Archive for February, 2008

Orri Geirsson kraftamaður í heljarátökum — (ljósm. Kristinn Magnússon)

Að mati ritstjórans er þetta fáránleg mynd,ekkert íþróttalegt, fagurfræðilegt eða listrænt við hana utan þess eina að kappinn sjálfur er sterkur! Matsnefndinni hefur greinilega þótt myndin frábær líklega vegna þess að með því að skera á alla hugsanlega íþróttalega hreyfingu en leggja áherslu á afmyndað andlitið kristallast álit almennings og annarra á kraftaíþróttum sem litið er á sem tilgangslausan rembing einn með viðrekstri. Svo þegar blóð rennur þá finnst þessu máttlausa liði allt vera fullkomnað… Það sem virðist þó jákvætt er að væntanlega hefur Orri verið að taka góða bætingu þarna…klárað hana með stæl….!

(sjáið t.d.deddmyndina af Stebba stórskjóðu reyna við 400kg.. í frétt hér aðeins neðar á síðunni. það er listræn mynd og tekin á frábæru augnabliki af Jóa Omegakrafti..sú mynd sýnir átök í æðra veldi með þessum líka molanun!)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Stefán Sölvi Pétursson…smakkaði svona á 400 um árið..

-
Stórskjóðan er nýkominn frá kanalandi þar sem hann tók þátt í léttri kraftakeppni á vináttunótum í Texas og hét keppnin: Texas Strongman Classic. Þarna voru mest óþekktir molar sem áttu ekki roð í jötuninn frá víkingalandinu. Stebbi var mjög vinsæll á meðal áhorfenda fyrir afl sitt og frísklega framkomu. Hann deddaði þarna 365kg skítlétt en rétt missti svo 385 sem hann tekur örugglega í vor. Stórskjóðan sagði í léttu spjalli við fréttastofuna að hann þiggji ekki hið góða boð í landskeppnina við Kanada í júní þar sem hann ætlar að einbeita sér að aflraunum um sumarið. Kraftaheimar óska kappanum til hamingju með sigurinn!… Deddið með 365 má sjá HÉRNA

Bóndagangan hjá Stebba í Texas var sannkölluð veisla fyrir augað..HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramót ÍKF METAL í kraftlyftingum.  Skráningu má senda á sirmagistercat@gmail.com eða á fjolnirg@gmail.com, en Íslandsmeistaramótið er 5.apríl.

Einnig er hægt að skrá sig í Silfursporti.Staðsetning mótsins og tímasetningar verða auglýstar síðar.  Sama standard verður haldið í glæsileika og á bekkpressumóti ÍKF METAL, en þar var allt til fyrirmyndar hvað varðaði upphitunaraðstöðu, keppnissal, verðlaun og síðast en ekki síst öryggi keppenda, þar sem fílefldir stangarmenn sáu til þess að ekkert færi úrskeiðis.

Skráið ykkur sem fyrst, og takið þátt í móti ársins!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Sigfús Fossdal með sigurlaunin á IKF METAL í bekk í janúar

Á æfingu gærdagsins í Silfrinu fór Skyri mikinn og byrjaði á því að taka beygjur án stáls…Þar fór hann upp með 325kg í fínni lyftu og á eftir því deddaði hann 325 af öryggi. Með sinn góða bekk þá ætti tonnið að detta inn í totalinu á næsta móti…Kappinn vigtast núna 150+ og er út um allt….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ingibjörg Óladóttir páverdama

Heitkona Skyra Fúsdals, hin föngulega Ingibjörg Óla æfir páverinn vel um þessar mundir. Hún stefnir á reglulega keppni í þessari hrikalegu íþrótt sem konur klakans hafa almennt lítið sem ekkert þorað að stunda þrátt fyrir allt gerfi-jafnréttiskjaftæðið í femínistum og öðrum kellingum. Ingibjörg mætti í gær galvösk í Silfrið og deddaði vel….Fór það svo að undir vökulum bætinga-augum Skyrans reif hún upp 145kg!..Greinilegt að Skyrfrúin á eftir að gera það gott í þungagreinum páversins á árinu..þ.a.s. beygjum og deddinu….Bekkurinn kemur hinsvegar svona hægt og bítandi með kalda vatninu….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Guðsgreinin - Bekkpressan

Stundum kemur fyrir að Magister er spurður að því hvernig orðatiltækið TILVERURÉTTURINN á bekk varð til?..(150kg á kjötinu í bekkpressu)..Því er til að svara að eftir því sem gamli harði diskur Magisters man þá var fyrst byrjað að tala um þetta á Akureyri í gamla daga á blómatímum Freysa fursta,Vikka heimsskautabangsa ,Flosa Gull, Magister Cat ofl. á árunum 1983-1988. Rúnar fjósi datt einnig fljótlega inn í þennan farveg og var mikið talað um TILVERURÉTTINN þegar hann var að eflast sem ungur og efnilegur fjósasveinn….Ólafur Sigurgeirsson tók þetta svo opinberlega upp þegar hann nokkrum sinum sem kynnir á pávermótum sagði að munurinn á dreng og karlmanni kæmi oft fram við þessi 150kg mörk…
Magister samdi einu sinni nokkursskonar áskorunarbréf um TILVERURÉTTINN og hékk þetta bréf um tíma uppi á vegg í Jötunheimum,æfingastað pávermanna á Akureyri. Nýlega fann Magister afrit af þessu sögulega bréfi og birtist það hér fyrir neðan:

DAUÐDAGI OFURHUGA

Vegna þeirra ströngu lögmála sem ríkja og skilgreina KRAFT,MÁTTLEYSI og TILVERURÉTT, varð hann að taka þessa ákvörðun. Hann sem pávermaður gat eigi hugsað sér að ganga á yfirborði jarðar við óbreytt ástand. Hann varð að sanna sig. Munurinn á dreng og karlmanni kom einmitt fram við þessi mörk sem kynslóðir mola með svera handleggi og breiðan kassa hafa sett og virt mann fram að manni.
Nú var komið að því. - Var hann einn af þeim útvöldu? - Stöngin var fullhlaðin. Tilbúin. - Það var sjálfur TILVERURÉTTURINN!
Hann lagðist yfirvegað á ógnandi bekkinn og þandi latsa,kassa og taugar til hins ítrasta. Stundin var komin. Honum var rétt stöngin á beina arma. Þyngd fjallsins hvolfdist yfir hann. Augnablikið var yfirþyrmandi. Niðurferð stangarinnar hófst og hraðinn jóks og jókst…..Úrslitin voru ráðin. Galopin augun sáu brostinn drauminn þjóta sér mót. Og hann hrópaði í angist: “Mamma!” “Ég hef ekki TILVERURÉTT!” - Svo brast eitthvað í brjósti hans og sál og allt varð svart.
Fjallið er á sínum stað og TILVERURÉTTURINN bíður næsta ofurhuga….. Kannski ert það þú?

Sá sem á 150kg í bekk
hefur öðlast tilverurétt! — (Sókrates?)
Share on Facebook

Comments No Comments »

Palli fermeter eflist mun hraðara en lög gerðu ráð fyrir eftir að hann ákvað að fara til Kanada í sumar….Andinn er svo mikill að bætingarnar svífa nú ógnarhratt að sálu hans og skjóðu…Í dag í Silfursporti beyglaðist hann brókarlaus og kannaði sig vel…Það endaði með því að hann tók 10kg bætingu og fór skemmtilega með 300kg í beygjunni!…Miðað við þetta ætti í það minnsta 320-330 að fara á Íslandsmóti METAL 5 apríl og 340-350 í Kanada…Tíminn leiðir þetta í ljós…..