐ TAKA FYRST 200 Á BEKK OG HVENÆR VAR ÞAÐ?

Það var mjög skemmtileg tilfinning þegar ég tók fyrst 200kg í annarri lyftu og síðan 205 kg í þriðju lyftu á Héðinsmótinu 2003.
———————————————–
14.
HVERNIG LÍST ÞÉR Á NÝJA PÁVERFÉLAGIÐ ÍKF METAL?

Mér líst fantavel á það, mikill kraftur og líf. Þessi mót sem það hefur haldið hafa verið alveg frábær.


—————————————————–

Hemmi hlakkar til að fá verðlaunakossinn frá Skottunni!

15.
NÚ LENTI ÉG EINU SINNI Í PARTÝI Í EYJUM MEÐ ÞÉR EFTIR MÓT ÞAR SEM EIN DAMA GAF OKKUR MJÓLK BEINT AF TÚTTUNNI AF SÉR - ERU EYJADÖMUR ALMENNT SVONA HRESSAR EÐA VAR ÞETTA SPES FYRIR OKKUR?

Þær hafa alltaf verið hressar eyjastelpurnar það get ég vitnað um, en ég held að hún hafi bara viljað heiðra þessa frábæru kraftajötna sem voru þarna staddir og svo er mjólk full af próteini og kalki sem er hið besta mál.
————————————-

16.
HVERNIG STÓÐ Á ÞVÍ AÐ ÞÚ FLUTTIST ÚR EYJUM OG HVENÆR VAR ÞAÐ?
Ég flutti til Reykjavíkur 1995 til þess að fara í framhaldsnám.

—————————————–

Gott dedd og glettileg bygging sem gaf góð fyrirheit um kreppuferil!
17.
NÚ HEFUR HIN VINSÆLA KRAFTAHEIMA VEFSÍÐA STUNDUM VERIÐ UMDEILD,ERT ÞÚ ÁNÆGÐUR MEÐ HANA?

Mjög ánægður, ég fer að lágmarki tvisvar inná hana á dag, til að fylgjast með hvað er í gangi.
————————————————–

ER EITTHVAÐ FLEIRA SEM ÞÚ VILT KOMA Á FRAMFÆRI?

Já, ég vil segja eftirfarandi:

Nú hef ég verið í kraftasporti meirihluta ævinnar og það hefur gefið mér ótrúlega mikið. Í gegnum sportið hef ég eignast fjölda góðra kunningja og átt margar ánægjustundir.

Ég mæli með því að alir taki reglulega á lóðum og hætti því aldrei. Það ætla ég að gera á meðan ég get og ég stefni á bætingu í bekknum á þessu ári.


KRAFTAHEIMAR ÞAKKA HEMMA FYRIR VIÐTALIÐ, OG VONA AÐ HANN FLENGI UPP BÆTINGUM Á BEKK UM ÓKOMNA TÍÐ!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hermann Haraldsson kreppist á í gamla daga

Nú er í vinnslu athyglisvert viðtal við hina gömlu kempu Hemma Haraldss Vestmanneying sem er einn af fáum fjölhæfum kraftamönnum sem klakinn hefur eignast en hann hefur keppt í lyftingum, páver, kreppu og í sjómanni….

FYLGIST MEÐ Á EINA VEFNUM SEM GEFUR OFUR-ANDANN….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Kolaportið við höfnina í Reykjavík er vinsæll staður

Stundum þegar ókunnugir fara að tala við ritstjórann upp úr þurru einhversstaðar þá á hann það til að gefa upp eitt sérstakt nafn svona til þess að bíða með að láta vita hver hann er….Í gær var Magister í bóka og frímerkja leiðangri í Kolaportinu þegar tveir guttar um 10 ára aldur víkja sér að honum. Annar þeirra nokkuð snaggaralegur að sjá spyr þá: “Hvað heitirðu?”….Ritstjórinn var hálf hissa á þessu og svaraði: “Jónatan!”…Stráksi leit þá á hann skelmislegur á svip og sagði: “ÉG HÉLT AÐ ÞÚ HÉTIR KÁRI KÖTTUR!”….Síðan hvarf hann á braut með vini sínum án þess að segja meira.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Meistaramót WPC Ísland 2008 verður Laugardaginn 3 maí, kl 13,00 í Vélasviði Heklu, Klettagörðum 10. viktun keppenda verður Föstudaginn 2 maí kl 19-20,30 í Íþróttahúsi fatlaðra Hátúni 14.

Eftirtaldir eru nú þegar skráðir til þátttöku -100 Fannar Arnarson -100 Andri þór Valgeirsson -110 Gunnar Freyr Rúnarssson -110 Sverrir Sigurðsson - 125 Kristinn Ari Hinriksson -125 Magnús Ver Magnússon -140 Páll Logason -140 Úlfur Orri Pétursson +140 Grétar Guðmundsson + 140 Jón Valgeir Williams

Enn er tími til að skrá sig til keppni…. Skráning er á wpc.iceland@gmail.com fyrir 30 Apríl.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Bekkpressa

Það er öðru hvoru sem fréttastofunni berast fyrirspurnir um hvað guðsgreinin sé og hvernig sú nafngift er tilkomin? Það eru nýjir og fróðleiksfúsir lesendur sem spyrja þessara spurninga. Árið 2004 birtum við fréttaskýringu um þetta en hún er hluti af gömlu efni sem á eftir að flytja yfir á nýja vefinn. Hér kemur þessi fréttaskýring:

Það eru ekki allir nýsveppir í páver og fleiri sem átta sig á því að GUÐSGREININ í pávernum er: BEKKPRESSAN! Þetta var fundið út á Akureyri forðum daga. Stundum hefur verið sett út á bekkinn með því að segja að þetta sé óvirðuleg grein, menn liggjandi á bakinu pressandi út í loftið. Leiðinleg grein, dragbítur á páverinn osfrv. Magister benti þá vantrúuðum á það að bekkpressan er eina keppnisgreinin í páver þar sem lyft er í áttina að almættinu sjálfu. - Þar af leiðandi hlyti þessi grein að vera guði þóknanleg….Frá því þetta var sagt hefur vegur bekkpressunnar farið vaxandi og sífellt fleiri stunda hana allsstaðar í hinum siðmenntaða heimi. Bekkpressan er orðin sjálfstæð keppnisgrein meðfram pávernum og nýtur hvarvetna virðingar og vinsælda, hvort sem er á jörðu eða himni….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Gunnar Freyr Rúnarsson 11 ára sigrar Friðrik Ólafsson í fjöltefli

Magister man vel þegar þessar fréttir bárust í loftið að þessi ljóshærði gutti hefði unnið snillinginn Friðrik Ólafsson í snarpri skák sem birtist í blöðunum. Á þessum tíma nokkrum árum eftir Einvígi Spasský og Fischer var risinn upp mikill skákáhugi á klakanum og á meðal kornungra sveina sem töldust mikil skákmannsefni voru þeir m.a. Jóhann Hjartarson og Gunnar Freyr. Það fór nú svo að Jóhann varð stórmeistari og einn af bestu skákmönnum heims en er nú hættur að tefla að mestu en Gunnar Freyr með auknum kynþroska fékk meiri áhuga á því að máta konur á öðru sviði….(Masterinn!) Kappinn er þó enn að tefla bæði yfir borðinu og í serverskák og bréfskák og á nú góða möguleika á því að verða þriðji íslendingurinn til að verða heimsmeistari í ákveðinni byrjun í bréfskák en hinir fyrri eru þeir Árni H Kristjánsson og Kári Elíson. Sjá: HÉRNA

Gunnar Freyr teflir við Smyslov fyrrverandi heimsmeistara

Þetta fjöltefli rússans Smyslov var árið 1977 í Reykjavík og tók Kári magister einnig þátt í því en tapaði naumlega eins og undra-Masterinn…Smyslov varð heimsmeistari í skák árið 1957 þegar hann vann stærðfræðisnillinginn Botvinnik í einvígi. Annar stórmeistari frá Rússlandi var einnig staddur hér árið 1974 en það var David Bronstein sem tefldi heimsmeistaraeinvígi við Botvinnik sem lauk með jafntefli árið 1951. Bronstein tefldi einnig fjöltefli og gerði Magister jafntefli við hann en Gunnar Freyr var fjarri í það sinn en mætti svo síðar í fjöltefli við bandaríska meistarann Walther Brown sem hann sigraði eins og hann gerði einnig við prestinn Lombardy sem var stórmeistari og aðstoðarmaður Fischers í einvíginu 1972. Enginn veit hvaða árangri Gunnar Freyr hefði náð hefði hann lagt skákina fyrir sig af alvöru í stað þess að hugsa í tugi ára um það að taka 200 á bekk….Svona er lífið ófyrirsjáanlegt!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Gunnar Freyr Rúnarsson 11 ára sigrar Friðrik Ólafsson í fjöltefli

Magister man vel þegar þessar fréttir bárust í loftið að þessi ljóshærði gutti hefði unnið snillinginn Friðrik Ólafsson í snarpri skák sem birtist í blöðunum. Á þessum tíma nokkrum árum eftir Einvígi Spasský og Fischer var risinn upp mikill skákáhugi á klakanum og á meðal kornungra sveina sem töldust mikil skákmannsefni voru þeir m.a. Jóhann Hjartarson og Gunnar Freyr. Það fór nú svo að Jóhann varð stórmeistari og einn af bestu skákmönnum heims en er nú hættur að tefla að mestu en Gunnar Freyr með auknum kynþroska fékk meiri áhuga á því að máta konur á öðru sviði….(Masterinn!) Kappinn er þó enn að tefla bæði yfir borðinu og í serverskák og bréfskák og á nú góða möguleika á því að verða þriðji íslendingurinn til að verða heimsmeistari í ákveðinni byrjun í bréfskák en hinir fyrri eru þeir Árni H Kristjánsson og Kári Elíson. Sjá: HÉRNA

Gunnar Freyr teflir við Smyslov fyrrverandi heimsmeistara

Þetta fjöltefli rússans Smyslov var árið 1977 í Reykjavík og tók Kári magister einnig þátt í því en tapaði naumlega eins og undra-Masterinn…Smyslov varð heimsmeistari í skák árið 1957 þegar hann vann stærðfræðisnillinginn Botvinnik í einvígi. Annar stórmeistari frá Rússlandi var einnig staddur hér árið 1974 en það var David Bronstein sem tefldi heimsmeistaraeinvígi við Botvinnik sem lauk með jafntefli árið 1951. Bronstein tefldi einnig fjöltefli og gerði Magister jafntefli við hann en Gunnar Freyr var fjarri í það sinn en mætti svo síðar í fjöltefli við bandaríska meistarann Walther Brown sem hann sigraði eins og hann gerði einnig við prestinn Lombardy sem var stórmeistari og aðstoðarmaður Fischers í einvíginu 1972. Enginn veit hvaða árangri Gunnar Freyr hefði náð hefði hann lagt skákina fyrir sig af alvöru í stað þess að hugsa í tugi ára um það að taka 200 á bekk….Svona er lífið ófyrirsjáanlegt!

Share on Facebook

Comments No Comments »