Archive for March, 2008

Það verður dýrslega gaman hjá okkur á mótinu
Hér er kominn endanlegur listi yfir fólkið sem ætlar að lyfta ógnarþyngdum á glæsilegu móti ÍKF METAL sem mun bjóða upp á nýjungar sem ekki hafa sést áður á íslenskum pávermótum.
Mótið byrjar kl.13 í húsnæði Motormax, Kletthálsi 13. Fjörið byrjar þó aðeins fyrr, þar sem létt fjórhjólasýning verður fyrir mótið, auk þess að Sniglarnir ætla að heilsa upp á okkur. Þeir sem mæta tímanlega geta líka notað tímann til að skoða sig um í flottum sýningarsal þar sem ýmis torfærutæki og önnur tæki eru… og fyrir þá sem eru að spá í budduna, þá er frítt inn!
Konur
67kg
Elma Grettisdótir
75kg
Jóhanna Þórarinnsdóttir
+90
Ingibjörg Óladóttir
Karlar
75kg
Daði Reynir Kristleifsson
82,5kg
Einar Orri
Friðrik Örn Sigurðsson
90kg
Þorbjörn Jónsson
100kg
Valdimar R Valdimarsson
Svavar Smárason
110 kg
Gunnar Rúnarsson
Ingi Freyr Bragason
Ingvar Jóel Ingvarsson
Jón Björn Björnsson
Sigurjón Ólafsson
Sverrir Sigurðsson
125 kg
Bjarki Ólafsson
Grétar Sigþórsson
140kg
Kristinn Ari Hinriksson
Páll Logason
Úlfur Orri Pétursson
140+ kg
Sigfús Fossdal
Share on Facebook

Comments No Comments »

Sigfús Fossdal brosir breitt enda bætingarnar stanslausar

Metalmolar hafa æft hrikalega fyrir stórmót ársins næstkomandi laugardag. Þetta fyrsta Íslandsmót ÍKF METAL verður með glæsilegra móti og verðlaun öll hin stórkostlegustu sem um getur í páversögunni. Við segjum nánar frá því á næstu dögum. Skyrhöfðinginn hefur farið hamförum í viktum norðan heiða og síðasta könnun hans í beygjum endaði á hrikalegri bætingu með 370kg!…Byrjunartölur hans á mótinu munu gefa honum 950kg í totali svo allir páver áhugamenn ættu ekki að missa af því að sjá kappann fást við ógnarþyngdir þennan dag….

Grétar Sigþórsson framtíðarkappi í páver og aflraunum

Grétar Sigþórsson tók 300kg tvö sett um daginn í beygjum og hefur bekkað 220 og deddað 290 og á vel inni. Hann mun eflaust verða einn af eftirtektarverðari molum á mótinu og mun leika sér að 800kg totalinu….

Páll Logason- sjóðheitur á pallinum

Palli fermeter tók einnig 300 í beygjum en það gerði hann nakinn…þ.a.s. án stáls….Einnig bekkaði kappinn 200 létt á kjötinu og ætti að eiga séns í 850kg total á góðum degi…

Valdimar R Valdimarsson

Valdi kerfismoli hefur einnig verið á jafnri uppleið en hann er 100kg moli sem á eftir að láta mikið að sér kveða á næstu árum í sportinu. Hann hefur fyrir mótið m.a. beygt 275 örugglega og í bekknum tekið 190kg þar sem tvisturinn nálgast óðum….

MISSIÐ EKKI AF MÓTI ÁRSINS Á KLAKANUM….METAL..ÞAR SEM TÖLURNAR TALA!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Kraftaklerkurinn hefur nú mætt tvisvar á sérstakar æfingar í Silfursporti til eflingar bæði tæknilegri og líkamlegri framför sinni til pávers…auk viðbótaranda til afreka…Þríeykið Ingvar ringo,Magister Cat og Tvisterinn aðstoða klerkinn eftir megni. Titilvörn Gunnars sem sterkasta prests í heimi verður á klakanum 30 maí í  keppni þar sem fyrirtækið Nautilus er helsti styrktaraðili og borgar m.a. fyrir tvo erlenda keppendur.

Klerkurinn var vel hress á föstudagsæfingunni þar sem hann klæddist gamalli hempu á stálbrókarsviði sem er orðin helst til þröng á kappann þar sem kviðurinn tekur í…. Undir vökulli tæknitilsögn (páverinn er háþróaðri íþrótt en margir halda) tók Gunnar 150×2 nokkuð létt í beygjunni en það er sama þyngd og hann tók á móti fyrir 4 árum svo ryðið er nokkuð. Þetta mun allt lagast hratt á allra næstu vikum og þyngdirnar aukast mikið. Ingvar var síðan mjög ánægður með bekkinn hjá klerkinum þar sem stíllinn er ágætur og slopplaus tók hann 140kg en í prestakeppninni verður enginn sloppur leyfður. Stefnan verður að Gunni taki tilveruréttinn á bekknum og 600 í totali en hans besta er 510kg sem er skítur á priki fyrir hann núna.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ýmsar flottar kellingar taka á því í Silfursporti

Tvisterinn hefur í samráði við Ingvar ringo sett upp svokallaðan KVENNALISTA í páverhorninu í Silfrinu þar sem bestu þyngdir eru skráðar til jafnréttis á við karlmolana. Tvær nýjar páverdömur þær Elma Grettisdóttit bjútí og Jóhanna Þórarinsdóttir taka á því sem aldrei fyrr og í dag tóku þær báðar fínar bætingar í bekknum í undirbúningi sínum fyrir Íslandsmót Metal. Elma bjútí sem við birtum mynd af við fyrsta tækifæri tók 75kg örugglega og Jóhanna sem er glettileg 75kg mey henti upp 80kg og átti inni…Það verður sannarlaga gaman fyrir páveraðdáendur að sjá þessar dömur fást við raungreinarnar sjálfar, beygjur og dedd um næstu helgi….

Metal-MotorMax mótið Kletthálsi 13 laugardaginn 5 apríl kl.13.00

Share on Facebook

Comments No Comments »

Það hefur verið hljótt um góðar tölur í pávernum hjá Gunnari master undanfarin ár. Kappinn hefur þó keppt jöfnum höndum til verðlauna hjá ýmsum félögum meðfram því sem hann hefur verið að eignagreifast á veraldlega vísu. Stærri íbúðin hans í Álftamýrinni tryggði honum öryggi með því að leigjast nokkrum pólverjum á sanngjörnu undirmarkaðsverði. Þar kom að því að Masterinn fékk nóg af því að hírast máttlaus í minni íbúð sinni og fékk plásslega frelsisþrá ásamt blossandi neista um aukna krafta…Pólverjar á klakanum eru það hrikalegir núna hvað varðar ofbeldi af ýmsu tagi að Masterinn sá það að hann varð að vera miklu sterkari til að þora að segja þeim upp húsnæðinu og flytja sjálfur inn…Kappinn fór því að mæta í Silfursport undir bætingalegri handleiðslu Silfurmolanna… Fyrr en varði var pólverjunum hent út og hver þyngdin á fætur annarri hentist upp á bekknum…Víðáttubrjálæðið í eigin 4 herbergja íbúð með brotnar hurðir út um allt ýtti enn meira undir andann…Í gær náði þetta allt áður óþekktum hæðum og Masterinn lagðist á bekkinn með þrumusvip og pressaði 200kg múrinn á magnaðan hátt!!!!

TIL HAMINGJU MASTER!!!…..ÞÁ ER BARA AÐ TAKA ÞETTA Í KEPPNI!!!

Gunnar master lengst til hægri á bætingaspjalli við Skemmujarlinn og Sir Cat

Share on Facebook

Comments No Comments »

Það er kraftur í öllu hjá Mótormax!
Þetta er keppendalistinn eins og hann er í dag, en skráningu lýkur á miðnætti laugardaginn 29. mars og endanlegur keppendalisti birtist á sunnudaginn. Þeir sem eru óákveðnir og óvissir um þátttöku þurfa því að fara að ákveða sig hvort þeir verði með.
Mögulega koma fleiri konur, og mögulega fleiri karlar, en það kemur allt í ljós á sunnudaginn!
Hvað sem því líður, þá verður allt hrikalegt í kringum þetta mót!
Keppendalisti:
Konur
67kg
Elma Grettisdótir
75kg
Jóhanna Þórarinnsdóttir
+90
Ingibjörg Óladóttir
Karlar
82,5kg
Einar Orri
Friðrik Örn Sigurðsson
90 kg
Þorbjörn Have Jónsson
100 kg
Valdimar R Valdimarsson
Svavar Smárason
110 kg
Ingvar Jóel Ingvarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Sverrir Sigurðsson
Jón Björn Björnsson
125 kg
Grétar Sigþórsson
140 kg
Páll Logason
Kristinn Ari Hinriksson
Úlfur Orri Pétursson
140+ kg
Sigfús Fossdal
Share on Facebook

Comments No Comments »

Grétar Sigþórsson

Einn af nýmolunum sem er að kveða sér hljóðs þessa dagana er hinn vel byggði Grétar Sigþórsson sem æfir manna grimmast í Silfursporti og er stöðugt á bætingabraut í hinum ótrúlega öfluga anda sem fylgir páverhorninu í Silfrinu. Grétar er nú í lokaáfanga undirbúningsins fyrir Metal Meistaramótið og í könnun dagsins í gær á bekknum fór hann örugglega með bætinguna 220kg og átti inni. Lét hann það nægja og ætlar að raða saman góðu 800+ totali 5 apríl.

FYLGIST VEL MEÐ ÞESSUM METALMOLA Í FRAMTÍÐINNI!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Metal-molar í heimsókn hjá stórfyrirtækinu MotorMax að Kletthálsi

Það styttist óðum í stórmót ársins í páver á klakanum. ÍKF METAL heldur Meistaramót sitt í risastórum sal hjá MotorMax að Kletthálsi 13 laugardaginn 5 apríl kl.13.00.

Keppendur verða um 20 talsins og þar af 3 konur. Mesta athygli vekur þátttaka 4 sinnum Sterkasta manns heims Magnúsar Vers og svo skyrmolans mikla Sigfúsar Fossdal sem ætlar að verða sterkasti bekkpressari Íslandssögunnar á þessu móti með 300kg+…. Fyrir keppnina munu vélhjólasamtökin Sniglarnir þeysa á mótorfákum sínum í hlað og svo verður MotorMax með hrikalega fjórhjólasýningu áður en átökin hefjast.

-
MÆTIÐ OG SJÁIÐ MAGNÞRUNGIÐ MÓT ÞAR SEM TÖLURNAR TALA!

-

Það er hægt að gera ýmsar kúnstir á glæsihjóli frá MotorMax!

Share on Facebook

Comments No Comments »